Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 32

Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Erlend fjárfesting, allra hagiu’ FYRR á þessu ári var lögum um erlenda fjár- festingu breytt nokkuð. Annars vegar var verið að laga reglur að ákvæð- um samningsins um EES og hins vegar var heimiluð takmörkuð, ~obein, erlend eignaraðild í sjávarútvegi, fiskveið- um og fískvinnslu. Með því að opna á óbeina eignaraðild í sjávarút- vegi var í raun tekin ákvörðun um það að því fortakslausa banni sem þágildandi lög gerðu ráð fyrir yrði ekki fylgt eft- ir, heldur yrði löggjöfín aðlöguð þeim veruleika að erlend fyrirtæki eiga og hafa átt óbeinan hlut í ýmsum íslenskum sjávarút- vegsfyrirtækjum. Það var viður- kennt við umfjöllun málsins á Al- þingi að fortakslaust bann myndi íeiða til þess að fyrirtækjum í sjáv- arútvegi yrði áfram gert erfiðara fyrir að afla sér eigin ijár en öðrum fyrirtækjum í landinu. Þó óbein fjár- festing á móti möguleikum til beinnar mismuni líka varð ekki lengra komist þá nema að eftir nokkurn þrýsting var gamalli flokk- un Hagstofunnar um hvað væri sjávarútvegur og hvað iðnaður að- eins hnikað og þar með hvaða grein- ar fiskiðnaðar væru háðar sérstök- um takmörkunum á fjárfestingu erlendra aðila. Jafnaðarmenn hafa nú lagt fram frumvarp sem gerir ráð fyrir því að um allan fiskiðnað gildi sömu reglur og almennt um annan iðnað hvað varðar íjárfestingar erlendra aðila og fyrirtækjum sé ekki mis- munað eftir geymslu eða vinnsluað- ferðum. Ekki er gert ráð fyrir breyt- ingum á gildandi lögum um útgerð- arþáttinn. Fjölmörg rök fyrir breytingu Með því að heimila einungis óbeina eignaraðild í fiskiðnaði voru engir nýir möguleikar opnaðir. Með heimild til beinna fjárfestinga er- lendra aðila í íslenskum fiskiðnaði, ,eins og í öðrum matvælaiðnaði, " geta skapast ýmsir nýir möguleikar og sóknarfæri fyrir fiskvinnsluna. Þekking erlendra aðila á Islandi er lítil, hvort sem um er að ræða aðila í matvælaframleiðslu eða fjárfesta, en mestar líkur á að þekking þeirra tengist sjávarútvegi í einhverri mynd. Heimild til beinnar þátttöku í fiskiðnaði gæti því laðað að aðila sem síðar, eða jafnframt, vildu ger- ast þátttakendur í öðrum sviðum matvælaiðnaðar. Fjölmörg veiga- mikil rök eru fyrir því að gera þessa breytmgu á lögunum. 1. Óeðlilegt er að mismuna fyrir- tækjum í matvælaiðnaði eftir því í hvaða grein þau eru og fráleitt að ^mismuna fiskvinnslu eftir því hvaða geymsluaðferðum er beitt við með- höndlun hráefnis. 2. Mörg dæmi eru um fjárfesting- /Q) SILFURBÚÐIN Vxy Kringlunni ö-12 • Sími 568 9066 - Þar færöu gjöfina - ar erlendra aðila í íslenskum atvinnu- rekstri og slík eignaraðild hefur orðið íslensku at- vinnulífi til styrktar. 3. Það hefur lengi verið stefna stjóm- valda að fá erlenda aðila til að fjárfesta meira í íslensku at- vinnulífi. Það hefur helst gengið í stór- iðju hingað til en hættulega lítið verið um fjárfestingar í öðrum greinum. Jafnframt má ætla að ný sóknarfæri kynnu að skapast fyrir aðra mat- vælaiðju þar sem mjög er nú sóst eftir samstarfi við erlend fyrirtæki. 4. Eignatengsl íslendinga og út- lendinga í fiskvinnslufyrirtækjum geta örvað markaðsstarf og leitt til nýsköpunar, einnig í öðrum mat- vælaiðnaði. 5. Fiskiðnaðurinn gæti sótt sér áhættufé og yrði þá ekki eins háður erlendu lánsfé. Jafnaðarmenn leggja til, segir Svanfríður Jónasdóttir, að um allan fiskiðnað gildi sömu reglur og almennt um annan iðnað hvað varðar fjárfestingu er- lendra aðila. 