Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ BBIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsdeild Barðstrendingafélagsins og Bridsfélag kvenna FÉLÖGIN hafa ákveðið að starfa saman í vetur og hefst vetrarstarf- ið mánudaginn 16. september í húsi Bridssambands Islands, Þönglabakka 1. Þar mun deildin spila alla mánudaga í vetur, stund- víslega kl. 19.30. Mánudaginn 16. september nk. verður spilaður eins kvölds tví- menningur. Upplýsingar og skrán- ing í símum 587 9360, BSÍ, og 557 1374, Ólafur. Þá er einnig Jiægt að mæta tímanlega, þ.e. fyrir klukkan 19.30 og skrá sig á staðn- um. Spilastjóri í vetur verður Isak Öm Sigurðsson. Bridsfélag Suðurnesja Spilamennska vetrarins er að komast í fullan gang og var spilað á 9 borðum síðastliðinn mánudag. Spilaður var Michell-tvímenningur, 18 para, og urðu úrslit þessi í N/S: Karl Hermannss. - Amór Ragnarsson 287 Sigurður Albertsson - Jóhann Benediktss. 234 Austur/vestur: Jóhannes Siprðss. - Gísli Torfason 261 Óli Þór Kjartanss. - Kjartan Ólason 249 Næstkomandi mánudagskvöld verður eins kvölds keppni en síðan hefst þriggja kvölda Butler. Spilað er í húsi bridsfélaganna við Sand- gerðisveg kl. 20. Keppnisstjóri í vetur verður ísleifur Gíslason. kvöldMóu n KOPAVOGS# Tungumálanámskeið Kennt er á byrjenda-, framhalds- og talæfingaflokkum. ENSKA - DANSKA - NORSKA SÆNSKA - FRANSKA - ÍTALSKA SPÆNSKA - ÞÝSKA - KATALÓNSKA ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA DÓKHALD - ÍSLENSKAI - VÉLRITUN TÖLVUNÁMSKÐD og fjöldi annarra námskeiða Innrítun í símum: 564-1527, 564-1507 og 554-4391 kl. 17.00-21.00. Verkstœði CLINIQUE Heimsóttu Clinipue verkstæðið oo þáðu sýnikennslu um allt sem varðar augnlaröa. Ráðgjafar frá Clínique leíðbeina þér við val á auonskuggum. augnkremum og öðru sem við kemur augum. Prjá daga í HYGEU, Kringlunni Irá kl. 13-18. ..... AUSTURSTRÆTI Simi 5114511 BBIDS Umsjón Guómundur Fáll Arnarson „ÉG vildi að ég hefði séð þennan möguleika við borð- ið.“ Skoski bridshöfundur- inn Hugh Kelsey, sem lést á síðasta ári, grét glatað tækifæri í spilinu hér að neðan, sem kom upp í land- skeppni í Bretlandi (Cam- rose Cup) árið 1986. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ KIO ¥ G6 ♦ D75 ♦ ÁD10874 Vestur Austur ♦ DG85432 <!> 6 ¥ 875 IIIIH ¥ K1092 ♦ G92 111111 ♦ K863 ♦ - * KG93 Suður ♦ Á97 ¥ ÁD43 ♦ Á104 ♦ 652 Vestur Norður Austur Suður - 1 lauf Pass 1 hjarta 3spaðar Pass Pass 3 grönd Pass Pass Pass Útspil: Tígultvistur. Keisey lét lítinn tígul úr borði og drap kóng austur strax með ás. Spilaði síðan laufi. Legan var áfall og Kelsey gaf austri slaginn á níuna. Austur spilaði tígli og Kelsey dúkkaði níu vesturs, en fékk næsta slag á drottn- ingu blinds. Staðan var nú. þannig: Norður ♦ K10 ¥ G6 ♦ - ♦ ÁD1087 Vestur Austur ♦ DG8543 ♦ 6 J 875 III ¥ K1092 ♦ - ♦ KG3 Suður ♦ Á97 ♦ ÁD43 ♦ - ♦ 52 í þessari stöðu spilaði Kelsey litlu laufi. Það voru mistök, því austur gat nú að skaðlausu losað sig út