Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 8

Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 8
8 B SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Kjöt og kartöflur AÐ er fleira matur en feitt kjöt, var „manneldishvatn- ing“ gamla tímans, líklega samsvarandi herferðum og átökum seinni tíma til að fá fólk til að borða hollan mat. Hvað er hollt vill að vísu sveiflast nokkuð eftir efnum og ástæðum - og tísku- straumum hvers tíma. „Kjöt og kartöflur“ hefur þó löngum staðið fyrir sínu á íslandi. Sam- anber hinn eina sanna sunnu- dagsmat mikinn hluta þessarar aldar, lamba- steikina með brúnuðum kartöflum og baunum. Eðlilegt, því þetta er okkar framleiðsla og herramannsmatur - svo fremi hráefnið sé nýtt. Það var því gaman að sjá að meistarakokk- arnir, sem keppa á Ólympíumóti kokka- landsliða í Berlín í næsta mánuði, hafa einmitt aðalkeppnisrétt sinn úr íslensku lamba- kjöti. Bera fullt traust til þess í þeirri gífurlegu matarsamkeppni sem þar verður. V æntanlega verð a þeir með það nýslátrað, því vandlátt matarfólk gerir orðið æ meiri kröfur til þess að mat- væli séu ný. Eftir því sem geymsla matvæla á sístyttum flutningaleiðum þróast fylgja breytingar eftir, frá því saltið var eina geymsluaðferðin sem dugði og saltfiskur vinsæll, þá tók við frysting sem ný geymsluaðferð og nú er unnt að flytja matinn ferskan um langar vegalengdir. Auðvitað taka sælkerar heimsins það fram yfir langgeymdan mat úr frysti. Jafnvel hér hjá okkur, þar sem við höfum af nauðsyn van- ist slíku langfrystu kjöti, er að vakna skilningur á því að það er neyðarúrræði. Það gladdi því mitt hjarta þegar fyrr en við höfum átt að venjast kom nú nýslátrað lambakjöt á markað og verður lengur á boðstólum. Eg fór snarlega í Hagkaup sem hafði tekið höndum saman við húnvetnska bændur um að byija að slátra fyrr og jafnóð- um. Fyrsta nýja kjötið kom ein- mitt á markaðinn um leið og nýja íslenska grænmetið. Ég keypti því snarlega nýslátrað lambakjöt og allt þetta nýja grænmeti upp úr íslenskum görðum og eldaði úr því kjöt- súpu. Gætti þess að eyðileggja ekki nýjabragðið með auka- kryddi. Fyrir það var ég auðvit- að tilbúin til að borga svolítið meira. Enda skilaði súpan þessu fínlega lambakjötsbragði sem maður á ekki að venjast meiri hluta árs. Sumt af grænmetinu var aðeins farið að lækka, en róf- urnar, gulræturnar og kartöfl- urnar voru á sínu dýrasta verði, en líka fínn matur. Kartöflurn- ar eru kapítuli út af fyrir sig. Oðrum megin í grænmetisborð- inu voru glænýjar dýrar ís- lenskar kartöflur og í borðinu á móti líka glænýjar kartöflur, sem ekki kostuðu nema um 90 kr. kílóið. Þetta voru smákart- öflurnar, sem við köllum smælki. Þegar þær eru svo nýjar að maður borðar þær með hýðinu, þá eru þær albestar. Og hollastar. Eru hreinasta hunang með bræddu smjöri. Smákartöflur verða seinna leið- inlegar af því hve tafsamt er að skræla þær. Ég keypti sem- sagt heilmikið af smælki á u.þ.b. þriðjungs verði ef ég man rétt. Og nú koma þær fréttir að meistarakokkarnir okkar ætli að hafa með lamba- kjötinu, glænýjar íslenskar kartöflur með hýðinu. Þær eins og allt hráefnið þeirra lífrænt ræktaðar. Þar skjóta þeir með þekking- una ref fyrir rass þeim mörgu íslendingum, sem halda að kartöflur séu „ófínt meðlæti“ nema gegnsósa í margnotaðri olíu. Það „fína“ sé að nota með öllum réttum „pasta“, jafnvel í þeirri trú að það sé hollur matur. En síðan hvenær var hveiti og vatn hollt? Auðvitað getur eitthvað sem maður bæt- ir svo út í það, eins og egg, bætt hollustuna. Spaghettí og pasta er upprunalega fátækra- maturinn á Ítalíu, til að fylla magann. Á öllum landsvæðum í heiminum er einhver undir- staða til að fylla maga fá- tækra, svo sem hrísgijónin í Asíu, kartöflurnar á megin- landi Evrópu, stóri rótarávöxt- urinn jam i Afríkulöndunum norðan miðbaugs o.s.frv. Það var undirstöðufæðan. Og þeir sem efni hafa á bæta svo öðru í eða með því. En