Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Morgunblaðið/Hörður Andrésson Fokdýr túnfiskur ÞENNAN VÆNA túnfisk fengu japanskir túnfiskveiðimenn innan íslenskrar landhelgi en þeir voru þar á tilraunaveiðum í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Hörður Andrésson, líffræðingur, var með í för og segir hann að fiskurinn hafí vegið heil 337 kíló og var hann sá stærsti í túrnum. Miðað við túnfískverð á fiskmörkuðum í Japan í fyrra fengjust um 808 þúsund krónur fyrir flykkið. Vegna frekar lélegrar túnfiskveiði á þessu ári hefur eftirspurn eftir túnfisk aukist og reikna má með að verð hækki enn frekar. Því má ætla að einn slíkur fískur kosti nálægt einni milljón króna. Það er því óhætt að segja að hann sé fokdýr Trostan með skel- vinnslu á Brjánslæk FYRIRTÆKIÐ Trostan hf. á Bijánslæk hefur fullgilt leyfi til vinnslu á hörpudiski, en hefur ekki umráð yfír heimildum til veiða á skelinni. Fýrir vikið er ekki vinnsla þar sem stendur, en fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, Eirík- ur Böðvarsson, segir ekkert því til fyrirstöðu að vinnsla geti hafizt þar. Það sé ekki rétt sem fram komi í frétt sérblaðs Morgunblaðs- ins um sjávarútveg, ÚR Verinu, í gær að ekki sé hægt að vinna hörpudisk á Brjánslæk. Lögum samkvæmt eru leyfi til veiða á hörpudiski bundin því að honum sé landað á ákveðnum stöð- um. Tveir kvótar hafa verið bundn- ir bátum á Bijánslæk. Annar þeirra var seldur til Fiskiðjunnar Skagfírðings á Grundarfirði og var það ætlun fyrirtækisins að vinna skelina í Grundarfirði. Samkvæmt lögunum er það óheimilt og er skylt að landa skelinni til vinnslu á Bijánslæk. Hinn báturinn, Hrönn, er enn gerður út frá Bijánslæk og hefur einn kvóta. Gert ráð fyrir að hún landi hjá Trostan, en ætlun stjórnenda fyrir- tækisins er að fá hinn kvótann tii vinnslu líka, til auka hagkvæmni við vinnsluna. Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva AÐALFUNDUR Samtaka fisk- vinnslustöðva verður haldinn í Skíðaskálanum í Hveradölum á morgun. Fundurinn hefst klukkan 10.00 og lýkur honum síðdegis með heimsókn í Granda hf. For- maður samtakanna, Arnar Sigur- mundsson, flytur skýrslu stjórnar, Ágúst H. Elíasson, framkvæmda- stjóri SF fjallar um laun og launa- kostnað í fískvinnslu og Jón Þórð- arson, forstöðumaður sjávarút- vegsdeildar Háskólans á Akureyri fer yfír stöðu fiskvinnslu á íslandi og í Noregi. Að loknum dádegisverði flytur sjávarútvegsráðherra Þorsteinn Pálsson erindi. Að því loknu fjallar Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater um markaðinn fyrir sjávarafurðir í Bandaríkjunum, Höskuldur Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Iceland Seafood Ltd. í Hull, fjallar um markaðinn í Evrópu og Gunnar Örn Kristjáns- son, framkvæmdastjóri SÍF fer yfir saltfískmarkaðina. Loks flytur Geir A. Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Marel, erindi um fískvinnsluhús framtíðarinnar. Loks verða pallborðsumræður undir stjórn Páls Benediktssonar, fréttamanns. Þátttakendur verða Einar Svansson, Magnús Gústafs- son, Logi Þormóðsson, Sighvatur Bjarnason, Steingrímur J. Sigfús- son og Þráinn Þorvaldsson. Tíu útgerðir eru í Félagi úthafsútgerða TÍU útgerðir eru nú innan vébanda Félags úthafsútgerða og gera þær út 13 skip. Félagið áætlar að á ársgrundvelli sé aflaverðmæti þessara skipa um það bil fjórir milljarðar króna, en það svarar til 8 til 9% heildaraflaverðmætis alls