Morgunblaðið - 13.10.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 5
FRÉTTIR
Eldur í
sölutumi
Flateyri - Eldur kom upp í söluturn-
inum Kríunni á Flateyri á föstudags-
morgun. Slökkviliðið á Flateyri var
kallað út á áttunda tímanum og hóf
þegar slökkvistörf. Slökkviliðið á
Isafirði var einnig kallað út og var
komið innan hálftíma frá útkalli.
Mikill eldur og reykur var í húsinu
og voru því sendir inn reykkafarar.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn og
var slökkvistarfi lokið á tveimur tím-
um. Húsið var mannlaust með öllu.
Talið er að kviknað hafi í út frá raf-
magni. Lögreglan stóð vakt fram
eftir degi og einnig voru menn frá
RLR að rannsaka orsök brunans.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Stórt fíkniefnamál í Svíþjóð
Islendingnr
handtekinn
27 ÁRA gamall íslendingur situr í
gæsluvarðhaldi í Svíþjóð grunaður
um að vera höfuðpaur í stóru fíkni-
efnamáli.
Sex manns hafa verið handteknir
í Stokkhólmi vegna málsins og hald
lagt á 2-3.000 alsælutöflur og
300-350 skammta af LSD. Sam-
kvæmt upplýsingum fíkniefnalög-
reglu í Stokkhólmi er þetta eitt
mesta magn fíkniefna sem gert
hefur verið upptækt í einu lagi þar
í landi.
Samkvæmt heimildum sænska
blaðsins Aftonbladet hefur íslend-
ingurinn starfað sem plötusnúður á
diskóteki í Stokkhólmi og einnig
hefur hann skipulagt svokölluð
„rave-teiti“. Hann hefur áður hlotið
dóm fyrir fíkniefnabrot.
Halldór Asgrímsson
utanríkisráðherra
Breytingar
á kosninga-
kerfi Fram-
sóknar
flokki í hag
HALLDOR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, segist vilja breytíngar á
núverandi kosningakerfí, enda græði
Framsóknarflokkurinn ekki á „vit-
lausu kosningakerfi". Hann segist
þó ekki hlynntur algerri jöfnun kosn-
ingaréttar.
Á fundi Framsóknarfélags
Reykjavíkur, sem haldinn var á
föstudag, sagði Halldór í svari við
fyrirspurn frá einum fundarmanna
að það væri mikill misskilningur að
Framsóknarflokkurinn græddi sér-
staklega á núverandi kerfí.
Flest atkvæði á bak við
þingmenn Framsóknarflokks
„Það er ekkert sérstakt áhugamál
flokksins að halda uppi þessu vitlausa
kosningakerfí. Það eru fleiri atkvæði
á bak við hvem þingmann Framsókn-
arflokksins en nokkurs annars flokks
í landinu, þannig að við emm frekar
með færri þingmenn en hitt miðað
við okkar atkvæðastyrk í landinu,"
sagði Halldór. „Spumingin er: Eru
menn tilbúnir að afnema þetta mgl,
vil ég nú segja, milli kjördæma, að
menn viti aldrei hver er kosinn? Á
Austurlandi er Framsóknarflokkurinn
til dæmis með 47% atkvæða og tvo
þingmenn, en Sjálfstæðisflokkurinn
með 22% og líka með tvo þingmenn.
Við emm með fyrsta og annan þing-
mann kjördæmisins og ef tveir þing-
menn væm í kjördæminu, væmm við
með þá báða.“
Ekki hægt að ná fram
algerum jöfnuði
Halldór sagði að það væri því
Framsóknarflokknum í hag að breyta
kosningakerfinu. Hann sagðist hins
vegar andvígur því að gera landið
að einu kjördæmi. Slíkt myndi meðal
annars hafa í för með sér að flokks-
starfi yrði miðstýrt frá Reykjavík og
ólíklegt væri að Framsóknarflokkur
eða Sjálfstæðisflokkur gengjust inn
á slíkt.
Hann sagðist geta fallizt á að þing-
mönnum yrði eitthvað fækkað í kjör-
dæmum. „Það verður samt að vera
einhver lágmarksfjöldi þingmanna,
sem hvert og eitt kjördæmi hefur.
