Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 4

Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÖLDI unglinga tók þátt í samkeppninni og fékk hluti þeirra viðurkenningu fyrir verk sín. Teiknaði besta vímu- vamavegg- spjaldið JÓHANNA Margrét Þorsteins- dóttir, nemandi í Garðaskóla í Garðabæ, hlaut 1. verðlaun fyrir besta veggspjaldið í samkeppni sem vímuvarnanefnd foreldra- ráðs skólans efndi til fyrir skömmu meðal unglinga í 9. bekk. A veggspjaldi Jóhönnu Margrétar eru tvær jurtir, önnur falleg og blómleg, en hin visin og tákna þær annars vegar heil- brigt líferni en hins vegar líf í vímu. Fyrir ofan jurtirnar stend- ur: „Hvort viltu?“ Gunnlaugur Sigurðsson, skóla- syóri, sagði að verðlaunin hefðu verið afhent við athöfn í skólan- um, en auk Jóhönnu Margrétar Morgunblaðið/Jón Svavarsson JÓHANNA Margrét Þorsteinsdóttir tók við viðurkenningu fyrir besta veggspjaldið úr hendi Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra. hlutu um 30 aðrir unglingar við- urkenningar fyrir veggspjöld sín. Alls eru um 170 unglingar í 9. bekk Garðaskóla. „Unglingun- um fannst greinilega gaman að fá þetta verkefni og áttu þeir margar snjallar hugmyndir. Vímuefnavandinn er þeim öllum umhugsunarefni enda eru þeir næmir og skynja vel hættuna." Mikil umræða um kjara- og réttinda- mál á bandalagsráðstefnu BSRB Krafist veru- legrar hækkun- ar grunnlauna VIÐ umræður um kjaramál á banda- lagsráðstefnu BSRB,sem lauk í gær, lögðu talsmenn aðildarfélaga mikla áherslu á verulega hækkun launa í komandi kjarasamningum og komu fram kröfur um að lægstu laun yrðu ekki undir 80-100 þús. kr. á mánuði. í kjaramálaályktun ráðstefnunnar er þess krafist að launafólki verði tryggð hlutdeild í góðæri þjóðarinnar með hækkun kauptaxta, hvatt er til að dregið verði úr vægi eftirvinnu með því að hækka dagvinnulaun á kostnað eftirvinnu og að tryggt verði að kaupmáttur ráðstöfunartekna lækki ekki við gildistöku tilskipunar EES um vinnutíma sem tekur gildi 1. febrúar á næsta ári. Þá er lögð áhersla á að stöðugleiki verði tryggð- ur svo að kauphækkanir skili aukn- um kaupmætti. Samið verði um viðbótarlaunin í kjarasamningum félaga Aðildarfélög BSRB semja hvert fyrir sig um kaup og kjör í komandi samningum skv. viðræðuáætlunum en réttindabarátta og ýmis sameigin- leg mál eru á vettvangi heiidarsam- takanna. Við umræður og í ályktun ráðstefnunnar koma fram hörð mót- mæli við boðaðri launastefnu ríkis og Reykjavíkurborgar sem sögð er miða að því að auka vægi viðbótar- launa á kostnað grunntaxta. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að þessar breytingar hjá ríki og Reykjavíkurborg, sem fyrirhugaðar eru um viðbótarlaun og eiga að vera á valdi forstöðumanna stofnana, leiði til aukins misréttis. Hann segir að það sé algert grund- vallaratriði af hálfu BSRB að samið verði um þær reglur sem eigi að gilda um viðbótarlaunin í kjarasamningum og ekki verði staðið upp frá samn- ingaborði fyrr en frá því hefur verið gengið. Yfirvinnuskylda verði afnumin Samþykkt var ályktun á ráðstefn- unni þar sem þess er krafist að yfir- vinnuskylda, sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins og í reglugerðum