Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 17
ERLENT
Reuter
Flóttamenn
Deilt á forseta
Hvíta-Rússlands
Minsk, Moskvu ojj París. Reuter.
VALDABARATTAN milli Alexand-
ers Lúkashenkos, forseta Hvíta-
Rússlands, og þings landsins hefur
vakið viðbrögð víða um heim. And-
stæðingar Lúkashenkos á þingi
virtust hins vegar ekki hafa nein
ráð til að stöðva þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem forsetinn hefur efnt
til í því skyni að auka völd sín.
Þingmenn hafa látið fyrirberast
í þinginu frá því á föstudag og í
gærmorgun ræddu þeir, hvað væri
hægt að taka til bragðs, án þess
að komast að niðurstöðu.
Hundsar gagnrýni
Lúkashenko vill efla tengsl við
Rússa og hefur engu skeytt um
utanaðkomandi gagnrýni.
Bandaríkjastjórn og fleiri ríkis-
stjórnir hafa lýst yfir áhyggjum af
þróuninni í Hvíta-Rússlandi, sem
liggur milli Rússlands og Póllands.
Hvítrússar hafa samið við Rússa
um sérstakt „bandalag" ríkjanna.
Rússar hvöttu í gær tit þess að reynt
yrði að finna málamiðlun í Hvíta-
Rússlandi og skynsemi látin ráða.
Bretar, Frakkar, ítalir og Þjóð-
veijar lögðu fram mótmæli í Minsk
í gær og sögðu að þjóðaratkvæða-
greiðslan, sem halda skal á sunnu-
dag, en er í raun hafin, væri ólög-
leg vegna atburða liðinnar viku og
brottrekstrar forseta kjörstjórnar.
Bæði þingið og stjórnlagadóm-
stóll landsins hafa ítrekað úrskurð-
að að niðurstaða þjóðaratkvæða-
greiðslunnar muni ekki fá laga-
gildi, en Lúkashenko hefur látið sér
það i léttu rúmi liggja. Hann sæk-
ist eftir auknum völdum og hyggst
láta lengja kjörtímabil sitt um rúm-
lega tvö ár.
80 þingmenn undirrituðu á
mánudag kröfu til stjómlagadóm-
stólsins um að víkja Lúkashenko
úr embætti. Víst er talið að Lúkas-
henko, sem ræður yfir öryggissveit-
um og fer með framkvæmdavaldið,
muni láta sig það litlu varða.
Vladímír Zametalín, einn nánasti
aðstoðarmaður forsetans, sagði að
Lúkashenko mundi eiga ýmissa
kosta völ yrði reynt að víkja honum
úr embætti. Hann gæti til dæmis
leyst upp bæði þingið og dómstól-
inn.
bíða hjálpar
GETGÁTUR um fjölda rúandískra
flóttamanna úr röðum hútúa, sem
enn eru innlyksa í Zaire, hafa orð-
ið þess valdandi að áætlanir um að
senda fjölþjóða herlið á vettvang
eru í molum. William Perry,
varnarmálaráðherra Bandarikj-
anna, sagði í gær að engir hermenn
yrðu sendir þrátt fyrir fyrri áætl-
anir, en þúsund manns færu til að
sjá um birgðaflutninga.
Rætt hafði verið um að Kanada-
menn veittu liðinu forustu. Lloyd
Axworthy, utanríkisráðherra
Kanada, sagði í gær að málið væri
i bið og ákvörðun um alþjóðlegar
björgunaraðgerðir yrði ekki tekin
fyrr en síðar í vikunni.
Rúandískir flóttainenn hófu að
yfirgefa flóttamannabúðir í Zaire
á föstudag og er talið að hálf miþj-
ón manna hafi snúið aftur til Rú-
anda.
Utanríkisráðherra Rúanda, An-
astase Gasana, sagði í gær að ekki
hefði verið nema hálf mil\jón flótta-
manna og væru þeir því allir komn-
ir aftur. Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna var á öðru máli
og kvaðst telja að sennilega væru
enn milli 300 og 500 þúsund flótta-
menn í Zaire, flestir frá Rúanda.
Á myndinni sjást flóttamenn í
bráðabirgðabúðum skammt frá
bænum Ruyengeri í Rúanda.
Segulbandsupptökur úr safni Rich-
ards Nixons gerðar opinberar
Ihugaði afsögn
í maí 1973
NIXON segir af sér í ágúst 1974.
Hann ihugaði afsögn rúmu ári fyrr.
Washington. The Daily Telegraph.
RICHARD Nixon, þáver-
andi forseti Bandaríkjanna,
var svo illa haldinn af von-
leysi og þunglyndi vegna
Watergate-málsins að
hann talaði af alvöru um
að segja af sér í maímán-
uði 1973, 15 mánuðum
áður en hann hraktist úr
embætti.
Þetta kom fram á mánu-
dag þegar gerðar voru op-
inberar segulbandsupptök-
ur úr forsetatíð Nixons.
