Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 1
136 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 234. TBL. 84. ARG. SUNNUDAGUR 13. OKTOBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Taka bíl fram yfir makann ÞÝSKIR karlmenn taka bílinn fram yfir kynlíf með eiginkonu eða unnustu, ef marka má skoðanakönnun, sem gerð var fyrir kvennablaðið Elle. Þegar karlmennirnir voru spurðir hvers þeir vildu síst án vera nefndu 92% þeirra bílinn en 87% kynlíf með maka. Yfir 2.000 karlar á aldrinum 18-49 ára tóku þátt í könnuninni. Var þeim gefinn kostur á því að nefna fleiri en eitt atriði. í þriðja sæti listans yfir það, sem körlum er kærast, er „góð staða“ en í ellefta sæti það að verja tíma með börnunum. Þá voru þátttakendur spurðir hvort þeir væru reiðubúnir að „Iána“ konur sínar eða unnustur fyrir eina milljón marka, um 44 milljónir króna, og svör- uðu 46% því játandi. Þá kváðust rétt tæp 30% mundu játa slikri ósk þó að tífalt minni fjárhæð væri í boði. Öxi beitt í kosningaslag S JÓN V ARPSK APPRÆÐUM fimm borgarstjóraefna í kosningum í Stutt- gart í Þýskalandi lauk með óvæntum hætti á dögunum þegar frambjóðand- inn Udo Bausch rauf útsendinguna með því að eyðileggja leiðslur með öxi. Bausch, sem er 36 ára, hafði ekki verið boðið að taka þátt í kappræðun- um þar sem framboð hans var ekki tekið alvarlega. í mótmælaskyni greip hann því til þess ráðs að höggva leiðsl- urnar í sundur skömmu eftir að útsend- ingin hófst og var handtekinn. Bausch var ekki sá eini sem var meinað að taka þátt í kappræðunum. Konrad Kujau, sem varð heimsfrægur fyrir að falsa dagbækur Adolfs Hitl- ers, er einnig í framboði og fékk ekki að takast á við andstæðinga sína. Áfengið á að ylja Svíum BRUGG og smyglað vín á að ylja Svíum þegar kólnar í veðri í vetur en þó ekki með venjulegum hætti, að sögn sænsku tollgæslunnar. Akveðið hefur verið að breyta áfengi, sem gert hefur verið upptækt, í metangas og það verð- ur notað til kyndingar í Stokkhólmi. „Þannig kemur það að minnsta kosti að góðum notum,“ sagði Böije Enoks- son, talsmaður tollgæslunnar. Yfirvöld í Stokkhólmi og nágrenni hafa gert 180.000 lítra af áfengi upptæka það sem af er árinu og neyðst til að leigja dýrt húsnæði til að geyma það. DREGUR UR GOSINUIVATNAJÖKLI Morgunblaðið/Þorkell GREINILEGA hefur dregið úr gosinu í Vatnajökli en gjáin í jöklinum hefur breikkað verulega við gíginn, sem enn gýs úr. Þegar Ijósmyndari og blaðamaður Morgunblaðsins flugu yfir í gærmorgun sáust öðru hvoru öskusprengingar, en þær voru litl- ar og svartur reykurinn hvarf fljótt inn í hvítan gufumökkinn, sem steig beint upp i loft. Engin ummerki sáust um eldvirkni annars staðar. Spáð er austanátt við eldstöðvarnar í vikunni og má þá búast við að lítið skyggni verði næstu dagana. Erlendum fréttamönnum á vettvangi hefur heldur fækkað, enda biðin orðin löng. Óvissa ríkir eftir þingkosningarnar á Nýja-Sjálandi Clark kveðst stefna að myndun sljórnar Wellington. Reuter. SÍÐUSTU kosningaspár á Nýja-Sjálandi bentu til þess í gær að Verkamannaflokkurinn fengi nægilegt fylgi til að geta myndað stjórn með stuðningi tveggja annarra flokka. Helen Clark, leiðtogi Verkamannaflokksins, kvaðst ætla að hefja viðræður um myndun nýrrar stjórnar og takist henni það verður hún fyrsta konan sem gegnir embætti forsætisráðherra á Nýja-Sjálandi. Þjóðarflokkur Jims Bolgers forsætisráðherra verður þó enn stærsti flokk- urinn á þingi og Bolger sagði, að til greina kæmi að hann myndaði minnihlutastjórn. Samkvæmt kosningaspám þegar 97% at- kvæða höfðu verið talin fær Verkamanna- flokkurinn 37 þingmenn af 120 og gæti mynd- að stjórn með tveimur öðrum flokkum sem var spáð 30 þingsætum. Annar þeirra, Nýsjá- lenskir hagsmunir, sem er þjóðernissinnaður og undir stjórn maóríans Winstons Peters, fær 17 þingsæti, samkvæmt spánum. Hinum flokknum, Bandalaginu, samtökum fimm vinstriflokka, var spáð 13 þingsætum. Peters í oddaaðstöðu Þjóðarflokknum, sem er hægrisinnaður og hefur verið við völd í sex ár, var spáð 44 þingsætum og hugsanlegur samstarfsfiokkur hans, Nýsjálenskt framtak, sem aðhyllist rót- tæka markaðshyggju, fær að öllum líkindum átta þingmenn. Margir fréttaskýrendur sögðu líklegast að mynduð yrði vinstristjóm, en Winston Peters hefur þó ekki útilokað að Nýsjálenskir hags- munir, sem eru í oddaaðstöðu, semji við Þjóðar- flokkinn. Bandalagið segir ekki koma til greina að það eigi aðild að hugsanlegri stjóm Verka- mannaflokksins en Ijær máls á stuðningi við hana í mikilvægum málum. Clark lofaði í kosningabaráttunni að beita sér fyrir því að allir landsmenn fengju að njóta ávaxta efnahagsbatans á síðustu árum og kvaðst ætla að auka útgjöldin til heilbrigð- is-, mennta-, og veiferðarmála. Bolger lagði hins vegar áherslu á árangur stjórnarinnar í að auka hagvöxt og lækka skatta. Sagnauppsprettan Aggi og rangan á Djöflaeyjufyndninni I kfirlum um hfim allin, ■krtfir llufi ÚUhaoa. Isliyidinifv kUu að leRuj. Kfn.iwntrin »f þcun tagi flnnat I auknura maili I úLhfifuntim og i norfiur* afireiáuégá varað víð FRAMTÍÐ? 20 VB&amXIVDMUIÍF A SUIMNUDEGI KOMPAKT VM) UCHTBTM HUGSJONAMAÐUR OG HEILDSALI ' MhjÐ * s \ • ortiðina í FARTESKINU B

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.