Morgunblaðið - 13.10.1996, Page 31

Morgunblaðið - 13.10.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 31 GUÐMUNDUR HA UKSSON + Guðmundur Hauksson fæddist á Akureyri 24. október 1934. Hann lést 6. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhanna Jóns- dóttir, fædd á Læk- nesstöðum á Langanesi 11.11. 1900, og Haukur Sigurðsson, fædd- ur á Akureyri 20.10. 1889. Hauk- ur og Jóhanna bjuggu allan sinn búskap á Akureyri en eru nú látin. Systkini Guðmundar eru Jón, f. 1923, Sigrún, f. 1927, Jóhanna, f. 1929, og Ásta, f. 1931. Eiginkona Guðmundar er Theodóra Káradóttir, f. 31.3. 1935. Þau giftust 31.8. 1957. Hún er dóttir hjónanna Kára Þórðarsonar fyrrverandi rafveitusljóra í Keflavík og Kristínar E. Theodórsdóttur. Börn Guðmundar og Theodóru eru Kári, f. 1959, eiginkona hans er Anna G. Garðarsdóttir og eiga þau 3 börn. Haukur, f. 1960, giftur Huldu G. Hauksdóttur og eiga þau tvö börn. Sævar, f. 1962, gift- ur Öddu Þ. Sigur- jónsdóttur og eiga þau 2 börn. Sigrún, f. 1965, gift Jó- hannesi Harðarsyni og eiga þau 2 börn. Guðmundur stundaði nám við Vélslj óraskólann 1952-1953, síðan lauk hann námi frá Stýrimannaskólanum og Loft- skeytaskólanum á árunum 1955-1958. Guðmundur var stýrimaður og skipstjóri á ýms- um bátum frá Suðurnesjum, aðallega á Keflvíkingi og Sæv- ari frá Keflavík. Árið 1973 hóf hann störf hjá Flugleiðum á Keflavíkurflugvelli og vann þar allt til hinsta dags. Útför Guðmundar verður gerð frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 14. október og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar að minnast elsku- legs bróður okkar og vinar, sem lést 6. október eftir hetjulega bar- áttu við illkynja sjúkdóm, aðeins 62 ára gamall. Þegar þeir sem eru okkur hjart- fólgnir falla frá og það á besta aldri, finnst okkur almættið ósann- gjarnt. Við hefðum óskað þess innilega að fá að njóta Guðmundar bróður okkar miklu, miklu lengur, en sú ósk rættist ekki. Söknuðurinn er mikill og minn- ingarnar hrannast upp hver af annarri, því það er svo margs að minnast frá æskudögum og til þess síðasta. Guðmundur var yngstur af okkur fimm systkinum og augasteinn foreldra okkar og síðan okkar systkinanna. Það var ekkert undarlegt, jafn aðlaðandi og vel gerður sem hann var. Það var allaf líf og fjör þar sem hann var, glettinn og skemmtilegur og miðlaði þessum ferska léttleika til okkar allra, þó svo hann væri líka ákveðinn og vissi hvað hann ætl- aði sér. Bömum mínum var hann alltaf uppáhalds frændinn og það ekki að ástæðulausu. Guðmundur var mjög laginn í höndum og hug- myndaríkur, sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt heppnaðist, enda var hann gæfumaður sem öllum þótti vænt um er honum kynntust. Hann skar út í tré, lærði að stoppa upp fugla af mikilli list, átti íjöldann allan af íslenskum fuglum sem hann setti upp á svo skemmtilegan og listrænan hátt. Hann gaf vinum og vandamönnum marga fallega fugla, og var hann alveg undir það síðasta að stytta sér stundir við að stoppa upp. Guðmundur var mikið náttúru- barn. Hann naut þess sem náttúr- an hafði upp á að bjóða og var veiðimaður af guðs náð. Aldrei var hann ánægðari en við alls konar veiðiskap, og fylgdust þau hjónin saman í ótal veiði- og skemmti- ferðir um landið. Eftirlifandi eiginkona hans, Theodóra Káradóttir, er ættuð úr Hafnarfirði. Hún er góð kona sem hefur ekki látið sitt eftir liggja að gera heimili þeirra fallegt og list- rænt og höfum við öll notið gest- risni þeirra hjóna í áraraðir og glaðst með þeim á ótal gleðistund- um. Þau áttu lengst af heima í Keflavík, en byggðu