Upptökumar í safni Nixons
geyma alls um 3.000 klukku-
stundir af efni sem forsetinn lét
hljóðrita með leynd í Hvíta-Húsinu
í Washington, í sumarhúsinu í
Camp David og í „Old Executive
Building" en svo nefnist bygging
ein mikil, sem hýsir hluta stjórn-
sýslunnar, við hliðina á Hvíta
Húsinu.
Afsögn rædd við Haig
Upptökumar geyma m.a. sam-
tal Nixons og Alexanders Haigs,
sem þá var skrifstofustjóri forset-
ans, í maí 1973. Nixon víkur að
þeim möguleika að hann segi af
sér með svofelldum orðum: „Væri
ekki einfaldlega betra að ég
stimplaði mig út?“ Haig lætur að
því liggja að forsetanum sé ekki
alvara. „Nei, nei, mér er alvara,
vegna þess að, sjáðu til, ég er
ekki í sem bestu ástandi og ég
þarf að vera í topp-formi og það
þýðir að ég verð að taka þennan
fjárans slag, beijast allt til loka.“
í maímánuði 1973 var stjóm
forsetans að falli komin vegna inn-
brots í höfuðstöðvar Demókrata-
flokksins í Watergate-byggingunni
í júnímánuði árið áður. Forsetinn
hafði þá nýverið neyðst til að láta
vin sinn H. R. Haldmen víkja úr
ríkisstjórninni og Haig hershöfð-
ingi hafði aðeins verið einn mánuð
í starfí skrifstofustjóra.
Haig hvatti forsetann til að ýta
til hliðar öllum vangaveltum um
afsögn og bætti við að þannig
myndi hann bregðast stuðnings-
mönnum sínum. Nixon svaraði:
„Já en það er svo lítill hópur Al.“
Haig sagði: „Nei, herra, svo er
ekki. Þeir standa allir með
þér ... Það yrði mesta áfall í sögu
lands og þjóðar." Nixon sagði loks
af sér í ágústmánuði 1974.
Einstakar heimildir
Nixon, sem lést fýrir tveimur
árum, barðist ávallt gegn því að
segulbandsupptökumar yrðu gerð-
ar opinberar og ekki er langt um
liðið frá því að umsjónarmenn
eigna forsetans létu undan þrýst-
ingnum. Gert var samkomulag
þess efnis að hulunni yrði svipt af
segulbandsspólum, sem geyma um
820 klukkustundir af efni, sam-
ræðum sem forsetinn átti við að-
stoðarmenn sína og vini.
Ljóst þykir að upptökumar eru
sem himnasending fyrir sagnfræð-
inga sem vilja kanna nánar merk-
ustu atvikin í forsetatíð Nixons,
önnur en Watergate-hneykslið, líkt
og t.a.m. Kínaför forsetans og
slökunarstefnuna gagnvart Sovét-
ríkjunum.
Þá er þess vænst að upptökum-
ar geti varpað Ijósi á þá ákvörðun
forsetans að láta varpa sprengjum
á Kambódíu sem hann sagði í end-
urminningum sínum að hefði verið
haldið leyndri af ótta við viðbrögð
almennings í Bandaríkjunum.
Mörg samtölin sem tengjast Wat-
ergate-málinu hafa verið leikin
áður þar sem þær upptökur voru
lagðar fram í sakamáli á hendur
þremur aðstoðarmönnum Nixons
sem dæmdir voru í fangelsi.
Safnafræðingur, Christopher
nokkur Beam, hefur hlýtt á upp-
tökumar og kveðst ekki vera í
vafa um gildi þeirra fyrir sagn-
fræðinga. „Þær skráðu allt sem
fram fór á æðstu stöðum í stjóm-
kerfí Bandaríkjanna. Þær eru al-
gjörlega einstakar."
ÁVÖ.XTI N ,\('DI.INDAK IIT. 15.1 I. '96
VILTU HLUT I OFLUGUSTU FYRIRTÆKJUNUM ?
Þú fjárfestir í Auðlindarbréfum og eignast hlut í fjölmörgum
sterkum og vaxandi fyrirtækjum. Betri afkoma hefur þýtt
góða ávöxtun á Auðlindarbréfum. Ávaxtaðu fé þitt án
fyrirhafnar - og tryggðu þér skattaafslátt í leiðinni.
Til að fullnýta skattaafsláttinn má einstaklingur kaupa
hlutabréf fyrir u.þ.b. 130.000 kr. og fær þá rúmlega 43.000
kr. í afslátt. Hjón geta keypt tvöfalda þessa upphæð.
Á árs- Nafn- Raun-
grundvelli ávöxtun ávöxtun
ftUGVWJW
&A7S/C/P
Sl. 3 mán.
Sl. 6 mán.
Sl. 12 mán.
Sl. 2 ár
Sl. 3 ár
Sl. 4 ár
Sl. 5 ár
24,8%
57,0%
51,7%
38,1%
26,6%
19,6%
15,4%
20,4%
52,3%
48,6%
35,2%
24,4%
17,1%
13,2%
KAUPÞING HF
Ármtila 13A
Sínti 515 1500
Engin útborgun • 1. greiðsla í febrúar ■ 12 mánaða greiðslur • Eitt simtal • Boðgreiðslur • Áskrift