Er það til dæmis sanngjamt að Vest-
ijarðakjördæmi hafí einn þingmann?
Mér fínnst það ekki. Mér fínnst lág-
mark að hvert kjördæmi hafí þijá til
fjóra þingmenn. En þá verður auðvit-
að ekki alger jöfnuður, heldur einhver
mismunur. Það er ekki hægt að ná
fram algerum jöfnuði, sem menn kalla
nú orðið mannréttindamál, þótt ég
skilji það ekki,“ sagði Halldór Ás-
grímsson. „Eru það til dæmis einhver
mannréttindi að Vestfírðingar fengju
bara einn þingmann?"
VISSIR ÞÚ ÞETTA UM SH OG
McDONALD'S Á ÍSLANDI?
Fylgst er vandlega með allri
framleiðslunni.
Eftirlitsmenn McDonald’s heim-
sækja frystihús ÚA og verk-
smiðjuna í Grimsby reglulega og
mánaðarlega eru send sýni
til gæðastofu McDonald’s
í Frankfurt. Þar er
fylgst með því a
allar kröfur um
bragð og gæði
séu uppfylltar.
SH leggur mikla áherslu á gœt)i allra
þeirra afurða sem fyrirtcekið selur og
hefur gœðakerfi fyrirtækisins verið
vottað. Það þýðir að kerfið
viðurkennt samkvœmt alþjóðlega
staðlinum ISO 9001. Með því
m.a. hægt er að rekja hvað verður
um fiskinn frá því hann ketnur
spriklandi úr hafinu þar til hann
hafnar á borði viðskiptavina,
í Reykjavik eða London.
er
Hjá McDonald's á íslandi er fisk-
borgarinn einnig framreiddur undir
ströngu gæðaeftirliti. Hann er djúp-
steiktur í sérstökum fiskpotti og
olían í honum er hreinsuð 3-4
sinnum á dag. Brauðið er gufuhitað
og á borgarann er síðan sett þykk
ostsneið og sérstök McDonald's
tartarsósa. Þetta hefur gert borg-
arann að uppáhaldi um allan heim.
Alltaf gæði • Alltaf góður matur • Alltaf góð kaup
LYST ehf, er íslenskt fjölskyldujyrirtceki. Ef frekari upplýsinga er óskað, skrifið
þá góðfúslega tihLYST ehf, Pósthólf8540, 128 Reykjavík, eða
SH, Pósthólfl525, 128 Reykjavík.
LYST
Dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar
Hraðfrystihúsanna í Grimsby
hefur framleitt fiskborgara fyrir
McDonald’s í meira en áratug.
Fiskurinn er unninn og frystur í
frystihúsum Útgerðarfélags Akur-
eyringa samkvæmt sérstökum
vinnureglum SH og McDonald’s
og síðan sendur til Grimsby. Þar
er fiskurinn gæðaprófaður áður
en hann er skorinn frosinn í litla
ferninga, hjúpaðirr sérstöku
McDonald’s deigi og brauðmylsnu
og sendur áfram til veitingastaða á
Englandi, Skotlandi, írlandi - og
íslandi.
Sérvalinn íslenskur fiskur, veiddur
af skipum Útgerðarfélags Akur-
eyringa, verður að úrvals fisk-
borgurum í meðförum SH í
Grimsby og McDonald’s. SH
framleiðir ekki aðeins fisk-
borgara fyrir McDonald’s á
Islandi, heldur einnig fyrir
McDonald’s á Englandi, Skotlandi
og Irlandi - alls um 1,5 milljón
borgara á mánuði.
„Það er mikil viðurkenning fyrir
gæði ffamleiðslu SH að McDonald's
skuli hafa valið okkur sem fram-
leiðanda og skipt við okkur í meira
en áratug”, segir Agnar Friðriksson,
forstjóri SH í Bretlandi. „Þeir eru
fremstir í flokki varðandi vörugæði
og gera gífurlegar kröfur um hrá-
efni, hreinlæti, framleiðsluaðferðir,
og eftirlit. 10 ára náið samstarf ÚA,
SH og McDonald's tryggir að við-
skiptavinir fá alltaf 1. flokks vöru.“