Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ cuniiTm ► ciamia Mynd semlífgar uppá tilveruna. H.K. DV HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó CrOTT BÍÓ! GEIWRO is!E2532l nniDOLBYl DIGITAL ENGU LÍKT DIGITAL ENGU LÍKT Verndarenglarnir er spennu- og gamanmynd í anda Les Vlslteurs erfda gerð af sama leikstjóra og handritshöfundi, Jean-Marie Poire. Þeir Gerard Depardieu og Christian Clavier (Les Visiteurs) eru ærslafullir i þessari mynd sem kitlar hláturtaugarnar verulega og léttir lund í skammdeginu. Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. ALLT I GRÆNUM SJO ‘jtiilU Sagt er að hörðustu brimbrettagæjar heims séu i suður-Englandi. Þetta eru brjálaðir Lundúnarbúar sem ferðast suður til að kljúfa stórhættulegar öldur reifa allar nætur og lifa eins hratt og mögulegt er. Blue Juice er kröftug, spennandi og rennandi blaut kvikmynd með Ewan McGregor úr Trainspotting í aðalhlutverki. Heppnir gestir sem kaupa miða á Blue Juice fá gefins Stuzzy bol eða derhúfu frá Xtra á Laugavegi 51. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 12 ára STAÐGENGILLINN KLIKKAÐI PRÓFESSORINN m & Harðsvíraður málaliði tekur að sér að uppræta eiturlyfjahring sem hefur aðalbækistöðvar í gagnfræðaskóla í suður Flórída. Aðalhlutverk: Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat) Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára. EMURPHM Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Sýnd mánudag kl. 7, 9 og 11. Ekki missa af þessum frábæru kvikmyndum. Sýningum fer fækkandi!! BRIMBROT DAUÐUR ~mm Miœ: Sýnd kl. 6.50. Cindy huggar aðdáanda ► OFURFYRISÆTAN Cindy Crawford er ekki óvön því að karlmenn fari niður á hnén og vatni músum í návist henn- ar. Öllu óvanalegra er að ung- ar stúlkur bresti í grát af geðshræringu við það eitt að hitta hana, eins og gerðist nýlega í bókaverslun í Flórída þar sem Cindy var að árita nýja bók sína, „Cindy Craw- ford’s Basic Face“. Cindy brást hárrétt við og ekki ein- ungis áritaði bókina heldur tók stúlkuna í fangið og hugg- aði hana eins og sést á með- fylgjandi myndum. & 1 Ríó kvintettinn Nýjar plötur Ríó söngflokkurinn hefur starfað í 34 ár og gefíð út grúa af plötum. Þeir Helgi * Pétursson, Agúst Atlason og Qlafur Þórðarson segjast ekki vera á þeim buxunum að hætta, enda hafi þeir rétt verið að senda frá sér sína bestu plötu. GUNNAR Þórðarson skipar fyrir verkum. RÍÓ-liðar syngja sem mest þeir mega í hljóðveri á írlandi. RÍÓ hét eitt sinn Ríó trío, enda var það þá skipað þeim þremenninguny Helga Pét- urssyni, Ágústi Atlasyni og Ólafi Þórðar- syni, en þegar þeir tóku upp samstarf við Gunn- ar Þórðarson hvarf „tríóið" og eftir var Ríó, eins- konar kvartett. „Fimmti bítillinn" í þessu sam- starfi var svo textahöfundurinn Jónas Friðrik Guðnason sem samið hefur textana við lögin sem Gunnar Þórðarson hefur samið fyrir Ríó og sá kvintett fór utan til írlands síðsumars að taka upp hluta af nýútkominni breiskífu Ríó, Ungir menn á uppleið. Ríó-liðar, Helgi Pétursson, Ágúst Atlason og Ólafur Þórðarson, segjast lengi hafa ætlað sér að taka upp nýjan disk og þá að taka hluta af honum upp á írlandi. „Við höfðum ætlað að gera þetta í tvö ár,“ segir Ölafur Þórðarson. „Það var þó ekki fyrr en í vor að við höfðum samband við Gunnar Þórðarson, en þetta er þriðja breiðskífan sem við tökum upp með lögum Gunnars og text- um Jónasar Friðriks.“ Þeir segja að Gunnar hafi tekið vel í þessa hugmynd og meðal annars sam- ið nokkur lög með það í huga að á þeim yrði írsk- ur blær. Aldrei stóð þó til að hafa plötuna alla með írskum áhrifum, heldur vildu þeir félagar hafa hana írskkryddaða. „Við unnum grunna og sungum sitthvað áður en við fórum út og úti voru írsk hljóðfæri sett inn og nokkuð sungið, en síðan lukum við plötunni hér heima.