Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 2

Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Vilja yfir- taka rekst- urKÍ KAUPFÉLAG Suðurnesja hef- ur lýst yfir áhuga á að yfír- taka rekstur Kaupfélags ís- firðinga. Rekstur kaupfélags- ins fyrir vestan hefur gengið illa að undanförnu. Guðjón Stefánsson, kaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Suður- nesja, sagði að áhugi væri fyr- ir því að kaupa rekstur, búnað og vörulager Kaupfélags ís- firðinga. Hann vildi ekki gefa upp í hveiju tilboð Kaupfélags Suðumesja fælist. Aðeins að svars væri að vænta fljótlega. Guðjón sagði að ástæðan fyrir því að gert væri tilboð í reksturinn fælist í trú á því að hægt væri að gera betur en nú. Gert væri ráð fyrir að bjóða góða þjónustu og gott vöruúrval. Stefnt yrði að því að vöruverð yrði lægra en nú. Busarnir sóttir í eðalvögnum BUSAR í Árbæjarskóla biðu spenntir heima hjá sér í gær- kvöldi eftir að vera sóttir á ár- legt Rósaball. Hjá sumum renndu eðalvagnar í hlað og prúðbúinn eldri nemi af gagnstæðu kyni steig út, bauð rós og sæti í lim- ósínunni. Þessi háttur hefur verið hafð- ur á busavígslum í skólanum síð- ustu ár og aðrar miður blíðlegar aðfarir hafa látið undan síga. Allir nýnemar eru sóttir heim til sín og fá rós frá eldri nema. Busunum er úthlutað handahófs- kennt til eldri nema og enginn hinna fyrrnefndu veit fyrr en á síðustu stundu hver kemur að sækja hann á Rósaballið. Ákveðn- ar hefðir hafa skapast í kringum dansleikinn og nemendur leggja mikinn metnað í að hann takist sem best, enda er hann fjölsótt- asti dansleikur ársins í skólanum. FRÉTTIR Bæjarfulltrúar Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði um Miðbæ Yilja ítarlega skýrslu um stöðu bæjarsjóðs FULLTRÚAR Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn Hafnaríjarðar, þeir Lúðvík Geirsson og Magnús Jón Árnason, fluttu tillögu þess efnis á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag að tekin verði saman ítarleg skýrsla um stöðu bæjarsjóðs Hafnarfjarðar vegna kaupa og lyfirtöku eigna í svonefndu Miðbæjarhúsi. Var sam- þykkt einróma að vísa tillögunni til bæjarráðs. Tillaga bæjarfulltrúanna var svo- hljóðandi: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkir að fela bæjarendurskoðanda og skoðunarmönnum að taka sam- an ítarlega skýrslu um stöðu bæjar- sjóðs Hafnarfjarðar vegna kaupa og yfirtöku eigna í svonefndu Mið- bæjarhúsi og annarra fjárskuld- bindinga og framlaga úr bæjarsjóði vegna framkvæmda við umrætt hús frá upphafi og á hvaða heimildum og samþykktum þær byggjast. Gerð verði ítarleg grein fýrir viðskiptum bæjarsjóðs og Miðbæjar Hafnar- fjarðar ehf. og annarra þeirra aðila, stofnana og fyrirtækja sem komið hafa að byggingar- og framkvæmd- armálum Miðbæjarhússins. I skýrslunni verði m.a. gerð ítar- leg grein fyrir veittum ábyrgðum og heildarfjárframlagi bæjarsjóðs vegna byggingarinnar, lóðamála og ytri frágangs á svæðinu. Tilurð eignarhluta bæjarsjóðs í húsinu, bókfærðum tekjum, veittum afslátt- um og ívilnunum, áföllnum rekstr- arkostnaði þar á meðal ýmiss konar verkfræði- og lögfræðiráðgjöf og fjármagnskostnaði bæjarsjóðs vegna framkvæmdanna og yfírtöku eigna bæði í miðbæ Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Þá verði gerð grein fyrir heildaráhrifum fjármögnunar bæjarsjóðs vegna Miðbæjarhúss á skuldastöðu og rekstur bæjarfé- lagsins. Þess er farið á leit að skýrslan gefi greinargóða mynd af öllum viðskiptum bæjarsjóðs og stofnana | hans vegna framkvæmdamála í miðbæ og reki á greinargóðan hátt málavexti allt frá upphafi. Skýrsla þessi verði lögð fyrir bæjarráð hið fyrsta og eigi síðar en 1. desember nk. Morgunblaðið/Golli ÞRJÁR námsmeyjar úr 10. bekk Árbæjarskóla standa hér með herramönnunum úr 8. bekk sem þær sóttu heim á eðalvagni. Meirihluti fallinn í Borgarbyggð Borgarnesi. Morgunblaðið. MEIRIHLUTASAMSTARFI byijað væri á sparnaði ofan frá Alþýðubandalagsins og Fram- sóknarflokksins í Borgarbyggð er lokið. „Ég ákvað að stíga það skref í dag að slíta meirihlutasamstarfí mínu við Framsóknarflokkinn“, sagði Jenni R. Ólason fulltrúi Al- þýðubandalagsins í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Aðspurður um ástæður sagði Jenni þær vera ágreining um leið- ir til þess að spara fjármuni í rekstri sveitarfélagsins. „Það hafa býsna lengi staðið yfír harðar deil- ur um þessi mál á bak