Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Sá sterkasti Magnús Ver Magnússon sigraði í keppni um titilinn Sterkasti maður heims í fjórða skipti - nú á eyjunni Mauritius í Indlandshafi MAGNÚS Ver lyftir 370 kílógrömmum - og fer létt með það - á neðstu myndinni. Þar með saxaði hann á forskot Finnans Riku Kiris. Keppinaut- ar Magnúsar í úrslitum voru ekki af verri endanum, allir langt yfir 100 kg og engin smá- smíði eins og sjá má á myndinni í miðjunni. Magnús Ver er fjórði frá vinstri. A efstu myndinni slap_pa þau svo af, Magnús Ver og Asta Guðmundsdóttir, kær- asta hans, sem hvatti sterkasta mann heims af kappi á mótinu. Magnús Ver Magnússon lætur ekki að sér hæða. Fyrir skömmu vann hann titilinn Sterk- asti maður heims í Gunnlaugur fjórða skipti og Rögnvaldsson jafnaði þar með skrifar afrek Jóns Páls Sigmarssonar heitins. Aflraunakeppnin þekkta fór að þessu sinni fram á Mauri- tius, eyju í Indlandshafi þar sem tíðar heimsóknir ferðamanna og vinnsla sykurreyrs heldur lífi í eyjaskeggjum. Eyjan var áður fyrr frönsk nýienda og Frakkar og Þjóðveijar eru algengustu ferða- mennimir. En gestimir sem heimsóttu eyj- una vegna aflraunakeppninnar voru mun stæðilegri en gengur og gerist. Þeir voru 24 talsins, sumir yfir 2 metrar á hæð og hátt í 200 kg að þyngd. Aldrei hafa fleiri keppt í þessari keppni sem laðar að sér sterka menn frá ólík- ustu löndum. Með sigri í keppn- inni á Mauritius vann Magnús þriðja árið í röð og hann segir það farið að pirra aðstandendur keppninnar dálítið að sá sami taki alltaf við fyrstu verðlaununum. í fjögurra riðla forkeppni var Magnúsi ekki farið að lítast á blik- una þegar tveir kappar virtust ætla að slá hann út. Þeir Nathan James frá Ástralíu sem hafði handleggsbrotnað í sömu keppni árið áður og Finninn Jarmo Ojan- ho voru fyrir framan Magnús að stigum þegar tveimur greinum var ólokið. „Mér var ekki orðið um sel og ákvað að spýta í lófana. Ég vann næstu grein sem var hnébeygju- lyfta. Svo tók við drumbalyfta með 110 kg drumb sem átti að lyfta upp fyrir höfuð eins oft og maður megnaði. Mér tókst að svifta drumbnum 14 sinnum upp á þeim 75 sekúndum sem hver keppandi fékk. Það reyndi mikið á að anda rétt og þessi árangur nægði til að ég komst í úrslit ásamt Jarmo, en Nathan féll úr keppni,“ sagði Magnús í samtali við Morgunblað- ið. Hjalti „Úrsus“ Ámason féll einnig úr leik í undankeppninni, varð fimmti í sínum riðli. Þjóðveij- inn Heínz Ollesch, kærasti Biyn- dísar Ólafsdóttur, fyrrum sund- drottningar, varð einnig að draga síg í hlé svo og Magnús Samuels- son frá Svíþjóð. Báðum hafði ver- ið spáð góðu gengi í keppninni. Færeyingurinn Regent Vagadal komst áfram í úrslit, en hann varð að sætta sig við áttunda sætið eftir ágæta frammistöðu. Forbes Cowan og Gerd Badenhorst kom- ust áfram úr riðli Hjalta. „Það keppti einn fyrrum lyftingamaður frá Búlgaríu, Popov heitir hann. Hann er með sverustu mjaðmir sem ég hef séð. Þær dugðu honum samt ekki áfram i úrslitakeppnina, sem stóð í fjóra daga,“ sagði Magnús. „Eftir íjórar greinar í úrslita- keppninni leist mér hreint ekki á blikuna. Riku Kiri frá Finnlandi var með 4 stiga forskot, en stiga- gjöfin var þannig að fyrir sigur í einstökum greinum voru gefin 8 stig og síðan koll af kolli niður í eitt. Við