Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• JÁ TNINGAR Berts eru eftir
þá Anders Jacobsson <£ Sören
Olsson. Jón Daníelsson þýddi.
„Fimmtán ára afmælisdagurinn
nálgast og draumar Berts um
skellinöðru og Emilíu ætla að ræt-
ast. En þá gerist hið óskiljanlega,
hið yfirnáttúrulega: Emilía segir
honum upp. Skyndilega rennur upp
fyrir Bert að hann er forljótur og
líf hans hefur engan tilgang fram-
ar. Þangað til Gabríella kemur til
sögunnar.“
Þetta er sjötta bókin um
prakkarann Bert Ljung.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 216 bls. og kostar 1.480 kr.
• KVENNAGULLIÐ Svanurer
eftir þá Anders Jacobsson og
Sören Olsson. Jón Daníelsson
þýddi.
„Svanur er fluttur og byrjaður í
nýja skólanum. Þar líkar honum
vel. Hann er að vísu búinn að skrifa
undir hjónabandssamning við Soff-
íu áður en hann flutti en það reyn-
ist samt erfítt að halda stelpunni
í nýja skólanum frá sér.“
Þetta er fímmta bókin um prakk-
arann Svan sem er eftir sömu höf-
unda og bækurnar um Bert.
Útgefandi er Skjaldborg. Bók-
in er 120 bls. ogkostar 1.380 kr.
• KIM og horfni fjársjóðurinn
er eftir Jens K. Holm í þýðingu
Knúts Kristinssonar.
„Kim fer til sumardvalar hjá
frænda sínum og frænku í lítilli
verstöð á Norður-Sjálandi og hittir
þar fyrir félaga sína sem láta sér
ekki allt fyrir bijósti brenna."
Þetta er önnur bókin í flokknum
um Kim og félaga sem nú er endur-
útgefín.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 86 bls. ogkostar 1.380 kr.
BÓKMENNTIR
Skáldsaga
BEINAGRIND MEÐ
GÚMMÍHANSKA
Saga og myndir
eftir Sigrúnu Eldjára.
Forlagið, Reykjavik, 90 bls.
ÞRIÐJA saga Sigrúnar Eldjárn
um leynifélagið Beinagrindina hefst
einn sólbjartan sumardag við Spóa-
götu. Ásgeir og Birna, 10 ára, eiga
í hinu mesta basli með að halda aft-
ur af óþekktarorminum Hreggviði,
tveggja ára, enda virðast hvorugt
hafa mikla reynslu af barnfóstru-
störfunum. Ekki er því heldur að
leyna að hugur jafnaldranna stendur
fremur til njósnastarfa á vegum
leynifélagsins en sumarvinnunnar.
Birna er ekki lengi að finna lausn á
vandanum. Þau binda Hreggvið ein-
faldlega með dágóðum snærisspotta
við tré í tijágarðinum í hverfinu.
Með því móti eru tvær flugur slegn-
ar í einu. Hreggviður fær ákveðið
athafnafrelsi um leið og komið er í
veg fyrir að hann fari sér að voða
á meðan að Ásgeir og Birna sinna
mikilvægari verkefnum annars stað-
ar í tijágarðinum. Ekki veitir heldur
af, því leynifélagið Gúmmíhanskar
hefur verið stofnað til höfuðs Beina-
grindinni. Fyrir utan Ásgeir og Birnu
skipa systkinin Beini (Kolbeinn 14
ára) og Gusa (Gunnhildur Salvör 6
ára) Beinagrindina. Höfuðpaurinn í
nýja leynifélaginu er hins vegar
Sigga, 14 ára, en hún
er í unglingavinnunni í
tijágarðinum með
Beina. Með Birnu í
Gúmmíhönskunum eru
Pétur, 8 ára bróðir
hennar, og þrír vinir
hans.
Full alvara færist í
leikinn þegar afundin
flokkstýra Beina í ungl-
ingavinnunni ásakar
Beinagrindina um að
hafa stolið af sér sæl-
gæti úr skúr í tijágarð-
inum. Þótt Beina sé að
vonum misboðið heldur
hann stillingu sinni eins
og sönnum leynifélaga
ber og gerir liði sínu grein fyrir því
að aðeins ein möguleg leið sé fær
úr vandanum, nefnilega að hafa
hendur í hári hinna raunverulegu
þjófa. Nú má Beinagrindin engan
tíma missa, enda gefur kerlingin
aðeins frest fram til næsta dags.
