Morgunblaðið - 13.10.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 9
FRETTIR
Utanríkisráðherra Lettlands í heimsókn
Erindi um brýnustu úrlausnar-
efni í utanríkismálum Lettlands
DR. VALDIS Birkavs, utanríkisráð-
herra Lettlands, flytur erindi á sam-
eiginlegum fundi Samtaka um vest-
ræna samvinnu
(SVS) og Varð-
bergs í Skála á
2. hæð Hótel
Sögu mánudag-
inn 14. október
nk. kl. 17. Fund-
inum lýkur
u.þ.b. kl. 18.30.
Ráðherrann
verður hér í op-
inberum erinda-
gjörðum en ís-
land var fyrst ríkja til að viður-
kenna sjálfstæði Lettlands eftir að
það losnaði undan járnhæl Sovét-
ríkjanna. íslendingar bera mikinn
hlýhug til Eystrarsaltsríkjanna og
er því forvitnilegt að heyra ráðherr-
ann fjalla um ofangreint málefni.
Dr. Valdis Birkavs, sem er lög-
fræðingur að mennt, er fæddur í
Riga árið 1942. Hann lagði stund
á heimspeki, félags- og afbrota-
fræði; auk laganámsins við háskól-
ann í Lettalandi. Birkavs lauk BA
prófi árið 1969, lagaprófi 1978 og
doktorsprófi árið 1993. Hann
kenndi afbrotafræði og réttarsál-
fræði við háskólann í Lettlandi á
árunum 1969-1986. Birkavs var
aðstoðarrektor skólans frá 1986 til
1989. Hann gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir dómsmálaráðuneyti
Lettlands 1969-1986.
Dr. Birkavs hefur flutt fyrirlestra
við fjölmarga háskóla og rann-
sóknastofnanir víða um lönd; þar á
meðal New York-háskóla, Yale og
Harvard. Eftir hann liggja 70 bæk-
ur og rit, þ.m.t. kennslubækur og
rit um lögfræði og utanríkismál.
Hann er einn stofnenda félags lög-
fræðinga og samtaka lögfræðiþýð-
enda í heimalandi sínu. Dr. Birkavs
er jafnframt einn stofnenda stjóm-
málasamtakanna Latvijas Cels eða
Lettlandsleiðin og er nú formaður
þeirra.
Dr. Birkavs var fyrst kjörinn á
löggjafarsamkundu Lettlands árið
1990 fyrir Alþýðufylkingu Lett-
lands. Hann var kjörinn á lettneska
þingið, Saeima, árið 1993 fyrir
Latvijas Cels. Dr. Birkavs var for-
sætisráðherra lands síns frá því í
júlí 1993 fram í september árið
1994, er hann gerðist utanríkisráð-
herra og aðstoðarforsætisráðherra
í ríkisstjórn Máris Gailis. Eftir að
hann náði endurkjöri í þingkosning-
unum í september 1995 varð hann
á ný utanríkisráðherra Lettlands í
ríkisstjórn Andris Skéle. Eiginkona
dr. Birkavs er Aina Birkava, sem
einnig er lögfræðingur og eiga þau
einn son.
Fundurinn er opinn félagsmönn-
um SVS og Varðbergs auk þess
öllu áhugafólki um erlend málefni
og þróun öryggis- og stjórnmála í
Evrópu.
Dr. Valdis
Birkavs.
Könnun á útbúnaði hjólreiðamanna
Of fáir nota ljós
og hjálma
LJÓSABÚNAÐI á reiðhjóhim er
mjög ábótavant og algengt er
að hjólreiðamenn virði ekki
umferðarreglur við gatnamót,
ef marka má könnun á útbúnaði
hjólreiðamanna sem nýlega var
gerð í Reykjavík.
Könnunina gerðu þær Herdís
L. Storgaard, barnaslysavarna-
fulltrúi Slysavarnafélags ís-
lands, og Fjóla Guðjónsdóttir,
verkefnissljóri samstarfsverk-
efnis Reykjavíkurborgar og
Slysavarnafélagsins, „Betri
borg fyrir börn“. Könnunin fór
fram á gatnamótum Snorra-
brautar og Miklubrautar að
morgni 3. október sl. Athyglinni
var aðallega beint að fullorðnum
hjólreiðamönnum en úttekt á
útbúnaði yngri hjólreiðamanna
verður gerð síðar í mánuðinum.
Einungis 35% einstaklinga 20
ára og eldri sem könnunin náði
til voru með hjálm og aðeins
þrír af 118 fullorðnum hjól-
reiðamönnum voru með ljósa-
búnað samkvæmt reglugerð um
gerð og búnað reiðhjóla. Aber-
andi var að umferðarreglur
væru ekki virtar nálægt gatna-
mótum.
Herdís sagði það mjög alvar-
legt hversu fáir notuðu Ijós og
benti á að það væri ekki nóg
að kveðið væri á um notkun
þeirra í reglugerð ef reglunum
væri ekki framfylgt í reynd. f
Danmörku væru hjólreiðamenn
t.d. miskunnarlaust sektaðir ef
þeir væru ekki með ljós á hjólum
sínum. Hluti af skýringunni á
því hversu ljósanotkun er ábóta-
vant gæti verið sú staðreynd að
ljós fylgja ekki nema fáum teg-
undum reiðhjóla þegar þau eru
keypt og því þarf oftast að
kaupa þau sem aukabúnað.
Laugardag 10-17
og sunnudag frá kl. 12-17
hjá Suzuki Bílum, Skeiíunni 17.
Geturðu gert betri bílakaup?
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
Sýttíng um helgjata:
SUZUKT