byrjuðum á að draga 20 tonna traktor og tengivagn. Síðan veltum við bíl í heilhring, en þar brást mér dálitið bogalistin því sylgjan á beltinu mínu festist í augnablík við bílinn. Varð ég fjórði í þeirri grein. Þriðja greinin fólst í því að henda steini afturábak yfir vegg. Sigurvegarinn náði að kasta 6,60 metra en ég 6,35. Ég grýtti að vísu steininum í sömu hæð, en hann vó salt á veggnum og féll aftur tilbaka. Það gerði kastið ógilt. Varð ég að láta mér lynda annað sætið í þessari grein. Fjórða greinin gekk út á það að halda fóiksbfl í sitthvorri hendi á sérstökum palli. Þeir voru síðan látnir síga og áttum við að halda eins lengi og hægt var. Fjórða sæti varð mitt hlutskipti. Kiri var þama kominn með 4 stiga forystu keppnin hálfnuð og ijórar greinar eftir. Ég mætti tiltölulega afslappað- ur í lokaslaginn. Var ekkert of bjartsýnn, en mér óx svo ásmegin um leið og ég byijaði að takast á við verkefnin. Fyrst þurfti að burðast með stöng í fanginu sem fest var við ás, svipað og dráttar- hestar í gömlum myllum þurftu að fást við. Labbaði ég sfðan í hringi á tilheyrandi palli og komst tæplega þrjá hringi. Lágu tæp 200 kg á bijóstinu og var_ erfitt að anda í þessari grein. Ég saxaði því á forskot Kiri og ætlaði ekki að gefa honum titilinn baráttu- laust. Bóndaganga var næst. Þá voru gengnir 60 metrar með 119 kg vigt í hvorri hendi í kapp við klukkuna. Ég vann þessa grein og Kiri varð þriðji. Náði með því tveggja stiga forskoti á Kiri þegar tveimur greinum var ólokið. Það var orðið ljóst að við myndum heyja einvígi um titilinn í næst síðustu greininni. Það var rétt- stöðulyfta sem mér fínnst ekkert ur. Held áfram að pirra þá sem viija sjá ný andlit með titilinn," sagði Magnús glettinn. Hann fer til Danmerkur innan skamms til að keppa í aflrauna- móti og ætlar að leggja heima- menn að velli. í nóvember er hann að velta fyrir sér að halda afl- raunamót á Akureyri og fá m.a. Flemming Rasmussen frá Dan- mörku sem varð fjórði í keppninni á Mauritius og Heinz Ollesch. „Það er alltaf gaman að vinna Dani eftir hið fræga 14:2 tap í fótboltanum á Idrætsparken um árið. En titiliinn sem ég vann í fjórða skiptið er þó mun sætari og hver veit nema ég haldi honum á næsta ári. Ég mun að minnsta kosti æfa af miklum krafti áfram," sagði Magnús. leíðinleg. Ég vissi að Badenhorst yrði samt góður. Það skipti máli að taka sem fæstar lyftur ef menn yrðu jafnir í þyngdum og ég sieppti því nokkrum þyngdum sem keppinauturinn Kiri tók. Ég tók 370 kg og Kiri ákvað að taka 390 kg. En hann náði ekki lóðunum upp og fékk í bakið. Badenhorst bað um 400 og ég bað þá um 410. Þá hækkaði Badenhorst töluna í 410 og náði því. Ég reyndi við 410, en sleppti strax. Hafði unnið á Kiri sem var nóg. Var kominn með 3 stiga forskot á hann fyrir lokagreinina. Lokagreinin var geysilega erfið og Kiri hætti strax. Bera átti þijá 200 kg steinklumpa upp stiga. En það tók ilia í bakið á Kiri og hann hætti. Ég hefði getað slakað á, en ákvað stoltsins vegna að klifra öll þrepin með þessa steypu- hlunka. Það tókst en Badenhorst var fljótastur. Það dugði honum þó skammt. Kiri varð í öðru sæti á eftir mér í keppninnij þótt hann yrði að gefast upp. Ég fagnaði því fjórða titlinum og er síst hætt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.