Morgunblaðið - 13.10.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 13
líka með klaufaskap þeirra er þar
áttu í hlut enda er talið að margir
af reyndustu sprengjumönnum IRA
hafi sest í helgan stein á meðan
vopnahléið varði. Þótt auðvitað telj-
ist sprengjufundurinn sigur í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum eru þó
ýmsir uggandi um að hann verði
til þess að meðlimir IRA telji nauð-
synlegt að bregðast við þessu bak-
slagi, til dæmis með sprengjuher-
ferð einhvers staðar á Bretlandi.
Þeir hinir sömu setja þetta því í
samhengi við þá ákvörðun IRA af-
lýsa vopnahléinu á Norður-írlandi.
Hafa ber í huga að á tímabilinu
1969 og fram til þess að vopnahlé
var boðað 1994 áttu flest hryðju-
verk sér stað á Norður-írlandi og
nálega helmingur allra ódæðanna
var framinn í Belfast-borg einni.
Spurningin nú virðist því miður
ekki vera sú hvort horfið verður
aftur til fyrri vinnubragða. Miklu
frekar hafa menn leitt hugann að
því hvaða hópur yrði fyrstur til að
ijúfa friðinn. Svo virðist sem IRA
hafi afráðið að svara þessari spurn-
ingu á mánudag. Hún mátti að
sönnu teljast mikilvæg, því herskáir
lýðveldissinnar verða nú gerðir
ábyrgir, skelli ný alda ofbeldis á
langþreyttum íbúum Norður-
írlands sem eiga munu erfitt með
að fyrirgefa slík griðrof.
Lögreglan er ekki ein um
löggæsluna
Reyndar eru ýmis vandkvæði á
því að tala um frið á Norður-írlandi
í þessu sambandi því bæði IRA og
hryðjuverkahópar sambandssinna
stunda nokkurs konar „löggæslu" í
eigin hverfum. Þessir hópar refsa
glæpamönnum ýmist með barsmíð-
um, morðum eða með því að reka
viðkomandi úr landi.
Snemma í síðustu viku
stóð hópurinn Direct
Action Against Drugs
(DAAD) fýrir morði á
þekktum eiturlyfjasala
og nauðgara sem áður
hafði verið rekinn úr landi en lét sér
ekki segjast. Þetta morð var ekkert
einsdæmi og það er á allra vitorði
að DAAD er hið sama og IRA. Þar
að auki eru á' ferli klofningsfélög
Sjaldan meiri
spenna og
tortryggni
úr sveitum bæði lýðveldissinna og
sambandssinna sem líta svo á að
ekkert hafi áunnist með friði og því
sé ekki um annað að ræða en að
grípa til vopna að nýju.
I fyrri viku komu samtök sem
nefnast „Irish Continuity Army“
(ICA) bílsprengju fyrir í miðbæ
Belfast en ICA er lítill hópur manna
sem hafa sagt skilið við IRA. Breski
herinn gerði sprengjuna óvirka, eft-
ir að hringt var í fréttastofu dag-
blaðs í Belfast og tilkynnt um hana.
Þetta hefði orðið fyrsta sprengingin
í Belfast í meira en tvö ár. Þessi
sami hópur, ICA, lýsti yfir ábyrgð
á sprengingu í Enniskillen í júlí síð-
astliðnum þar sem hótel var eyði-
lagt. Sprengingin í Enniskillen kom
í kjölfar verstu óeirða á Norður-
írlandi frá 1969, þegar ófriður und-
anfarinna áratuga hófst.
Sprengingar í Dublin á
haustmánuðum?
Óeirðirnar í júlí urðu vegna deilna
um göngur sambandssinna sem
kröfðust þess að fá að ganga í fylk-
ingu í gegnum kaþólsk hverfi í
óþökk íbúa þeirra. Þessar deilur og
harkaleg meðferð lögreglunnar
(rúm 90% lögregluþjóna eru mót-
mælendur) á kaþólskum borgurum
hafa skilið djúp sár eftir sig í samfé-
laginu. Spenna og tortryggni á
milli trúarhópanna tveggja hefur
sjaldan verið meiri en nú. Fjöldi
kaþólikka neitar að skipta við fyrir-
tæki og verslanir í eigu mótmæl-
enda og hinir síðarnefndu hafa síð-
astliðna sunnudaga safnast saman
fyrir utan kaþólskar kirkjur víða í
héraðinu til að hræða og/eða meina
kirkjugestum aðgang að messu.
Slíkir atburðir gera lítið annað en
að auka enn frekar á þá spennu sem
rfkir í samfélaginu.
Þessi spenna, auk her-
ferðar IRA á Englandi,
hefur beint kastljósinu að
vopnahléi herskárra sam-
bandssinna. I sumar sem
leið hótuðu þeir í tvígang
sprengjuárásum í Dublin og menn
óttast nú í kjölfar yfirlýsinga hátt-
settra meðlima þeirra að slíkar hót-
anir verði að veruleika. Og með því
opinberast líka ógnvænlegur mögu-
leiki vopnfúsra til að koma á aftur-
hvarfi á Norður-írlandi; með því að
standa fyrir hryðjuverki í Dublin
tækist sambandssinnum líklega að
hrinda IRA út í samskonar aðgerð-
ir í Belfast. Og þá gætu allir gripið
til vopna án þess að telja sig undir
þá sök selda að þeir bæru ábyrgð
á ofbeldinu, allir gætu réttlætt að-
gerðir sínar.
