Morgunblaðið - 12.09.1996, Side 24
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
23. sept - 7.olct.,
tvær vilcur
- Golfperla Spánar.
La Manga golfsvæðið ertalið eitt hið
besta í Evrópu . Þar hefur Opna
Spænska meistaramótið verið haldið
tíu sinnum sem segir sitt um ágæti
staðarins. Þrírstórglæsilegir 18 holu
golfvellir á svæðinu og öll aðstaða eins
og bestverður á kosið.
Fararstjóri: Kjartan Pálsson.
stgr. á mann,4saman
í íbúð m/2 svefn-
herbergjum.
Innifalið er flug, gisting, akstur til og frá flugvelli ytra, íslensk
fararstjórn og flugvallarskattar.
■ Cal CVa Mm ECIII ■
49l710 Kr.
Golf- og
fjölskyidu-
paradís!
Frábærar aðstæður fyrir
golf, en líka sannkallaður
sælureitur fjölskyldunnar, skemmtigarðar og ótal önnur, spennandi
tækifæri til afþreyingar. Leikið á golfvöllum við Orlando og svo í
kringum Sarasota. Fararstjóri: Kjartan Pálsson.
Frábær ferð á einstöku verði!
74650Kr.
91893 Kr.
stgr. á mann, 4saman
í íbúð m/3 svefnh. á
Orlando, 2 svefnh. á
Shorewalk.
stgr. á mann, 2 saman í 2ja herb.
íbúð í Orlando Shorewalk.
lO. jan. Þriggja
vilcna ferð
Golf í framandi
umhverfi!
Töfrandi land, heillandi
menning, gróðursælt
umhverfi og ótrúlega ódýr
golfaðstaða á gullfallegum
golfvöllum. Og veörið bregst ekki, sólin skín upp á hvern dag.
Fararstjóri: Kjartan Pálsson.
la
152750Kr.
Innifalið flug, gisting
m/morgunverði, aksturtil
og frá flugvelli ytra, íslensk st9r- á mann í tvíbýli
fararstjórn og flugvallarskattar
Sami/ininilerSir-Laiitlsýii _
Hnklmft: Auslurstræti 12' S. S691010 • Sfmbréf 652 7796 00 5691095 Telm 2241 • mnanlandsloröir S. 5691070
Hótel SOao »16 Hsoaloro . S. 562 2277 • Slmbrél 562 2460 Hafn»rfj6rt»: Baisrtrraijni 14 • S 565 1155 • SímOrít 565 5355
Keílavík: Halmigotu 35 - 5.421 3400 • Sím&lét 421 3490 Akram: BreíðaraOtu 1 • S 43t 3386 • SíinMI 43U195
Akorvyri: Ráðhústorgi 1 *S 462 7200 • Sfmbróí 461 1035 Vestmannaeyjan Vesimannabraul 38 • S 481 1271 • Símbréf 481 2792
TnT OATÍAS# (Mfjöröur: Hafrvarstrætí7*S.456 5390 Einnig umboöjmenn urn land allt
euoocAoo
Rómeó og Júlía
í Sarajevó
Á DAGSKRÁ alþjóðlegu dans- og
leiklistarhátíðarinnar í Gautaborg,
sem hófst 23. ágúst og stóð í átta
daga, var meðal annars leikritið
um örlög elskendanna Admiru
Ismic og Bosko Brkic. Kristín
Bjarnadóttir segir frá sýningunni.
SVIÐIÐ er í rúst. Ekkert er heilt,
nema sviðið á sviðinu, aflangur,
upphækkaður pallur. Til hægri
eitthvað sem minnir á brú og fyrir
neðan hana dyngja, sem minnir á
ruslahaug og við nánari athugun
leifar af búslóð. Miðaldra maður
kemur inn á sviðið frá vinstri, horf-
ir í kringum sig eins og hann sé
á gamalkunnum slóðum en eigi þó
ekki von á öðru en að allt sé breytt.
Hægt, í rannsakandi þönkum
gengur hann að dyngjunni. Finnur
þvælt rit, kannski handrit, kannski
dagbók, og byijar að lesa í hljóði.
Úr lesmálinu fæðast minningar.
Þær birtast ljóslifandi á sviðinu,
litla sviði Borgarleikhússins í
Gautaborg, undir stjórn Jasenkos
Selimovic.
Hrottalegur veruleiki
Hann byggir á eigin handriti og
reynslu frá því hann flúði frá
Sarajevó árið 1993. Tólf leikarar
gæða rústirnar lífi og við færumst
aftur í tímann. Ekki langt. Fjögur
Rebecca Hayman og Shanti Roney í hlutverkum Bosko
og Admiru.
ár nægja. Árið 1992 var Bosnía-
Hersegóvína viðurkennd sem sjálf-
stætt ríki, en stríðið í gömlu Jú-
góslóvaíu byijaði fyrr og hélt
áfram hér. Króatískir Bosníubúar
fengu aðstoð frá Króatíu, serb-
neskir Bosníubúar frá Serbíu en
Bosníubúar af ættum múslima
stóðu uppi án „verndar".