íslenzka fiskveiðiflotans. Eins og nafn félagsins bendir til er megnið af afla skipanna tekið utan lög- sögu, en mörg þeirra hafa ekki leyfí til veiða innan lögsögunnar. Þingmenn repúblikana á fundi um forsetakosningarnar Óttast um sætið bíði Dole afhroð Baker, Washington. Reuter. BOB Dole, forsetaefni bandarískra repúblikana, átti í gær fund með þingmönnum flokksins en þeir eru farnir að hafa áhyggjur af litlu gengi hans og óttast, að það kunni að skaða þá sjálfa og flokkinn í þing- kosningunum, sem verða samtímis forsetakosningunum 5. nóvember. Ross Perot kynnti í fyrrakvöld vara- forsetaefni sitt og er um að ræða lítt kunnan hagfræðing, sem andvíg- ur er samningum um viðskiptafrelsi. Dole og varaforsetaefni hans, Jack Kemp, ræddu við þingmennina í þinghúsinu í Washington og þar sagði Dole, að þegar kjósendur færu að velta því fyrir sér hveijum væri best treystandi myndu þeir flykkjast um hann og leiða hann til sigurs í kosningunum í nóvember. Kvaðst hann viðurkenna, að það hallaði á sig í skoðanakönnunum en sagðist oft hafa mætt meiri andbyr en nú en þó haft sigur að lokum. Fyrir fundinn var það haft eftir aðstoðarmönnum Doles, að þetta væri síðasta tækifæri hans til að fylkja þeim að baki sér. Þingmenn- irnir óttast, að bíði Dole mikinn ósig- ur fyrir Clinton, geti það líka kostað þá meirihlutann á þingi og sumir eru farnir að forðast Dole og kosn- ingabaráttu hans. Nokkrir hafa jafn- vel hætt öllum árásum á Bill Clinton forseta og hreykja sér þess í stað af góðu samstarfi við hann. Dole í vörn Svo virðist sem forskot Clintons á Dole sé að aukast og samkvæmt Gallup-könnun USA Today/CNN frá í fyrradag hefur hann 21% umfram keppinaut sinn. Síðustu daga hefur hann hert árásir sínar á Dole og sér- staklega núið honum um nasir að hafa barist gegn foreldraleyfinu svo- kallaða. Samkvæmt því mega laun- þegar vera heima vegna veikinda bama sinna eða maka í allt að þijár vikur á ári launalaust en án þess að eiga á hættu að missa vinnuna. Hefur Dole átt í vök að veijast í þessu máli og Clinton hefur einnig tekist að koma höggi á hann með því að fullyrða, að nái stefna Doles fram að ganga muni það þýða stór- kostlegan niðurskurð í trygginga- kerfinu. Varaforsetaefni Perots Ross Perot kynnti varaforsetaefni sitt, Pat Choate, lítt kunnan hag- París. Reuter. FRANSKUR dómstóll hefur hafnað því að banna bók eftir fyrrverandi félaga í sveitum, sem börðust gegn hryðjuverkum í stjórnartíð Francois heitins Mitterrands, forseta Frakk- lands. Þar er því meðal annars hald- ið fram, að einn aðstoðarmanna forsetans hafi verið myrtur í for- setahöllinni. Það var Michei Charasse, fyrr- verandi ráðgjafi Mitterrands, sem krafðist þess, að bókin væri bönnuð en hún heitir „Leynistríðið í Elysee“ og er eftir Paul Barril, fyrrverandi lögregluforingja. Þótt kröfu hans um útgáfubann væri hafnað, þá skipaði dómstóllinn forlaginu að láta þess getið með áberandi hætti fræðing og mikinn andstæðing NAFTA, Fríverslunarbandalags Norður-Ameríku. Ekki er talið lík- legt, að hann muni mikiu breyta fyrir Perot, sem fær aðeins stuðning 5% í skoðanakönnunum. Útgefandi lagsins „Soul Man“, sem vinsælt var á sjöunda áratugn- um, hafa skrifað kosningastjórum Doles og skipað þeim að hætta að nota lagið í kosningabaráttunni. Hefur því að vísu verið breytt lítil- lega og heitir nú „Dole Man“ en talið er, að kosningaskrifstofa Doles verði að sjá af nokkrum milljónum