Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 7
MQRGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 7
FRETTIR
Vinnuálag veldur sjóslysum
Stjórnandi
skips sofandi í
12% stranda
Deildir fyr-
ir heilabil-
aða fluttar
á Landakot
MEÐFERÐARDEILD fyrir heilabil-
aða sem verið hefur á Hvítabandi
verður flutt í húsnæði Landakots-
spítala um miðjan janúar. Deildin
mun heita 1B og verður samskonar
starfsemi í Hátúni flutt á 4B í sama
húsi hinn 1. mars á næsta ári, seg-
ir Anna Birna Jensdóttir, hjúkrun-
arframkvæmdastjóri öldrunarsviðs
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Á deildunum verður legupláss
fyrir 36 sjúklinga og segir Anna
Birna að rekstur þeirra verði mjög
sérhæfður og að markmiðið sé að
skerpa á greiningu heilabilunar frá
öðrum vandamálum. „Þetta er oft
mjög erfiður sjúkdómur í bytjun,
þegar einkenna verður fyrst vart,
og fólk er oft eitt að berjast við þau
lengi vel. Við aðgreinum þessi byrj-
unareinkenni frá öðrum vandamál-
um, svo sem þunglyndi eða öðru sem
getur ruglað fólk i ríminu. Þetta er
vandmeðfarið og það má alls ekki
stimpla fólk sem „senílt“ þegar
hrumleika verður vart. Það verður
að greina sjúkdóminn," segir Anna
Birna jafnframt.
Rekstur deildanna er ekki viðbót
við þjónustu fyrir heilabilaða og
aðstandendur þeirra og segir Anna
Birna að þær séu fyrst og fremst
hugsaðar sem stuðningur. „Hins
vegar skortir langtímaúrræði fyrir
heilabilaða í Reykjavík og því er
ákveðinn hópur til langtíma hjá
okkur. Þetta er tímafrek vinna og
hún endar alltaf á einn veg, með
langtímavistun."
Hlynnt er að heilabiluðum á sér-
deildum sumra hjúkrunarheimila og
einnig eru dagdeildir á tveimur stöð-
um í Reykjavík, að sögn Önnu
Birnu.
-----» ♦ ♦-----
Menntamála-
ráðherra vill
endurskoða
útvarpslög
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra telur æskilegt að einn fulltrúi
frá hvorum stjórnarflokki fari í það
að endurskoða útvarpslögin. Þetta
kom fram í viðtali við ráðherrann í
þættinum Sunnudagskaffí Kristjáns
Þorvaldssonar á Rás 2 á sunnudag-
inn.
Bjöm sagði í samtali við Morgun-
blaðið að honum þætti skynsamlegt
að þess háttar endurskoðun færi
fram. Hann hefði þó enn ekki geng-
ið endanlega frá málinu og væri
ekki búinn að skipa fulltrúa i nefnd-
ina.
Aðspurður um skýrslu starfshóps
um endurskoðun á útvarpslögum frá
því í maí í vor sagði ráðherrann eðli-
legt að stuðst yrði við hana. „Sú
athugun og niðurstaða hennar liggur
fyrir sem gagn í málinu. Það þarf
að minnsta kosti ekki að skoða það
nú sem þar var skoðað," sagði Björn.
Líf 02 list
UM 400 sjómenn verða fyrir slysum
um borð í íslenskum skipum árlega
og lætur nærri að 10 hver sjómaður
á íslandsmiðum eigi á hættu að
slasast við störf árlega. Slysa- og
dánartíðni meðal sjómanna hefur
farið lækkandi undanfarin ár, en
er þó mun hærri en við verður un-
að, að því er Brynjólfur Mogensen
yfírlæknir bæklunardeildar Sjúkra-
húss Reykjavíkur sagði á lands-
fundi um slysavarnir í Reykjavík í
vikunni.
Til marks um of mikið vinnuálag
um borð í skipum er að 12% skips-
stranda sem urðu hér við land á
árunum 1986-1991 má rekja til
þess að skipstjórnendur sofnuðu
vegna þreytu og undanfarandi
svefnleysis.
Á landsfundinum kom fram að
til þess að tryggja sjómönnum þá
heilbrigðisþjónustu sem þeir eigi
rétt á þurfi að koma á fót heilbrigð-
isstofnun sjófarenda.
Guðjón Ármann Eyjólfsson,
skólastjóri Sjómannaskóláns í
Reykjavík, fjallaði ásamt þremur
nemendum sínum um sjóslys á
landsfundinum og lýsti m.a. þeirri
skoðun að þörf væri á viðhorfs- og
hugarfarsbreytingu meðal sjó-
manna og útgerðarmanna í baráttu
gegn sjóslysum og vinnuslysum um
borð í skipum. Fram kom að efla
þyrfti nýliðafræðslu til sjómanna
og kom fram hjá Guðjóni Ármanni
að hugarfarsbreyting sjómanna og
útgerðarmanna þyrfti einnig að
taka til þess að þeir færðu sér í
nyt þá fræðslu sem í boði væri, i
því skyni að bæta vinnubrögð og
draga úr slysahættu.
Brynjólfur Mogensen sagði einn-
ig að nauðsynlegt væri að auka
áherslu á þekkingu á stjórnun og
mannlegu eðli í menntun skipstjórn-
enda. Með aðferðum á borð við þá
að stuðla að notkun gátlista til þess
að læra á og yfirfara búnað mætti
einnig draga úr slysum um borð í
skipum.
Ó T T A R SVEINSSON
WRAÐl og
SANNAR SPENNU-
FRÁSAGNIR FÓLKS
SEM LENDIR í HÆTTUM
OG ÞEIRRA SEM
KOMA TIL BJARGAR
íslenskir björgunarmenn heyja
oft harða glímu við ofurvald
íslenskra náttúruafla, heljarklær
öræfanna og ískalda hramma
Atlantshafsins
Tvær fyrri ÚTKALLS-bækur
Ottars flugu strax
á metsölulista
Wog®RÚV
ATHYGLI UT YFIR ATLANTSALA
Óttar Sveinsson hefur fengið lof
fyrir hraða og spennandi frósögn af
íslenskum atburðum. Hróður hans
hefur borist út yfir Atlantsála og
lýsing hans í síðustu ÚTKALLS- bók
af björgunarafrekinu á Snæfellsjökli
var kvikmynduð hér heima fyrir
sjónvarpsþáttinn Rescue 911.
ISL?NS?A
BÓKAUTGAFAN
SÍÐUMÚLA11, simi 581 3999