Morgunblaðið - 24.11.1996, Síða 1
96 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
270. TBL. 84. ARG.
SUNNUDAGUR 24. NOVEMBER 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tsjetsjnía
Jeltsín
skipar
hernum
burt
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti fyrirskipaði óvænt í gær
rússneska hernum að ljúka
brottflutningi hersveita frá
Tsjetsjníu. Talið var að
ákvörðun forsetans yrði til
að liðka verulega fyrir því,
að árangur næðist í viðræð-
um Víktors Tsjernomýrdins,
forsætisráðherra, og Aslans
Maskhadovs, leiðtoga tsejtsj-
enskra uppreisnarmanna,
sem hefjast áttu í Moskvu
síðdegis í gær.
í tilskipun Jeltsíns sagði,
að brottflutningi rússneskra
sveita frá Tsjetsjníu skyldi
lokið til þess „að stuðla að
sáttum í samfélaginu, tryggja
framgang friðarsamkomulag
og ljúka afvopnun tsjetsj-
enska lýðveldisins".
í kjölfar friðarsamkomu-
lags 31. ágúst sl; hvarf meiri-
hluti rússneskra hersveita frá
Tsjetsjníu en þar eru þó enn
tvö herfylki, 101. stórfylki
innanríkisráðuneytisins og
205. stórfylki landhersins.
Ekki var tekið fram fyrir
hvaða tíma brottflutningur-
inn skuli eiga sér stað, en
Jakov Fírsov, talsmaður
svæðisstjórnar hersins í
Norður-Kákasus, sagði að
miðað væri við að sveitirnar
yrðu á burt fyrir kosningarn-
ar i Tsjetsjníu 27. janúar nk.
Samkomulag um
uppbyggingu
Talið var í gær, að Tsjern-
omýrdín og Maskhadov
næðu samkomulagi í Moskvu
um helgina um uppbyggingu
í Tsjetsjníu. Hermt var, að
árangur hefði náðst íviðræð-
um þeirra um önnur atriði
en pólitíska framtíð héraðs-
ins. Aðskilnaðarsinnar vilja
fullt sjálfstæði en Moskvu-
stjórnin freistar þess að
halda héraðinu innan ríkja-
sambandsins.
Morgunblaðið/Ásdís
SUNDNAMSKEIÐ17 STIGA FROSTI
BÖRN úr Grandaskóla í Reykjavík stunda sundnám af áhuga í utanhússlauginni í vesturbænum þrátt fyrir hörkugadd. Þannig var 7
stiga frost þegar þau lærðu bringusundstökin nú í vikunni.
Þing Hvíta-Rússlands reynir
á ný að setja Lúkashenko af
Minsk. Reuter.
MÁLAMIÐLUN í stjórnlagadeilu
þings og forseta Hvíta-Rússlands,
sem Viktor Tsjernomýrdín, forsæt-
isráðherra Rússlands, kom í kring,
varð að engu í gær, er Alexander
Lúkashenko forseti lýsti því yfir í
sjónvarpi, að hann hefði sagt sig
frá sínum hluta samkomulagsins.
Þá sendi þingið nýja kröfu til
stjórnlagadómstólsins, þar sem
þess var krafist, að forsetinn yrði
settur af. Málarekstur af því tagi
var stöðvaður á föstudag þegar
sættir virtust í höfn milli þingsins
og_ forsetans.
1 sjónvarpsávarpinu útilokaði
Lúkashenko að taka þátt í frekari
tilraunum til að ná sáttum í deil-
unni um þjóðaratkvæðið. Eru lyktir
málsins verulegt áfall fyrir rússnesk
stjórnvöld, sem miðlað höfðu mál-
um.
Málamiðlun tókst að morgni
föstudags eftir að Tsjernomýrdín
hafði stýrt næturlöngum maraþon-
fundi Lúkashenkos og leiðtoga
þingsins. Samkvæmt henni féllst
forsetinn á, að þjóðaratkvæði um
að kjörtímabil lians verði framlengt
og völdin aukin yrði ekki bindandi,
heldur einungis ráðgefandi varð-
andi ritun nýrrar stjórnarskrár, sem
deiluaðilar komu sér saman um, að
yrði skrifuð á næstu þremur mánuð-
um.
Þingforsetarnir samþykktu fyrir
sitt leyti, að falla frá hótunum að
setja forsetann af. Gennadí Karp-
enko, varaforseti þingsins, sagðist
ekki hafa séð ávarp Lúkashenko
en kvaðst ekki óttást hótanir hans,
því fyrir lægi úrskurður stjórnlaga-
dómstólsins um að þjóðaratkvæðið
skyldi aðeins ráðgefandi.
Fjórar tilraunir voru gerðar til
að fá þingið til að leggja blessun
sína yfir málamiðlunarsamkomu-
lagið og ekkert gekk þó Lúkash-
enko kæmi tvisvar í þinghúsið til
að ávarpa þingið. Krafðist hann
þess, að tveir þriðju þingmanna
samþykktu samkomulagið, en í til-
raununum fjórum hlaut það aldrei
einfaldan meirihluta atkvæða. Þótti
þingmönnum samkomulagið forset-
anum mjög í hag.
Deilan líkist að mörgu leyti
stjórnmálakreppunni í Rússlandi
1993 sem endaði með blóðbaði er
Boris Jeltsín forseti lét brjóta á bak
aftur vopnaða uppreisn andstæð-
inga á þingi.
■ Upplausn í landinu/12
OFBELDiSMÁL
HEIMILIN
VERÐA AÐ
TAKA SIG Á
10
LESIÐI
ERFÐAEFNIÐ
Draumur 24
hvers manns