Morgunblaðið - 13.10.1996, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANN J. Ólafsson er forstjóri Jóhanns Ólafssonar & Co.
Morgunblaðið/Ásdís
HUGSJÓNAMAÐUR
OG HEILDSALI
eftir Guðna Einarsson.
JÓHANN Ólafsson & Co.
fagnar 80 ára afmæli þann
14. október. Faðir Jóhanns
J. Ólafssonar forstjóra, Jó-
hann Ólafsson, stofnaði fyrirtækið
ásamt Sigfúsi Blöndahl þennan dag
árið 1916. Ári síðar gekk bróðir
Sigfúsar, Sjghvatur, inn í fyrirtæk-
ið. Þeir Blöndahl bræður gengu út
úr fyrirtækinu þremur árum síðar
og varð Björn Árnórsson þá með-
eigandi Jóhanns Ólafssonar. Árið
1951 hætti Björn og seldi Jóhanni
sinn hlut. Jóhann Ólafsson rak fyr-
irtækið til dánardags 1963 að son-
ur hans Jóhann J. Olafsson tók við.
Fyrirtækið hefur gengið í gegn-
um heimskreppu og tvær heims-
styijaldir, en það voru afskipti
stjómvalda sem komust næst því
að knésetja reksturinn. „Faðir
minn, fátækur sveitamaður, stofn-
aði þetta fyrirtæki og byggði upp,“
segir Jóhann. „Hann seldi bíla frá
General Motors og rak bílaverk-
stæði fyrstu 20 árin. Árið 1935,
sama ár og ég fæddist, var sam-
þykkt að setja hér upp ríkiseinka-
VIÐSKEPTIAIVINNULÍF
Á SUNIMUDEGI
►JÓHANN J. Ólafsson forstjóri stýrir áttræðu fjölskyldu-
fyrirtæki sem sem kennt er við föður hans, Jóhann Ólafs-
son & Co. Aðal starfsvettvangur fyrirtækisins hefur verið
á sviði innflutnings og heildverslunar. Auk þess hefur félag-
ið fjárfest I öðrum fyrirtækjum og stendur nú frammi fyr-
ir skipulagsbreytingum til að laga sig að kröfum tímans.
STARFSFÓLK Jóhanns Ólafssonar & Co. framan við aðalstöðv-
ar fyrirtækisins í Sundaborg 13, Reykjavík.
sölu á bílum. Faðir minn var svipt-
ur bílaviðskiptunum í einu vet-
fangi.“ Jóhann segir að aðförinni
hafí ekki verið þar með lokið. Jó-
hanni Ólafssyni var fundið það til
saka að hafa þekkt Þjóðveija og
að hafa verið í flokki þjóðernisjafn-
aðarmanna um skamma hríð fyrir
1934.
„í stríðinu voru stórlega brotin
á honum mannréttindi,“ segir Jó-
hann. „Hann fékk ekki að ferðast,
póstur hans var stoppaður, hann
fékk ekki að skrifa, hringja né
senda símskeyti. Á sama tíma voru
fulltrúar Sambandsins í viðskipta-
nefnd ríkisins og fóru um allt í
Bandaríkjunum. Sambandið og
fleiri hirtu líka öll bestu umboðin
sem hann hafði haft. Svo kom
helmingaskiptareglan. Sum fyrir-
tæki fengu allt sem þau vildu en
við lentum utangarðs - vorum ekki
innundir í kerfinu. Við vorum áfram
með nokkur umboð og gátum selt
þeim sem fengu innkaupaleyfi, til
dæmis sjúkrahúsum og stofnunum.
Þetta er meðal annars skýringin á
því hvað við höfum verið með breitt
vöruúrval allt fram á þennan dag.
Þriðja kynslóðin
ÞRIÐJA kynslóðin er tekin til
starfa í fjölskyldufyrirtækinu Jó-
hanni Ólafssyni & Co. Þar starfa
systkinin Margrét Jóhanna og Jón
Árni Jóhannsbörn. Yngsta systir-
in, Ásta Guðrún, er enn í skóla.
Margrét Jóhanna lauk BA prófi
í sálfræði frá Háskóla íslands í
sumar. Hún byijaði í sumarvinnu
þjá fyrirtækinu 18 ára gömul og
hefur unnið þar þegar hlé hefur
verið á skólagöngu.
„Ég hef aðallega fengist við
dreifingu á gjafavöru í gjafavöru-
verslanir," segir Margrét. Hún
hefur selt í verslanir á höfuðborg-
arsvæðinu og nágrenni þess. Auk
þess að vera sölumaður hefur
Margrét leyst af ritara, bókara,
gert tollskýrslur og fleira svo hún
er flestum hnútum kunnug. En
hvers vegna fór hún ekki í við-
skiptafræði?
„Eg tók mér þriggja ára frí
eftir Verslunarskólann, var ár í
Frakklandi og vann svo hér í 18
mánuði samfleytt. Mér leist ein-
hvern veginn best á sálfræðina
og með þá menntun standa mér
allar dyr opnar. Námið nýtist mér
ágætlega, ég lærði að ná athygli
fólks og að hafa áhrif á viðhorf
þess sem kemur sér vel í sölu-
mennskunni."