semsagt kartöflur eru enn gómsæt fæða og holl af bætiefnum - sérstaklega meðan þær eru nýjar og hýðið borðað með - hvort sem þær koma að utan eða beint úr íslenskri mold. Og ætti fólk því að nýta sér þær á þeim tíma, þó þær séu ekki á verði fátækrafæðu, eins og þær voru oft hér áður fyrr, innfluttar engu síður en hérræktaðar. Hvert haust upp- hófust blaðaskrif um innflutn- ing á vondum kartöflum. Sverr- ir vinur minn Þórðarson blaða- maður barðist ár hvert harðri baráttu fyrir ætum karöflum - án mikils árangurs vegna ein- okunar á þessari fæðutegund. Nú eru gæðin orðin í lagi - þýðir ekki að bjóða annað. Semsagt áfram með smérið og nýju kartöflurnar! En verðið? Nú er ég búin að borða þessar ódýru fínu smælk- iskartöflur síðan nýja uppsker- an kom. En hef ég eitthvað upp úr því að kaupa þær ódýrari? Nei, kerfið sér fyrir því. Nýju, dýru kartöflurnar hafa séð til þess að afborgunin af lánum á íbúðinni minni hækkar næsta greiðsludag. Til þess eru reikn- aðar inn í vísitöluna nýjar kart- öflur sem hækkuðu á mánuði um 52% - ekki kartöflurnar mínar. Með þessu hafa kartöfl- urnar, sem ekki er óeðlilegt að kosti meira meðan þær eru nýjar og gómsætari, hækkað vísitöluna um 0,18% og skuldir heimilanna í landinu um 540 milljónir króna. Það er margt skrýtið í kýrhausnum - á kerf- inu. Maður getur ekki unnið! eftir Elínu Pálmadóttur MANNLIFSSTRAUMAR Veraldarvafstur //tvv v// mikla stœkkun leyftr bylgjulengd Ijóss? Undraheimar Gastons Naessens VIÐ GETUM búist við því að lands- lagið undir smásjám læknavísind- anna sé um það bil að breytast til mikilla muna. Kanadamaðurinn Gaston Naessens hefur fyrir all- nokkru fundið upp mjög öfluga smásjá sem hann kallar „somato- skóp“. Tækið getur stækkað frá 20 til 30 þúsundfalt eða vel yfir mörk- unum : 2,5 þúsundfalt, sem hingað til hefur verið reiknað með að ljósið gæfi möguleika á. Þetta óvanalega tæki, sem við höfum enn ekki séð, gæti því virst vera annað hvort brot á „náttúrulögmálunum“ eða hrein svik! Og þó að undarlegt sé, þá er tæki eins og þetta, sem fer enn langt fram úr öllum gerðum þekktra smásjáa að gæðum, þó því miður enn hreinlega ekki talið at- hugunarinnar virði. Það er vegna þess að skólabæk- urnar segja að þetta sé ekki hægt. Man nokk- ur eftir fyrstu flugvélinni? Það eru dæmi sem þessi sem segja okkur einnig hve stutt er á milli vísinda og trúar- bragða í hugum fólks. Vinna Naessens að þessu tæki eftir Einor Þorstein „Somato-skóp“-smásjáin. Tvenns konar ljós 1) og 2) mætist í 90 gráðu horni. Það fer síðan í gegnum mónókrómatiskan filter 3) og er meðhöndlað rafsegulsviði 4) (Zeeman áhrif). Þar á eftir mynd- ar sameinaði geislinn marga örfína samsíða geisla 5) sem fara í gegnum Kerr sellu 6) tíðni ljóssins. sem eykur er raunar ekki að öllu leyti ný. Hann byggir á reynslu R.R. Rife, merks læknis, sem tókst að gera smásjá, sem gat stækkað allt að 30 þúsundfalt án þess að drepa sýnishornið sem skoðað var. Rife taldi sig geta lýst lifandi vírusum með tæki sínu, en fullyrðing hans um að sýklar gætu breytt sér í vírusa og vírusar gætu breytt um form stangaðist hins vegar á við kenningar vísindanna um sýkla- fræði. Frakkinn Béchamp var á sama máli kringum 1875. Gaston Naessens er fæddur í Frakklandi árið 1924 og byijaði ungur að árum að vinna við upp- finningar. Tuttugu og eins árs gamall, að seinni heimsstyijöldinni lokinni, ákvað hann að vinna frek- ar að þróun smásjárinnar. Hann naut aðstoðar fínsmíða handverks- manna frá Wetzlar í Þýskalandi. En meginhiuti uppfinningar hans DANSA/ hvada hátt hafbi Harlem áhrif á danssöguna? Listsköpun í nætur- Idúbbum Harlem DANSTÓNLIST í dag er hröð, ein- föld, taktföst, fremur ómelódísk og það að dansa við hana býður upp á fremur takmarkaða möguleika. Dansinn byggist upp á því að negla fæturna niður í gólfið, dúa í hnján- um og hrista sig í takt við tónlist- ina. Lítill tími gefst til annarra hreyfinga nema þá kannski