Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ 6 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 FRÉTTIR Trjávöxtur hjá flestum tegundum hefur verið með besta móti í sumar Arssprotar á víði meira en tveir metrar TRJÁVÖXTUR hefur verið með besta móti í sumar og eru þess dæmi að hraðvaxnar víðitegund- ir hafi bætt við sig meira en tveimur metrum. Jóhann Pálsson, garðyrkju- stjóri Reykjavíkurborgar, segir tijávöxtinn í sumar þann jafn- besta sem verið hafi í langan tíma. Þar hjálpist margt að, jafnt hagstætt veðurfar sem aðrir umhverfisþættir. „Yfirleitt kom trjágróður vel undan vetrinum og það urðu heldur engin áhlaup í vor sem seinkuðu vextinum. Það var dálítið um maðk hér og þar, sérstaklega á birki, en almennt var þó minna um maðk en vant er,“ segir hann. Geitungar í sólberjaveislu „Á hraðvöxnum víði eins og t.d. alaskavíði sér maður árssprota sem eru yfir tveggja metra langir og á sumum tegundum má víða sjá óvenjustór blöð, t.d. á alaska- ösp. Vöxtur barrtijáa hefur líka verið í betra lagi, en þau vaxa raunar samkvæmt forskrift frá árinu áður. Öll meginfrumuskipt- ing á sér stað árið á undan, en þá ákvarðast hversu mörg börr vaxa á greininni. Sumarhitinn getur svo ákvarðað hvað teygist úr henni, en liðfjöldinn liggur fyrir árið áður,“ segir Jóhann. Vegna þess hve síðsumarið í fyrra var gott, var blómgun líka mikil þannig að víða er mikið af beijum á tijám. „Fyrir utan hjá mér eru geitungarnir núna í mik- illi sólbeijaveislu. Reyniber eru þegar þroskuð víða og ég held að ég hafi varla séð meira af reynibeijum en í ár,“ segir Jó- hann. Lerkitré setja árssprota í annað sinn Þór Þorfinnsson, skógarvörð- ur á Hallormsstað, hefur svipaða sögu að segja og Jóhann. „Hér hefur verið góður vöxtur í nán- ast öllum tijátegundum í sumar. Þetta hefur verið mikil gróðrar- tíð, ekki síst vegna þess að við höfum fengið góðar gróðrar- skúrir inn á milli. Þetta hefur ekki verið mikið þurrkasumar eins og oft vill verða þegar hlý- indi eru mikil en þá skrælnar allt. Nú er veðurfarið alveg eins og eftir pöntun,“ segir hann. Á Hallormsstað eru þess dæmi að lerkitré séu farin að selja árssprota í annað sinn í sumar. Að sögn Þórs stöðva þau vöxtinn seint í júlí og fara að búa sig undir veturinn, „ganga frá sér,“ eins og það er kallað. „I sumum árum þegar hlýindin eru svona mikil og langvarandi gerist það að tréð gengur frá toppsprotan- um og byrjar svo að vaxa aftur. Nú vonar maður bara að það komi ekki frostnætur strax þann- ig að þau nái að ganga frá sér aftur og kali ekki. Því ef það gerist er sá toppur ónýtur," seg- ir Þór. Morgunblaðið/Ásdís JÓHANN Pálsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, mælir hér orðum sínum til staðfestingar árssprota alaskavíðis við Þorfinns- götu. Hann reyndist vera tveir metrar og fimm sentimetrar. Einkar hlýtt á hálendinu Gangna- menn fá gott veður GANGNAMENN um landið allt þurfa ekki að óttast kulda um helgina. Hins vegar er full ástæða fyrir sunnlenska gangnamenn að búa sig undir þoku og rigning- arsudda. Norðanlands eru horfur á ágætis veðri. Bragi Jónsson, veðurfræðing- ur, sagði að gert væri ráð fyrir að hiti færi í allt að 20 stig und- ir helgina. Hiti yrði væntanlega 10 til 12 stig í þokunni og súld- inni við suðurströndina. Allt að 15 til 20 stiga hiti og bjartviðri yrði hins vegar norðanlands um helgina. Hlýtt á hálendinu Bragi sagði að háþrýstisvæði suður af landinu hefði valdið hlýrri suðlægri átt með þoku og súld á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti hefði verið 10 til 12 stig eða þokkalegur miðað við árstíma. Hins vegar hefði hiti farið upp í 17 til 20 stig í bjartviðrinu suð- austan- og austanlands að undan- förnu. Einkar hlýtt hefur verið á há- lendinu miðað við árstíma. Hiti fór t.a.m. upp í 10 stig á Hveravöllum í gærmorgun. Á Austurlandi var hiti 10 til 16 stig kl. 9 í gærmorg- un. Kaldast var hins vegar á Rauf- arhöfn í gærmorgun. Þar var nærri heiðskírt í fyrrinótt. Fyrstu nið- urstöður lofa góðu ENDANLEGAR niðurstöður efnagreiningar á jarðvegs- sýnum vegna gullleitar við Hafravatn eru væntanlegar fljótlega. „Það hafa verið að reytast inn einhverjar niðurstöður en það er ekkert búið að vinna úr þeim ennþá. Við gerum ráð fyrir að allar nið- urstöður liggi fyrir í lok þessa mánaðar og þá erum við reiðubúnir til að fjalla um framhald," segir Hall- grímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnunar. Hjalti Franzson, jarðfræð- ingur hjá Orkustofnun, kveðst bjartsýnn á framhald- ið. „Þær niðurstöður sem þegar eru komnar lofa það góðu að ef þær sem við erum enn að bíða eftir eru jafngóð- ar þá verður haldið áfram,“ segir hann. Morgunblaðið/Kristinn Japanskur prins og prinsessa í heimsókn PRINS og prinsessa Tak- amado frá Japan áttu stutta viðdvöl hér á landi í gær á leið sinni frá Kaupmannahöfn til Grænlands. Prinsinn er frændi Akihitos Japanskeisra. Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Guð- rún Katrín Þorbergsdóttur buðu þeim til hádegisverðar, en eftir það var ekið að stofn- un Árna Magnússonar, þar sem prinsinn og prinsessan skoðuðu handritin undir leið- sögn Stefáns Karlssonar, for- stöðumanns Árnastofnunar. Frá Árnastofnun var farið til Reykjavíkurflugvallar og það- an héldu prinsinn og prinsess- an áfram ferðinni til Græn- lands um miðjan dag í gær. Dómsmálaráðuneytið svarar sýslumanni Barðstrendinga Reglur um ínyndir af forseta Islands ekki til DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ segir í bréfi til sýslumannsins á Patreks- firði að eðlilegt sé að mynd af for- seta Islands prýði opinberar stofn- anir. Eðlilegt sé að forstöðumenn stofnana snúi sér til skrifstofu for- seta Islands með ósk um mynd af nýkjörnum forseta. Félag um for- setaframboð Ólafs Ragnars Gríms- sonar hefur sent fjölmörgum aðilum bréf þar sem bók og mynd af for- seta íslands er boðin til kaups. Sýslumenn iandsins hafa m.a. feng- ið boð um að kaupa bókina og myndina. Dómsmálaráðuneytið sendi STEINDÓR Ögmundsson, stjórn- arformaður sjúkrahússins á Pat- reksfirði, segir að tölur sem komu fram í Morgunblaðinu í gær um tap á rekstri sjúkrahússins séu rangar. Hann segir að í fyrra hafí tapið ekki verið þrettán milljónir króna eins og stóð heldur 5,7 milljónir króna. í ár sé gert ráð fyrir að tapið verði minna en í fyrra, en ekki yfir tíu milljónum króna eins og stóð. Tölurnar í fréttinni í gær voru teknar úr skýrslu Sigfúsar Jónssonar ráðgjafa. I dag hefur heilbrigðisráðuneytið Morgunblaðinu í gær afrit af svari þess við bréfí sýslumannsins á Pat- reksfírði. Bréfíð hefur verið sent öllum sýslumannsembættum á landinu. Engar formlegar reglur eru til um myndir af forseta íslands í opin- berum stofnunum. Myndir af frú Vigdísi Finnbogadóttur, fráfarandi forseta, hafa prýtt veggi margra opinberra stofnana. Þær má m.a. finna á lögreglustöðvum, hjá sýslu- mannsembættum og á flugvöllum. Að sögn Kornelíusar Sigmundsson- ar forsetaritara keyptu flugvellirnir mynd af frú Vigdísi fyrir nokkrum boðað fund á Patreksfirði með ný- skipuðum tilsjónarmanni sjúkra- hússins, stjóm og framkvæmda- stjóra. Steindór segir að stjómin fagni komu tilsjónarmannsins, Halldórs Jónssonar, framkvæmda- stjóra Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, enda hafi hún beðið um að tilsjónarmaður yrði fenginn til að greiða úr deilu stjómar og fram- kvæmdastjóra.“ Steindór segir vafasamt hvort skipunarbréf tilsjónarmanns standist lög. Samkvæmt því sé hann nær einvaldur um málefni sjúkrahússins. árum og gengu greiðslurnar beint til ljósmyndarans án milligöngu for- setaskrifstofunnar. Kornelíus sagði að að jafnaði bærist þó nokkuð af beiðnum til forsetaskrifstofunnar um mynd af forsetanum og í tíð fráfarandi for- | seta hefði jafnan verið til þar mynd j af forsetanum, prentuð á ódýran pappír, og hún hefði verið látin í té án endurgjalds. Þórólfur Halldórsson, sýslumað- ur á Patreksfirði, sagðist vera þeirr- ar skoðunar að eðlilegt væri að mynd af forseta Íslands prýddi opin- berar stofnanir. Ástæða fyrirspurn- ar sinnar til dómsmálaráðuneytisins væri sú að hann vildi vita hvort einhverjar skráðar reglur væm til um þessar myndir og hver ætti að I bera kostnað af kaupum á mynd | af forsetanum. Hann sagðist í fram- haldi af svarbréfi ráðuneytisins ætla að snúa sér tii forsetaskrifstof- unnar með ósk um að fá mynd af nýkjörnum forseta. Bók um forsetaframboðið Þórólfur Árnason, sem situr í stjórn Félags um forsetaframboð i Ólafs Ragnars Grímssonar, sagði að félagið hefði ákveðið að gefa út 1 bók um forsetaframboð Ólafs Ragn- I ars, aðdraganda þess, kosningabar- áttu og úrslit. Bókin yrði ríkulega myndskreytt. Tilgangurinn væri m.a. sá að afla fjár til þess að greiða kostnað við kosningabaráttu Ólafs Ragnars. Rætt hefði verið um að láta fylgja með bókinni minjagrip og mynd af forsetahjónunum sem send var til kjósenda skömmu fyrir I kjördag. Umrædd mynd væri ekki . opinber forsetamynd af nýkjörnum forseta heldur mynd sem tekin var • í kosningabaráttunni. Sjúkrahús Patreksfjarðar Tapiðífyrra var 5,7 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.