Hún segir að á æskuárum hafi
sér ekki þótt það áhugavert að
vinna við fjölskyldufyrirtækið en
reynslan hafi sýnt sér að þetta
sé áhugavert starf. „Ég á frekar
von á því að vinna hér í framtíð-
inni, en það er annars óráðið,"
segir Margrét.
Morgunblaðið/Ásdís
JÓN Árni og Margrét Jóhanna Jóhannsbörn.
Þessu ástandi linnti ekki fyrr en
með Viðreisninni 1960.“
Fæddur inn í fyrirtækið
„Ég fæddist inn í þetta fyrir-
tæki,“ segir Jóhann. Hann byijaði
að vinna hjá föður sínum sumarið
sem hann var 16 ára. Jóhann kom
þó víðar við, var í sveit og fór eitt
sumar á togarann Neptúnus með
Bjarna Ingimarssyni, nafntoguðum
skipstjóra.
Þegar Jóhann varð stúdent frá
Verslunarskólanum 1956 fór hann
að hugleiða hvaða stefnu hann
ætti að taka í lífinu. Á þeim árum
leist honum ekkert meira en svo á
að ganga inn í fjölskyldufyrirtækið
en dreymdi um að verða læknir.
Ekki varð af því heldur skráði hann
sig í lögfræði og segir áhrif æsku-
vinar síns, Jóhanns heitins Ragn-
arssonar, hafa ráðið mestu um það.
Námið varð stopult fyrstu árin.
Jóhann var rétt byijaður að lesa
lög þegar faðir hans fékk snert af
heilablóðfalli og var frá vinnu. Jó-
hann fór þá að sinna fyrirtækinu
í veikindum föður síns. Starfið tók
mikinn tíma, það gafst ekki tóm
til að lesa og námið sat á hakan-
um. „Það fór allur tíminn í að jag-
ast í bönkum um sjálfsagða hluti.
Það var allt bundið leyfum," segir
Jóhann.
Eftir að birti til í viðskiptaum-
hverfínu með Viðreisninni og bið-
raðirnar styttust ákvað Jóhann að
fara aftur að lesa lögfræði. Hann
sótti ekki tíma heldur vann á
morgnana og las eftir hádegið jafnt
sumar sem vetur. „Vinur minn Sig-
urður Gizurarson sótti tímana og
las með mér,“ segir Jóhann. „Þegar
við lukum námi varð hann efstur
og með eina hæstu einkunn sem
þá hafði verið gefín við deildina.
Ég kom næstur honum með 215‘A
stig,“ segir Jóhann.
Arið 1963, um það bil sem Jó-
hann var að ljúka fyrrihlutaprófínu,
andaðist faðir hans. Jóhann tók þá
við fyrirtækinu og hefur rekið það
fram á þennan dag. Hann sér ekki
eftir því nú að hafa gengið inn í
reksturinn. „Þetta starf hefur veitt
mér mikla lífsfyllingu, gleði og
ánægju,“ segir Jóhann.
Þrír meginþættir
„Ég vona að enginn sjái að fyrir-
tækið er 80 ára,“ sagði Jóhann
þegar hann heilsaði blaðamanni í
nútímalegum höfuðstöðvum Jó-
hanns Ólafssonar & Co. Þrátt fyrir
að mörg ár séu að baki er ekki
dvalið um of við fortíðina á þessum
tímamótum. Áherslan er á nútím-
ann og framtíðina og það er
sóknarhugur í forstjóranum. Þann
21. september síðastliðinn var opn-
uð sérverslun með vörur frá Vill-
eroy & Boch í Kringlunni þannig
að fyrirtækið er aftur komið út í
smásölu. Verslunin er í eigu Jó-
hanns Ólafssonar & Co. en í söluk-
eðju á annað hundrað Villeroy &
Boch verslana víða um heim. Fyrir-
tækið hefur gengið í gegnum skipu-
lagsbreytingar til að styrkja það í
harðri samkeppni og frekari skipu-
lagsbreytingar eru á döfinni.
Jóhann segir að hugmyndin sé
að mynda eignarhaldsfélag sem
haldi utan um þijár aðskildar
Jón Árni byijaði sem sumar-
maður þegar hann var á þrett-
ánda ári og stjórnaði þá kústinum
á lagernum. Hann hefur verið í
fullu starfi frá því hann lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskó-
lanum 1992 og situr nú í stjórn
fyrirtækisins. Jón Árni fæst aðal-
lega við sölu á hótelvörum og til
veitingahúsa og skemmtistaða.
„Það er mjög skemmtilegt að
vinna svona í fjölskyldufyrirtæki,
ég get meira að segja talað við
ömmu um reksturinn," segir Jón
Árni. „Mér finnst framtíðin björt.
Ég reikna með að við eigum eft-
ir að sjá miklar breytingar í
verslun. Sjálfsafgreiðsla mun
færast enn í vöxt, neytandinn fær
að ráða meira,“ segir Jón Árni.
Hann stefnir á nám í iðnrekstrar-
fræði í Tækniskólanum eftir ára-
mótin og býst við því að vinna
við fyrirtækið að því loknu.
>
>
>
í
!
!
\
Í
i
i
l
i
i
I
f
i