Morgunblaðið - 13.10.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 41
ÍDAG
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót o.fl.
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir
sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja
afmælistilkynning-
um og eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329
sent á netfangið:
gusta@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Dagók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
Árnað heilla
ÁRA afmæli. I dag,
sunnudaginn 13.
október, er sjötfu og fímm
ára Símon M. Ágústsson,
vélfræðingur, Bakkatúui
16, Akranesi. Eiginkona
hans er Anney B. Þor-
finnsdóttir. Þau hjónin eru
að heiman.
ÁRA afmæli. Á
morgun mánudag-
inn 14. október, verður sjö-
tug Eyrún Þorleifsdóttir,
húsmóðir, Kambsvegi 25,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Gísli Guðmunds-
son. Þau hjónin taka á
móti gestum í Kiwanishús-
inu, Smiðjuvegi 13A, Kópa-
vogi, kl. 15 í dag, sunnu-
daginn 13. október.
BRIDS
Um.sjón Guðmundur l’áll
Arnarson
NÚ REYNIR á teiknikunn-
áttuna! Eftir nokkrar slæm-
ar ákvarðanir í sögnum
lendir suður í hræðilegri
slemmu - sex tíglum. Og
spurningin er: Hvernig þarf
spilið að liggja til að hægt
sé að fá tólf slagi?
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 9764
V 84
♦ 54
+ ÁD1032
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 24. ágúst í Grafarkirkju
af sr. Hirti Hjartarsyni Elísabet F. Pálsdóttir og Jóhann-
es Ingi Árnason. Heimili þeirra er á Snæbýli, Vestur-
Skaftafellssýslu.
Suður
4 Á10
V KDG2
♦ ÁDG76
4 K5
Vestur Norður Austur Suður
- _ - 2 tígiar
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 4 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: Laufsexa.
Til að byija með er ljóst
að austur verður að eiga
tígulkóng þriðja. Enn frem-
ur þarf laufið að liggja 3-3,
svo hægt sé að henda niður
tapslag í spaða. Blindur
þarf auk þess að skaffa
tvær innkomur til að hægt
sé að svína tvisvar í tromp-
inu, sem þýðir að vestur
þarf að eiga gosann. Og þar
sem ekki er hægt að spila
hjartanu úr borði líka, verð-
ur ásinn einfaldlega að vera
blankur! Þetta eru stöng
skilyrði enda líkur á slíkri
legu um það bil einn á móti
3.600.
Norður
♦ 9764
▼ 84
♦ 54
♦ ÁD1032
Vestur Austur
♦ K ♦ DG8532
y 1097653 IIIIH V Á
♦ 832 111111 ♦ K109
♦ G86 * 974
Suður
♦ Á10
V KDG2
♦ ÁDG76
♦ K5
Lauftían á fyrsta slaginn.
Síðan svínar sagnhafi tígul-
drottningu. Hann yfirdrepur
næst laufkóng og hendir
spaða niður í laufdrottningu.
Svínar svo aftur í trompi og
tekur ásinn. Spilar loks smáu
hjarta að heiman. Einfalt spil!
BRÚÐKAUP.
Gefin voru
saman 15. ág-
úst í Áskirkju
af sr. Árna
Bergi Sigur-
björnssyni
Gunnhildur
Björgvins-
dóttir og
Hjörtur Sche-
ving. Með
þeim á mynd-
inni er hundur-
inn Panda.
Ljósmyndarinn Lára Long
Hlutavelta
ÞESSIR duglegu krakkar héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn
4.540 krónur. Þau heita Ester Anna Pálsdóttir,
Steinþór Pálsson, Jóhann Andri Gunnarsson og
Davíð Þór Gunnarsson.
STJÖRNUSPÁ
cftir l'rances Drakc
VOG
Afmælisbarn dagsins: Þú
tekur þínar ákvarðandir
að yfírveguðu ráði og
anar ekki að neinu.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl) fHfc
Þótt mikið sé um að vera í
félagslífmu í dag, ættir þú
ekki að vanrækja góðan vin.
Hafðu hemil á eyðslunni þeg-
ar kvöldar.
Naut
(20. april - 20. maí) tfffi
Nú er ekki rétti tíminn ti!
að standa í viðskiptum. Betra
er að eiga góðar stundir með
fjölskyldunni og njóta helg-
arinnar.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Þú ættir að halda fyrirætlun-
um þínum varðandi viðskipti
leyndum í bili þar til árangur
næst. Góð sambönd reynast
þér vel.
Kmbbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú gefst góður tími til að
koma bókhaldinu í lag og
ganga frá ógreiddum reikn-
ingum. En gættu þess að
vanrækja ekki ástvin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
*et
Það er ástæðulaust að láta
sér leiðast í dag, því margt
stendur þér til boða, og vinir
sækjast eftir nærveru þinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Nú er rétti tíminn til að hefja
umbætur á heimilinu, sem
lengi hafa staðið til. Slakaðu
svo á í góðum félagsskap í
kvöld.
V°8
(23. sept. - 22. október)
Þolinmæði þín og vingjamleg
framkoma hjálpa til við að
leysa ágreining innan fjöl-
skyldunnar í dag. Kvöldið
verður rómantískt.
Sþorddreki
(23.okt. - 21. nóvember)
Ef þér mislíkar framkoma
vinar, ættuð þið að setjast
niður og ræða málið í bróð-
erni. Það styrkir vináttu-
böndin.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Fjármálin geta valdið smá-
vegis deilum innan fjölskyld-
unnar í dag. Þér tekst þó að
finna lausn, sem allir sætta
sig við.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Þú ert eitthvað miður þ!n
vegna ágreinings, sem upp
kom milli ástvina. En með
gagnkvæmum skilningi tekst
að ná sáttum.
Vatnsberi
(20.janúar- 18.febrúar)
Hugsaðu ekki um fjármálin
í dag, og varastu að lána
öðrum peninga, því óvíst er
um endurgreiðslu. Ástvinir
eiga gott kvöld.
Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Notaðu frístundirnar í dag
til að heimsækja vini eða
ættingja. Svo bíður þín
ánægjulegt kvöld heima með
fjölskyldunni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu
tagi byggjast ekki á traust-
um grunni vísindalegra stað-
reynda.
*
Anna Dóra
Ásmundur
Heildarjóga
Jógajyrif alla
Jóga á meðgöngu: 14 okt. - 4 nóv. (7 skipti) mán. og mið. kl. 18.30-19.45.
Létiar og styrkjandi jogaætlngar, öndun og slökun fyrir bamshafandi konur.
Lciðbcinandi: Anna Dóra Hcrmannsdóttir.
Grunnnámskeið: 15. okt. - 5. nóv. (7 skipti) þri. og fím. ki. 20-21.30.
Hatha-jógastöður, öndunartækni, slökun og huglciösla. Fjallað vcröur um
jógaheímspekina, matai æði o.fí,
Lciðbcinandi: Anna Dóra Hcrmannsdóttir.
Framhaldsnámskcið: 16.-30. okt. (5 skipti) mán. og mið. ki. 20-22.
Nánari upplýsingar vcittar f gcgnum síma.
Leiðbcinandi: AsmundurGunnlaugsson.
Jóga gegn kvíða: 24. okt. -14. nóv. o skipti) þri. og fim. ki. 20-22.15.
Námskeið tyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í
gcgnum miklar breytingar í lífínu. Kenndar verða leiðir til að slaka á ogfiðlast aukið
frclsi og lífsglcði. Engin rcynsla cða þckking á jóga nauðsynlcg.
Lciðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson.
Afgreiðsla/verslunin er opin alla virka daga kl. 11-18.
Y06A#
STUDIO
Hátúni 6A, 105 Reykjavík,
sími 511 3100.
♦
Sértilboð til
London
31. október frá kr.
24.930
Flug og hótel 28. okt.
kr. 19.930
F* J rrtt í °kt°
i»*n1ffi>ve*her
Við höfum nú fengið viðbótar-
gistingu á hinu vinsæla Inverness
Court hóteli fyrir ferðina
31. október. Hótelið er frábær-
lega staðsert, rétt við Oxford
stræti og öll herbergi nýinnréttuð,
með sjónvarpi, síma, baði og falleg
móttaka. Veitingastaður og bar eru á hótelinu. Frábær
valkostur á einstöku verði og þú nýtur tryggrar þjónustu
íslenskra fararstjóra Heimsferða allan rímann.
Síðustu sœtin 31. október
Verð kr.
16.930
Flugsæti. Verð með
flugvallasköttum, mánudagur
til fimmtudags í október.
Verð kr.
24.930
M.v. 2 í herbergi, Inverness
Court, með morgunverði,
31. október, 4 nætur.
Skattar innifaldir.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð. Sfmi 562 4600