6. Samstarf við erlenda aðila með þátttöku þeirra í uppbyggingu fyrir- tækja á íslandi færi fram fyrir opn- um tjöldum og samkvæmt eðlileg- um leikreglum. 7. íslendingar hafa ijárfest mikið í sjávarútvegi erlendis. Sú þróun er sterk að fyrirtæki verði til þvert á landamæri ef atvinnurekstur og þjóðfélag hefur hag af. 8. Heimild til beinna fjárfestinga og þátttöku í fiskiðnaði getur verið lykill að frekari fjárfestingum í öðr- um greinum. Þá geta orðið til hlið- arfyrirtæki vegna nýrra umsvifa. 9. Lagabreyting sem þessi mundi styrkja samkeppnisstöðu íslands. Valkostur ef vilji er til samstarfs Ekki er um það að ræða að vér- ið sé að skylda aðila til að aðskilja veiðar og vinnslu þar sem óbreytt lög mundu gilda um útgerðarþátt- inn. Eingöngu er verið að bjóða upp á það sem valkost að ef fyrirtækin vilja efna til samstarfs við erlenda aðila um fiskvinnslu þá sé það heim- ilt og að ekki þurfi að efna til slíks samstarfs eftir krókaleiðum svo sem dæmi eru um. Þau fyrirtæki sem einnig eru í útgerð mundu þá stofna sérstakt fyrirtæki um þann vinnsluþátt sem þau hyggjast efna til samstarfs um. Við höfum á und- anförnum árum afnumið sérstakar hömlur fýrir erlenda fjárfesta hér- lendis á flestum sviðum. Afnám sérstakra takmarkana í fiskvinnslu er eðlilegt framhald þeirrar stefnu. Erlendir aðilar geta t.d. keypt físk á innlendum mörkuðum en mega ekki taka þátt í vinnslu hans nema að mjög takmörkuðu leyti. Breyting í þá veru að heimilt yrði að ijár- festa beint í fiskvinnslu þýddi því ekki útflutning hráefnis miðað við reynslu okkar heldur gæti sú skipan mála eflt frekari vinnslu hérlendis. Ekki trúi ég menn slái hendinni á móti slíku. í núgildandi lögum er eftirtalin vinnsla á físki þegar undanþegin sérstökum takmörkunum: reyking, súrsun, niðursuða, niðurlagning og umpökkun afurða í neytendaum- búðir. Ef frumvarp þetta yrði að lögum yrði jafnframt heimilt að erlendir aðilar fjárfestu í fyrirtækj- um sem væru með frystingu, sölt- un, herðingu, -bræðslu og mjöl- vinnslu. Þar sem sumar vinnsluaðferðir eru nú þegar undanþegnar lögunum um fjárfestingu erlendra aðila en í öðrum má eignaraðild einungis vera óbein verður framkvæmd laganna bæði flókin og erfið. Aðilar beina jafnvel samstarfinu í allt annan farveg en æskilegt væri. Fjárfesting finnur sér farveg Frá því hefur verið greint í fjöl- miðlum að fjárfestingar erlendra aðila í fiskvinnslu hafi fundið sér aðra farvegi en þá sem lögin bein- línis gera ráð fyrir og aðra en kaup á hlutafé t.d. Þannig munu dæmi þess að erlendir aðilar láni fé til kaupa á fiskvinnsluhúsi og eigi jafn- framt vélar og tæki. Reksturinn sé að vísu í nafni íslensks aðila en erlendi aðilinn ráði alfarið fram- leiðslu og sölu afurðanna enda til samstarfsins stofnað til að fram- leiða tiltekna vöru á tiltekinn mark- að. Ekkert í þessu er beinlínis ólög- legt en hlýtur að verða til þess að við veltum fyrir okkur til hvers ver- ið er að takamarka ijárfestingar í fiskvinnslu þegar ekkert stöðvar þá sem til slíks samstarfs vilja stofna. Við sjáum af reynslunni að fjárfest- ing erlendra aðila fínnur sér farveg ef annar grundvöllur er fyrir sam- starfinu. Erlend fjárfesting í stóriðju landsbyggðarinnar Nú um stundir er lögð mikil áhersia á það af hálfu stjórnvalda, að þeir landshlutar þar sem engin uppbygging erlendrar stóriðju er fyrirhuguð verði skilgreindir sem matvælaiðjusvæði, að þar verði matvælaiðja stóriðja og