Deilt um
leikreglur
Þótt eini vettvangur varanlegs
friðar sé við samningaborðið þá
hefur friðarviðræðunum, sem kosið
var til í maí síðastliðnum, hins veg-
ar ekkert miðað áfram. Þátttakend-
ur deila enn um vinnureglur og
starfsaðferðir sem veldur því að
viðræður um þau málefni sem máli
skipta hafa setið á hakanum. Sinn
Fein, sem hlaut um 15% atkvæða,
er enn meinaður aðgangur að við-
ræðunum, þar sem nýtt vopnahlé
IRA er ekki á döfinni. Og jafnvel
þótt vopnahléi yrði lýst yfir að nýju
myndi það sennilega breyta litlu því
talsmenn beggja stærstu flokka
sambandssinna hafa sagt að þeir
ræði ekki við fulltrúa Sinn Fein fyrr
en IRA afhendir eða eyðir stórum
hluta vopna sinna. Óhætt er að full-
yrða að til slíks kemur ekki í fyrirsjá-
anlegri framtíð. Þar eð sambands-
sinnar hvika í engu frá þessu skil-
yrði sínu hamla þeir gegn öllum til-
raunum, sem miða að því að leysa
þennan vanda. „Málamiðlun" er
hugtak sem hvorki þeir né herskáir
lýðveldissinnar virðast þekkja.
Eftir tveggja ára frið og bjartsýni
hafa menn nú vaknað upp við vond-
ann draum. Vandinn er enn óleystur
og hryðjuverkastarfsemi hefur verið
hafin að nýju. Hættan er nú sú að
öfgasinnar fyllist óþolinmæði og
steypi Norður-írlandi í algert öng-
þveiti borgarastríðs. Hætt er við að
ef svo fer þá verði átökin enn blóð-
ugri en áður því ýmsir munu telja
sannað að friðsamlegar leiðir séu
ófærar og að best sé að útkljá mál-
in með vopnaskaki. Að einhver
standi uppi sem sigurvegari að sliku
striði loknu er ólíklegt því í ná-
grannaeijum verða allir fyrir
skakkaföllum og allir tapa.
og hagnaður jókst úr rúmum millj-
arði ísl. kr. í 3,5 milljarða.
Óhætt er að segja, að fyrirtækja-
veldi Rokkes hafi vaxið með ævin-
týralegum hætti. Á fyrstu 13 árun-
um tvöfaldaðist verðgildi eignanna
árlega og á síðustu þremur árum
um 65% á ári. Rokke segir, að þann-
ig geti það að sjálfsögðu ekki geng-
ið miklu lengur en hefur þó sett sér
það markmið að auka verðgildið
um 25% árlega.
Þegar Kjell Inge Rokke er beðinn
um skýringu á velgengni sinni svar-
ar hann því til, að hjá honum hafi
heppni og dugnaður haldist í hend-
ur. Um dugnaðinn efast heldur eng-
inn og hann hefur vissulega verið
heppinn. Sem dæmi um það eru
nefnd kaup hans og sala á skuldum
sænskrar hótelkeðju 1993. Hann
gaf 10 milljónir ísl. kr. fyrir réttinn
til að kaupa þriggja milljarða kr.
skuld á 1,3 milljarða og seldi síðan
þennan sama rétt innan mánaðar
fyrir 1,2 milljarða kr.
Reyndiað
kaupa Leeds
íbúarnir í Molde eru eðlilega
stoltir af „gamla, góða Kjell Inge“
og hann hefur heldur ekki gleymt
sínum gamla heimabæ. Hann var
að vísu aldrei mikið gefinn fyrir
knattspyrnu en keypti samt knatt-
Kpyrmifélagið á st.aðniim og hofnr
síðan dælt í það milljónum
kr. Knattspyrnuliðið, sem
hefur aldrei verið upp á
marga fiskana, keppti ný-
lega við Rosenborg, og þá
komu þeir félagarnir,
Rakke og Bjorn Rune
Gjelsten, til leiksins á þyrlu.
Skömmu síðar komu 30
rútur með stuðningsmenn
liðsins frá „Rósabænum"
eins og Molde er kallaður.
Allt á kostnað Rokkes.
Rokke hefur nú einnig
boðist til að kosta byggingu
nýs leikvangs í Molde en
sú gjafmildi hans hefur þó mælst
misjafnlega fyrir í bænum. Hann
setur það nefnilega sem skilyrði,
að hann fái sjálfur að ráða því hvar
honum verður komið fyrir.
