Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
ÖSKUSPRENGING í Vatnajökli meðan gosið stóð sem hæst 9. október síðastliðinn.
Ljósleiðari á ný
yfir Skeiðarársand
UÓSLEIÐARASTRENGURINN
yfir Skeiðarársand fór í sundur á
tveimur stöðum í hlaupinu á dögun-
um, við Gígjukvísl og Skeiðará.
Búið er að leggja nýjan streng í
báðar árnar og tengja við þann
hluta ljósleiðarans sem er í lagi.
Kostnaður við þær framkvæmdir
er um fimm milljónir króna. Þegar
árnar verða brúaðar á ný eftir 1-2
ár er stefnt að því að leggja ljósleið-
ara í nýju brýmar.
Auk þessara viðgerða er ráðgert
að leggja nýjan ljósleiðara yfir
Skeiðarársand nokkru neðar en
núverandi strengur liggur. Þá yrði
sæstrengur plægður niður í árnar
og vel varinn ljósleiðari á milli
þeirra. Því verki gæti lokið snemma
næsta vor, ef veður leyfir, og kostn-
aður við það er áætlaður á bilinu
20-25 milljónir króna. Þannig
myndu verða til tvær aðskildar leið-
ir yfir Skeiðarársand auk örbylgju-
sambands, segir í frétt frá Pósti og
síma.
RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA
■ Ráðgjöf fyrir aðstandendur áfengis- og fíkniefnaneytenda.
■ Ráðgjöf fyrir óvirka áfengis- og fíkniefnaneytendur.
■ Almenn viðtalsmeðferð og ráðgjöf.
■ Einkaviðtöl, hópmeðferð.
Sýning á myndum frá gosinu í
Vatnajökli og Skeiðarárhlaupi
í ANDDYRI Morgunblaðshússins,
Kringlunni 1, hefur verið komið
upp ljósmyndasýningu um gosið
undir Vatnajökli og Skeiðarár-
hlaupið sem fylgdi í kjölfarið.
Þetta var í fyrsta sinn sem eldgos
undir jökli var fest á filmu, og
myndum ljósmyndara Morgun-
blaðsins var sumum hveijum dreift
til blaða og tímarita um allan heim.
Farið var í flugvélum og þyrlum
upp að gosstöðvunum hvenær sem
færi gafst og því er saga gossins
vel skráð í þessum myndum.
Gosið undir Vatnajökli var hið
fjórða stærsta hér á landi á þess-
ari öld og rúmtak gosefna er talið
hafa verið 0,6-0,7 rúmkílómetrar.
ísinn yfir gossprungunni sem
bráðnaði við umbrotin var 450
metrar að þykkt þar sem hann var
þynnstur og þegar rennslið af
gosstöðvunum í Grímsvötn var
sem mest runnu þangað fimm
þúsund rúmmetrar af vatni á sek-
úndu, eða um tólfföld Þjórsá. í
Skeiðarárhlaupinu, sem var eitt
hið stærsta á þessari öld, var
rennslið að minnsta kosti fjörutíu
þúsund rúmmetrar á sekúndu.
Síðustu 58 ár, eða frá gosinu
1938, hafa verið rólegasti tíminn
í jöklinum í margar aldir. Umbrot-
in nú í september og október
gætu verið upphafið að nýrri
hrinu umbrota og eldgosa.
Sýningin stendur til 6. desem-
ber og er opin kl. 8-18 alla virka
daga og kl. 8-12 laugardaga.
11 komu við sögu í fíkni-
efnamálum um helgina
LÖGREGLAN þurfti nokkrum
sinnum að hafa afskipti af fólki
um helgina, sem hafði fíkniefni
undir höndum.
Maður var handtekinn í Hafnar-
stræti síðdegis á föstudag og var
hann með fíkniefni á sér. Þá var
lagt hald á fíkniefnapípu er fannst
í bifreiðageymslu í Grafarvogi og
ástæða þótti til að færa ökumann
og þijá farþega á lögreglustöð eft-
ir að þeir höfðu verið stöðvaðir á
Bústaðavegi um nóttina. Grunur
lék á að þeir hefðu fíkniefni í fórum
sínum.
Húsleit var gerð í húsi á Sel-
tjarnarnesi snemma á laugardags-
morgun. Nokkuð af fíkniefnum
fannst, svo og áhöld til fíkniefna-
neyslu. Einn maður var handtek-
inn.
Snemma á sunnudagsmorgun
fundust fíkniefni á farþega leigu-
bifreiðar, sem neitað hafði að
greiða bifreiðastjóranum fyrir
aksturinn.
Þá fundust fíkniefni á þremur
mönnum er húsleit var gerð á Sel-
tjarnarnesi. Grunur er um að einn
þeirra tengist innbroti í skóla á
Granda.
Ökumaður var færður á lög-
reglustöð þegar nokkur grömm af
ætluðu hassi fundust í fórum hans
eftir að hann var stöðvaður í akstri
á Frakkastíg.
Gunnhitdur Gunnarsdóttir,
félagsfræðingur B.A., M.Ed. Guidance og Counseling,
Strandgötu 11, 220 Hafnarfirði, sími 565 1916.
Loðhúfur
frá kr. 4.950
Loðhönd
kr. 3.500
UTIVISTARBUÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 551 9800 og 551 3072.
Fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa
Sniðin að mismunandi þörfum sparifjáreigenda
• Fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa sem uppfylla óskir fjárfesta um ávöxtun, lánstíma, öryggi, verðtryggingu o.fl.
• Ríkisverðbréf eru markaðsverðbréf, skráð á Verðbréfaþingi íslands, og eru því auðseljanleg hvenær sem er á lánstímanum.
• Ríkisverðbréf eru boðin út vikulega.
Ríkisvíxlar
Ríkisvíxlar
Ríkisvíxlar
Ríkisbréf
Ríkisbréf
ECU-tengd
Árgreibsluskírteini
Spariskírteini
Spariskírteini
Spariskírteini
3 mánubir
6 mánuðir
■ 12mánu5ir
3 ár
5 ár
I Óverbtryggö ríkisver&bréf
I Verötryggö ríkisveröbréf
20 ár
Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustu-
miðstöðvar ríkisverðbréfa og fáðu nánari
upplýsingar. Sími 562 6040.
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð, sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum