Morgunblaðið - 20.11.1996, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
r utA v
Síml
F 551 6500
Síllli
LAUGAVEG94
BALTASAR KORMAKUR • GÍSLI HALLDORSSON • SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR
SÝND í A-SAL KL. 5, 7, 9 og 11 í THX.
Vinsælustu sögur síöari tíma á
stórmynd eftir Friörik Þór Friðriksson
☆ ☆☆Vl S.V. Mbl
☆ ☆☆Vl H.K. DV
☆☆☆ó.H.T.M.2
☆☆☆ M.H. DagslJ6*
☆☆☆☆*.«. HP
☆☆☆ U.M. Dagur-Tfmlnn
a mt*
ATH!gegn
korta fá allir nemar miðann á
300 kr. á (tölsku verðlauna-
myndina Bleika húsið.
Sýnd kl. 7.
AMERIKA
COLD COMFORT FARM
HEIMA ER VERST
SÝND KL. 5. Kr. 300.
Um víðan völl
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Emilíana Torrini á útgáfutónleikum í Islensku óperunni.
TONLIST
Gcisladiskur
MERMAN
Merman, önnur breiðskifa Emiliönu
Torrini. Með henni á plötunni leika
Jón Ólafsson hljómborðsleikari, sem
stýrir einnig upptökum, Jóhann
Hjörleifsson trommu- og slagverks-
leikari, Róbert Þórhallsson bassa-
leikari, Guðmundur Pétursson gítar-
leikari, Szymon Kuran fiðluleikari
og fjöldi annarra hljóðfæraleikara.
Helmingur laga eftir ýmsa lagahöf-
unda erlenda, en helmingur eftir Jón
Ólafsson og Emilíönu sjálfa. Etjó
gefur út, Japis dreifir. 30,53 minútur.
EIN HELSTA söngkona íslenskr-
ar popptónlistar síðustu ára er
Emilíana Torrini, sem söng fyrst
hljómsveitina Spoon á toppinn fyrir
tveimur árum, sendi síðan frá sér
sólóskífu sem var með söluhæstu
plötum síðasta árs og er í aðalhlut-
verki á söluhæstu plötu þessa árs,
Stone Free. Þeirrar plötu, sem hér
er gerð að umtalsefni, var því beðið
með eftirvæntingu, ekki síst þegar
spurðist að á henni yrði uppistaðan
frumsamin lög en ekki framhald á
þeirri endurvinnslu sem Emilíana
hefur helst getið sér orð fyrir.
Merman er plata í styttri kantin-
um, eins og sjá má að framan, en
ekki vert að fárast yfir því, því sitt-
hvað er magn og gæði. Margt er
nefnilega vel gert á plötunni, Emil-
íana syngur framúrskarandi vel,
‘hljóðfæraleikur hreint fyrirtak og
upptökustjórn öll með ágætum. All-
ar tæknilegar forsendur standast
því hörðustu kröfur, sem vonlegt
er með annan eins liðssöfnuð, en
vandast málið þegar rýna á í plöt-
una eftir listrænu mati.
Þótt sífellt megi deila um hvaða
mælikvarða eigi að leggja á popp-
tónlist verður ekki vikist undan
þeirri meginkröfu að þeir sem við
hana fást séu annað hvort að segja
eitthvað nýtt, eða eitthvað gamalt
á nýjan hátt og í þeirri list eins
og öllum öðrum er reglan sú að
hafi menn ekkert að segja sé þeim
best að þegja. Emilíana hefur hasl-
--.að sér völl sem framúrskarandi
flytjandi verka annarra og þá helst
fyrir það hve henni er lagið að
fara nálægt upprunalegri útgáfu;
að flytja verkin í anda þeirra sem
fluttu þau fyrstir. Það er kúnst út
af fyrir sig, en þeir sem helst hafa
helgað sig þeirri grein kallast varla
tónlistarmenn, þeir eru frekar
metnir sem skemmtikraftar og í
þeirri grein standa fáir Emilíönu
Torrini á sporði. Þetta má þó ekki
skilja sem svo að allir sem syngja
lög annarra séu á sama bás hvað
þetta varðar, því legíó söngvara
er til, íslenskra sem erlendra, sem
njóta virðingar fyrir túlkun og end-
urgerð á verkum annarra, meðal
annars með því að fá lagahöfunda
til að leggja sér lið eða með því
að endurskapa eldri lög.
