Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 35

Morgunblaðið - 20.11.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 35 um sið þó maður sæi honum aldrei bregða fyrir. Sennilega gerði ég það af því að Helgi bróðir minn hafði um tíma fengið aðstoð Guðmundar í stærðfræði þarna handan glersins, og hafði Guðmundur í þeim kennslu- stundum algjörlega unnið hug hans og hjarta. „Eg held hann hafi verið fyrsti maður sem tók mig alvarlega - hann hafði ég gott af að þekkja,“ voru orð Helga þegar hann frétti lát hans. Það lýsir Guðmundi þó nokkuð að hann tók iðulega nemanda sinn með sér í bíó þegar kennslustund lauk. Síðustu árin sín í Kaupmanna- höfn kenndi Guðmundur við menntaskóla sem hét „Johannes- skolen" og heitir kannski ennþá. Guðmundur hafði eins og margir orðið innlyksa í stríðinu og þurfti þess vegna að vinna fyrir sér og sinni fjölskyidu í hertekna landinu. Síðar, löngu eftir tíð Guðmundar, varð ég nemandi við þennan sama skóla fyrir tilstilli móður minnar sem var minnug þess að Guðmundur hafði starfað þar. Sá ágæti skóli var til húsa í gamalli byggingu í úrsérgrónum garði við Vodroffsvej, þar sem tónskáldið Carl Nielsen og kona hans myndhöggvarinn Anne Marie Carl-Nielsen höfðu átt heima. Stúdíó þessarar einstöku spor- göngukonu var eðlis- og náttúru- fræðistofa skólans og glöggt mátti fínna hvernig sköpunarkraftur hjón- anna bjó enn í veggjum þessa krók- ótta húss. Ég verð Guðmundi ævin- lega þakklát fyrir óafvitandi að hafa ieitt mig inn á þann sögufræga stað. En örlögin höguðu því svo að ekki varð ég stúdent úr þeim skóla, heldur frá öldungadeild Menntaskól- ans við Hamrahlíð í öðrum eða þriðja hópnum sem Guðmundur útskrifaði þaðan. Þá varð mér á að kyssa Guðmund á kinnina í fyrsta og ein- asta sinn, því enda þótt ég hefði þekkt hann lengi og hann væri hlýr og elskulegur maður þá lét hann engan flaðra upp um sig að óþörfu. Þarna kom Guðmundur því aftur við sögu í lífi mínu, og sú snjaila hugmynd hans að koma til móts við þann stóra skara fróðleiksfúsra manna sem þráðu að auðga sálu sína á fullorðinsárunum, er eitt af því sem aldrei gleymist. Mér er minnisstætt þegar við hjónin, Jón maður minn og ég, vor- um matargestir þeirra Öldu Snæ- hólm og Guðmundar á heimili þeirra á Hagamelnum. En Guðmundur hafði leitað til Jóns í sambandi við aðra bráðsnjalla hugmynd - stofnun tónlistarbrautar við Menntaskólann við Hamrahlíð, og þannig kynntust þeir allvel. Þá hafði Alda búið mörg ár í latnesku Ameríku með. manni sínum Hermanni Einarssyni, fiski- fræðingi, sem líka var einn af þeim sem sat fastur í Höfn á stríðsárun- um, en hann lést á besta aldri. Það var löngu áður en mexíkósku bylgj- unni í matargerð hafði skolað á land við strendur Reykjavíkur. Minnumst við Jón oft þessa kvölds fyrir þann ljúfa blæ sem lék um þau bæði tvö og eins fyrir þá framandi matarlist sem húsmóðirin töfraði fram. Þegar ég geng út úr kennslustofu minni, stofu 38 í Menntaskólanum við Hamrahlíð, liggur leið mín fram hjá Guðmundi Arnlaugssyni - og fer vel á því. Reyndar er það mál- verk af Guðmundi sem skólinn á og sem hangir þar yfir tröppunum. Mig grunar að ég eigi oft eftir að renna augunum í átt til myndarinn- ar á sama hátt og ég gerði hér forð- um upp í glugga hans í Kaupmanna- höfn. Kannski til að kanna hvort myndin sé ekki gul eins og sólin sem í huga mér umleikur persónu Guð- mundar - kannski til að sjá hvort hún sé nú ekki líka dálítið blá eins ég man augu hins unga manns. Vertu kært kvaddur af okkur hjónum og af Helga bróður mínum í Kaupmannahöfn. Solveig Jónsdóttir. + Gunnar Sverrir Sveinsson fædd- ist í Birgisvík á Ströndum 26. apríl 1924. Hann andaðist á Landspítalanum 12. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Hallfríð- ur Jóhannsdóttir, Hveravík á Strönd- um, f. 10.9. 1903, d. í Hafnarfirði 11.10. 1988, og Sveinn Guðmundsson bóndi, f. 17.1. 1897 í Birgisvík, d. í Keflavík 15.12. 1969. Systir Sverris er Sóley Svanfríður, f. 18. mars 1927. Sverrir gekk að eiga Huldu Hannesdóttur, f. í Hnífsdal 28. júni 1929, d. í Reykjavík 8. ág- úst 1970. Börn þeirra eru: 1) Gunnar, f. 19. sept. 1950. Kona hans er Sigrún Sigtryggsdóttir Gunnar Sverrir Sveinsson eða Sverrir eins og hann var alltaf kall- aður lést á Landspítalanum eftir skamma legu, en hann hafði dvalið á heilsuhælinu í Hveragerði í um mánaðartíma. Sverrir hafði farið í hjartaaðgerð til Englands fýrir tólf árum og bar þess merki alla tíð síð- an en fékk svo beinkrabbamein sem dró hann til dauða. Sverrir var af- skaplega lífsglaður maður og sá spaugilegu hliðamar á mörgum hlut- um. Eg kynntist honum fyrst þegar hann fluttist til Hafnaríjarðar haust- ið 1968, en þá unnum við saman í Straumsvík sonur hans, Gunnar, og og eiga þau þrjú börn, Huldu, Gunn- ar og Valgerði. 2) Valgarður Hannes, f. 26. des. 1952. 3) Sveinn, f. 2. sept. 1954. 4) Heiðar Rafn, f. 22. júlí 1958. Hann á eina dóttur, Anítu. 5) Davið Breiðfjörð, f. 31. júlí 1960. 6) Dísa Guðrún, f. 1. sept. 1961. Maður henn- ar er Jón Atli Ját- varðsson og börn þeirra eru Hulda Osp, Játvarður Jökull og Sig- mundur Már. 7) Bjöm Ingi Rún- ar, f. 6. ágúst 1967. Kona hans er Sigríður Magnúsdóttir og eiga þau eina dóttur, Isahellu. Utför Gunnars Sverris fer fram frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ég. Og upp frá því hófust þau kynni sem aldrei hefur borið skugga á. Síðsumars 1970 missti Sverrir Huldu konu sína úr krabbameini frá sjö börnum. Sverrir hélt þó bamahópn- um saman nema Bjöm Ingi Rúnar, sem þá var á þriðja ári, fór í fóstur til frændfólks síns, Jóns Gests og konu hans. Sverrir vann á nóttunni við beitingu og byijaði hann ávallt um miðnætti því hann þurfti að vera búinn þegar hinir beitingamennimir komu um kl. 5-6 á morgnana. Síðan fór hann heim til að gefa börnunum að borða og koma þeim í skólann klukkan átta. Þarna er Sverri rétt lýst, hann fómaði sér fyrir það dýrmætasta sem hann átti, einmitt börnin sín. Núna þegar hugurinn reikar aftur og minningarnar streyma fram í hugann finnst mér Sverrir nánast ódauðlegur maður, væl og vonleysi vissi hann ekki hvað var. Hans lífs- stíll var að vera bjartsýnn og leysa hlutina. Við Gunnar Sverrisson brölluðum ýmislegt saman, við fengum tiltal með áherslu og svo var það búið, því öllu gríni Sverris fylgdi einhver alvara líka. Ef Sverri iíkaði ekki það sem við vorum að gera fengum við að heyra það. Maður gat alltaf sagt Sverri hlutina, það kom honum ekk- ert á óvart. Sverrir starfaði í Skipasmíðastöð- inni Dröfn um tíma. Síðan gerði hann út sendibíl og því næst hóf hann störf hjá Blikksmiðju Hafnar- fjarðar, hjá Ágústi Einarssyni, og mikill vinskapur var þar á milli enda