Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutafjáraukning í Samheija hf. hefur enn ekki verið ákveðin
Fyrirlestur
um Don
Giovanni
KE A eignast meirihluta í
Laxá eftir hlutafjárútboð
„HEIMSPEKILEGUR prófíll flag-
arans Don Giovanni" er yfírskrift
fyrirlesturs sem Guðmundur Heiðar
Frímannsson heimspekingur flytur
í Deiglunni í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 20. nóvember, kl. 20.30.
í fyrirlestrinum ræðir Guðmund-
ur Heiðar í tali og tóndæmum um
Don Giovanni. Fyrirlesturinn er
hluti af dagskrá um myndlistarsýn-
ingu Haraldar Inga. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
HLUTAFJÁRÚTBOÐI í fóðurverk-
smiðjunni Laxá hf. á Akureyri lauk
í gær. Seld voru hlutabréf að nafn-
virði 20 milljónir króna á genginu
1,85, fyrir 37 milljónir króna og
áttu núverandi hluthafar forkaups-
rétt til dagsins í gær. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins keypti
Kaupfélag Eyfirðinga nánast öll
hlutabréfín eða fyrir 19,7 milljónir
króna að nafnvirði og hefur KEA
þar með eignast hreinan meirihluta
í fyrirtækinu, með tæplega 53%
eignarhlut.
Fyrir hlutafjárútboðið var heild-
arhlutafé félagsins í A- og B-
flokki rúmar 58 milljónir króna.
Akureyrarbær og KEA voru
stærstu hluthafarnir og átti hvor
aðili rúmlega 21 milljónar króna
hlut. Akureyrarbær hafnaði hins
vegar forkaupsrétti sínum.
Þeir fjármunir sem komu inn
með hlutafjáraukningunni verða
notaðir til ýmissa endurbóta á verk-
smiðjunni. Markmiðið er að fram-
leiða enn fjölbreyttara fóður og
svara um leið þeim kröfum sem
gerðar eru á fóðurmarkaðinum í
(iag.
HJALTEYRINNI EA, togara Samheija, verður flaggað út til
Onsward Fishing Co. í Skotlandi en Samherji keypti nýlega rúm-
lega 50% hlut í félaginu. A myndinni eru f.v. Kristján Vilhelms-
son, Samherja, Terry Taylor, Onsward Fishing Co., Sigurður
Sigurgeirsson, Landsbréfum, Þorsteinn Már Baldvinsson, Sam-
herja, Eiríkur Jóhannsson, útibússtjóri Landsbankans á Akur-
eyri, og Þorsteinn Vilhelmsson, Samheija.
Samheija," segir Sigurður Sigur-
geirsson hjá Landsbréfum á Akur-
eyri sem hefur umsjón með skulda-
bréfaútboði fyrirtækisins.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samheija, segir
ánægjulegt hversu mikill áhugi er
fyrir Samheija og hann vonast til
að sá áhugi haldist.
Morgunblaðið/Kristjá'’
OLAFUR Ragnarsson bókaútgefandi afhendir séra Pétri Þórarins-
syni eintak af bókinni Lífskrafti. Hjá þeim standa Friðrik Erlings-
son og Ingibjörg Siglaugsdóttir, kona séra Péturs.
Lífskraftur - ný bók frá Vöku-Helgafelli
Saga séra Péturs
og Ingu í Laufási
ÓLAFUR Ragnarsson bókaútgefandi
afhenti fyrir helgi séra Pétri Þórar-
inssyni, Ingibjörgu Siglaugsdóttur
og Friðriki Erlingssyni fyrstu eintök-
in af bókinni Lífskrafti, sem komin
er út hjá Vöku-Helgafelli. í bókinni,
sem er eftir Friðrik, segja sr. Pétur
og Inga frá lífsreynslu sinni en þau
hafa mætt margvíslegu mótlæti á
liðnum árum.
Mótlæti fer misjafnlega með fólk,
sumir gefast upp en aðrir herðast
við hveija raun. I síðarnefnda hópn-
um eru hetjur hversdagslífsins. Séra
Pétur Þórarinsson og kona hans,
Ingibjörg Siglaugsdóttir, hafa orðið
fyrir ýmsum áföllum á liðnum árum.
Hann hefur misst báða fætur vegna
sykursýki, hún fengið bijóstakrabba-
mein. I bókinni segja þau frá lífí sínu
og hvernig þeim hefur í sameiningu
tekist að sigrast á erfiðleikunum.
„Ef maður lætur erfíðleikana ekki
buga sig og gera mann þunglyndan,
svartsýnan og jafnvel vonlausan þá
verða erfíðleikar eins og við Inga
höfum lent í til góðs,“ segir Pétur í
bókinni. Og lokaorð bókarinnar eru:
„Þrátt fyrir allt er þetta líf stórkost-
legt og alls engin þrautaganga.“
Á bókarkápu segir að þessi bók
sé öllum holl lesning - ekki síst þeim
sem mikla fyrir sér smávægilegan
mótbyr og vandamál daglegs lífs.
Risakálfur
Morgunblaðið/Benjamín
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
KÝRIN Egla á Sigtúnum í
Eyjafjarðarsveit bar nýlega
þessum risastóra nautkálfi.