við tjöld- in“, sagði Jenni. Hann sagði að þessar deilur hafi endað þannig að í dag [í gær] hafi framsóknar- menn ákveðið að leggja fram tvær tillögur, aðra um spamað hjá starfsfólki leikskólans Klettaborg- ar í Borgarnesi en hin tillagan hafi fjallað um að selja vélar áhaldahússins og segja þar upp tveimur starfsmönnum og semja síðan við verktaka um þeirra störf. Kvaðst Jenni ekki vera á móti sparnaði en ætíð hafa lagt til að en ekki neðan frá. Hann kvaðst hafa þverskallast við og neitað að þessi leið yrði farin. Sagði Jenni að framsóknarmenn hefðu brotið málefnasamninginn með þessum tillögum. Hann léti þá ekki valta yfir sig og því hefði hann stigið þetta skref. Nýr meirlhlutimyndaður á næstu dögum? Þar sem tillagan um sparnaðinn í rekstri leikskólans var samþykkt með því að sjálfstæðismenn sátu i hjá og tillagan um áhaldahúsið var samþykkt með atkvæðum fram- I sóknar- og sjálfstæðismanna, j gegn atkvæðum fulltrúa Alþýðu- bandalagsins og Alþýðuflokksins, þykir líklegra að framsóknarmenn og sjálfstæðismenn reyni að hefja meirihlutaviðræður en að fram- sókn fái alþýðuflokksfulltrúann til liðs við sig. Ekki náðist í Guðmund Guð- marsson, forseta bæjarstjórnar, í gærkvöldi vegna þessa máls. Verkalýðsleiðtogar fara yfir breytingar á vinnulöggjöfinni Samningar í aukn- um mæli á starfs- greinagrundvelli Morgunblaðið/Ásdfs FORYSTUMENN verkalýðsfélaga funduðu með lögfræðingum Alþýðusambands íslands í gær um hvað þær breytingar sem gerðar voru á vinnulöggiöfinni í vor hefðu í för með sér. MAGNÚS L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, segir að sér sýnist að þær breytingar sem gerðar voru á vinnulöggjöfinni í vor muni verða til þess að kjarasamningar muni í auknum mæli færast á starfs- greinagrundvöll og jafnvel í það form að samningar verði gerðir við einstök stærri fyrirtæki. Forystumenn verkalýðsfélaga fóru í gær með lögfræðingum Al- þýðusambands íslands yfir það hvað þær breytingar sem gerðar voru á vinnulöggjöfinni í vor þýddu og hveiju þær breyttu varðandi gerð samninga og annað sem því tengist, en kjarasamningar eru lausir nú um áramótin. Magnús sagði í samtali við Morgunblaðið að í framhaldinu myndu menn hverfa hver til síns heima og kynna niðurstöðuna á stjórnarfundum. Fara ofan í það í smáatriðum hvað þessar breytingar þýddu og hvaða skref ætti að taka næst. Miklar breytingar Magnús sagði að sú vinnulög- gjöf sem samþykkt var á Alþingi í vor hefði rniklar breytingar í för með sér. Til dæmis þyrftu menn að byija á því að ná samningum við vinnuveitendur um gerð við- ræðuáætlunar og hún þyrfti að liggja fyrir tíu vikum áður en samningar rynnu sitt skeið á enda. Búast mætti við að VR óskaði eftir viðræðum við vinnuveitendur um viðræðuformið fljótlega vegna þessara tímamarka. Magnús sagði að sér sýndist að í kjölfar þessara breytinga á vinnulöggjöfinni muni kjarasamn- ingar í auknum mæli færast á starfsgreinagrundvöll og jafnvel í það form að samningar verði gerð- ir við einstök stærri fyrirtæki. Hann sagði ennfremur að þessa dagana væri verið að funda með starfsgreinafulltrúum VR og fara yfír hvaða leiðir væri vænlegast að fara í komandi samningum og hann gerði ráð fyrir að eftir um hálfan mánuð yrðu línurnar farnar að skýrast í þeim efnum. Bensín hækkar OLÍUFÉLÖGIN hækkuðu í gær verð i á bensíni og gasolíu um 90 aura lítr- ann og tonnið af svartolíu um 500 krónur vegna hækkandi verðs á al- j þjóðlegum olíumörkuðum að undan- fömu. Almennt verð á 95 oktana bensíni hækkar úr 75,10 kr. í 76 kr. lítrinn, en frá því verði er svo veittur afsláttur vegna sjálfsafgreiðslu. Almennt verð á gasolíu til skipa hækkar úr 23,50 kr. í 24,40 kr., gasolía á bíla hækkar úr 28,50 kr. í 29,40 kr. og verð skipagasolíu fer úr 19,30 kr. í 20,20 kr. Kristinn Björnsson, forstjóri Skelj- ungs hf., segir að verð á olíu á heims- markaði hafí farið hækkandi að und- anförnu af þremur ástæðum. í fyrsta lagi sé komið fram á hið hefðbundna hækkunartímabil, þ.e.a.s. haustið, þegar olíuverð hækki að jafnaði vegna aukinnar notkunar. I öðru lagi hafi átök brotist út á ný á Persaflóasvæðinu. í þriðja lagi hafi ekki gengið eftir væntingar um i að írakar fái að setja töluvert magn af hráolíu á markað. írakar hafi ver- ið búnir að fá heimild til að hefja sölu á olíu, en það virðist hafa geng- ið til baka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.