Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 10

Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fr amkvæmdastj óri VSÍ segir mörg verkalýðsfélög sýna fy r irtæ kj asamningrim áhuga Skýrist á næstu tveim- ur vikum ÞÓRARINN V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, segist gera sér vonir um að á næstu tveimur vikum skýrist hvort samkomulag næst um að færa hluta af gerð nýrra kjara- samninga út í fyrirtækin. Hann seg- ir mikilvægt að sem flest verkalýðs- félög lýsi sig reiðubúin til að fara þessa leið vegna þess að fyrirtækja- samningar gangi í eðli sínu þvert á mörk stéttarfélaga. „Við teljum tilefni til að aðlaga kjarasamninga að þörfum mismun- andi fyrirtækja. VR er nú að gefa færi á því að nálgast viðfangsefnið með þeim hætti. Það sem við okkur blasir núna er að reyna að forma efnisreglurnar í kringum þessi sam- skipti. Það eru fleiri en VR sem hafa tekið þessum hugmyndum vel og vilja þoka sér inn á þessa braut. Það er okkar mat að það þurfi að komast á hreint nokkuð fljótt hvort að fyrirtækjaþátturinn verður hluti af kjarasamningunum eða ekki. Eg er að gera mér vonir um að þetta skýrist á næstu tveimur vikum. Það er æskilegt að sem flest félög taki þátt þessu vegna þess að við erum að leita eftir samstarfí úti í fyrir- tækjunum þvert á stéttarfélaga- mörkin.“ Þórarinn sagði að umræður um hugsanlega fyrirtækjasamninga væru mislangt komnar. Agætar við- ræður hefðu átt sér stað milli VSÍ og VR og Samiðnar. Viðræður við önnur landssambönd væru skemmra á veg komnar. Þróast á nokkrum árum í tillögum VR er gert ráð fyrir að stefnt verði að því að koma á svokölluðum markaðslaunum, þ.e. að samningar innan fyrirtækja mið- ist við þau laun sem almennt eru greidd á markaðinum. Þórarinn sagði að VSÍ væri tilbúið til að ræða þessa hluti, en það væri hins vegar ekki auðvelt að útfæra þessa hug- mynd. Menn gætu þó hugsanlega sótt fyrirmyndir í þessu efni til Dan- merkur. Hann benti á að í danska iðnaðinum hefði verið þróað launa- kerfi sem byggðist á samræmdu mati á innihaldi starfa. „Við höfum gengið ákaflega skammt í að þróa einstök hugtök. Hvað er t.d. fulltúi? Launatölur hafa hingað til gefið okkur mjög óglögga mynd af því hvað er verið að borga fyrir sambærileg störf. Ég á von á því að næstu árum þoki menn sér í þessa átt, en ég held að bæði okkur og verslunarmönnum sé ljóst að þetta tekur tíma og krefst mikillar heimavinnu." Þórarinn sagði að VSÍ væri sam- mála VR um að rétt væri að stefna að því að dregið verði úr yfirvinnu starfsfólks og vinnutími verði stytt- ur. Hann lagði hins vegar áherslu á að um þetta yrði að semja í fyrir- tækj asamningum. Árangur næst í fyrirtækjunum „Við teljum að það sé ógjörningur í heildarkjarasamningum að semja um breytingar á vinnutíma. Það ger- ist ekki nema á vinnustöðunum þar sem menn véla um framkvæmdina. Við byggjum þetta á því að menn búi sér fyrst til svigrúmið með því að ná samkomulagi um einstaka hluti, eins og t.d. hluti sem verslunar- menn opna á í sambandi við að breyta álagsgreiðslum fyrir yfirvinnu. Ef við færum að gera þetta fyrir allan mark- aðinn á grundvelli einhverra meðal- tala myndi það leiða til þess að sum- ir græða og aðrir tapa, en niðurstað- an yrði ekkert nema ósætti og verð- bólga. Við byggjum mestar vonir við að úti í fyrirtækjunum, í skipulögðu samstarfi þar, sé hægt að ná árangri í að stytta vinnutímann og flytja greiðslur þaðan yfír í fastakaupið. Við útilokum ekki að flutt verði frá bónusgreiðslum yfir í fastakaupið. En við teljum að tími heildarlausna í þessum efnum sé á enda,“ sagði Þórarinn. Hlíf fékkjeppa Hjartavemdar AÐALVINNINGUR í Happdrætti Hjartaverndar, Toyota Land Cruiser jeppabifreið var afhent í gær vinningshafanum, Verka- mannafélaginu Hlíf í Hafnar- firði. Á myndinni afhendir Hjördís Kröyer, framkvæmdastjóri Hjartaverndar, Sigurði T. Sig- urðssyni, formanni Hlífar, lykl- ana að jeppanum. Aðrir á mynd- inni eru Björn Víglundsson, full- trúi Toyota, Ragnar S. Halldórs- son og Áslaug Ottesen sljórnar- menn í Hjartavernd. Sími 555-1500 Höfum kaupanda að 200—250 fm einbhúsi á Stór- Reykjavikursvæðinu. Engin skipti. Sumarbústaður Til sölu góður ca 50 fm sumarbústaður í landi Jarðlangsstaða I Borgarfirði. Eignarland hálfur hektari. Verð: Tilboð. Kópavogur Digranesheiði Gott ca 120 fm einbýli auk ca 35 fm bílskúrs á þessum vinsæla stað. Áhv. húsbr. ca 2,4 millj. Verð 11,5 millj. Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm bílsk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti möguleg á 3ja herb. íb. Reykjavík Baughús Glæsileg ca 90 fm 3ja herb. ib. I tvib. með góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj. húsbréf. Verð 8,5 millj. Skipholt Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm I fjölb. Verð 2,7 millj. Hafnarfjörður Sævangur Glæsilegt einbhús á einni hæð ca 180 fm auk tvöf. bilsk. Skipti mögul. á minni eign. Verð 16,0 millj. Breiðvangur Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Ath. skipti á lítilli íb. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítið áhv. Verð 4,3 millj. Vantar eignir á skrá ^■Fasteignasala, J| Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. Sakamál Halims A1 tekið fyrir í dag Brot Halims fyrir sakadómi í þriðja sinn SAKAMÁL Halims Al, fyrrum eig- inmanns Sophiu Hansen, verður tekið fyrir í sakadómi í Istanbúl í dag. Það verður í þriðja sinn sem umgengnisréttarbrot hans eru tek- in fyrir í sakadómi, en hann var fyrst dæmdur í hundrað daga fang- elsi í ársbyijun 1994. Þeim dómi var breytt í fjársekt og síðan hefur ekkert verið aðhafst formlega til þess að fá hann dæmdan til refs- ingar fyrir vanefndir á umgengnis- rétti. Á allra næstu dögum er einnig að vænta úrskurðar í forræðismáli Sophiu Hansen og Halims Al, en þegar það var tekið fyrir í hæsta- rétti í Ánkara 12. nóvember síðast- liðinn ákvað áfrýjunardómstóllinn að taka sér viku til tíu daga um- hugsunarfrest til þess að kveða upp úrskurð. I réttarhöldum 13. júní sl. dæmdi undirréttur í Istanbúl Halim A1 forræði yfir dætrum þeirra. Um leið var Sophiu og dætrunum dæmdur umgengnisréttur í tvo mánuði í sumar. LögmaðuuSophiu áfiýjaði málinu til hæstaréftar og eftir að í ljós kom að áfrýjunin kæmi í veg fyrir að reynt yrði á umgengnisréttinn tókst lögmann- inum að fá í gildi umgengnisrétt um hverja helgi samkvæmt úr- skurði frá 30. júní 1993. Sá um- gengnisréttur, sem á að vera í gildi frá kl. 17 á föstudögum til sama tíma á sunnudögum meðan á mála- ferlunum stendur, hefur verið brot- inn í þau skipti sem Sophia hefur látið reyna á hann. Áfrýjað til fullskipaðs hæstaréttar Gert er ráð fyrir að úrskurður áfrýjunardómstólsins í Ankara, sem nú er beðið eftir, fari aftur til undirréttar í Istanbúl. Þar muni dómari taka afstöðu til þess hvort hann breyti fyrri niðurstöðu í ijósi úrskurðarins frá Ankara eða haldi fast við .sitt. Einsýnt þykir að ann- ar aðilinn, ef ekki báðir, muni áfrýja niðurstöðu dómarans í Ist- anbúl enn einu sinni, en í þetta sinn til fullskipaðs hæstaréttar, sem í sitja 45 dómarar, og þar fáist endanleg niðurstaða forræðis- málsins |tyrkneska réttarkerfinu. Þá er éinnig mögulegt að málinu verði vísáð til Mannréttindadóm- stóls Evrópu og þar gæti meðferð þess tekið tvö til þrjú ár, svo fram- arlega sem því yrði ekki vísað frá. Word námskeið Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuraögjöf • námskeiö • útgáfa Grensásvegi 16 • © 568 80 90 Heilbrigðiseftir- lit Suðurlands Varað við óskoðuðu kjöti HEILBRIGÐISEFTIRLIT Suðurlands varar að gefnu tilefni við kjöti og vinnsluvör- um úr kjöti sem ekki hefur hlotið lögboðna skoðun heil- brigðisyfirvalda. Veruleg hætta er á matarsýkingum frá hráefni sem hefúr verið unnið á stöðum er ekki hafa lögboðin starfsleyfi né að- stöðu til vinnslu matvæla, að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Bent er á að kjötvinnslunni Kambakjöti, Austurmörk 20 í Hveragerði, hafi verið lokað og sölubann verið sett á framleiðsluvörur fyrirtækis- ins vegna skemmdrar vöru og óviðunandi aðbúnaðar. Osamræmi í framburði MAÐURINN, sem var hand- tekinn eftir að hafa ráðist að öðrum manni í Rima- hverfi í Grafarvogi á mánu- dagskvöld, var látinn laus að loknum yfirheyrslum í gær. Maðurinn heldur því fram að hann hafi ógnað hinum manninum með stórri sósu- skeið, en fórnarlambið segir að á sig hafi verið ráðist með kjötgaffli. Meiðsl hans eru lítil. Lögreglan var kölluð að verslun við Langarima. Þar var maður, sem sagði að ráð- ist hefði verið á sig. Hann kvaðst þekkja árásarmann- inn og vísaði lögreglunni á heimili hans. Þegar lögreglan kom að húsinu kom í ljós að hinn meinti árásarmaður var á bil með stolnum númeraplötum, auk þess sem hann var rétt- indalaus. Lögreglan leitaði í bílnum og á heimili hans og lagði hald á tvo kjötgaffla og einn búrhníf. Maðurinn neitaði staðfastlega að hafa ráðist að hinum manninum með gaffli og hélt sig við framburðinn um skeiðina. Borgarráð 200 milljón- ir til Rima- skóla BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt í samræmi við frum- drög að fjárhagsáætlun árs- ins 1997 að heimila útboð á uppsteypu og fullnaðarfrá- gangp á stjórnunarálmu Rimaskóla. Áætlaður kostnaður er samkvæmt frumdrögum 200 milljónir króna. Lagt er til að verkinu ljúki haustið 1997 og að verktíminn verði eðli- legur. I i I >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.