Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 B 23
ATVINNUA UGL YSINGAR
Seltjarnarnes
Óska eftir manneskju til að gæta fjögurra
ára stúlku fyrir hádegi virka daga.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„Nes - 18128“.
Hársnyrtisveinn
Óskum eftir að ráða hársnyrtisvein
til starfa strax.
Nýja Klippótek,
Hafnargötu 54, sími421 3428.
Snyrtifræðing
vantar sem fyrst á snyrtistofu á Akureyri.
Áhugasamir sendi upplýsingar um fyrri störf
og menntun til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Snyrtifræðingur - 4043“ fyrir 1. september.
Bókari - ritari
Útflutningsfyrirtæki á sjávarafurðum í Hafn-
arfirði óskar eftir bókara/ritara í hálft starf,
sem getur byrjað strax.
Kunnátta í Fjölni (Streng) bókhalds- og út-
flutningskerfinu nauðsynleg og reynsla og
staðgóð kunnátta í bókhaldi.
Upplýsingarveittará skrifstofunni Fornubúð-
um 8, Flensborgarhöfn kl. 13-17 næstu daga.
Símar 565 3525, fax 565 4044,
GSM 89 27020.
Hársnyrtiiðn
Óska eftir sveini eða meistara sem fyrst.
Gott útlit, hársnyrtistofa,
Nýbýlavegi 14, Kópavogi,
sími 554 6633.
Waldorf skólinn
Sólstafir
Grundarstíg 19, leitar að kennara og starfs-
fólki fyrir leikskóla. Áhugasamir hafi
samband í síma 552 1310.
Bakari
eða maður vanur matvælaiðnaði óskast til
starfa í traustu fyrirtæki í Reykjavík. Leitað
er að sjáflstæðum og áreiðanlegum manni.
Umsóknar, merktar: „Bakari - 1125“, sendist
afgreiðslu Mbl., fyrir 27. ágúst.
Hellulagnir
Vantar menn vana hellulögnum. Þurfa að geta
starfað sjálfstætt. Mikil vinna framundan.
Upplýsingar gefa Trausti eða Guðmann í sím-
um 588 3907 og 892 9177.
Tresmiðir
Vantar 2-3 trésmiði í langtímaverkefni.
Upplýsingar í síma 562 7780 eða 892 9010,
og á kvöldin í síma 554 5473.
K.S. verktakarehf.
Verkamenn óskast
Bygg. Gylfa og Gunnars ehf. óskar eftir að
ráða vana verkamenn í byggingavinnu og í
garðyrkjustörf.
Upplýsingar í síma 562 2991.
IÐNSKÓUNN í REYKJAVÍK
Húsvörður
Iðnskólinn í Reykjavík vill ráða húsvörð
sem fyrst.
Umsóknir berist skólanum fyrir 27. ágúst nk.
Afgreiðslustörf
Bókaverslun í Reykjavík óskar eftir starfsfólki
til afgreiðslustarfa. Um er að ræða framtíðar-
störf, hálfsdags og heilsdags. Viðkomandi
þurfa að geta hafið störf strax. Reynsla af
afgreiðslu í sérverslun æskileg.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. eigi síð-
ar en miðvikudaginn 28. ágúst, merktar:
„Bók - 4340“.
Starfsmaður óskast
til þjónustustarfa á verkstæði og úti í bæ.
Krefjandi starf þar sem eingöngu reglusam-
ir, heiðarlegir og vinnusamir menn koma til
greina.
Umsóknir og upplýsingar fást á skrifstofu
okkar, Vagnhöfða 6.
Kolsýruhleðslan sf.
Gott veitingahús
staðsett í miðbænum vantar tvo matreiðslu-
nema á samning. Umsóknir sendist
afgreiðslu Mbl. merktar: „Matur - 4047“.
Ljósmæður/
Hjúkrunarfræðingar
Ljósmóður eða hjúkrunarfræðing með Ijós-
móðurmenntun vantar til starfa á Heilsu-
gæslustöðinni á Vopnafirði.