hefur það verið lausnarorð iðnaðarráðherra bæði fyrir norðan og austan þar sem heimamenn hafa gengið eftir stefnu stjórnvalda varðandi erlenda stór- iðjufjárfestingu. Það getur sannan- lega verið erfitt fyrir þá sem eru að vinna að aukinni ijárfestinu er- lendra aðila í okkar matvælaiðnaði að geta ekki kynnt hugsanlegum áhugaaðilum annað en gildandi lög- gjöf sem eins og áður sagði er flók- in og nánast óskiljanleg og þjónar fráleitt orðið öðrum tilgangi en að tefja fyrir því að erlent fjármagn komi sem eðlilegt hlutafé í þá stór- iðju sem matvælaiðjan er víða um land, einkum og sér í lagi fiskiðnað- urinn. Það má því segja að heimild til erlendrar fjárfestingar í fiskiðnaði bæti ekki aðeins samkeppnisstöðu íslands heldur sér í lagi landsbyggð- arinnar. Höfundur er þingmaður. Svanfríður Jónasdóttir Seint ætluin við að læra ÍSLAND verður seint talið meðal fremstu við- skiptaþjóða heims og er ein ástæða þess rangar ákvarðanir stjórnvalda undanfarna áratugi. Þetta sannast aftur og aftur og svo virðist vera sem að við viljum hafa öll eggin í sömu körf- unni. Eitt nýjasta dæmið um þetta er neitun ís- lenskra stjórnvalda varðandi umsókn er- lendra samtaka um að fá að flytja íslenskan hval aftur á sínar heimaslóðir. Umræddur hvalur ber nafnið Ketill (Keiko) og hefur síðastliðin 14 ár dvalið í sjáv- ardýragörðum erlendis, lengst í Mex- íkó en nú síðast í Kanada. Hvalur þessi hefur meðal annars leikið í tveimur myndum og hefur vegna þess öðlast nokkra frægð. Þess má geta að um 24 milljónir Bandaríkja- manna og um 6 milljónir Evrópubúa sáu myndirnar. Frægð hans er slík að í janúar síðastliðnum þegar hvalurinn var fluttur frá Mexíkó til Newport í Kanada iylgdust um 65 sjónvarps- stöðvar með flutningnum og mátti meðal annars sjá beinar útsendingar á sjónvarpsstöðinni CNN. Þar sáu nokkrir tugir milljóna manna dýrið í fyrsta sinn og skepnan var orðin markaðsvara á heimsmælikvarða. Má þar nefna að á síðastliðnu sumri komu um 150.000 ferðamenn í sjáv- ardýrasafnið gagngert til að sjá dýrið. Eins og fyrr segir hafa stjórnvöld neitað samtökunum um að gefa vil- yrði fyrir komu hvaisins og bera við að þau efist um getu hans til að lifa í náttúrulegu umhverfi jafnframt því að hugsanleg smithætta geti stafað af honum. Eða eins og Guðmundur Bjarnason umhverfísmálaráðherra orðaði það í svari til samtakanna dagsettu 28. maí síðastliðinn: „Eng- inn veit hvort hann er fær um að lifa sjálfstætt. Endurkoma Keiko við íslandsstrendur er of mikil áhætta gagnvart hans velferð og litið gæti verið á það sem grimmd gegn dýrum. Þetta er aðalástæðan fyrir andstöðu íslands við endurkomu Keiko. Sú hugsanlega sýking se_m stafað getur háhyrningum við Islandsstrendur hefur einnig komið til tals...“ Þessi skyndileg umhyggja stjórnvalda fyrir velferð hvala er athyglisverð en ekki verður lagður dómur á hana hér. Ljóst er að ef dýrið kæmi hingað til lands myndi sú umfjöllun og aug- lýsing fyrir land og þjóð vera ómetan- ieg og verða lyftistöng fyrir ferða- þjónustu og þá sérstaklega hvala- skoðunarferðir um ókomin ár. Hér þarf ekki að fínna upp vöruna, gera markaðsrannsóknir, leggja í auglýs- ingakostnað eða fara út í nokkurra ára taprekstur - sú markaðsumgjörð sem byggst hefur í kringum hvalinn sér um þetta allt. Eru íslendingar haldnir viðskiptablindu? Vinsældir hvalaskoðunarferða eru staðreynd sem þjóðir sem áður fyrr stunduðu veiðar hafa uppgötvað. Þessu til stuðnings má minna á Nýsjálendinga, en