Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skipverjar á Kyndli gættu þess að rottur kæmust ekki um borð
Óvenjumikið
af rottum
í Krossanesi
TÖLUVERT er af rottum í
Krossanesi og segjast menn sem
rætt var við aldrei hafa séð ann-
að eins af rottum og nú. Hreinn
Tómasson slökkviliðsmaður var
á vakt í Krossanesi í fyrrakvöld
er verið var að dæla bensíni úr
olíuskipinu Kyndli. Hann hefur
verið vaktmaður í Krossanesi til
fjölda ára og segist aldrei hafa
orðið var við eins mikið af rott-
um og nú og að þær hafi fjölgað
sér jafnt og þétt í sumar.
Skipverjarnir á Kyndli voru
ekki á því að fá rottur um borð
í skip sitt og auk þess að fylgj-
ast með dælingunni, vöktuðu
þeir landganginn og landfestar
til að koma í veg fyrir að þessi
ófögnuður kæmist um borð.
Tryggvi Þórisson stýrimaður
hefur komið í Krossanes í ein
12 ár og hann segist aldrei hafa
orðið var við rottur þar fyrr en
í sumar.
Láta svæðið afskiptalaust
Svanberg Þórðarson, mein-
dýraeyðir bæjarins, segist hafa
heyrt af því fyrir helgi að mikið
sé af rottu í Krossanesi. Hins
vegar hafi verksmiðjurnar í
Krossanesi ráðið til sín mein-
dýraeyði frá Húsavík og því
hafi starfsmenn bæjarins látið
svæðið afskipt og aðeins fylgst
með fjörunni norður í Sandgerð-
isbót. „Mér skildist á starfs-
manni Krossanesverksmiðjunn-
ar að ástandið væri með því
versta sem þar þekktist. Við
munum skoða þetta því við höf-
um engan áhuga á að fá rottur
með fjörunni inn í bæinn.“
Morgunblaðið/Kristján
SKIPVERJARNIR á Kyndli, þeir Sigurbjörn Bernódusson
háseti, t.v., og Tryggvi Þórisson stýrimaður voru ekki á
því að fá rottur um borð í skip sitt og fylgdust því vel
með landgangi og landfestum.
Kettirnir í Krossanesi hafa
verið drepnir og Svanberg seg-
ist eiga erfitt með að skilja að
það sé góð lausn. Ekki sé þó
æskilegt að mikið sé af köttum
á svæðinu. „Við höfum fylgst
með svæðinu í kringum Krossa-
nes til þessa og tekist bærilega
að balda rottunum niðri þótt
einstaka sinnum hafi sést þar
ein og ein,“ sagði Svanberg.
Verksmiðjurnar réðu
einkaaðila
Einar Sveinn Ólafsson, verk-
smiðjustjóri fóðurverksmiðj-
unnar Laxár í Krossanesi, segir
að ekki séu neinar rottur í verk-
smiðju fyrirtækisins en honum
er kunnugt um að eitthvað sé
af þeim í næsta nágrenni. Hann
segir að meindýravörnum
bæjarins hafi ekki tekist að
halda rottunum niðri á svæðinu
og því hafi verksmiðjurnar
sameinast um að ráða Árna
Loga Sigurbjörnsson, meina-
dýraeyði á Húsavík, til að halda
lóðum fyrirtækjanna hreinum.
„Mér finnst það nú saga til
næsta bæjar ef bærinn hættir að
sinna sínu starfi af því að fyrir-
tæki fá einkaaðila til að vinna
fyrir sig verk sem menn töldu
að bærinn ætti að sjá um. Árni
Logi hefur aðeins verið að eitra
á okkar lóðum og ef meindýra- |
eyðir bæjarins fer ekki norðar
en í Sandgerðisbót, er ekkert
skrýtið að rotturnar nemi nýtt
land,“ sagði Einar Sveinn..
Leita íylinn í vetur
Árni Alfreðsson, vaktformað-
ur í Krossanesi, segir ljóst að
ástandið sé þannig að eitthvað i
verði að gera og það fyrr en
seinna. „Eg býð ekki í það þegar
fer að kólnaþvíþáerviðbúið |
að rotturnar leiti inn í ylinn í
verksmiðjunni."
Sveitarfélög við utanverðan Eyjafjörð skoða sameiningu
Yrði öflugt sveitar-
félag með sterka útgerð
SAMSTARFSNEFND sveitarfé-
laga við utanverðan Eyjafjörð
heldur fund í næstu viku þar sem
tekin verður ákvörðun um næstu
skref varðandi hugsanlega sam-
einingu sveitarfélaga á svæðinu.
Nýlega var nefndarmönnum kynnt
skýrsla sem Rekstur og ráðgjöf
gerði en þar er um að ræða úttekt
á hagkvæmni þess að sameina
sveitarfélög við utanverðan fjörð-
inn, en einnig er fjallað um sam-
starf þeirra á milli.
Sameining hagkvæm
Sveitarfélögin 6 sem um ræðir
eru Árskógshreppur, Hrísey,
Svarfaðardalur, Dalvík, Ólafs-
fjörður og Siglufjörður. í skýrsl-
unni eru könnuð áhrif sameiningar
á sveitarfélögin og er miðað við
mismunandi útfærslur. Meðal ann-
ars er velt upp möguleika á að
sveitarfélögin syðst á svæðinu,
Árskógshreppur, Svarfaðardalur
og Dalvík mynduðu eitt sveitarfé-
lag og þá eru athuguð áhrif _af
því að bæta Hrísey við, síðan Ól-
afsfirði og loks Siglufirði. Niður-
staðan virðist sú að sameining
skili hagkvæmni sem eykst eftir
því sem sveitarfélögin yrðu fleiri.
