Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 25
Andblær
liðinna daga
BOKMENNTIR
Skáldsaga
ENÞAÐEREKKI
ÓKEYPIS
eftir Þorstein Stefánsson. 123 bls.
Birgitte Hövrings Biblioteksforlag.
1996.
HÚN VAR »í nýju kápunni sinni
og með nýjan snotran hatt, ekki mjög
há vexti, með stutt fallega lagað nef,
dökkt hár og fíngerða andlitsdrætti
— og hjartað barðist ákaft í bijósti
hennar«. Þannig var hin ósvikna dama
fyrir daga styijalda, upp-
lausnar og vandamála.
Og herrann: »Hann virt-
ist ennþá hærri, axla-
breiðari og karlmann-
legri en hann hafði verið,
og í ljósbláum sumarföt-
um af nýjustu gerð.«
Svona lýsir Þorsteinn
Stefánsson söguhetjum
sínum. Við skulum ekki
leggja á stíl hans og
mannlýsingar sama
kvarða og lagður er á
sams konar lýsingar nú
á dögum. Þorsteinn var
mótaður af geróiíku um-
hverfí og annars konar
tíðaranda. Ungur hvarf
hann til Danmerkur þar sem íslenskir
höfundar höfðu með skjótum hætti
áunnið sér nafn og frama. Hann vann
snemma til mikilsháttar verðlauna.
En hann reyndist vera of seint á ferð.
Sá tími var liðinn að feta mætti í
spor Gunnars Gunnarssonar og ann-
arra slíkra. Stríðið batt enda á svo
margt. Þegar heimstyijöldinni lauk
var allt »orðið breytt, og þó einkan-
lega sálarlíf manna,« eins og komist
er að orði í sögunni. Hlé urðu á rit-
störfum Þorsteins. Þegar hann komst
á skrið að nýju, seint og um síðir,
hafði hvaðeina umtumast nema hann
sjálfur. Þær staðreyndir verður að
hafa í huga ef meta skal sögu þessa
með sanngimi. Hún segir frá ungu
fólki sem heldur til Danmerkur fyrir
stríð til að menntast og forframast;
kynnum þess af ólíku umhverfí, sam-
skiptaháttum og hugsunarhætti. Sýnt
er að höfundurinn hefur eigin reynslu
í huga. Persónur hans trúa á fomar
dygðir en komast fljótt að raun um
að lífíð verður ekki tekið út með
sældinni þar fremur en hér. En bjart-
sýnin fleytir söguhetjum hans yfir
hindranimar. Syrti að er þess sjaldan
langt að bíða að birti á ný. Síðari
hluti sögunnar gerist í stríðinu og
eftir stríð. Þar með verður þráðurinn
slitróttari. Það er eins og upphaflegt
markmið sögunnar renni út í sandinn;
höfundurinn nái ekki átt-
um í nýjum heimi. Bréf,
skrifuð á dönsku, mörg
og sum hver löng, eiga
tæpast heima í íslenskum
texta svo dæmi sé tekið.
Þorsteinn Stefánsson
hefur skrifað á þrem
tungumálum: dönsku, ís-
lensku og ensku. Mörg-
um reynist fullerfitt að
ná tökum á eigin móður-
máli, hvað þá meir. Sögu-
tæknin og stíllinn ber
þess líka augljós merki
að höfundurinn hefur lif-
að og starfað fjarri ís-
lensku mannlífí og menn-
ingarumhverfi. Að lofa
það eða lasta er tæpast við hæfí frem-
ur en annað sem liðið er. Var það
ekki Taine sem sagði bókmenntimar
mótuðust af kynslóð, umhverfi og
tíma ? Með breyttu orðalagi kalla
menn það stundum að skrifa rétta
bók á réttum tíma. Með þau orð að
viðmiði má ætla að Þorsteinn Stefáns-
son hefði getað náð lengra í list sinni
og hlotið almennari viðurkenning ef
hann hefði haft það allt með sér en
ekki á móti. Tíminn hljóp frá honum;
og kynslóð sú, sem hann segir frá,
er einnig horfín af sjónarsviðinu og
með henni aldarandi sá sem svo ein-
dregið markar svipmót þessarar bók-
ar.
Erlendur Jónsson
Þorsteinn
Stefánsson
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
LJÓÐIN voru lesin og túlkuð á leikrænan hátt.
Nýjar bækur
Hundrað ára
Bókmennta-
kvöld með
einbúi
ÞÓRÐUR í Haga -
hundrað ára einbúi.
Frásagnir af Þórði Run-
ólfssyni, bónda í Haga
í Skorradal, er komin út.
Óskar Þórðarson frá
Haga hefur skráð minn-
ingar föður síns. Þórður
segir frá erfíðum bú-
skap í Haga þegar hann
kom þar á óræktaða
jörð með litlu húsnæði.
Lýst er baráttu við óblíð
náttúruöfl á ferðalögum
og í smalamennsku,
björgun úr lífsháska í
Skorradalsvatni og hús-
bruna á Haga en þaðan
bjargaðist hanri á lítt
skiljanlegan hátt. Þá er
í bókinni sérstakur kafli um Halldóru
Guðlaugu Guðjónsdótt-
ur, eiginkonu hans.
Samtíðarmenn segja
frá kynnum sínum af
Þórði.
„Saga Þórðar í Haga
lýsir lífi og störfum
bóndans sem lét ekki
baslið buga sig en hélt
ótrauður áfram að
rækta jörð sína þótt oft
væri á brattann að
sækja,“ segir í kynn-
ingu.
Utgefandi er Hörpu-
útgáfan. Bókin er 158
bls. Fjöldi ljósmynda af
lífi og störfum bóndans
prýðir bókina. Mynd á
forsíðu: Árni Sæberg.
Prentvinnsla Oddi hf.
Þórður
Runólfsson
Þórarni
Eldjárn
Selfossi. Morgunblaðið.
NEMENDUR í 5. bekk Sandvíkur-
skóla héldu nýlega bókmennta-
kvöld tileinkað Þórarni Eldjárn.
Nemendurnir höfðu unnið með
verk Þórarins í þrjár vikur, lært
\jóð hans, skrifað þau upp og
myndskreytt. Bókmenntakvöldið
var lokahnykkurinn á verkefninu
og til þess boðið foreldrum sem
fjölmenntu og fylltu samkomusal
skólans.
Þórarinn var viðstaddur og tók
þátt í dagskránni með því að lesa
upp nokkur ljóða sinna og nem-
endur lásu upp nokkur Ijóð og
túlkuðu þau á leikrænan hátt.
Síðast lásu þeir upp eigin ljóð.
Safnar blaðburðarkerra
eða blaðburðarpoki ryki í geymslunni þinni ?
Þeir blaðberar, fyrrverandi og núverandi, sem eru með blaðburðarkerrur
og/eða -poka en þuría ekki á að halda við blaðburð, vinsamlegast hafi samband
við áskriftardeild í síma 569 1122.
Við sækjum kerruna og/eða pokann til þín.