króna í skaðabætur fyrir að hafa tekið það ófrjálsri hendi. alls staðar þar sem bókin væri seld, að Charasse vísaði fullyrðingum höfundarins á bug. Gilles Menage, fyrrverandi j starfsmannastjóri Mitterrands, hef- ; ur einnig höfðað mál til að fá bók- ina bannaða en í henni eru hann og Charasse sakaðir um að hafa skipað fyrir um morð á Francois de Grossouvre, aðstoðarmanni for- setans. Lögfræðingur Charasse sagði einnig, að skjólstæðingur sinn myndi fara fram á tugmilljónir króna í skaðabætur. Barril segir, að Grossouvre hafi líklega verið myrtur vegna þess, að ( hann hafi vitað of mikið um spill- j ingu og hneyksli á æðstu stöðum. „Leynistríðið í Elysee“ Bókarbanni hafnað Kúariðudeila Breta og ESB kann að blossa upp aftur Hættir Major við ; að skera niður? London. Reuter. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, var hugsanlega að kynda undir nýrri deilu við Evrópusam- bandið, ESB, þegar hann lýsti því yfír í gær, að áætlun um rnikla slátrun nautgripa til að koma í veg fyrir kúariðu yrði endurskoðuð. Talsmaður ESB í landbúnaðarmál- um varaði bresku stjórnina við í gær og sagði, að slátrunin væri ein meginforsendan fyrir að afnema bann við útflutningi breskra naut- gripaafurða. Fyrirhugað var að slátra 147.000 nautgripum en sumir bændur og ýmsir áhrifamenn í íhaldsflokknum hafa lagt hart að Major að hætta við þá áætlun. Sagði hann á frétta- mannafundi í gær, að ríkisstjórnin myndi ræða þetta mál þá síðar um daginn í ljósi nýrra upplýsinga og lagði áherslu á, að það væri ekki sjálfgefíð, að fyrri ákvarðanir hefðu verið réttar. Niðurskurður skilyrði fyrir útflutningi í síðustu viku fagnaði ríkisstjórn- in skýrslu frá vísindamönnum í Oxford en þar var því haldið fram, að kúariðan yrði horfin árið 2001 og jafnvel þótt ekki yrði gripið til mikils niðurskurðar. Sagði í dag- blaðinu The Times í gær, að líklegt væri, að nú yrði hætt við niður- skurðinn og jafn víst væri, að til nýrrar sennu kæmi milli bresku rík- isstjórnarinnar og ESB. Sambandið bannaði útflutning á breskum naut- gripaafurðum í mars sl. en slakaði síðan á því gegn loforði um mikinn niðurskurð. Bannið var ákveðið eftir að breska ríkisstjórnin viðurkenndi, að kúariða gæti valdið skyldum sjúk- dómi, Creutzfeldt-Jakob, í mönnum og síðan hafa komið fram vísbend- ingar um, að riðan geti komist í kálfa fyrir burð. Þótt sumir bændur vilji hætta við slátrunina, þá vill stjórn bresku bændasamtakanna fyrst og fremst forðast nýjan ágreining við ESB til að unnt verði að heíja útflutning að nýju. Hefur hún varað ríkis- j stjórnina við að hrapa að neinu í j þessu máli. Evrópuandstæðingar fagna Verði hætt við slátrunina, mun það verða sérstakt fagnaðarefni fyrir Evrópuandstæðingana í íhaldsflokknum en þeir vilja ala á ófriði milli Breta og ESB. „Ef það er rétt, að hætt verði við slátrun- ina, þá mun ég hrópa þrefalt húrra,“ sagði þingmaðurinn og Evrópuand- stæðingurinn William Powell, sem > sæti á í landbúnaðarnefnd breska | þingsins. Gerard Kiely, talsmaður ESB í landbúnaðarmálum, sagði í gær, að það væri ein meginforsendan fyrir að afnema bannið við útflutningi breskra nautgripaafurða, að þeim gripum, sem taldir væru líklegastir til að sýkjast, yrði fargað. Sagði hann, að ESB hefði aldrei ákveðið neina tölu í því sambandi en varaði bresku stjómina við að ganga á bak j orða sinna með því að hætta við | slátrun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.