Morgunblaðið - 12.09.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 17
NEYTENDUR
LENGJA má í beltum sem þessum og auðvelt að krækja
krókunum í hliðar innkaupakerrunnar.
Spennið börnin í
innkaupakörfuna
ÞVÍ miður kannast starfsfólk á
bráðamóttökum hérlendis við að
taka á móti bömum sem hafa dott-
ið úr innkaupagrindum þegar þau
hafa verið í verslunarleiðangri með
fullorðnum. „Fallið er rosalega hátt
fyrir lítil börn og oft eru hörð stein-
gólf í verslunum," segir Herdís
Storgaard barnaslysavarnafulltrúi
Slysavarnafélags íslands. „Börnin
sem komið er með á bráðamóttöku
hafa oft hlotið höfuðskaða og
kannski fengið heilahristing."
Hún segir að niðurstöður breskra
rannsókna leiði í ljós að oftast séu
börnin að reyna að klifra upp úr
körfunni eða standa upp þegar for-
eldrarnir snúa í þau baki.
Herdís segir mikilvægt að börnin
sitji einungis þar sem sérstaklega
er gert ráð fyrir og þau séu þar
fest með belti.
„Það er hægt að nota belti úr
kerru eða vagni eða hafa bara með
sér belti.“ Herdís segir að til séu á
markaðnum sérstök barnavagna-
beisli sem hægt sé að lengja í og
þá er auðvelt að krækja krókunum
í hliðarnar á innkaupakerrunni.
Þá eru í sumum verslunum inn-
kaupavagnar með sérstökum
barnastólum.
Körfum ekki haldið
nægilega við
Herdís segir að hægt sé að rekja
slys til þess að körfum er ekki hald-
ið við sem skyldi, hjólin eru t.d.
skökk og þá þarf að ýta grindunum
með átaki.
„Það er nauðsynlegt að halda
hjólum á innkaupagrindum við,
hreinsa þau reglulega og passa að
þau virki rétt, því dæmi eru um að
kerrurnar hafi oltið vegna þess að
þau eru ekki í lagi.“ Alvarlegustu
slysin segir hún að verði þegar inn-
kaupakörfurnar fara um koll. Slíkt
getur t.d. komið fyrir þegar verið
er að keyra yfirfullar körfur út á
plan. Þær kollvarpast þá þegar
komið er að hindrunum eins og eru
víða þar sem körfurnar eru geymd-
ar úti eða þar sem inngangur er
fyrir fatlaða. Slíkar hindranir eða
aðkeyrslur fyrir hjólastóla þurfa að
vera alveg rétt hannaðar, sléttar
og engir kantar."
Stórar úthafsrækjur,
GLÆNÝ BÁTAÝSA OG
STÓRLÚÐUSTEIK.
FISKBÚÐIN HÖFÐABAKKA 1
- GULLINBRÚ -
SÍMI 587 5070
er stærsta
póstverslun
í Evrópu
KYNNTU ÞÉR
ÁSTÆÐUNA
NÝR 1100 BLS.
LISTI FYRIR
HAUSTIÐ 0G
VETURINN
Nýjasta tíska fyrir alla fjölskylduna,
búsáhöld, gjafavara, heimilisvara leik-
föng, allt sem heimilið þarf. Frá Quelle
færðu þýska gæðavöru sem er þekkt fyrir
endingu og mjög hagstætt verð.
Notaðu 4
Quelle
og hatðu
tímatil
að njóta fl^ÉjlF
lítsins
■ Listinn kostar 600 kr. í verslun okkar.
■ Með fyrstu pöntun úr listanum færðu
hálsmen með ekta gull-gyllingu
■ Þú færð sendan stóran
skemmtilegan jólalista í október
■ Kynntu þér um leið úrval
sérlista frá Quelle
L I S T A
KAUP
\
fiuelle
VERSLUNARHÚSIÐ DALVEGI2 - KÓPAVOGI
SfMI 564 2000
kjarni málsins!
.vOG/®,
ftlarvíkt Fnt$
Góterodsmos,
Barnamatur framleiddur úr lífrænum hráefnum
ehf