Morgunblaðið - 28.07.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996 B 19
ATVIN N UA UGL YSINGA R
Útgáfumál
Fiskifélag íslands leitar að aðilum sem vilja
annast útgáfumál fyrir félagið. Fiskifélagið
gefur út tímaritið Ægi, Sjómannaalmanakið
og Útveg. Um er að ræða einstaka þætti
útgáfunnar eða útgáfuna í heild.
Þeir aðilar, sem áhuga hafa, sendi nöfn sín
ásamt nánari upplýsingum um sig, til félags-
ins fyrir 15. ágúst nk.
Fiskifélag íslands
Höfn, Ingólfsstræti 1,
101 Reykjavík.
BESSASTAÐAHREPPUR
Hannyrðakennari
Laus er hálf staða hannyrðakennara við
Álftanesskóla í Besstaðahreppi.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst nk.
Upplýsingar gefur Erla Guðjónsdóttir, skóla-
stjóri, í símum 565 1198 og 565 3662.
EYRARSVEIT
Kennarar - kennarar
Að Grunnskólanum í Grundarfirði vantar til
starfa áhugasama og hressa kennara. Um er
að ræða almenna bekkjarkennslu í yngri bekkj-
um og einnig sérgreinakennslu, s.s. hand- og
myndmennt, íþróttir og raungreinar.
Skólinn er einsetinn, með 170 nemendur og
ágætlega tækjum búinn. Unnið er að stækkun
hans og verður ný álma tekin í notkun í haust.
Grundarfjörður er á norðanverðu Snæfellsnesi í fögru umhverfi. Hann er
vaxandi byggðarlag með rúmlega 900 íbúum. Atvinna er næg og stöðug
uppbygging. Hér erum við vel í sveit sett hvað samgöngur varðar. Dagleg-
ar rútuferðir og fleiri ferðir um helgar. í einkabíl tekur það um tvær og
hálfa klukkustund að aka milli Reykjavíkur og Grundarfjarðar og er bundið
slitlag á um 90% leiðarinnar.
Við leitum að kennurum sem vilja taka þátt
í að gera góðan skóla betri.
Aðstoðað verður við útvegun húsnæðis og
greiddur flutningsstyrkur.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri í símum
438 6637/438 6802 og aðstoðarskólastjóri
í síma 438 6772.
Skorpuvinna!
Fram í miðjan september
Tilvalin fyrir háskólastúdenta
Bókin íslensk fyrirtæki, sem komið hefur út
í 27 ár, er nú að fara af stað með sölu á
skráningum og vantar gott sölufólk.
Ennfremur vantar fólk sem getur unnið fram
yfir miðjan október við sömu störf.
Við leitum að:
• Duglegu fólki með afnot af bíl.
Við bjóðum:
• Góð afkastahvetjandi sölulaun.
• Mikla tekjumöguleika fyrir gott fólk.
Áður en sala hefst fara allir sölumenn á nám-
skeið til kynningar á íslenskum fyrirtækjum.
Vinsamlegast hafið samband við Hildi Kjart-
ansdóttur, ritstjóra, í síma 515 5631.
TSLENSK
IpYRIRTÆKI
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
TRYGGINGASTOFNUN
& RÍKISINS
Vegna breytinga sem ganga í gildi 1. októ-
ber 1996 á fyrirkomulagi á þjónustu við þá
skjólstæðinga Tryggingastofnunar ríkisins
sem fá neyðarhnappa tengda símkerfi aug-
lýsir Tryggingastofnunin eftir aðilum, sem
áhuga hafa á að taka að sér slíka þjónustu.
Gert er ráð fyrir að samið verði við þá aðila
sem uppfylla kröfur Tryggingastofnunar.
Þjónustan felst í rekstri og eignarhaldi nauð-
synlegs búnaðar (neyðarhnappa, upphringi-
og móttökubúnaði), svarþjónustu allan sólar-
hringinn og viðbrögðum við neyðarköllum,
t,d, að heimsækja þá sem neyðarboð senda
og kalla til nauðsynlega hjálp.
Upplýsingar um verkefnið verða afhentar hjá
verkfræðistofunni Rafteikningu hf. Borgar-
túni 17, 105 Reykjavík frá þriðjudegi 23. júlí
1996.
Fyrirspurnum og athugasemdum um þjón-
ustuna skal skila skriflega til sama staðar
merkt „TR - Viðvörunarkerfi/neyðarhnapp-
ar" í síðasta lagi 7. ágúst 1996. Öllum fyrir-
spurnum verður svarað skriflega innan viku
þaðan í frá.
Væntanlegir þjónustuaðilar skulu skila inn
útfylltu þar til gerðu eyðublaði ásamt um-
beðnum upplýsingum og öðru sem þeir vilja
koma á framfæri eigi síðar en kl. 16 mánu-
daginn 26. ágúst 1996 til verkfræðistofunnar
Rafteikningar hf. Borgartúni 17, 105 Reykja-
vík merktu „TR - Viðvörunarkerfi/neyðar-
hnappar - Þjónusta".
SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Nýtt sambýli
Þroskaþjálfar og stuðningsfulltrúar óskast
til starfa á nýtt sambýli í Grafarvogi sem
tekur til starfa í haust.
Leitaði er eftir áhugasömum starfsmönnum
með faglegan metnað og hæfni til að taka
þátt í uppbyggingu á nýju sambýli fyrir ungt
fatlað fólk.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Sigurðar-
dóttir í síma 562 1388 frá kl. 13-16.
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst nk.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
fjármálaráðuneytisins og Starfsmannafélags
ríkisstofnana.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist til Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra í Reykjavík, Nóatúni 17,
105 Reykjavík.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofunni.
F élagsmálas tofnun
Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39 • Sími: 588 8500 • Bréfasími: 568 6270
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar á næturvaktir við hjúkrunar-
heimili aldraðra, Droplaugarstaði, Snorra-
braut 58, frá 1. ágúst nk. Einnig vantar
sjúkraliða til starfa frá 1. september á ýmsar
vaktir.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Droplaug-
arstaða, í síma 552 5811, milli kl. 9 og 12
næstu daga.
Bræðrasmiðjan ehf.
Vantar 2-3 samhenta smiði.
Mikil vinna framundan.
Upplýsingar í síma 555 3988.
Þrif íheimahúsi
Starfskraftur t.d. í skóla óskast til að sjá um
þrif á ca 200 fm hæð í vesturbænum. Mjög
góð umgengni. T.d. á 10 daga fresti 4-5 tíma
í senn. Góð laun í boði.
Áhugasamir sendi umsóknir til afgreiðslu
Mbl. fyrir 7. ágúst, merktar: „Þrif - 1202“.
EJS óskar eftir
sölufulltrúum og
tæknimönnum
EJS er eitt særsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni. Þjónusta
ESJ nær til flestra hliöa nútíma upplýsinga- og samskiptatækni, allt frá
sölu og þjónustu á heimsþekktum vél- og hugbúnaði, til nýsmíða og þróun-
ar á hugbúnaði og lausnum fyrir atvinnulífið hérlendis sem erlendis.
EJS leggur metnað sinn í að bjóða starfsöryggi, jafnrétti, sanngjörn laun
og jákvætt, gefandi starfsumhverfi. Áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun
starfsfólks, sjálfstæði og hópvinnu.
Vegna stóraukinna verkefna óskar EJS eftir
að ráða öfluga og áhugasama einstaklinga
sem fyrst til starfa í verslun, söludeild og
netþjónustu.
• EJS netþjónusta
Netþjónusta annast þjónustu, ráðgjöf og
uppsetningu á tölvunetum, vélbúnaði og
hugbúnaði auk þjónustu við Microsoft not-
endahugbúnaði fyrir mörg af stærstu fyrir-
tækjum og stofnunum landsins. Um er að
ræða Windows NT netkerfi ásamt Microsoft
BackOffice lausnum, Internet tengingum,
samskiptum við önnur tölvuumhverfi o.fl.
Sérfræðingar EJS netþjónustu sækja Micro-
soft námskeið og gangast undir próf sem
veita réttindin „Microsoft Certified Pro-
fessional" (MCP). Leitað er að einstaklingum
sem tilbúnir eru að takast á við það nýjasta
í tölvuheiminum. Framhaldsmenntun t.d. í
tölvunarfræði, kerfisfræði, verkfræði eða
tæknifræði er æskileg. Þekking á Microsoft
hugbúnaði og uppbyggingu netkerfa einnig
æskileg.
Umsóknir berist Helga Þór Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra þjónustusviðs fyrir 7.
ágúst merktar: Starfsumsókn - Netþjónusta.
• EJSverslun
Starfið felst í almennri sölu á tölvubúnaði til
einstaklinga og smærri fyrirtækja. Leitað er
að einstakiingum með góða grunnmenntun,
góða framkomu og þjónustulund. Reynsla
af tölvunotkun nauðsynleg. Umsóknir berist
Guðjóni Kr. Guðjónssyni, verslunarstjóra fyr-
ir 7. ágúst merktar: Starfsumsókn - Verslun.
• EJSsöludeild
Söludeild annast dagleg samskipti við fyrir-
tæki og stofnanir, veitir ráðgjöf varðandi
kaup á tölvubúnaði og uppbyggingu upplýs-
ingakerfa og annast samskipti við erlenda
birgja. Leitað er að einstaklingum með fram-
haldsmenntun t.d. í tölvunar-, viðskipta- eða
verkfræði. Viðkomandi þurfa að eiga auðvelt
með hópvinnu, hafa gott vald á mæltu og
rituðu máli og hafa góða framkomu. Þekking
og reynsla í upplýsingatækni er æskileg.
Umsóknir berist Skúla Valberg Ólafssyni,
sölustjóra fyrir 7. ágúst merktar:
Starfsumsókn - Söludeild.
EINAR J. SKÚLASON Hf
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, s. 5633000.