að hoppa eða baða út höndunum. Um er að ræða tilviljunarkenndan ein- staklingsdans þar sem hver dansari er sinn eiginn herra, kemst jafnvel í trans ef tónlistin er góð. Þessi „hristingur" (eins og sumir af eldri kynslóðinni vilja kalla það) er ef nánar er að gáð ekki nýr af nál- inni. Allt frá því rokktónlist í ætt við Bítlana og Rolling Stones kom til sögunnar á sjöunda áratugnum hafa einstaklingar notið frelsis á dansgólfínu. Þeir hafa hrist sig við tónlistina og ekki þurft að skeyta nokkru um dansfélaga sem áður voru bráðnauðsynlegir. FYRIR tíma rokksins giltu önnur viðmið á dansgólfinu. Flestir dansar voru pardansar sem kröfð- ust ákveðinnar kunnáttu af báðum aðilum. Bæði dömur og herrar þurftu að þekkja sín hlutverk á dansgólfinu og fæstir vildu verða sér til skammar með því að kunna ekki réttu sporin. Dans var félags- lega mikilvægur og gegndi stóru hinu daglega lífi, ekki eftir Rögnu Jónsdóttur hlutverki síst meðal þeirra sem sóttu dans- staði Harlem-hverfisins í New York. Harlem, svertingjahverfi að meirihluta, var bókstaflega iðandi af dansi eftir fyrri heimsstyijöldina. Svertingjar höfðu flust þangað í stórum hópum vegna aukins at- vinnuframboðs. Hverfíð óx gífur- lega hratt eða um 150.000 manns frá árinu 1914 til 1930. Nætur- klúbbar og dansstaðir voru á hveiju götuhorni en svertingjar hafa oft verið sagðir sérstaklega móttæki- legir fyrir dansi og nýja hverfið þeirra bar þess merki. Ein stór ástæða fyrir fjölda dansstaða í Harlem var líklega sú að svörtum var meinaður aðgangur að slíkum stöðum í öðrum hverfum borgarinn- ar. I staðinn opnuðu þeir sínar eig- in danshallir sem fylltust á hveiju kvöldi af fólki sem var komið ein- göngu til að dansa. Danshallirnar í Harlem voru fæð- ingarstaðir sífellt nýrra dansa sem til að byija með urðu vinsælir í Harlem, síðan allri New York og þar á eftir öllum stærri borgum og bæjum Bandaríkjanna og Evrópu. Fyrsti dansinn frá Harlem sem naut verulegra vinsælda um allan heim var Charleston. Upprunalega var hann dansaður af svörtum hafnar- verkamönnum í bænum Charleston í Suður-Karólínu. Dansinn var uppgvötaður af umheiminum árið 1926 eftir að hann sást í söngleik á Broadway en þá hafði hann verið dansaður í Harlem í mörg ár. Charl- eston fór eftir það sigurför um heiminn og allir vildu læra að dansa hann, þar með talinn prinsinn af Wales. Það tók heiminn nokkur ár að þreytast á Charleston en frá 1926-1930 var hann svo vinsæll að árlega var haldin heimsmeistara- keppni í listinni. Sérstök tíska fylgdi dansinum, langar perlufestar, hatt- ar með fjöðrum og fremur stuttir kjólar sem margir siðavandir áttu erfitt með að venjast. Meðan Evrópubúar og aðrir menningarvitar tóku danstíma í Charleston voru nýir dansar að ryðja sér rúms í Harlem, nánar til- tekið í Savoy-danshöllinni. Dans- gólfið í Savoy var samfélag með jafnstrangar reglur og salarkynni Versala forðum og skilgreinda virð- ingarröð. Bestu dansararnir áttu ákveðið horn á dansgólfinu þar sem óformleg keppni fór fram á hveiju kvöldi. Röð keppenda fór eftir orð- spori, óþekktu pörin dönsuðu fyrst og ríkjandi konungur og drottning dansgólfsins síðast. Álagið á dans- gólfinu var svo mikið að skipta þurfti um trégólf á þriggja ára fresti. Dansinn sem þróaðist úr þessari danskeppni varð vitanlega mjög erfiður og þurfti mikla þjálf- un til að standast þá hörðu sam- keppni sem ríkti á dansgólfinu. Sporin voru flókin og hröð, lyftur og stökk voru eftirsóknarverð en gæta varð þess að sýna engin merki um áreynslu eða erfiði. Sá dans sem naut mestra vinsælda kallaðist Lindy-hopp. Nafnið var upphaflega Lindbergh-hopp, skírt í höfuðið á Charles Lindbergh sem flaug fyrstur manna þvert yfír Atlantshafið. Dansinn fólst í því að henda dansfélaga sínum upp í loft, snúa honum á hvolf og draga hann upp úr gólfinu. Allt var þetta gert í nánu samspili við tónlistina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.