Morgunblaðið - 13.10.1996, Page 8

Morgunblaðið - 13.10.1996, Page 8
8 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Fjölmenni á ráðaíefnu fiskverkafólks Komíð er að uppskeruhátíð ÍGMU - LITLA Gunna og litli Jón eru komin til að ná í dúsuna sína, herra. Rannsóknastofa í gigtsjúkdómum opnuð NÝ RANNSÓKNASTOFA í gigt- sjúkdómum tók til starfa á Land- spítala í gær og mun þar verða unnið að vísindarannsóknum á sviði gigtsjúkdóma, einkum með tilliti til faralds- og erfðafræði. Vísindaráð og Gigtarfélag íslands hafa unnið að stofnun rannsókna- stofunnar undanfarin ár og verður hún starfrækt í samvinnu Gigtar- félagsins, Landspítala og Háskóla íslands. Ýmsir hafa lagt verkefn- inu lið, svo sem hreyfing Lions- manna, og þá vænta aðstandendur stuðnings opinberra aðila. Kristján Steinsson yfirlæknir á gigtarskor Landspítalans segir ís- land hafa sérstöðu þegar kemur að rannsóknum á sviði faralds- fræði og erfðafræði gigtsjúkdóma. Sú skoðun hafí komið glöggt fram á alþjóðlegu þingi um gigtsjúk- dóma sem haldið var í Reykjavík í sumar sem leið. Segir hann enn- fremur að sakir sérstöðu þessarar beri íslendingum skylda til þess að leggja sitt af mörkum í slíkum rannsóknum í samvinnu við erlend- ar háskólastofnanir. Hann segir FRÁ opnun rannsóknarstofu í gigtarsjúkdómum. ennfremur að læknavísindin séu á vissum tímamótum og að greining erfðaþátta kunni að skipta sköpum varðandi framfarir í lækningu gigt- sjúkdóma. Sama gildi um rann- sóknir á sviði ónæmisfræði því í flestum alvarlegustu gigtsjúkdó- munum sé truflun á starfí ónæmis- kerfísins. Kristján segir að gigtsjúkdómar séu mjög ungir sem fræðigrein og að viðhlítandi skýring hafí ekki fundist á orsökum margra þeirra. Því sé það forsenda framfara í lækningum gigtsjúkdóma að graf- ast fyrir um orsakirnar. Segir hann flestar kenningar þar að lútandi ganga út á það að um samverk- andi þætti sé að ræða, það er meðfædda erfðaþætti og ytri þætti. Þannig séu náin tengsl ákveðinna erfðamarka og ýmissa gigtsjúk- dóma þekkt og til dæmis hafi rann- sóknir hér á landi sýnt fram á að sumir gigtsjúkdómar séu ættlægir. Kristján segir ennfremur að á síðustu árum hafí orðið ör þróun og mikilvægar uppgtövanir í grunnrannsóknum sem leitt hafi til framfara í gigtlækningum. Þetta hafi tekist með stuðningi hins opinbera og einkaaðila um allan heim, sem horft hafi til arð- semisútreikninga og áttað sig á því að fé sem varið er til slíkra rannsókna sé vel varið. Alkunna sé að gigtarsjúkdómar valdi ómældri þjáningu og skapi auk þess alvarlegan fjárhagsvanda fyr- ir þjóðfélagið. Loks segir Kristján að rannsóknarfé hafi verið af skornum skammti hér á landi þótt gigtsjúkdómar séu síst sjaldgæfari hér en í nágrannalöndum. Sendiherra Grikklands á Islandi Gætum merkrar arfleifðar ELIAS Dimitrakopoul- os, nýr sendiherra Grikklands á íslandi, með aðsetur í Noregi, tók við í maí sl. og kom hann hingað til lands í vikunni til að afhenda forseta íslands trúnaðarbréf. „Við Grikkir teljum ísland vera framandlegt land en siðmenntað og ég hef enn- fremur komist að því að hér eru lífskjör og menning á háu stigi. Ég verð ekki var við annað að mikil vinsemd ríki í garð Norðurlandanna í Grikklandi og þá ekki síst vegna þess að við erum einn- ig smáþjóð eins og norrænu þjóðimar, sér í lagi þó ís- land. En ég viðurkenni fús- lega að Grikkir þekkja lítið til íslands enda hafa tiltölu- lega fáir landsmenn mínir komið hingað til lands.