á spaða eftir að hafa tekið frí- slaginn á tígul. Vinningsleið- in felst í því að leggja niður spaðakóng áður en austri er spilað inn á lauf. Austur verður að gefa áttunda slag- inn á hjarta, en síðan kemur sá níundi með þvingun í hjarta og laufi þegar suður tekur spaðaásinn. I DAG VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Gott krem MIG LANGAR að koma á framfæri upplýsingum um krem sem heitir SD sjá.v- ar- og jurtasmyrsl. Ég keypti þetta krem heima á Islandi í vor og hef ég ekki fengið betra krem, hvorki fyrr né síðar. Ég er með mjög þurra húð, þoli illa kulda og er gjörn á að fá þurra bletti í andlitið, en síðan ég byij- aði að nota þetta krem hafa þurrkublettirnir horf- ið og ég hef fengið rétta rakastigið í húðina. Ég nota þetta krem jafnt á andlit sem hendur og líkama og vil eindregið benda þeim sem eiga við húðvandamál að stríða á að reyna þetta íslenska krem. Eva Davíðsdóttir, Gautaborg, Svíþjóð. Tapað/fundið Úr tapaðist SVART ólarlaust Casio G-shock tölvuúr tapaðist á tónleikunum með Blur sl. sunnudagskvöld. Úrið hef- ur tilfinningalegt gildi fyr- ir eigandann og er finnandi því vinsamlega beðinn að hringja í síma 552-1268. Gleraugu töpuðust SJÓNGLERAUGU í gylltri umgjörð sem voru í gulu skólaga hulstri töp- uðst á hljómleikum Blur í Laugardalshöllinni sl. sunnudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 561-1245. Týndur gítar FYRIR nokkrum árum gaf amma mín sáluga mér gít- arinn sinn, erfðagrip sem mér er afar annt um. Síð- ar varð gítarinn fyrir hnjaski og var sendur í viðgerð snemma á þessu ári. Eftir ítrekaðar til- raunir við að sækja grip- inn, náðist loks í viðgerð- armanninn í sumar en þá bar svo við að gítarinn fannst ekki þrátt fyrir mikla leit og eftirgrennsl- an. Viðgerðarmaðurinn heitir Eggert og var áður til húsa á Óðinsgötunni innaf Tónastöðinni. Þetta var vel með far- inn, meðalstór gítar í blá- um vínilpoka og með nafnaplötu með áletruðu nafni ömmu minnar Hrefnu Tynes (hugsanlegt er að platan sé horfin). Ef einhver hefur hugmynd um hvar gítarinn er niður kominn, þá vonast ég sannarlega til að heyra frá viðkomandi. Símanúmerið mitt er 588-7515. Ég er reiðubúinn að greiða vel fýrir gripinn. Salome Tynes, Logalandi 2, Reykjavík. Gæludýr Kettlingur KOLSVARTUR átta vikna kettlingur með hvít- an blett á maga þarf að fá gott heimili sem fyrst. Kassavanur. Upplýsingar í síma 551-1742. HOGNIIIREKKVISI r^BFAUP þererfirjáist cti nota, nújU' sjálTps&jtcin&s ohJcar. " Pennavinir FIMMTÁN ára sænsk stúlka með áhuga á tónlist og bréfaskriftum: Margareta Márdner, Vilhelminav. 