sveitarfélaga, verði afnumin. „Þessi kvöð sem lögð er á opinbera starfs- menn er algjörlega úr takti við þá umræðu sem er í samfélaginu um nauðsyn þess að draga úr yfir- vinnu,“ segir í ályktun BSRB. Mikið var einnig rætt um velferð- arþjónustuna og var mótmælt áfram- haldandi gjaldtökum í velferðarþjón- ustunni. Við umræður um kjaramál í gær var nokkuð rætt um hversu langur samningstími næstu kjarasamninga ætti að vera og voru fiestir á því að ákveða ekkert í því efni heldur láta það ráðast af innihaldi kjarasamn- inga. Voru uppi miklar efasemdir um að rétt væri að semja til þriggja ára eins og komið hefur til tals á al- menna vinnumarkaðinum, m.a. af hálfu forystumanna Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur. Ögmundur segir að það þurfi að eiga sér stað grundvallarbreyting á afstöðu viðsemjenda opinberra starfsmanna gagnvart þeim almennu kerfisbreytingum sem reynt sé að koma á í launamálum. Það sé t.d. ekki í samræmi við umræðuna í þjóð- félaginu um að gera laun gegnsæ að ætla að taka upp viðbótarlaun í stofnunum ríkis og borgar og bendir hann í því sambandi á að nú séu hafðar uppi sterkar kröfur á almenna vinnumarkaðinum, m.a. á nýaf- stöðnu þingi Alþýðusambands Vest- I fjarða, um að bónusgreiðslur verði j felldar inn í launataxta. „Hvað er bónus? Er hann ekki viðbótarlaun?" segir Ögmundur. Deilur á Alþingi um breytingar á atvinnuleysistrygg'mgum Breytingar á lögum um fjöleignarhús Arlegur sparnaður áætlaður 200 milljónir HÆKKUN lágmarksaldurs til réttar á atvinnu- leysisbótum úr 16 árum í 18, fimm ára hámark á lengd bótatímabils og 'nýtt ákvæði um að at- vinnuleysisbótaþegi verði að vera tilbúinn til þess að ráða sig í fullt starf var meðal atriða, sem mest var um deilt í löngum umræður er spunnust á Alþingi í gær um frumvörp ríkisstjórnarinnar um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsað- gerðir, sem Páll Pétursson félagsmálaráðherra mælti fyrir. Samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytis er gert ráð fyrir því annars vegar, að lögfesting frumvarpsins um atvinnuieysistryggingar ieiði til heildarsparnaðar sem nemi um 200 millj. króna á ári og kostnaðarauki ríkissjóðs af stofnun Vinnumálastofnunar og öðrum aðgerðum, sem lagðar eru til í frumvarpinu um vinnumarkaðsað- gerðir, verði um 190 milljónir á fyrsta ári eftir gildistöku. Samkvæmt greir.argerð með frumvarpinu um atvinnuleysistryggingar eru þau rök tínd til fyrir hækkun lágmarksaldurs til bótaréttar, að talið er æskilegra að ungmennum undir 18 ára aldri sé frekar beint inn til skólanna. Einnig er bent á, að í öðrum Evrópulöndum sé miðað við 18 ára lágmarksaldur. Sparnaður af þessari breytingu er áætiaður lítill fyrstu tvö árin en hann geti hugsanlega numið allt að 56 millj. króna á ári eftir það. Stjórnarandstaðan gagnrýnir hækkun lágmarksaldursins Margir þingmenn stjórnarandstöðunnar gagn- rýndu hækkun lágmarksaldursins, einkum á þeim forsendum, að óraunhæft sé að ætlast til, að hægt sé að spara útgjöld til atvinnuleysisbóta með því að loka fyrir möguleika ungmenna á þessum aldri til að vera á vinnumarkaðnum með sömu réttindi og aðrir, þar sem mörg þeirra hefðu ekki aðstæður