Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 8

Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Siehvatur Björgvinsson, nýr formaöur Alþýðuflokksins ÞAÐ verður lítið mál fyrir þig, góði, þú verður með réttu græjurnar. Afleiðingar nýrra reglna um almannatryggingar Færri hafa fengið frek- ari uppbót á lífeyri FJÖLDI þeirra elli- og örorkulífeyr- isþega, sem misst hafa frekari upp- bót almannatrygginga vegna nýrra viðmiða um tekju- og eignamörk eftir breytingu á reglugerð þar að lútandi í apríl sl., er á bilinu 1.000- 1.100. Þetta kemur fram í svari heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra við nýlegri fyrirspurn Sva- vars Gestssonar um skerðingu bóta almannatrygginga. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun þáðu í apríl sl. um 10.600 manns frekari uppbót, en voru í október um 9.500. Sparnaður stofnunarinnar við þessa fækkun bótaþega er um 7,5 millj. kr. á mánuði. Einnig hafa uppbótargreiðslur lækkað til tæp- lega 1.000 manns vegna tekju- og eignamarka, og hafa útgjöld Tryggingastofnunar lækkað við það um 7 millj. kr. á mánuði. Að sögn Ingibjargar Stefáns- dóttur hjá fræðslu- og útgáfudeild Tryggingastofnu nar voru breyt- ingarnar á umræddri reglugerð liður í því að gera úthlutunarregl- ur almannatrygginga og vinnu- reglur Tryggingastofnunar „gegn- særri“, með það fyrir augum að láta ákvarðanir um úthlutun bóta- greiðslna byggjast á óhlutbundn- um, skýrum reglum. Ingibjörg segir þeim, sem þegið hafa frekari uppbót lífeyris, hafa fækkað í kjölfar nýju reglugerðar- innar aðallega vegna þess, að við endurskoðun gagna um bótaþega hefði komið í ljós, að margir þeirra áttu miklar eignir og/eða höfðu hærri tekjur en samþykkt viðm- iðunarmörk, þ.e.a.s. eldri forsend- ur fyrir greiðslu frekari uppbótar voru brostnar. Ennfremur hafa sumir þeirra sem fengu frekari uppbót vegna hás lyfjakostnaðar misst hana vegna þess að þeir hafa fengið sérstakt lyfjafríkort. Viðmiðunarmörk tekna og eigna, sem ráða því hveijir eiga rétt á „frekari uppbót“ á lífeyri, er samkvæmt vinnureglum reglu- gerðarinnar 75.000 kr. á mánuði fyrir einstakling (samanlagðar tekjur + grunnbætur) og 150.000 kr. fyrir hjón. Eignir í peningum og verðbréfum fari ekki yfir tvær og hálfa milljón kr. Að mati fyrirspyijandans, Svav- ars Gestssonar, er sparnaður ríkis- ins af þessum og fleiri reglubreyt- ingum undanfarinna missera vafa- samur, með tilliti til þess kjaraóör- yggis, sem elli- og örorkulífeyris- þegum er búið með þeim. • • Okutækjastyrkir til fatlaðra Helmings lækkun fjár- veitinga frá síðasta ári HELMINGS lækkun hefur orðið á fjárveitingum ríkisins til öku- taikjastyrkja til fatlaðra á milli áranna 1995 og 1996. í fyrra námu þessir styrkir 160 millj. kr., eða 165 millj. kr. að nú- virði, en hafa numið 80 milljón- um á þessu ári. Þetta kemur fram í skriflegu svari heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra við nýlegri fyrirspurn Sigurðar Hlöðvessonar. Á árunum 1992-1995 námu fjárveitingar til ökutækja- styrkja 160-190 millj. kr. og er því lækkunin á þessu ári mjög áberandi. Skýringarinnar á þessari miklu lækkun milli ára er að Ieita í breytingum sem gerðar voru á reglugerð frá 1987 um þátttöku almanna- trygginga í bifreiðakaupum fatlaðra, sem gengu í gildi 22. janúar sí. Með reglugerðar- breytingunni var fjöida heimiila styrkveitinga fækkað úr 600 í 335. Tryggingastofnun ríkisins veitir einnig sérstök lán í sama augnamiði, og hefur þeim lán- veitingum fjölgað í kjölfar fækkunar styrkveitinganna. í svari ráðherra er tekið fram, að þessi og fleiri málefni fatl- aðra verði tekin til sérstakrar skoðunar á næstunni í nefnd sem félagsmálaráðherra skipar. Fjögur ár hjá ESA í Brussel Lífsnauðsyn að fá Sviss inníEES Björn Friðfinnsson Björn Friðfinnsson var ráðuneytisstjóri í iðn- aðar- og viðskipta- ráðuneytinu þegar samn- ingarnir um Evrópska efna- hagssvæðið, EES, voru gerðir. Hann tók þátt í samningaviðræðum og var skipaður í fullt starf sem einn af stjórnarmönnum Eftiriitsstofnunar EFTA þegar hún var stofnuð. Stjórnarmennirnir voru upphaflegá fimm en eru nú þrír. Hinir tveir eru frá Noregi og Liechtenstein. Stofnunin á að tryggja að EES-reglurnar séu lögtekn- ar og þeim beitt af EFTA- ríkjunum á réttan hátt. Starfstíma Björns í Brussel lýkur nú um áramótin. „Stofnunin átti í upphafi að vera í Genf en þegar Svisslendingar felldu tillögu um aðild að EES var ákveðið að hafa hana í Brussel. Stofnunin hafði 97 starfsmenn þegar hún tók til starfa en þeim var fækkað í 44 þegar Austurríki, Finnland og Svíþjóð gengu í Evr- ópusambandið 1995.