“ Þeir félagar segja að vinnan ytra hafi gengið að óskum undir stjóm Gunnars og að írsku tónlist- armennirnir hefðu haft á orði að þeir hefðu aldrei komist í kynni við annan eins upptökustjóra og Gunnar. „Þegar út var komið var hann með allt tilbúið og útskrifað. Irarnir gátu reyndar ekki all- ir.unnið eftir því, voru ekki vanir svo agaðri vinnu, en hann var ófeiminn við að reka þá sem ekki stóðu sig og ráða nýja,“ segja þeir og bæta sposk- ir við: „Við sáum að það væri eins gott að standa sig því hver veit nema við hefðum fengið að fjúka ef við hefðum ekki staðið okkur!" Eftir smáhlátur bæta þeir við af meiri alvöru: „„Líklega höfum við ekki sungið eins vel í aðra tíð og á þessari plötu, Umbúnaður allur var svo vandaður hjá Gunnari, lögin svo góð og útsetningar svo fag- mannlega unnar að okkur hljóp kapp í kinn.“ Þeir Ríó-menn segja að gott sé að vinna með Gunnari Þórðarsyni og verði sífellt betra. „Þegar við fórum að hlusta á lögin hans í fyrsta sinn fannst okkur þau full róleg, en létum gott heita og byrjuðum að vinna með honum og ekki leið á Iöngu að við sáum að hann var búinn að hugsa lögin út í eitt.“ Þeir segja að vinna við plötuna hafi gengið hratt og örugglega fyrir sig, enda allir vanir sam- starfínu. „í gamla daga var þetta allt öðruvísi enda vorum við þá búnir að fara og spila lögin sem átti að taka upp út um allt, en við höfum ekki spilað saman í um það bil ár. Það væri þó ekki mikið mál að koma saman og þess vegna gætum við farið að spila núna á eftir ef út í það væri farið,“ segja þeir félagar og gera sig líklega til að taka lagið. Ekkert að því komnir að hætta Að sögn þeirra Ríó-manna hefur hljómsveitin haldið velli þetta lengi, í 34 ár, vegna þess að menn hafi ekki verið að festa sig í einhverri skylduvinnu, heldur hafi þeir reynt að hafa gam- an af því að vera saman og syngja og tekið hvert verkefni fyrir sig. „Þannig var síðasta verkefni okkar sýningin á Sögu og í kjölfar hennar tókum við okkur frí frá Ríó og hver fór að fást við sitt. Nú erum við aftur komnir á kreik, að þessu sinni að kynna þessa plötu, og síðan tekur næsta verk- efni við, líklega förum við að spila saman á fullu eftir áramót. Við erum ekkert að því komnir að hætta,“ segja þeir glaðbeittir, en bæta við að sjálf- sagt verði sjálfhætt í Ríó í fyllingu tímans, „þeg- ar fer að sorterast í hópnum". „Það er einföld skýring á því af hveiju við höldum svona sam- an,“ segir Helgi Pétursson, „við höfum gaman af því að syngja saman, við höfum gaman af því að taka laglínu, gjarnan eftir Gunnar, og ljóð þá eftir Jónas Friðrik og klára það og finna við get- um komið verkinu til skila,“ segir Helgi en bætir svo við með bros á vör: „Það má líka segja að við höfum ekki verið beðnir um að hætta.“ Þeir félagar segja að textar Jónasar Friðriks séu með þeim bestu sem hann hafi samið hingað til og hann hafi verið að fínpússa þá allt fram á síðustu stundu, „hann var sífellt að endurbæta þá, nánast á meðan við vorum að syngja þá inn, enda hefur hann hæfileika sem fáir hafa að geta látið textann falla fullkomlega að laginu. Það munar því að hann er tónlistarmaður sjálfur og hefur eyra fyrir sönglínum og áherslum". Þeir félagar segja að það sé vissulega trega- tónn á plötunni og það sé vel því þeir hafi ekki fengist við slíka tónlist áður. „Lögin eru svo fal- leg að þeim fer vel íhygli og léttur tregi. Það er eins víst að næsta skref okkar sé í allt aðra átt,“ segja þeir, „það er alls ekki að við séum loks orðnir alvarlega þekjandi. Við höfum komist upp með það að fara um víðan völl, vera með sprell og glens og nú að vera með vandaða plötu og rólynda, sem er líklega besta plata okkar hingað til og um leid sú vandaðasta."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.