Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Opinber heimsókn
forsetahjónanna í Danmörku
Fyrstur þjoð-
höfðingja um
Stórabeltis-
göng
Morgunblaðið/Seren Steffen (Nordfoto)
FORSETAHJÓNIN, frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir og herra Ólafur Ragnar Grímsson, í járnbraut-
argöngunum, sem liggja á milli Sjálands og Sprogo, þaðan sem Stórabeltisbrúin liggur yfir til Fjóns.
FORSETAHJÓNIN í ráðhúsi Koge ásamt Steinunni Hjartardótt-
ur, forseta bæjarstjórnar Sauðárkróks, vinabæjar Kage, og
Snorra Birni Sigurðssyni bæjarstjóra.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti
Islands varð í gær fyrsti erlendi
þjóðhöfðinginn til að fara í gegnum
járnbrautargöngin við brúna, sem
tengir Sjáland og Fjón. Heimsókn
að Stórabelti þar sem unnið er við
brúarframkvæmdirnar var fyrst á
dagskrá gærdagsins, en síðan var
farið í heimsókn til Koge, vinabæj-
ar Sauðárkróks og í Junckers
timburverksmiðjuna, sem er einn
stærsti vinnustaður Suður-Sjá-
lands.
í tilefni af Kogeheimsókninni
hafði bæjarstjórn Koge boðið þeim
Steinunni Hjartardóttur forseta
bæjarstjórnar Sauðárkróks og
Snorra Birni Sigurðssyni bæjar-
stjóra að koma til að vera í mót-
tökunefnd forsetans. _Við samkomu
í ráðhúsinu þakkaði Ólafur Ragnar
fyrir góðar móttökur, sagði þau
hjónin hafa verið á Sauðárkróki í
september og fengið þar glæsilegar
móttökur, rétt eins og nú í Koge.
Fyrstur erlendra þjóðhöfðingja
um Stórabeltisgöngin
Upphaflega áttu forsetahjónin
að fljúga með þyrlu að brúarfram-
kvæmdunum, en sökum veðurs
varð að notast við bíla í stað þyrl-
unnar. Við lestarstöðina í Korsor,
þar sem brúin tengist landi, tók
Poul Andreassen stjórnarformaður
Stórabeltis-hlutafélagsins á móti
forsetahjónunum og þeim embætt-
ismönnum, sem fylgdu þeim í gær.
Síðan var haldið með lestinni í
gegnum göngin, sem tekin verða í
notkun næsta sumar. Sjálf brúin
verður opnuð 1998.
Framkvæmdirnar eru mestu
samgöngumannvirki, sem Danir
hafa ráðist í að byggja og eru einn-
ig miklar á evrópskan mælikvarða.
Kostnaður er 27 milljarðar danskra
króna á gengi síðasta árs, eða ríf-
lega 300 milljarðar íslenskra króna.
Um er að ræða hengibrú, þar sem
hæstu stöplarnir eru 254 metrar á
hæð, en auk þess verða lögð járn-
brautargöng samhliða hálfri
brúnni, svo framkvæmdirnar þjóna
bæði bíla- og lestarumferð. Járn-
brautargöngunum var lokið á síð-
asta ári, en nú er unnið að frá-
gangi þeirra og prufuakstri lest-
anna. Brúin er risin, en eftir er að
strengja stálkaplana, sem gera
hana að hengibrú og verður það
gert næsta sumar.
Miðbik brúarinnar er við Sprogo
í Stórabelti og þangað hélt forset-
inn ásamt fylgdarliði. Þar voru
framkvæmdirnar kynntar, áður en
haldið var til baka. Þetta var í
fyrsta skipti, sem þjóðhöfðingi
heimsækir staðinn eftir að járn-
brautargöngin urðu fær og þar með
varð Ólafur Ragnar fyrstur er-
lendra þjóðhöfðingja til að fara um
göngin.
Vel varðveittur bær
frá gamalli tíð
Koge er lítill bær á Suður-Sjá-
landi. Bærinn hefur verið kaupstað-
ur frá því 1288 og er í nýjustu
Michelin-ferðabókinni frönsku tal-
inn einn af fjórum best varðveittu
bæjum Danmerkur. Jtáðhúsið
stendur við bæjartorgið og gengu
forsetahjónin um torgið örstutta
stund til að virða fyrir sér gömlu
húsin þar, en því miður viðraði
ekki til langra könnunarferða, því
rok var og ýrði úr lofti.
í móttöku í ráðhúsinu rakti bæj-
arstjórinn sögu bæjarins, en nefndi
einnig að í og við bæinn blómstr-
aði öflugt atvinnulíf. Hann færði
Ólafi Ragnari að gjöf sögu bæjarins
í tveimur bindum og þakkaði Ólaf-
ur Ragnar fyrir sig með þeim orð-
um að sér ætti eftir að þykja fróð-
legt að lesa sögu bæjarins, sem
væri tvö hundruð ái-um eldri en
Bessastaðir. Guðrún Katrín Þor-
bergsdóttir hlaut að gjöf mynt, sem
er slegin eins og gömul mynt ér
fannst við uppgröft í bænum í mikl-
um silfursjóði frá fyrri öldum. Hún
þakkaði gjöfina, sem væri kærkom-
in af því hún hefði alltaf haft áhuga
á fornleifafræði. Á Bessastöðum
væri einnig gamall uppgröftur, sem
hún vildi gjarnan sýna gestum.
Þau Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri og Steinunn Hjartar-
dóttir sögðu í samtali við Morgun-
blaðið að bæjarstjórn Koge mæti
mikils að fá að taka á móti forseta-
hjónunum, sem væru fyrstu þjóð-
höfðingjarnir er heimsæktu bæinn.