Slík greining, slíkar nafngiftir
hópa, hljóma eins og út í hött þeg-
ar við vitum að margar fjölskyld-
ur, já heilu ættirnar, voru blandað-
ar. Árin 1992 og 1993 voru milljón-
ir á flótta „innanlands" og a.m.k.
þrjú hundruð þúsund flúðu úr
íandi.
Jasenko dregur upp lifandi
ÁKAFUR áhugamaður:
Kaplan stjórnar flutningi á
tónlist Mahlers víða um heim.
Einstakur
áhug’i
GILBERT Kaplan er bandarískur
milljónamæringur sem hefur mikið
dálæti á tónlist Mahlers, sér í lagi
2. sinfóníunni, sem hann býr yfir
svo mikilli þekkingu á, að hann
hefur stjómað flutningi á henni um
heim allan. Meðal annars á nýaf-
staðinni tónlistarhátíð í Salzburg,
en það hleypti svo illu blóði í hljóð-
færaleikara Berlínarfílharmóníunn-
ar að þeir pökkuðu hljóðfærunum
niður og hættu við að koma fram
á hátíðinni.
Kaplan, sem er á sextugsaldri,
hefur ekki aðeins stjórnað flutningi
2. sinfóníunnar á tónleikum, ein
mest selda útgáfa hennar á geisla-
plötu er undir hans stjóm. Nú er
hægt að kaupa hana á CD- ROM
diski með fleira efni um og eftir
Mahler.
Kaplan situr í stjóm nokkurra
tónlistarhúsa, þar á meðal Carnegie
Hall en þar á Berlínarsinfónan að
leika á næstunni. Velta margir því
fyrir sér hvemig endurfundunum
verður háttað. En ekki er víst að
Kaplan verði viðlátinn, því hann
ferðast víða um heim til að stjórna
2. sinfóníunni, hefur m.a. farið til
Finnlands, Kína, Japan, Rússlands,
Ungveijalands og Venesúela.
*
Ainurgar
ígrióti
M
BOKMENNTIR
LjÓÖ
í ERLI DÆGRANNA
eftir Pétur Sumarliðason. Útgefandi:
Gísli Ólafur Pétursson. Rvk. 1996 -
111 bls.
FIMMTÁN árum eftir fráfall
Péturs Sumarliðasonar er gefin út
ljóðabók eftir hann, f erli dæg-
ranna. Þessi útgáfa ber vott um
mikla ræktarsemi við minningu
hans. Guðrún Péturs-
dóttir og Gísli Ólafur
Pétursson bjuggu ljóð-
in til prentunar eftir
handritum Péturs af
alúð'og vandvirkni.
Kvæði Péturs em
börn síns tíma. Þau
einkennast af náttúm-
ljóðrænu og róman-
tískri lífssýn þar sem
áhersla er lögð á sam-
band manns við nátt-
úru, samkennd og
samúð með því sem líf-
sandann dregur.
Efni kvæðanna
tengist oftast náttúru-
sýn skáldsins, hvort
sem verið er að ljalla
um bemskustöðvar við
Bolungarvík ellegar öræfín í Jökul-
heimum þar sem Pétur starfaði við
veðurathuganir. Raunar víkur
skáldið sérstaklega að þessum
tveimur meginskautum í ljóðheimi
sínum í kvæðinu Tveir heimar:
% veit nú ómar aldan
úti við bláa strönd,
en hér urgar áin í gijóti
undan jökulrönd.
Pétur
Sumarliðason
Þótt náttúran yfirgnæfi önnur
yrkisefni í ljóðum Péturs er ekki
laust við að gæti ýmissa andstæðna
samtímans í kvæðum hans og birt-
ast þær jafnt í efni og formi. Þann-
ig þarf ekki lengi að skoða kvæðin
til að greina átök þéttbýlis og nátt-
úru, t.a.m. í kvæðinu Oræfaminn-
ingu þar sem samlíðan með, þótt í
einveru sé, er borin upp að hinum
sára broddi „einmanans í byggð“.
Jafnframt er vikið að samtímavið-
burðum á borð við Víetnamstríðið
og æskulýðsuppreisn ’68-kynslóð-
arinnar sem Pétur lítur nokkuð já-
kvæðum augum.: „Sem
ljósið brýst / gegnum
myrkrið / fara ný sann-
indi / gegnum gamlar
hefðir“. Eftirtektar-
verð fínnst mér einnig
ljóð Péturs um gildis-
kreppu samtímans og
einna best þeirra Ijóðið
Orð:
Það er undarlegt
að sitja í byggð
innan um allskonar
fjölmæli
og ívitnanir
til mikilla hugsjóna,
sem talið er sjálfsagt
að enginn meini.
En átaka gætir einn-
ig í ljóðformi í kvæðum
Péturs. Hann yrkir oft hefðbundið
og er ágætur hagyrðingur en hon-
um lætur líka vel að yrkja í lausu
máli. Segja má því sem svo að hann
hafi tekið nýjum tímum opnum
huga þótt hann skynji einnig varas-
ama boða á leið okkar inn í framtíð-
ina. Kvæðaheimur hans er heild-
stæður og sannfærandi og bókin á
erindi til okkar.
Skafti Þ. Halldórsson