Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 25 Við vorum með þeim fyrstu sem tókum af skarið og keypt- um pláss í Kringlunni. Utkoman varð sú að veltan í versluninni í Kringlunni varð fimmföld á við verslunina á Laugaveginum. er mjög ánægjuleg. Árið 1976 var hlutdeild fyrirtækisins núll, en í dag, tuttugu árum seinna er hún rúm 45%. Það eru tvö prósent á ári. Reyndar hefur aukningin verið hröðust síðustu tíu árin.“ I hvaða einingar og hvernig hlut- föllum skiptist starfsemi Skífunn- ar?“ Jón heldur áfram: „Þriðjungur er heildsala, þriðjungur er smásala og þriðjungur er kvikmyndadeild- in. Við höfum verið að tala tals- vert um tvær fyrstu deildirnar, en kvikmyndadeildin dreifir mynd- böndum, kvikmyndum og efni í sjónvarp. Þá tók fyrirtækið Regn- bogann á leigu árið 1989 og keypti fyrirtækið og húsnæðið skömmu síðar. Þetta gerðum við í krafti þess að við náðum samböndum við stóra dreifingaraðila í Bandaríkj- unum fyrir ýmis af frægustu kvik- myndaverunum á borð við 20th Century Fox o.fl. Við höfum náð hagstæðari samningum fyrir vikið og enn og aftur er tímasetningin rétt; engin þjóð_ í Evrópu fer jafn mikið í bíó og íslendingar." Breyttar áherslur? Nýverið var greint frá því að nýr framkvæmdastjóri, Ragnar Birgisson, og fjármálastjóri, Sig- urður Grendal Magnússon, hefðu verið ráðnir til Skífunnar. Jón, sem að auki er starfandi stjórnarform- aður íslenska útvarpsfélagsins, hefur lýst ráðningu þeirra sem tímamótum hjá fyrirtækinu. Merk- ir tilkoma þeirra að Jón sé að losa um sig til að geta sinnt öðru? Og þá hverju? „Við höfum verið með fram- kvæmdastjóra og fjármálastjóra undanfarin ár en ég hef verið mik- ið í daglega rekstrinum. Það stend- ur til að ég minnki það við mig. Já, ég get tekið undir það að með þessu sé verið að losa um mig. Er það ekki draumur hvers manns að hafa meira svigrúm til að vinna að sinni framtíðarsýn? Mér finnst hins vegar ekki tímabært að ég fari neitt út í hvað stendur til. Vil þó aðeins segja, að ekkert er úti- lokað og við Helga erum saman að skoða ýmsa möguleika." Helga neitar því ekki aðspurð að innan tíðar verði nýr yfirversl- unarstjóri ráðinn til að leysa haná af. „Eg get vel haldið mínu striki með margra ára reynslu en tískan er afar samofin því sem þetta fýr- irtæki stendur fyrir og tískan er fyrir ungt fólk. Ég tel því að fram- varðarsveitin hjá okkur þurfi að vera skipuð ungu fólki,“ segir Helga. Því hefur verið fleygt að hugur þeirra hjóna stefni vestur um haf til að freista gæfunnar við kvik- myndaframleiðslu. Einnig hefur heyrst að þau hafi áhuga á því að byggja upp „Skífulegt" veldi í Eystrasaltsríkjunum. Jón svarar eins og véfrétt og þau kíma hvort til annars: „Við erum að búa í haginn og horfa fram veginn. Það er ekkert útilokað." Er ísland orðið of lítið fyrir ykkur?