Helmingur Merman er frumsam-
in lög eftir Emilíönu og Jón Ólafs-
son, þ.e. Jón og Emilíana semja
saman þrjú lög og Jón einn tvö, en
textar við lögin eru allir eftir Emilí-
önu. Lögin draga nokkuð dám af
því hvað þau Jón og Emilíana hafa
fengist við undanfarin misseri, því
þau fara um víðan völl; eitt lag
má kalla jassskotna dægurtónlist,
annað einskonar frumstæðan blús,
enn annað mærðarpopp og svo
mætti telja. Jón Ólafsson er ekki
þekktastur fyrir lagasmíðar sínar,
en leysir sumt vel af hendi, nefni
lagstúfinn Premiere Lovin’ og The
Boy Who Giggled So Sweet. Textar
Emilíönu eru einfaldir og falla jafn-
an prýðilega að lögunum, en af-
káralegt að þeir séu á ensku og til
að mynda er textinn við The Boy
Who Giggled So Sweet beinlínis
hlægilegur: „He just stared in her
hardworking arms / his rosie little
lips had turned blue“; í stað mynd-
ar af móður sem hrekst á hjarni
er einskonar teiknimyndafígúra
sem vekur bara kátínu. í þessum
texta og reyndar flestum textunum
eru ambögur sem benda til þess að
höfundurinn hafi ekki gott vald á
ensku og því furðulegra að ekki sé
ort á íslensku.
Það má una sér við að hlusta á
Emilönu Torrini syngja og víst vek-
ur þessi plata hrifningu við fyrstu
hlustun fyrir fögur hljóð. Eftir þá
hrifningarvímu koma aftur á móti
timburmennirnir og ekki líður á
löngu að platan er komin niður í
kjallara í úreldingarhauginn; deyr
gömul eftir skamma ævi.
Árni Matthíasson
ÓATÚN
- greiðir í Umhverfissjóð Verslunarinnar
UMHVERFISSJÓÐUR
VERSLUNARINNAR
gÍL_o
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
NETFANG: http://www.islandia. is/sambioin
AÐDAANDINN
SAMB ■»
SAMBiO
Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony Scott (Crimson Tide,
True Romance, Top Gun). Róbert DeNiro fer hreinlega á kostum i
magnaöri túlkun sinni á geðveikum aödáanda sem tekur ástfóstri
viö skærustu stjörnuna i boltanum. Spennan er nánast óbærileg
og hárin risa á áhorfendum á þessari sannkölluöu þrumu!!!
Aðalhlutverk: Róbert DeNiro, Wesley Snipes, Ellen Barkin, Benecio
Del Toro og John Leguizamo.
RIKHARÐUR III
★ ★ ★ ★ Bylcjjan
*** /MM&l
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
ELMA Björk og Gauja voru brosmildar og bjarteygar á Greifaballi.
Lokaball Greifanna
► HLJÓMSVEITIN Greifarnir „dúkkaði upp“ með dansieik og teiti
á Hótel íslandi um síðustu helgi. Tónleikarnir voru lokatónleikar
sveitarinnar, í bili að minnsta kosti, en hljómsveitin hefur notið
mikiila vinsælda síðan hún var endurreist síðastliðið sumar. Fjölmarg-
ir Greifaaðdáendur mættu á dansleikinn sem fór vel fram.
SÖNGVARINN Páll Óskar kom fram á dansleiknum og
söng lög af nýrri hljómplötu sinni. Eins og sjá má á
þessari mynd var honum ve! tekið.