þeir hafa nú þeg- ar mun meiri tekjur af hvalaskoðun- arferðum en þeir höfðu nokkurn tíma af hvalveiðum. Sú ákvörðun Guðmundar Bjarna- sonar fyrir hönd okkar íslendinga að leyfa ekki dýrinu að koma hingað til lands má hugsanlega meta til fjár. Á síðastliðnu sumri fóru um 9.000 manns í hvalaskoðunarferðir og var þetta sá geiri í íslenskri ferðaþjón- ustu sem óx hvað mest. Ef þetta fólk hefði eingöngu komið hingað til lands hvalanna vegna hefðu tekj- unar numið um 800 milljónum króna og er þá miðað við um 90.000 kr. meðalkostnað á einstakling. Þar af næmu tekjur af flugfargjöldum um 250 milljónum fyrir utan margföldunaráhrifin og störfin sem skapast. Ef fyrrnefndur hval- ur yrði fluttur að ströndum íslands er ljóst að augu alheims- ins myndu hvíla á hon- um um nokkurt skeið. Ef það sama gerðist hér og í Kanada mætti varlega áætla að a.m.k. 4-5.000 manps kæmu gagngert til íslands til þess að sjá Ketil eða hans ættingja. Þeir bjartsýnustu áætla þó nær 15 til 20 þúsund. Af þessu má því ljóst vera að ákvörðun Guðmund- ar Bjarnasonar hefur hugsanlega kostað okkur íslendinga um 350 til 450 milljónir og er þá miðað við 4-5 þúsund manns! Þessar tekjur gætu Hugsanlega er ekki orð- ið of seint, segir Hugi Hreiðarsson, að bjóða dýrið velkomið. hugsanlega farið annað, því þó hval- urinn komi frá ströndum íslands hafa önnur svæði verið nefnd eins og t.d. írlandsstrendur. Gagnrýnisraddir Þeir eru margir sem telja að hing- að eigi hvalurinn Ketill aldrei að koma. Hann beri með sér smit, hann hjálpi einungis öðrum hvölum að rífa net sjómanna og sé í samkeppni um fæðu við þorskinn. I þessu sambandi má benda á að harla ólíklegt er að nútíma læknavísindi geti ekki úr- skurðað um það hvort dýrið sé í raun smitað af einhveiju sem alvar- lega getur skaðað sjávarflóru ís- lands. Ef svo væri á hann skilyrðis- laust að vera kyrr þar sem hann er, annars ekki. Hvað varðar þær neta- skemmdir sem urðu vegna hvala fyrir nokkrum árum þá eru þær smámunir miðað við þær tekjur sem þessi dýr gætu skapað. Gerist slíkt í framtíðinni má vafalaust finna lausn á því með skattlagningu af hveijum haus sem kemur til að skoða hvali. Hvað varðar samkeppni um fæðu þarf fyrst að lagfæra nokkur atriði áður en við hefjum hvalveiðar. í fyrsta lagi að hver einasti fiskur sem veiddur er komi að landi, að tryggt sé að fjöldi fískiskipa sé tak- markaður við sem mesta framlegð, að komið sé í veg fyrir kvótasvindl og að héðan sé ekki seldur út algjör- lega óunninn fiskur. Þegar þessi atriði hafa verið lagfærð getum við farið að skoða áhrif hvala á fiski- stofna. Nýleg skýrsla Hafrann- sóknastofnunar sýnir að flestir fiski- stofnar hér við land eru að styrkjast þó svo að sjö ár séu síðan hætt var að veiða hval. Hvalinn heim Hugsanlega er enn ekki of seint að bjóða dýrið velkomið. Hins vegar þurfa stjórnvöld nú þegar að fara að viðurkenna að hvalveiðar eru tímaskekkja sem ísland á aldrei að hefja aftur. Við verðum að ákveða hvort við ætlum að sitja við sama borð og Bretland og aðrar þjóðir sem ekki leyfa hvalveiðar eða þá einangr- ast og eiga á hættu að bijóta öll eggin í körfunni vegna þröngsýni gamaldags hugsunarháttar. Fram- tíðin liggur í nýjum tækifærum sem við verðum að nýta okkur þegar þau bjóðast og víst er að tækifærið að fá hvalinn að ströndum íslands kem- ur ekki aftur. Höfundur er nemandi í útflutningsmarkaðsfræði í Tækniskóla íslands. Hugi Hreiðarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.