Eins er víst að ýmis skylduverkefni
falla í skuggann fyrir þjófaleitinni.
Sigrúnu tekst áreynslulaust að
sameina mikilvægustu kosti góðrar
barnabókar í sögunni. Frásögnin og
myndirnar spila leikandi létt saman
frá upphafi. Spennan er byggð upp
af röð smárra og oft spaugilegra
atvika og hápunkturinn í lokin er
ósvikinn. Beinagrind með gúmmí-
hanska hefur að geyma margar
óborganlegar aukapersónur á borð
við Normu (nornina) og skáldið
(kærasta hennar) þó krakkarnir
skipi auðvitað heiðursess. Samt eru
þeir ekki óskeikulir
fremur en aðrir og t.d.
óborganlegt þegar
Beinagrindin telur sig
verða vitni að því að
Gúmmíhanskarnir
grafí sælgætið títt-
nefnda í jörðu. Við nán-
ari eftirgrennslan kem-
ur hins vegar í ljós að
í pokanum er ekki sæl-
gæti heldur dauður
köttur. Ekki má heldur
gleyma því að jafnaldr-
arnir Ásgeir og Birna
læra afar mikilvæga
lexíu í sögunni og eiga
sjálfsagt eftir að taka
barnfóstrustarfið öðr-
um og fastari tökum eftir atburðina.
í sögunni er fjölskrúðugur orðaforði
og nægir að nefna að leyninöfn
krakkanna í Beinagrindinni eru öll
nöfn á beinum í handleggjum og
fótleggjum, þ.e. Sköflungur, Dálkur,
Öln og Spíra. Teikningarnar eru ein-
faldar og fullar af fjöri. Niðurstaðan
er s.s. sú að óhætt er a mæla með
bókinni fyrir alla litla lestrarhesta.
Lesendur fyrri sagnanna láta Beina-
grind með gúmmíhanska sjálfsagt
ekki fram hjá sér fara.
Vini og ættingja yngri barna er
vert að minna á að endurútgefín
hefur verið myndbókin Gleymmérei
eftir Sigrúnu og Þórarin Eldjárn.
Sagan kom upphaflega út með
svart/hvítum myndum árið 1981 en
myndirnar í nýju-útgáfunni eru í lit.
Anna G. Ólafsdóttir
Beinagrind í
kröppum dansi
Sigrún Eldjárn
• FRANK og Jói: Leyndardóm-
ur hellanna er eftir Franklin W.
Dixon. Gísli Ásmundsson þýddi.
„Sögunar af þeim bræðrum
Frank og Jóa hafa farið sigurför
um heiminn. Milljónir barna og
unglinga hafa skemmt sér við lest-
ur þessara spennubóka. í þessari
bók segir frá bófaflokki sem vinnur
skemmdarverk á ratsjárstöð," segir
í kypningu.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
erl42bls. ogkostar 1.480kr.
• RÓSIR dauðans eru eftir
Mary Higgins Clark í þýðingu
Jóns Daníelssonar.
Fyrir tíu árum höfðu rauðar rós-
ir gegnt mikilvægu hlutverki í sam-
bandi við morðið á Suzanne Rear-
don. Eiginmaður hennar, Skip Re-
ardon, var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi fyrir morðið þrátt fyrir að hann
héldi fram sakleysi sínu.
„Mary Higgins Clark bregst ekki
lesendum sínum nú frekar en
endranær og heldur þeim í magn-
aðri spennu allt til síðustu blaðsíðu
bókarinnar," segir í kynningu.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 290 bls. og kostar 2.980 kr.
• EINU sinni var . . . er eftir
Stefan Gemmer og Marie-José
Sacré í þýðingu Kristjáns Odds-
sonar.
„Einu sinni var... lítil mús sem
hét Millý. Árangurslaust leitaði hún
að rólegum stað til að lesa ævin-
týrabókina sína. En alls staðar varð
hún fyrir ónæði, bræður hennar
ærsluðust, mamma hennar braut
hnetur, froskarnir kvökuðu og
meira að segja vindurinn lét hana
ekki í friði."
Þetta er saga fyrir unga lesend-
ur. Bókina prýða margar litmyndir.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er28 bls. ístóru broti ogkostar
1.240 kr.
Elja og hugljómun
BOKMENNTIR
Ljóö
UNDIR HÆLINN LAGT
eftir Gylfa Gröndal.
Forlagið, 1996 - 87 bls.