Hann vó 52 kíló nýfæddur, en
venjulega eru nýfæddir kálfar
um 30 kíló. Eigandinn, Sigur-
geir Pálsson, stendur stoltur
hjá bola.
Útboð á
veitinga-
rekstri
Skíðastaða
ÁHUGI virðist vera á því með-
al veitingamanna á Ákureyri
að bjóða í veitingarekstur á
Skíðastöðum, að sögn Þórðar
Guðbjörnssonar hjá Akur-
eyrarbæ, en frestur til að skila
inn tilboðum rennur út í lok
vikunnar.
Lögð hafa verið fram í bæj-
arráði tvö bréf um málið, ann-
að frá Helga Jóhannessyni for-
stöðumanni atvinnumálaskrif-
stofu bæjarins og hitt frá Guð-
mundi Birgi Heiðarssyni for-
stöðmanni Uppslýsingamið-
stöðvar á Akureyri. í báðum
bréfunum er lýst yfir stuðningi
við þá ákvörðun að bjóða út
veitingasölu að Skíðastöðum,
en jafnframt hvatt til þess að
aðstaða verði bætt sem og
þjónusta og að hafa veitinga-
rekstur allt árið, þar sem Hlíð-
arfjall sé einn af áhugaverð-
ustu ferðamannastöðum á
Akureyri. Bréfunum hefur
verið vísað til íþrótta- og tóm-
stundaráðs og stjórnar Vetrar-
íþróttamiðstöðvarinnar.
Endur-
menntun-
arnámskeið
felld niður
FELLA varð niður öll fjögur
námskeiðin sem fyrirhugað
var að efna til á Akureyri á
vegum Endurmenntunardeild-
ar Háskóla íslands í samvinnu
við Háskólann á Akureyri.
Ástæðan var ónóg þátttaka.
Námskeiðin voru á sviði
markaðsfræði og gæðastjórn-
unar, en þau voru um gæða-
kerfi, innri gæði útflutnings-
fyrirtækja og stofnana,
stefnumótun í markaðsmálum
og stjórnun markaðsmála.
„Eg er mjög undrandi á
þessu,“ segir Helgi Jóhannes-
son forstöðumaður Atvinnu-
málaskrifstofunnar á Akur-
eyri. „Ég veit ekki hvort
ástæðan fyrir því að fólk sótti
ekki þessi námskeið er sú að
menn viti þetta allt, eða
kannski fólk sé svona upptekið
í dagsins önn að það hafi ekki
tíma.“
í viðamikilli atvinnumála-
könnun sem nemar í rekstrar-
fræði við Háskólann á Akur-
eyri eru að gera er m.a. spurt
um þörf atvinnulífsins fyrir
endurmenntun og sagði Helgi
að fróðlegt yrði að skoða nið-
urstöðumar.
Myndlistar-
sýning í tíma-
ritsformi
ÚT ER komið tímaritið
SÝNEX sem er myndlistarsýn-
ing Haraldar Inga Haraldsson-
ar í tímaritsformi.
Tímaritið skiptist í 3 sýning-
arsali og er texti þess á ís-
lensku og ensku eins og nafn-
ið bendir til; stytting úr Sýn-
ing/Exhibition.
Tímaritið er gefið út í 1.600
eintökum og dreift án endur-
gjalds samkvæmt fyrirfram
gerðri áætlun í 1.300 eintök-
um. SÝNEX er hægt að nálg-
ast á sýningu Haraldar Inga
í Deiglunni á Akureyri, en hún
stendur til 24. nóvember.
Tímaritið kostar 1.000 krónur.
Margir vilja
kaupa hlut í
fyrirtækinu
SAMHERJI hf. birti afkomutölur
síðasta árs fyrir helgi, þar sem fram
kom að hagnaður fyrirtækisins nam
553 milljónum króna. Samheiji hef-
ur tekið fyrstu skrefin á verðbréfa-
markað með 300 milljóna króna
skuldabréfaútboði og eru Landsbréf
á Akureyri og hafa útibú Lands-
bankans á Akureyri umsjóna með
útboðinu.
Eigendur Samheija og tengdra
fyrirtækja hafa tekið ákvörðun um
að sameina rekstur þeirra í eitt fé-
lag og skrá það á almennum hluta-
bréfamarkaði. Ráðgert er að í upp-
hafi verði hlutabréf á Opna tilboðs-
markaðnum en síðan á Verðbréfa-
þingi íslands.
Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um hvort og þá hver
hlutafjáraukning í Samheija kann
að verða. Hins vegar hafa bæði fjár-
festar og einstaklingar sýnt Sam-
heija mikinn áhuga og spurst fyrir
um möguleika á að eignast hluta-
bréf í fyrirtækinu, hjá Landsbréfum
á Akureyri og í Reykjavík.
Hlutafjáraukning
ekki ákveðin
„Það hefur verið mikið hringt
hingað af fólki sem vill kaupa hluta-
bréf í Samheija, þrátt að ekki liggi
fyrir ákörðun um hlutafjárútboð á
þessu stigi. Það er því greinilega
mikill áhugi meðal fjárfesta og ein-
staklinga fyrir því að eignast hlut
í fyrirtækinu. Hins vegar gætir
ákveðins misskilnings hjá fólki og
við erum ekki að selja hlutabréf í