sér fallegt hús í Njarðvíkum sem okkur stóð alltaf opið. Guðmundur var til sjós í 20 ár a.m.k. Hann fór í Sjómannaskól- ann og lauk þaðan prófi með ágæt- is einkunn. Seinna fór hann í Loft- skeytaskólann og lauk þar námi, svo það má með sanni segja að hann hafi búið sig vel undir ævi- starfið. Var hann lengst af stýri- maður eða skipstjóri á ýmsum skipum og var fengsæll og far- sæll á sjónum. Hann fór svo í land og vann hjá Flugleiðum á Kefla- víkurflugvelli í fjöldamörg ár og vann þar eins lengi og heilsan leyfði. Þau hjónin eignuðust fjögur mannvænleg börn og eru barna- börnin orðin átta. Theodóra stóð eins og klettur við hlið Guðmundar og gerði allt sem hægt var til að gera honum lífið bærilegra, hún á skilið þakkir og aðdáun fyrir. Við systkinin og fjölskyldur okkar þökkum Guð- mundi samfylgdina alla ævi. Við vitum að það verður vel tekið á móti honum á æðri stöðum. Elsku Theodóra, guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Við sendum okkar hlýjustu samúðar- kveðjur til þín, barna ykkar og ættingja allra. Minningin um góð- an dreng lifir. Ásta. Guðmundur Hauksson frændi minn og vinur er látinn eftir langa og stranga baráttu við illvígan sjúkdóm. Mundi eins og hann var jafnan kallaður af okkur félögunum var einn af þessum mönnum sem aldr- ei kvartaði og sá alltaf björtu hlið- arnar á öllum málum, á hveiju sem gekk. Hann var mikill hagleiks- maður til allra verka. Það var nánast allt sem þessi maður tók sér fyrir hendur vel gert og vand- að. Mundi átti marga góða vini, bæði í leik og starfi enda hrókur alls fagnaðar hvar sem hann fór. Vinátta okkar Munda hófst strax þegar ég var barn og hélst óslitin fram á síðasta dag eða í hartnær 40 ár. Ég man eftir honum sem ungum og glæsilegum manni ný- giftum henni Theodóru, konunni sem hann átti alla tíð. Börnin komu eitt af öðru, þrír drengir og ein stúlka. Tíminn líður og við báðir orðnir afar. Upp koma í hugann minningar um ótal veiðiferðir bæði til sjós og lands. Rennisléttur Eyjafjörðurinn í sumarblíðunni eða Holtavörðu- heiðin á heiðskírum vetrardegi. Það var alltaf svo gott veður í kringum hann Munda. Sennilega var það glaðværðin og dugnaðurinn sem gerir minninguna svo góða. Kæri vinur, megi þér famast vel á nýjum slóðum og hlakka ég til að hitta þig aftur þegar að því kemur. Elsku Theodóra og börn, ég veit að sorgin er mikil á þess- ari stundu en minningin um glaðan og góðan dreng mun hjálpa til að sefa þann harm sem í bijóstum ykkar býr í dag. Megi Guð vera með ykkur öllum. Skúli E. Sigurz og fjölskylda. Með nokkrum orðum langar mig til að kveðja gamlan vin minn, Guðmund Hauksson, sem er lát- inn. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast honum vel á ungl- ingsárunum, en við urðum bekkj- arfélagar í GA 13 ára gamlir. Við brölluðum margt saman á þeim árum, bæði á sjó og landi, og trúð- um hvor öðrum fyrir leyndarmál- um. Ég gleymi seint er við óðum og syntum yfir ósa Eyjafjarðarár, innan um andarunga, og sólbrunn- um svo að skinn flagnaði af okk- ur. Eða þegar við fengum að fylla trilluna hjá nótabátum á pollinum svo af þorski að við urðum að gæta mikillar varúðar við að kom- ast í land. Mér varð smám saman ljóst að Guðmundur var mikill mannkostamaður, og hann var svo sannarlega fremstur meðal jafn- ingja. Hann var drengur góður og hvers mann hugljúfi, en einnig hraustur og hugrakkur ef með þurfti. Hann var glæsimenni í sjón og raun, eins og hann átti kyn til. Ég blessa minningu Guðmundar Haukssonar og votta aðstandend- um samúð mina í þeirra mikla missi. Ólafur B. Jónsson. Minningargreinar