ÞAÐ er eitt af einkennum nú-
tímaljóðskálda að vera sífellt að
velta því fyrir sér hvernig beri að
finna hugsunum sínum og kenndum
orð þannig að þau endurveki þær
í hugum lesenda. Slíkar hugleiðing-
ar eru einn meginþráðurinn í nýút-
kominni bók Gylfa Gröndal, Undir
hælinn lagt. í henni er að finna Ijóð
og þýðingar sem skáldið hefur unn-
ið að síðastliðinn áratug.
Vandinn að yrkja er oft túlkaður
myndrænt: „Langsóttur ertu / orða-
staður fyrirheits / á fannbörðum
tindum“, segir í kvæðinu Orðastað-
ur. Skáldið ræðir um „öræfi skáld-
skapar“ og veltir fyrir sér hvort
„elja og hugljómun" komist þangað
alla leið „að landnámi kvæðis“.
í þessari skáldlegu langferð
glímir skáldið við það að fanga
andartökin og kenndir þeirra og
fínna þeim orð. Glíma skáldsins við
andartökin og forgengileikann er
metnaðarfull og engin ódýr brögð
leyfileg því „að síðustu fellur
gríman / og efinn eftir lifir // and-
lit moldar og manns.“ Ljóðmyndin
í kvæðinu Þijóska er gott dæmi um
vel heppnaða útfærslu á kunnug-
legri andartaksmynd:
Eitt laufblað
frá liðnu sumri
þijóskast við að falla
og þoldi svipuhögg
FileMaker námskeið
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuraðgjöf • námskeið • útgáfa
Grensásvegi 16 • © 568 80 90
haustrigninga
dag eftir dag
nú finn ég það
hjá frostrósum
á framrúðu bílsins
skef það burt
og skelf eins og hrísla
í morgunsári.
Styrkur kvæðisins
byggist á nærfærinni
samsvörun milli lauf-
blaðsins og lífs ljóðsegj-
anda og ekki einungis
þijósku laufblaðsins við
að falla heldur ekki síð-
ur að ljóðsegjandinn skuli látinn
samsvara laufblaðinu með því að
skjálfa eins og hrísla í köldu morg-
unsárinu frammi fyrir miskunnar-
lausri verðandinni um leið og hann
sópar því burtu. Þrátt fyrir einfald-
leikann á yfirborðinu er kvæðið
völundarsmíð sem byggir á við-
kvæmu jafnvægi. Þannig yrkja að-
eins kröfuhörð skáld.
Náttúran er Gylfa hugstætt yrk-
isefni. En hann nálgast hana á sín-
um forsendum, eiginlega innan frá
því að hann leitast meðvitað við að
finna samnefnara náttúru og eigin
kennda. Oft tekst þetta bærilega,
t. a. m. í kvæðunum Hugarheimur
og Hraun. En glíman við orðin veld-
ur því þó í stöku kvæði að mér finnst
eins og skáldið reki af leið, einkum
þegar orðaleikir taka völdin, t. d. í
kvæðinu Máidagar.
Skáldskapur er líka meira en elja.
Ljóð Gylfa eru þegar best lætur á
sinn hátt hugljómun eða hugsýn og
bestu kvæði hans eru einfaldar og
glæsilegar ljóðmyndir sem vekja
hughrif. Þannig er kvæðið Kyrra:
Skjóttur hestur
í klakastakki
staðnæmist á vetrargöngu
stendur kyrr
óralengi
með augu dimm af þunglyndi
Gylfi Gröndal
jarðbönn
og harðfenni
nú fnæsir hann
og gufuslæður liðast upp
í himinbláma.
Þýðingar eru all-
nokkrar í bók Gylfa,
m. a. á ljóðum eftir
Octavio Paz, Önnu
Akhmotovu og Bo
Setterlind auk jap-
anskra höfunda.
Myndbygging þýddu
ljóðanna er með þeim
hætti að formbygging-
in mótast af mynd-
rænni tjáningu og
formið tekur mið af henni. Oftast
fer þetta vel enda er Gylfa eðlilegt
að yrkja þannig og svo er raunar
um flesta þá höfunda sem hann
glímir við. Þijár hækur þýðir Gylfi
þó einnig út frá þessu sjónarmiði
en sá háttur er sennilega einhver
formbundnasti háttur í heimi og
aðferðin því umdeilanleg. Hinu er
þó ekki að neita að skírskotanir
forms og orða hækunnar eru svo
háðar japönskum menningarheimi
að óviðráðanlegt er að koma form-
skynjun hennar til skila á íslensku.