starfaði Sverrir hjá Gústa í blikkinu þar til hann lét af störfum. Sverrir hafði gaman af að gera við, breyta og bæta. Hann seldi íbúð sína á Hólabrautinni í Hafnarfirði og keypti hús í Smyrlahrauninu, sem var gamalt timburhús og vann hann við endurbætur á því. í Smyrlahrauninu skildi Sverrir eftir part af sálu sinni og kalla ég það Sverrishús í dag. Þar var alltaf gott að koma. Ég vil að lokum þakka Sverri Sveinssyni, blikksmið eins og fleist- ir muna hann, fyrir góð og ánægju- leg kynni. Ég og kona mín, Asta Sigtryggsdóttir, áttum með honum margar ánægjustundir í lífi okkar sem munu aldrei gleymast. Far þú í friði, kæri vinur, og hafðu þökk fyrir. Börnum þínum, barnabörnum og öðrum aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Magnús P. Sigurðsson. GUNNAR SVERRIR SVEINSSON Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR IIÍITEL LOFTLEIOIH t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, afi, tengdafaðir og bróðir, KRISTINN EYJÓLFSSON frá Hvammi í Landssveit, Drafnarsandi 5, Hellu, er lést á heimili sínu miðvikudaginn 13. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Skarðskirkju í Landssveit laugardag- inn 23. nóvember nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minn- ast hins látna, er bent á Kirkjugarðssjóð Skarðskirkju. Anna Magnúsdóttir, Lóa Rún Kristinsdóttir, Inga Jóna Kristinsdóttir, Þórður Þorgeirsson, Eyjólfur Kristinsson, Eyjólfur Ágústsson, Guðrún S. Kristinsdóttir, barnabörn, systkini og aðrir vandamenn. t Ástkær móðir mín og amma okkar, DANÍELÍNA SVEINBJÖRNSDÓTTIR (Li'na), verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. nóvember kl. 13.30. Hrafnhildur Ólafsdóttir, Ólafur Hand, Stephen Hand. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GESTUR I. JÓHANNESSON, Þórsgötu 4, Patreksfirði, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 23. nóv- ember kl. 14.00 Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓNA SIGRÚN SÍMONARDÓTTIR, Hrauntúni 61, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju laug- ardaginn 23. nóvember kl. 14.00 Eðvarð Þór Jónsson, Sfmon Þór Eðvarðsson, Elín Sigri'ður Björnsdóttir, Sigurjón Eðvarðsson, Elísa Kristmannsdóttir, Aron Máni Símonarson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐMUNDSSON matsveinn, Boðahlein 26, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar- kirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 15. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hrafnistu-heimilin. Anna Margrét Elíasdóttir, Ragnar S. Magnússon, Guðlaug P. Wium, Svanhvi't Magnúsdóttir, Kristján E. Halldórsson, Elín G. Magnúsdóttir, Ágúst Oddsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okk- ar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU ÞORKELSDÓTTUR, Hraunbæ 108, si'ðast til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík, Guð blessi ykkur öll. Reynir G. Karlsson, Svanfri'ður Mari'a Guðjónsdóttir, Þorbjörg Hilbertsdóttir, Sævar Hilbertsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum samúð og vinarhug við fráfall SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Akri í Vestmannaeyjum. Guðrún Theodóra Sigurðardóttir, Sigríður Steinunn Stephensen, Eiríkur Stephensen, Sigurður Sverrir Stephensen, Guðbjörg Beck, Eli'n Eyvindsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.