“ - Hvaðan eru starfsmenn Eftir- litsstofnunarinnar og hver ber kostnaðinn af rekstri hennar? „Aðildarríkin þijú, ísland, Noregur og Liechtenstein, skipta með sér rekstrarkostnaðnum sam- kvæmt fólksflölda. Liechtenstein borgar þó 2%, það er lágmarkshlut- ur, Island 9% og Noregur 89_%. Það starfa hér 15 Norðmenn, 12 Islend- ingar og einn frá Liechtenstein en þetta er alþjóðastofnun og við ráð- um þess vegna einnig starfsmenn frá öðpum löndurn." - / hverju felst starfið? „Stofnunin tók formlega til starfa 1994. Það er okkar að fylgj- ast með að gerðir sem við tókum yfir frá Evrópusambandinu með EES-samningnum séu teknar inn í löggjöf aðildarríkjanna. Þæt- voru 1270 árið 1994. Síðan hafa þó- nokkrar bæst við og þær eru orðn- ar 1406. Þetta er mesta löggjafar- bylting á íslandi síðan á 13. öld og m.a. mesta samræming á nor- rænum rétti sem átt hefur sér stað. Ýmsum stóð ógn af þessu lagaflóði en þetta hefur yfirleitt gengið vel og er nú að fjara út. Flóðið verður að læk í framtíðinni. Við getum rannsakað meint brot á EES-regl- unum að eigin frum- kvæði eða á grundvelli kvartana. Fyrirtæki og einstaklingar geta lagt hér fram kvartanir ef þeir telja að reglur um fijáls vöru- og þjón- ustuviðskipti, fijálsa för launþega og fijálsra fjármagnsflutninga á Evrópska efnahagssvæðinu séu brotnar. Stofnunin getur hafið formlega málsmeðferð og vísað málinu til EFTA dómstólsins, ef ástæða er til.“ - Aðildarríkjum EFTA hefur fækkað mikið frá því að samningar um EES hófust. Hvaða áhrif hafa þessar breytingar á EES-samning- inn og framtíð hans? „Það var mikið áfall fyrir okkur að missa Svíþjóð, Finnland og Aust- urríki úr EFTA í Evrópusambandið. Það má segja að það sé nú lífsnauð- synlegt fyrir okkur að fá Sviss inn í samninginn. Sviss á mest við- skipti við ESB af þjóðunum sem stóðu að EES-samningnum og það átti stóran þátt í því hversu góður samningur náðist. Svisslendingar eiga nú í tvíhliða samningaviðræð- um við ESB. Það fer eftir því hvað kemur út úr þeim hvort þeir endur- skoða afstöðu sína til EES eða ekki. ► Björn Friðfinnsson er fædd- ur á Akureyri 1939. Hann er stúdent úr MA og lögfræðingur frá Háskóla íslands. Hann hefur unnið ýmis stjórnunarstörf, var t.d. bæjarstjóri á Húsavík, for- stjóri Kísiliðjunnar, fjármála- stjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar Reykjavíkur- borgar. Hann var ráðuneytis- stjóri í viðskipta- og iðnaðar- ráðuneytinu áður en hann varð einn af þremur fyrstu stjórnar- mönnum Eftirlitsstofnunar EFTA í Brussei 1993. Björn er kvæntur Iðunni Steinsdóttur, kennara og rithöfundi. Þau eiga 3 börn og 5 barnabörn. Vægi okkar myndi aukast mjög ef þeir gengju til liðs við okkur. Við- skipti ESB við Noreg, ísland og Liechtenstein eru hlutfallslega lítil og skipta litlu máli. Það eru þó nokkrir starfsmenn innan ESB sem verða að sinna okkur og okkar málum. I framtíðinni gæti verið lit- ið á það sem óþarfa fyrirhöfn. Hættan á að við gleymumst verður æ meiri ef sambandið stækkar. Breytingar í stjórnarfyrirkomu- lagi Evrópusambandsins geta einn- ig haft áhrif á ágæti EES-samn- ingsins. Núna fyigjumst við með og tökum þátt í nefndarstörfum um mótun nýrra reglna. En það gæti breyst ef áhrif ESB- þingsins verða aukin og dregið úr vægi fram- kvæmdastjórnarinnar. “ - Finnst þér að Is- land eigi að ganga í Evrópusambandið? „Ég vil ekki fella dóm um það. Við getum vel lifað við EES-samn- inginn, sérstaklega ef Sviss kemur inn í hann. Það væri lítil fyrirhöfn fyrir okk- ur að ganga inn í ESB. Við höfum þegar aðlagað reglur og lög um viðskipti að reglugerðum þess. At- vinnulífið gæti náð auknum hags- bótum með samningum við það en það vegur kannski ekki þyngst. Mér finnst aðild kannski helst vera und- ir metnaði stjómmálamanna komin. Þeir gætu þá tekið þátt í setningu sameiginlegrar löggjafar og annarri ákvarðanatöku ESB og haft aukin áhrif á þróun mála álfunnar í fram- tíðinni. Auðvitað þyrfti samt að ná fram lausn varðandi sjávarútvegs- málin áður en af aðild yrði. Ef Evrópusambandið stækkar úr 15 ríkjum í 25 til 27 verður rödd okkar í EES-samstarfinu auð- vitað mun veikari og erfiðara að láta til okkar heyra.“ - Hvað tekur við þegar þú ferð aftur til íslands? „Ég hef verið í leyfi þaðan en ég fer aftur í iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytið." Innganga í ESB yrði fyrir hafnarlítil

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.