Yrðu öll sveitarfélögin 6 sameinuð
í eitt myndi verða til um 5 þúsund
manna sveitarfélag.
í flestum sveitarfélögunum hef-
ur verið tekin ákvörðun um að
halda áfram að skoða málið og
var þannig samþykkt á bæjar-
stjórnarfundum á Dalvík og Ólafs-
fírði fyrr í vikunni að mæta til
fundar næsta miðvikudag, 18.
september, þar sem tekin verður
ákvörðun um næstu skref í málinu.
Sterk útgerð
Þorsteinn Ásgeirsson forseti bæj-
arstjómar í Ólafsfírði segir að á
næstu dögum verði farið vel og
vandlega yfir skýrsluna og í kjölfar-
ið tekin raunhæf ákvörðun um
framhaldið. „Það er íbúanna að taka
endanlega afstöðu, þetta mál snýst
bæði um tilfinningar og ijármuni.
Það er meira en að segja það að
sameina bæjarfélög," sagði Þor-
steinn. Hann nefndi að ef Siglufjörð-
ur ætti að vera með kæmi annað
ekki til greina en jarðgöng milli
byggðarlaganna. „Þetta yrði öflugt
sveitarfélag með sterka útgerð,
þannig að í því Ijósi gæti verið um
skynsamlegan kost að ræða.“
Kristján Ólafsson forseti bæjar-
stjórnar Dalvíkur segir bæjarfull-
trúa á Dalvík samþykka því að
halda undirbúningi málsins áfram.
„Við viljum skoða alla möguleika
sem eru í stöðunni. Þetta var hlut-
laus úttekt og við lesum það út
úr skýrslunni að hagkvæmt sé að
sameina þessi sveitarfélög. Vissu-
Iega kostar það óhemju undirbún-
ingsvinnu og kynningu svo vel
takist til, þannig að við munum
flýta okkur hægt, en örugglega,"
sagði Kristján. „Það bendir allt til
þess að hagkvæmt sé að stækka
einingarnar og við erum þegar
með mikið af samstarfsverkefnum
og höfum með okkur samvinnu á
ýmsum sviðum.“
Líflegt á
Akureyrarflugvelli
ÞAÐ var mikið um að vera á Akureyrarflugvelli
í gærdag en þá lentu þar 6 flugvélar sem voru
að koma frá útlöndum en gátu ekki lent á Kefla-
víkurflugvelli vegna þoku. Reyndar lentu vélar
frá útlöndum einnig á vellinum í fyrrakvöld af
sömu ástæðum og sagði Bergþór Erlingsson
umdæmisstjóri Flugleiða að mikill erill hefði ver-
ið á vellinum vegna þokunnar syðra. Meðal ann-
ars kom vél í sjúkraflugi við á Akureyrarvelli
en hélt svo vestur um haf. Þá lentu tvær herþot-
ur frá þýska hernum á vellinum en þær voru á
leið til Þýskalands frá Kanada. Bergþór sagði
að þetta væri í annað sinn svo menn best vissu
að herþotur lentu á Akureyri. Þokan tafði einnig
för kaffivélarinnar sem Akureyringar kalla, en
hún komst ekki í loftið fyrr en undir kvöldmat,
„og var eiginlega orðin hálfgerð eldavél," eins
og umdæmisstjórinn orðaði það.
Morgunblaðið/Kristján
Morgunbiaðið/Kristján
BRYNLEIFUR Hallsson
mjólkurfræðingur með til-
búið vöffludeig í 1 1 fernu.
Tilbúið
i
»
vöffludeig
á markað
TILBÚIÐ vöffludeig sem framleitt
er hjá Mjólkursamlagi Norðfirðinga |
í Neskaupstað kemur á markað í
dag, fimmtudaginn 12. september.
Mjólkursamlag KEA á Akureyri hef- t
ur tekið vöffludeigið til dreifingar.
Um er að ræða vöffludeig í 1 lítra
fernum og er það tilbúið til bökunar
og þannig nýstárleg vara á mark-
aðnum. Vöffludeigið er kælivara og
er neyslustimpill fyrst um sinn 15
dagar. Með reynslu af sölu og dreif-
ingu vörunnar verður neyslustimpill-
inn líklega til lengri tíma. Áhersla ,
er lögð á að um ferskvöru er að
ræða og verður því að geyma hana
í kæli og meðhöndla sem kælivöru.
Leiðbeinandi smásöluverð á lítra-
fernu af vöffludeigi er 295 kórnur.
-----------» ♦ ♦-----
Vel veið-
ist á línu
Grímscy. Morgunblaðið
AFLABRÖGÐ við Grímsey hafa verið
þokkalega góð í sumar og nú þessa !
fyrstu haustdaga hefur veiðst vel á
línu. Aftur á móti hefur lítið aflast í
snurvoð.
Algengt er að aðkomubátar setji
svip sinn á höfnina í Grímsey að sum-
arlagi, að en nú í sumar brá svo við
að næsta fátítt var að sjá hér aðkomu-
báta. Þama hafa verið á ferðinni hand-
færabátar sem sumir hafa komið langt
að, en nú er ekki eftir neinu að slægj-
ast hér við eyna á handfæri.
Heimamenn gera út á milli 12 og
14 báta og er það svipaður fjöldi og
verið hefur síðustu misseri.