“ — Hvaða samskipti hafa veríð á milli landanna? „Þau hafa ekki verið mikil, hér á árum áður flykktust íslenskir ferðamenn á grískar sólarstrendur en þeim hefur fækkað. Þá kaupa Grikkir töluvert að íslenskum salt- físki, sem þykir mikið lostæti. Lík- lega eru þó helstu tengsl íslands og Grikklands á sviði evrópskrar samvinnu og vegna aðildar land- anna að Atlantshafsbandalaginu (NATO) en löndin eru afar mikil- vægir meðlimir, segja má að bæði löndin séu nokkurs konar útverðir þess í suðri og norðri." — Hvernig myndir þú lýsa stöðu Grikklands á alþjóðavett- vangi, hver eru helstu vandamáiin sem við blasa? „Við verðum að aðlaga efnahag okkar betur að efnahag annarra Evrópuríkja. Það er þó fjarri lagi að okkur takist að uppfylla skil- yrði peningalegs samruna Evrópu, EMU, á næstu árum. Ég tel raun- ar að það sé fullmikil bjartsýni fólgin í því að stefna að sameigin- legum gjaldmiðli Evrópu. Því er ekki að neita að við höf- um átt í erjum við nágranna okk- ar, ekki síst þann í austri, Tyrk- land. Við höfðum margsinnis lýst því yfir að við séum reiðubúnir til viðræðna um lausn deilnanna við Tyrki en að þær verði að fara fram samkvæmt alþjóðalögum. En við búum við sífelldar ögranir af hálfu Tyrkja, síðast í gær [fimmtudag] rufu tvær þotur tyrkneska hersins gríska lofthelgi. Þá er viðvarandi spenna á Kýpur og raunar í tengsl- um við flestar grískar eyjar nærri Tyrklandsströndum eins og deila okkar við Tyrki í fyrravetur leiddi berlega í ljós. Að báðar þjóðimar skuli vera í NATO hefur komið til góða, bandalagið telur að við eigum að leysa ágreining okkar sjálfír. Þessi afstaða hefur þó verið að breyt- ast, NATO hefur aukið þrýsting sinn á Tyrki en ekki okkur, enda höfum við ekki staðið fyrir ögrunum í þeirra garð. Við krefjumst hvorki lands né haf- svæðis af þeim. Þá hafa þeir gefið til kynna að þeir séu ekki fúsir að virða þau alþjóðalög sem til eru um milliríkjadeilur, vegna þess að þau séu of gloppótt. Slíkt nær ekki nokkurri átt.“ — Grikkland er á miklu átaka- svæði, þið hafið átt í eijum við fleiri nágranna ykkar og stríð geisaði á Balkanskaga þar til fyr- ir tæpu ári? „Ég vona að með tímanum muni draga úr þessum deilum og ágreiningur okkar við fyrrum júgóslavneska lýðveldið Makedó- níu er dæmi um slíkt. Við höfum náð samkomulagi við þá um öll Elias Dimitrakopoulos ► Elias Dimitrakopoulos er fæddur í Aþenu árið 1941. Lagði stund á lög við háskólann í Thessaloniki og lauk dokt- orsgráðu í lögum frá sama skóla. Dimitrakopoulos hóf störf þjá griska utanríkisráðu- neytinu árið 1968 og hefur starfað þar óslitið síðan, sem sendiráðsfulltrúi, sendiráðsrit- ari og konsúll. Hann hefur starfað í Þýskalandi, á Ítalíu, við Evrópuþingið, í Búlgaríu og Kanada. Dimitrakopoulos var skipaður sendiherra Grikk- lands í Líbýu árið 1990 og í maí á þessu ári tók hann við stöðu sendiherra í Noregi og íslandi, með aðsetur í Ósló. Dimitrakopoulos er kvæntur og þriggja barna faðir. ágreiningsatriði okkar, nema það er varðar nafn ríkisins. Það má öllum vera ljóst hversu mikilvægt það er okkur í sögulegu og menn- ingarlegu tilliti og við getum ekki sætt okkur við að sjálfstætt ríki beri sama nafn og Makedóníuhér- að í Grikklandi. Við fylgjumst að sjálfsögðu náið með þróun mála í lýðveldum gömlu Júgóslavíu, enda gætir áhrifa þaðan á öllum Balkan- skaga. Mestar áhyggjur höfum við af ástandi mála í Kosovo-héraði í Serbíu. Þar eru Albanir í meiri- hluta en Serbar ráða og ástandið mjög eldfimt. Raunar gæti svipað ástand skapast í Makedóníu, þar sem er mikið af Albönum. Gripið hefur verið til alþjóðlegra aðgerða til að draga úr spennunni á svæð- inu en ég held að gera megi enn betur. Balkanskagi er mikið átakasvæði enda suðupottur þar sem mætast austur og vestur, ísl- am og kristni." — Hvaða mál ræddir þú við íslensk stjómvöld? „Aðild okkar að Evrópusam- bandinu, við minntumst ekki á Island í því sambandi, þó að við myndum vissulega fagna því ef Island óskaði þess _að ganga í sambandið. Ég gerði stjórnvöldum grein fýrir stöðu mála í deilunni við Tyrki og hvaða áhrif ástandið á Balkanskaga hefði í Grikklandi. Mér þótti vænt um að finna þá miklu samkennd og áhuga sem er á Grikklandi og þá ekki síður Grikklandi nútímans en Grikklandi hinu forna. Það er mik- il og merk arfleifð sem við gætum. Við gerum okkar besta til að mæta þeim væntingum sem til okkar eru gerðar vegna hennar. Því teljum við að við getum ekki brugðist við þegar okkur er ögrað, heldur reynum að sýna stillingu og finna friðsamlega lausn.“ Grikkir þekkja lítið til íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.