Framtíðarstarf í góðu umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir Emil Sigurjónsson,
rekstrarstjóri, vs. 473 1225, hs. 473 1478.
Starfsfólk óskast
á hreinsibönd í rækjuverksmiðju. Unnið er á
tveimur vöktum. Einnig vantar laghentan iðn-
aðarmann til að sjá um viðgerðir, smíði úr
ryðfríu stáli o.fl.
Upplýsingar veitir Guðmundur Högnason í
síma 456 4911.
Frosti hf., Súðavík.
Starfskraftur óskast
í blóma- og gjafavöruverslun í Reykjavík.
Vaktavinna.
Leitum að líflegri, stundvísri og sjálfstæðri
manneskju með góða framkomu og reynslu
í blómaskreytingum. Meðmæli.
Þarf að geta byrjað strax.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „B - 826“.
Fatahreinsun
Viljum ráða starfsfólk við fatapressun og
frágang. Heilsdags- og hálfsdagsstörf.
Vinnutími kl. 8-17.
Upplýsingar í síma 561 1216.
Kjóll og hvítt, Eiðistorgi 15, Seltjarnarnesi.
MÚR- OG
MÁLNINGARÞJÓNUSTAN HÖFN
Réttarhálsi 2, s. 5875100
Málarar-
verkamenn
• Óskum eftir vönum verkamönnum í múr-
viðgerðir.
• Óskum eftir málurum í útimálun.
• Góð laun fyrir duglega starfskrafta.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Múr- og
málningarþjónustunnar Hafnar að Réttar-
hálsi 2, 110 Reykjavík.
Tónlistarskóli
Dalvíkur
Staða píanókennara er laus frá 1. september.
Upplýsingar í síma: 466-3157 Þuríður Sigurð-
ardóttir, formaður skólastjórnar, (fyrir há-
degi) og frá 29. ágúst í síma:
466-1493 Tónlistarskóli Dalvíkur og
466-1863 Hlín Torfadóttir skólastjóri.
Verkstjóri - Vélvirki
Verkstjóri - vélvirki óskast á verkstæði í
nágrenni Reykjavíkur.
Þarf að geta unnið sjálfstætt. Mikil vinna.
Aðstoð við útvegun húsnæðis.
Umsóknir óskast sendar til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „A - 4046“, fyrir 2. september.
Skrifstofustarf
Öflug fasteignasala óskar eftir starfskrafti
hálfan daginn. Starfið felst í umsjón með
auglýsingum, innheimtu o.fl. Leitum að lífleg-
um og kröftugum starfskrafti. Tölvukunnátta
nauðsynleg. Vinnutími frá 13-18 virka daga.
Þyrfti að hefja störf 1. september nk.
Umsóknir merktar: „Lífleg - 18130“ sendist
til afgreiðslu Mbl. fyrir 28. ágúst.
Hár
Ert þú duglegur meistari eða sveinn?
Viltu vinna sjálfstætt? Okkur vantar þig.
Upplýsingar næstu daga í símum:
Hrund, Rauðarárstíg, vs. 552 3455,
hs. 555 3017.
Simbi, Rauðarárstíg, vs. 552 3425,
hs. 552 2918
Ifélagar
Rauðarárstíg 41, sími 552 3455,
Skólavörðustíg 8, sími 552 3425.
EFTA dómstóllinn
Hjá EFTA dómstólnum i Luxemborg eru
lausar til umsóknar tvær lögfræðingsstöður.
Umsóknarfrestur er til 16. september. Verk-
efni annars lögfræðingsins verða aðallega
þýðingar á ensku úr norsku og á norsku úr
ensku, en hins frágangur texta á ensku. Þá
er þeim báðum ætlað að vinna að könnun
heimilda og að auki stjórnsýslu. Vinnumál
dómstólsins er enska. Nánari starfslýsing
fæst hjá skrifstofu dómstólsins:
EFTA Court,
1, rue Fort Thungen,
L-1499 Luxembourg,
fax+352 43 43 89.