til að stunda skólanám til 18 ára aldurs og/eða verið á framfæri foreldra fram að þeim aidri. Félagsmálaráðherra tók fram, að ungmenni, sem af einhveijum ástæðum gætu ekki stundað nám, ættu að geta fengið undanþágu frá þessari reglu. Tekið á misnotkun kerfisins Rannveig Guðmundsdóttir, þingflokki jafnað- armanna, sagði boðskap frumvarpsins vera þann, að nú skuli tekið á allri misnotkun á atvinnuleys- istryggingakerfinu. Frumvarpið beri þess merki, að við samningu þess hafi verið tekið mið af danska kerfinu, en að mati Rannveigar væru aðstæður þar og hér svo ólíkar, að siíkt kunni ekki góðri lukku að stýra. Pétur H. Blöndal og fleiri þingmenn Sjálfstæð- isflokks lögðu áherzlu á nauðsyn þess, að komið yrði í veg fyrir misnotkun á kerfinu og frumvarp- ið væri gott skref í þá átt. .. Stefnt er að því að frumvörpin gangi bæði í gildi 1. júlí 1997. Samkvæmt útreikningum fjár- lagaskrifstofu fjármálaráðuneytis er gert ráð fyr- ir því annars vegar, að er ákvæði frumvarpsins um atvinnuleysistryggingar verða að fullu komin til framkvæmda árið 2000 muni árlegur heildar- sparnaður miðað við núgildandi lög nema um 185-205 millj. króna; frá þessum sparriaði kunni þó að dragast aukinn kostnaður Atvinnuleysis- tryggingasjóðs vegna útvíkkunar á bótarétti sjálf- stætt starfandi einstaklinga eða myndunar sér- staks sjóðs fyrir þá, eins og hugmyndir eru uppi um. Sá kostnaður gæti numið á bilinu 75-150 miilj. króna. Hins vegar muni kostnaðarauki ríkissjóðs af lögfestingu frumvarpsins um vinnumarkaðsað- gerðir verða 190-215 milij. króna fyrsta árið, en 160-175 millj. króna á ári eftir það. Gert er ráð fyrir að semja verði við sveitarfélögin um að taka að sér önnur verkefni í staðinn, þar sem ríkið léttir miklum kostnaði af sveitarfélögunum með því að taka að sér vinnumiðlun í landinu. Útreikningar fjármálaráðuneytisins byggjast á því, að engar breytingar verði gerðar á fjármögn- un Atvinnuleysistryggingasjóðs og miðað sé við 4% atvinnuleysi. Gildistöku frestaö til 1999 PÁLL Pétursson, félagsmálaráð- herra, mælti í gær fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um fjöleign- arhús, sem gengur út á að gildis- töku ákvæða í téðum lögum um skilyrði fyrir þinglýsingu á eignayf- irfærslum í fjöleignarhúsum verði frestað til 1. janúar 1999. Ný lög um fjöleignarhús voru sett árið 1994 og gengu í gildi í ársbyijun 1995. Með bráðabirgða- ákvæði var gildistöku ákvæða um þinglýsingarskilyrði frestað til 1. janúar 1997. Þessi frestur var eftir því sem fram kemur í greinargerð gefinn með það einkum fyrir augum að eigendum og húsfélögum veittist aðlögunartími til undirbúnings og gerðar eignaskiptayfirlýsinga. I máli félagsmálaráðherra kom fram, að Fasteignamat ríkisins, Félag fasteignasala, byggingarfull- trúinn í Reykjavík og fleiri aðilar hefðu farið þess á leit við hann, að aðlögunartíminn yrði lengdur, þar sem enn séu annmarkar á því að umrædd ákvæði megi „hnökralaust ganga í gildi“. Einkum mun í þessu sambandi vera átt við, að enn sem komið er hafa tiltölulega fáir ein- staklingar hlotið löggildingu til að gera eignaskiptayfirlýsingar. I I i \-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.