12A, 921 34 Lycksele, Sweden. HOLLENSK 39 ára ein- hleyp kona með mmikinn íslandsáhuga vill eignast pennavinkonur: Marianne Overmeer, Postbus 8874 1006 J.B. Amsterdam, Netherland. SAUTJÁN ára litháískur piltur með margvísleg áhugamál, m.a. langar hann að læra íslensku: Darijus Sukliauskas, Jaunimo kv., 7-88, LT-5730 Silute, Lithuania. Víkverji skrifar... ITILEFNI sýninga á bandarísku kvikmyndinni „Independence Day“, sem fjallar um samskipti jarðarbúa og geimvera, rifjaðist það upp fyrir Víkvetja að hann hefur bæði heyrt og lesið margt um fljúgandi furðuhluti. Þar á meðal hafa íslenzkir flugstjórar sagt frá sérkennilegum atvikum sem þeir hafa orðið vitni að í háloft- unum. En það eru fleiri en flugmenn sem hafa séð fljúgandi furðuhluti. Til er félag áhugamanna um fljúg- andi furðuhluti sem gefur út fréttabréf er heitir Geimdiskurinn. í nýjasta fréttabréfinu segir af sjómönnum á Suðurnesjum sem fyrir nokkrum árum sigldu heim að kveldi. Myrkur var skollið á en himinn stjörnubjartur. Þegar þeir voru komnir rétt framhjá Garð- skagavita gerðist það á bakborða að kviknaði á risastóru ljósaskilti í nokkurri hæð. Skilti þetta var ílangt og mjög stórt, sett litsterk- um ferningum. Horfðu þeir á þetta smástund, en þá tók furðuhlutur- inn á rás í hánorður og hvarf á augabragði. Þeir félagar áttu erf- itt með að gera sér grein fyrir stærð hlutarins, hvað þá þeim hraða, sem hann fór á. xxx ÍKVERJI fékk á dögunum fax- sendingu frá kunningja sín- um og fylgdi þar eftirfarandi dæmi- saga með. „íslenskt og japanskt fyrirtæki ákváðu að keppa í róðri á áttær- ingi. Liðsmenn frá báðum fyrir- tækjunum æfðu stíft og voru í topp- formi þegar að sjálfri keppninni kom. Japanarnir urðu 1 km á und- an íslenska liðinu. Eftir útreiðina var mórallinn að sjálfsögðu heldur slæmur í íslenska fyrirtækinu og yfirstjórnin ákvað að fyrirtækið yrði að vinna keppn- ina að ári. Var settur á fót vinnu- hópur til að skoða vandamálið. Eftir heilmiklar pælingar komst vinnuhópurinn að því að Japanarn- ir létu sjö menn róa en einn stýea. í íslenska liðinu var það einn sem reri og sjö sem stjórnuðu. Vegna þessarar miklu krísu afréð yfirstjórn íslenska fyrirtækisins að fá ráðgjafarfyrirtæki til að kanna strúktúr íslenska liðsins og gera nýtt skipurit ef á þyrfti að halda. Eftir margra mánaða vinnu komust stjórnunarsérfræðingarnir að því að í íslenska bátnum væru það of margir sem stjórnuðu en of fáir sem reru. Með hliðsjón af skýrslu sérfræðinganna var strax ráðist í skipulagsbreytingar. í stað þess að hafa sjö stýrimenn og einn áramann voru nú hafðir fjórir stýri- menn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn ára- maður. Að auki var áramaðurinn „mótiveraður" samkvæmt megin- reglunni: „Að breikka starfssvið starfsmanna og veita þeim meiri ábyrgð.“ Næstu keppni unnu Japanarnir með 2 km forskoti. Islenska fyrirtækið rak að sjálf- sögðu áramanninn með tilliti til lélegrar frammistöðu, en greiddi bónus til stjórnarinnar vegna þeirr- ar miklu vinnu sem hún hafði innt af hendi. Ráðgjafarfyrirtækið gerði nú aðra úttekt og komst að þeirri nið- urstöðu að valin hefði verið rétt taktík og hvatning, því væri það búnaðurinn sem þyrfti að einbeita sér að. í dag er íslenska fyrirtækið að láta hanna nýjan bát.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.