og aðrar greinar Eins og kunnugt er birtist jafn- an mikill fjöldi minningargreina í Morgunblaðinu. Á einum og hálfum mánuði í byijun árs birti blaðið 890 minningargreinar um 235 einstaklinga. Ef miðað er við síðufjölda var hér um að ræða 155 síður í blaðinu á þess- um tíma. Vegna mikillar fjölgunar að- sendra greina og minningar- greina er óhjákvæmilegt fyrir Morgunblaðið að takmarka nokkuð það rými í blaðinu, sem gengur til birtingar bæði á minningargreinum og almenn- um aðsendum greinum. Rit- stjórn Morgunblaðsins væntir þess, að lesendur sýni þessu skilning enda er um hófsama takmörkun á lengd greina að ræða. Framvegis verður við það miðað, að um látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd en lengd ann- arra greina um sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksentimetra í blaðinu. I mörgum tilvikum er samráð milli aðstandenda um skrif minn- ingargreina og væntir Morgun- blaðið þess, að þeir sjái sér fært að haga því samráði á þann veg, að blaðinu berist einungis ein megingrein um hinn látna. Jafnframt verður hámarks- lengd almennra aðsendra greina 6.000 tölvuslög en hingað til hefur verið miðað við 8.000 slög. BJARNI EINARSSON + Bjarni Einarsson var fædd- ur í Túni á Eyrarbakka 15. júní 1920. Hann lést á Landspít- alanum 2. október síðastliðinn og fór úför hans fram frá Eyr- arbakkakirkju 11. október. Sá góði félagi og samstarfsmað- ur Bjarni Einarsson er horfinn á braut. Okkar kynni urðu í Fornbíla- klúbbi íslands en Bjarni var einn af helstu frumkvöðlum að stofnun hans. Bjarni hafði, ásamt sonum sínum, komið á fornbílasýningum hér í Reykjavík en þær voru neist- inn sem varð til þess að Fornbíla- klúbbur íslands var stofnaður. Bjarni var heiðursfélagi klúbbsins enda ávallt ötull við að safna heim- ildum og myndum um sögu bílsins á íslandi, en þess efnis naut Forn- bílaklúbburinn m.a. þegar á hans vegum var gefin út bókin „Bílar á íslandi í myndum og máli 1904- 1922.“ Störf Bjama að heimildaöfl- un og myndasöfnun voru sá grund- völlur sem bókin byggist á. Sam- vinna okkar Bjarna við bókina var afar ánæguleg enda var Bjarni þá glaðastur þegar honum gafst tæki- færi til þess að ræða og fræða um bílasögu landins. Við sem eftir lifum munum lengi njóta verka Bjarna og bílsögumenn mun i framtiðinni þakka þessum heiðursmanni hans . miklu og merkilegu störf. Núna þegar Bjami er kominn með nýtt stýri undir hendur, bið ég honum blessunar og þakka samver- una. Ástvinum hans votta ég samúð mína. í Guðs friði. Kristinn Snæland. SÍÐASTA HRAÐLESTRAKNÁMSKEIÐIÐ! CQ Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í starfi? £0 Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi? Ef svar þitt er jákvætt við annarri ofangreindra spum- inga skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestramámskeið ársins sem hefst miðvikudaginn 23. október n.k. Skráning er í síma 564-2100. HFL^dE>LJEÍ>IT^AFCSK<ÓLIIsnNl vandamál? Silicol er náttúrulegt baetiefni sem vinnur gegn óþægindum í maga og styrkir bandvefi líkamans og bein. Silicol verkar gegn brjótsviða, nábít, vægum magasærindum, vindgangi, uppþembu og bæði niðurgangi og harðlífi. Silicol hentar öllum! Silicol hjálpar Vinsælasta heilsuefnið í Þýskalandi, Svíþjóð og Bretlandi! Silicol er hrein nóttúruafurð án hliðarverkana. Fæst í apótekum. SagúnA smco KlSELGEl. hym - AR0.AIKHKI, JEET KUNE D0 & J06A v i r k a r Ragnheiður - Orville |öU9u“" Jimmy Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar Suðurlandsbraut 6 (bakhús! Sími : 588 8383

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.