Til að minna á vinabæjatengslin
var þeim tveimur boðið af bæjar-
stjórn Koge að vera í móttökunefnd
fyrir forsetahjónin og sýndi það enn
frekar hve heimsóknin frá íslandi
væri mikil metin. Sauðárkrókur
hefði átt mikið og gott vinabæjar-
samstarf við Koge í sextán ár og
á allan hátt haft hið mesta gagn af.
Gamall bær með nútíma
atvinnulíf
Junckers timburverksmiðjan er
1400 manna vinnustaður í úthverfi
Koge. Vörur verksmiðjunnar eru
seldar um allan heim og þá einnig
á íslandi. Verksmiðjan er gott
dæmi um þá áherslu, sem Danir
leggja á hráefnisnýtingu og um-
hverfi, því tijáspænir og timbur
sem ekki nýtist í framleiðslu er
nýtt til hita- og orkuframleiðslu
fyrir verksmiðjuna, svo orkuver
verksmiðjunnar er hið stærsta í
einkaeign á Sjálandi.
Er forsetahjónin gengu um verk- j
smiðjuna hittu þau íslenskan |
starfsmann þar, Pétur Einarsson.
Aðspurður sagðist hann hafa unnið
þar í eitt ár, en dyalið tvö ár í
Danmörku. Þegar Ólafur Ragnar
spurði hvort honum þætti afkoman
betri hér, svaraði hann að hann og
kona hans, sem er sjúkraliði, kæm-
ust betur af á dönskum launum og
sautján ára dóttur þeirra hjóna félli k
vel lífið í Danmörku.
Degi forsetahjónanna lauk með »
veislu sem þau héldu gestgjöfum |
sínum í Solyst, skammt fyrir utan
Kaupmannahöfn og mættu þar 150
manns.
í dag verður farið í heimsókn í
Minningarlundinn um danska and-
spyrnumenn, sem féllu í baráttunni
gegn Þjóðveijum í seinni heimstyrj-
öldinni. Einnig verður heimsótt
hæli fyrir eiturlyfjaneytendur, |
barnaskóli, farið í heimsókn í Þjóð-
þingið og snæddur hádegisverður
í boði forsætisráðherra. Eftir há- |
degi er blaðamannafundur og síðan
farið á ráðstefnu hjá iðnrekenda-
samtökunum dönsku, en um kvöld-
ið heldur Dansk-islandsk samfund
forsetahjónunum samsæti, þar sem
Uffe Ellemann-Jensen fyrrverandi
utanríkisráðherra ávarpar gesti.
Formlegar viðræður eru hafnar um samstarf
stj órnarandstöðuflokkanna
Ahersla á sameigin-
lega framtíðarsýn
Á FYRSTA formlega viðræðufundi um sam-
starf stjórnarandstöðuflokkanna var sam-
þykkt að hefja vinnu við að skapa sameigin-
legan málefnagrundvöll þar sem megin-
áherslan yrði á framtíðarsýnina. Heimir
Már Pétursson, framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins, segir að þegar þeirri vinnu
sé lokið verði stofnanir flokkanna að taka
ákvarðanir um hvort haldið verði áfram
með vinnuna og þá hvort stefnt verði að
stofnun kosningabandalags sem bjóði fram
í næstu þingkosningum.
Á fundinn mættu fulltrúar Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks, Kvennalista og Þjóð-
vaka. Vinnuhópurinn er skipaður mönnum
sem eru í forystu flokkanna, m.a. í sveitar-
stjórnum. Enginn þingmaður er í starfs-
hópnum.
„Fundurinn leiddi í ljós að flokkarnir eru
reiðubúinir til að ræða af fullri alvöru um
samstarf þeirra í framtíðinni og þá er aðal-
lega horft til næstu þing- og sveitarstjórna-
kosninga. Við ræddum ekki einstök málefni
á þessum fundi, en við munum gera það
Morgunblaðið/Ásdís
í STARFSHÓPNUM eiga sæti Magnús
Jón Árnason og Árni Þór Sigurðsson
frá Alþýðubandalági, Bryndís Krist-
jánsdóttir, Gísli Bragi Hjartarson og
Ingvar Viktorsson frá Álþýðuflokki,
Steinunn Óskarsdóttir og Stefanía
Óskarsdóttir frá Kvennalista og Mörð-
ur Árnason frá Þjóðvaka. Ritari hóps-
ins er Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins. Á
myndinni stinga saman nefjum þau
Gísli Bragi, Bryndís, Árni Þór og
Magnús Árni.
og þá sérstaklega hvaða framtíðarsýn flokk-
arnir sjá fyrir sér. Næsti fundur verður j
haldinn fljótlega. Það er einnig samkomulag I
um að stofnanir flokksins verði að koma
að þessu starfi á síðari stigum," sagði Heim-
ir Már.
Ekki tekin afstaða til
kosningabandalags
Heimir Már sagði að sú vinna sem starfs-
hópurinn væri að taka að sér kæmi til með .
að taka nokkra mánuði. Engin tímamörk
hefðu verið negld niður, en það gæfi auga-
leið að það tæki talsverðan tíma að hafa
samráð við alla aðila. Um væri að ræða
fjóra flokka og náið samráð yrði að hafa
við stofnanir þeirra.
Heimir Már sagði að engin ákvörðun
hefði verið tekin um hvort stofnað yrði til
kosningabandalags fyrir næstu þingkosn-
ingar. „Þegar vinna þessa starfshóps er
komin vel á veg þurfa flokkarnir að koma
sér saman um hvert eigi að stefna. Þá kem-
ur stofnun kosningabandalags m.a. til álita.
Fyrst þarf að vinna mikla málefnavinnu, j
en viljinn til samstarfs er mjög mikill hjá '
öllum.“