Af þeim sökum tel ég leið Gylfa
vera vel við hæfí. Alltént standa
hækurnar í þýðingu hans vel fyrir
sínu sem sjálfstæðar ljóðmyndir.
Kvæðin falla einnig vel að heiidar-
mynd Ijóðabókarinnar eins og
kvæðið Þar til eftir Tanígúsí Búson:
Á turnklukku
fiðrildi
sest hefur
og sefur
þar til hún slær.
Undir hælinn lagt er vönduð og
heilsteypt ljóðabók. Þótt átökin við
orðin geri fá ein ljóð óaðgengileg
eru mörg kvæðin metnaðarfull, sum
hver glæsileg og þegar best lætur
ort af elju og hugljómun.
Skafti Þ. Halldórsson
Nýjar bækur
• JÓI Jóns, Kiddý Munda og
dularfullu skuggaverurnar er
eftir Kristján Jónsson.
Helstu persónur þessarar
spennusögu eru á
aldrinum 12-18
ára auk Tóta
svarta, Gumma
svakalega, Guð-
mundar læknis og
séra Sturlaugs.
Hér glíma þau Jói
Jóns, Pétur, Kiddý
Munda o.fl. við
nýtt ævintýri.
Kobbi, sonur lögg-
unnar Tóta svarta, breytir leyni-
merkjum skátanna svo ungskát-
arnir lenda í óhugnanlegri lífs-
reynslu í gömlu verksmiðjunni. En
hver hótaði að sprengja verksmiðj-
una og börnin í loft upp?
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 134 bls. með teikningum eftir
Bjarna Jónsson. Verð 1.480 kr.
• ÆVINTÝRI í sveitinnier eft-
ir Jónas Baldursson.
Bókin segir frá Alla, 10 ára
dreng, sem sendur er í sveit til
ókunnugra og
hvemig hann tekst
á við það líf sem
bíður hans í fram-
andi umhverfi.
Hann lendir í ýms-
um ævintýrum og
óhöppum en allt
fer vel að lokum.
Útgefandi er höf-
undur. Teikningar
eru eftir Guðnýju
Svövu Guðjónsdóttur. Prentsmiðj-
an Prentmet ehf. prentaði og um
bókband sá Bókavirkið hf. Verð
1.980 kr.
• VAKNAÐ U kona! er ný bók
eftir Herdísi Helgadóttur.
í bókinni rekur höfundur til-
drögin að stofnun
Rauðsokkuhreyf-
ingarinnar á ís-
landi og helstu
baráttumál, út frá
sjónarmiði og með
orðum stofnend-
anna.
Herdís Helga-
dóttir fæddist í
Reykjavík árið
1929. Hún lauk
verslunarprófi árið 1948 og B.A.
prófi í mannfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1994. Bókin Vaknaðu
kona! er endurbætt úgáfa af loka-
ritgerð Herdísar við Háskóla ís-
lands.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin
er 83 bls. Verð 1.380 kr.
• KOMIN er út ný myndabók
fyrir börn sem nefnist Skórnirí
glugganum - gleðilegjólasaga.
Höfundurinn heitir Lisa Streeter
Wenner og býr í Keflavík en Vil-
borg Dagbjartsdóttir íslenskaði
söguna. Litmyndir vann Maribel
Gonzalez Sigurjóns sem er af ís-
lenskum ættum og býr á Reyðar-
firði.
Sagan fjallar um það þegar ís-
lensku jólasveinarnir hittu sankti
Kláus í fyrsta sinn og lærðu af
honum nýja siði. Þeir halda þó enn
sínum íslensku sérkennum eins og
endurspeglast í sögunni.
Útgefandi erMál ogmenning.
Bókin er 24 bls. og kemur einnig
út á ensku (Shoes in the Windows
- A Very Merry Christmas Tale).
Hún var prentuð í Danmörku og
kostar 1.290 kr.
• FYRSTUjóIin heitir ný bók
fyrir yngstu börnin. Hér er lýst
atburðum jólanæturinnar og sagan
er skreytt myndum Önnu Cynthiu
Leplar sem vann þær fyrir breskt
útgáfufyrirtæki.
Útgefandi er Mál og menning.
Georgie Adams endursegir jóla-
guðspjallið en sr. Kristján Valur
Ingólfsson íslenskaði. Bókin kemur
samtímis út á íslandi ogBret-
landi. Hún er20bls. ogkostar
1.290 kr.