Meðal evrópskra auðkýfinga
þykir það fínt að eiga fótboltafélag
en líklega munu sparkararnir í
Molde seint verða til að auka hróð-
ur Rokkes meira en orðið er. Því
var það, að þeir Rokke og Gjelsten
þreifuðu fyrir sér með kaup á Leeds
í Englandi fyrir þijá milljarða ísl.
kr. Af því varð þó ekki en síðan
hafa gengið sögur um, að þeir væm
á höttunum eftir öðrum knatt-
spyrnufélögum í Englandi. Enska
blaðið The People Ort Sunday sagði
nýlega, að norsku „undradrengirn-
ir“ væru að semja um kaup á Manc-
hester City en Gjelsten vísar því á
bug. Segir hann, að þeir hafi ekki
lengur neinn áhuga á að kaupa
enskt knattspyrnulið.
Minni hagnaður
Eins og áður segir hefur RGI-ris-
inn vaxið hratt en þó hafa orðið
nokkur umskipti til hins verra að
undanförnu. Síðasta árið hefur velt-
an aukist um 30%, aðallega vegna
kaupa á öðrum fyrirtækjum, en
rekstrarhagnaðurinn hefur minnk-
að um 42% og um 34% fyrir skatt.
Á fyrra misseri 1995 var hagnaður
7.7% af veltu en ekki nema 3.9% á
fyrra árshelmingi nú. Minnkaði
hagnaðurinn mest í veiðum og
vinnslu- þótt veltuaukningin hafi
jafnframt verið mest þar.
Rokke segir, að skýringin á þessu
sé fyrst og fremst verðþróunin í
surimi, sem sé nú aftur á uppleið,
en rekstur sumra annarra fyrir-
tækja hefur líka gengið illa. Má
meðal annars nefna Constructor-
samsteypuna í Svíþjóð og skipa-
smíðastöðvarnar Brattvaag og
Langsten og í merkjavörudeildinni
hefur orðið samdráttur hjá Gresvig,
EMO og Brooks. Þá hefur RGI ekki
haft neinar tekjur enn af Skaarfish,
Norlax og Foodmark. Á það raunar
líka við um EMO og Constructor.
Rokke gerir þó lítið úr þessu og
segir, að hann hugsi jafnan nokkur
ár fram í tímann. Sá tími verði
notaður til að endurskipuleggja fyr-
irtækin og gera þau arðbær eða
arbærari.
Þriðja stærsta fyrirtæki í
Noregi
Fullvíst er talið, að samruni R
og Aker verði samþykktur á að
fundum fyrirtækjanna í nóvemt
og Aker RGI verður þá þric
stærsta samsteypan í Noregi á ef
ir Norsk Hydro og Statoil. Á þa
að taka til starfa um áramótin oj
ársveltan verður um 190 milljarðar
ísl. kr. og starfsmenn um 17.000.
Verða þrjár meginstoðirnar undir
rekstrinum veiðar og vinnsla; sem-
entsframleiðsla og tækni og búnað-
ur við olíu- og gasframleiðslu.
Rekke hefur síðustu árin verið
búsettur á Bahamaeyjum en er nú
að flytjast búferlum til London. Af
skattalegum ástæðum verður lík-
lega bið á því, að hann flytji lög-
heimilið til Noregs en sjálfur segir
hann, að flutningurinn til London
endurspegli umsvifin. „Ég er á ferð
og flugi 250 daga ári,“ segir Rokke
um leið og hann stígur upp í einka-
þotuna sína, sem kostaði hann 1,3
milliarða ísl. kr.
Eg þakka öllum þeim, sem heiÖruðu mig á sex-
tugsafmœli mínu 5. október sl. Góðar undirtektir
og örlœti viö stofnun „Frœðslusjóðs um líf í al-
heimi" þennan daggladdi migjafnframt mjög.
Þór Jakobsson,
veðurfræðingur.
Jörð til sölu
Tilboð óskast í jörðina Fitja, Lýtingsstaðahreppi, Skagafjarðar-
sýslu, sem nú er laus til kaups og ábúðar. Land jarðarinnar er um
20 ha að stærð, allt gróið, þar af 11 ha tún. Á jörðinni er 2ja hæða
steinsteypt íbúðarhús, að flatarmáli 90 fm hvor hæð. Við húsið eru
tjaldstæði með góðri snyrtiaðstöðu. Hitaveita er á býlinu. Útihús
eru járnbogaskemma, byggð 1974, um 1800 rúmmetrar að stærð,
gamalt fjós og hlaða. Ekkert greiðslumark er á jörðinni.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari uppl. eru gefnar í símum 852 5344, 453 8040,
453 5189 og 453 5624.
Mikið stökk fyrir lítið
|17. - 20. október
w
Auka-helgarferð á einstöku verði
Nú eru flestar helgarferðir uppseldar og vió bætum vió
aukaferð til Newcastle 17. október i 3 nætur.
Innifalið í verði: Flug, gisting í tvíbýli, morgunverður, akstur til
og frá flugvelli erlendis, fararstjórn og flugvallarskattar.
Ódýrasta verslunarborgin
- dýrasta knattspyrnuborgin
Tvær staðreyndir um Newcastle
sem við getum öll verið sammála um.
MþÚRVALÚTSÝN
Lágmúla 4: stmi 569 9300,
Hafnarfirði: sími 565 23 66, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og hjá umboðsmötitium um land allt.
KJDoatiaS/®