“ Jón svarar: „Fyrirtækið okkar er hér og dafnar vel. Eftir tuttugu ár til viðbótar reiknum við hjónin með því að enn verði það í farar- broddi á sínu sviði. Við erum allt- af að líta í kringum okkur og leita eftir hentugu og stærra húsnæði. Það væri t.d. gaman að geta kom- ið á fót nokkurs konar dægradval- armiðstöð, eða „entertainment center" eins og það er kallað ytra. Það er dæmi um mögulegan vaxt- arbrodd á íslandi. Varðandi útlönd höfum við séð menn og fyrirtæki hasla sér völl erlendis og eins og áður sagði þá er ekkert útilokað og við erum að skoða möguleik- ana. Ein spurning að lokum. Hjónum gengur alla vega að vinna saman, bæði innan heimilis og utan, hvernig gengur ykkur að stapda þétt saman um svo umfangsmikið stórfyrirtæki? Helga verður fyrri til og hennar eru lokaorðin: „Það gengur alveg prýðilega. Fyrstu árin stóðum við bæði í öllu, en þegar vegur fyrir- tækisins fór vaxandi, afmörkuð- ust starfssvið okkar hægt og ró- lega. Auðvitað höfum við átt okk- ar stundir, við erum jú bæði sóknarhugar og harðákveðin. Við höfum þurft að læra að vinna saman, en nú kunnum við á þetta og ég fæ að gera það sem ég geri best og Jón gerir það sem hann gerir best. Meðan við höld- um okkur við það, fer þetta allt saman vel. Hátídahöld! lista, menningar og ferðaþjónustu Tengist starf þitt ferðamálum, sveitastjórnarmálum, byggðamálum, menningarmálum, listum, hátíðum, markaðsmálum eða ráðstefnum? Þá er hér námstefna fýrir þig. Þaulreyndir fyrirlesarar miðla af reynslu sinni af skipulagningu, fjármögnun, dagskrárgerð, markaðsöflun, kynningu, kostun og stjórnun og upplýsa hvernig þessir þættir tengjast ferðamálum með auknum straum gesta og þjónustu við þá. Skýrt verður m.a. frá skipulagningu listahátíðinnar í Edinborg, sem er stærsta listahátíð í heimi og aflar skosku efnahagslífi ío milljarða fsl. króna á ári, Stockholm Water Festivat, sem laðar að sér árlega eina milljón gesta og einnig því frumkvöðulstarfi sem aukið hefur á hróður og aðdráttarafl bæjarfélaga á Islandi vegna þeirra hátíða og viðburða sem þar eru haldnir. Námstefna Scandic Hótel Loftleiðum föstudag 6. des. 1996 kl. 9.30 - 17.15 Dagskrá: ’ Setning. Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Listahátíð f Reykjavík (!) Ráðstefnuskrifstofa ÍSLANDS International Festivals & Events Association Europe Fyrir gesti utan af landi: Scandic Hótel Loftleiöir og Hótel Saga bjóða sérkjör á gistingu í tengslum við ráðstefnuna. Flugleiðir-innanlands bjóða 40% afsiátt á flugi til og frá höfuðborginni. Þórunn Sigurðardóttir, formaöur framkvæmdastjórnar Listahátíðar í Reykjavík. • Ráöstefnuskrifstofa íslands. Hlutverk og tHgangur? Jóhanna Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Ráðstefnuskrifstofu fslands. • Sambúö ferðamála og lista. (The Marriage of Tourism and the Arts.) Nick Dodds, framkvæmdastjóri Listahátíðarinnar í Edinborg og fyrrverandi stjórnarformaður IFEA, Europe. • Evrópusamvinna. Þorgeir Ólafsson, deildarsérfræðingur, menntamálaráðuneyti. • Vogun vinnur, vogun tapar. Valgeir Þorvaldsson, frumkvöðull Vesturferarsafnsins, Jónsmessuhátíðarinnar og fleiri viðburða á Hofsósi. • lazzhátídin á Egilstöðum. Ámi ísleifsson, tónlistarkennari. • Menningarborgin árið 2000. Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. • Frábærar hugmyndir frá hátídum og uppákomum IFEA: Nýjar hugmyndir um hagnað, fjölmiðlun, markaðsöflun, dagskrárgerð og framkvæmdastjórnun. Charlotte De Witt, forseti IFEA Europe. • Ólíkar aðferðir við skipulagningu og fjármögnun listahátíða. Signý Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík. • Atvinnulíf og menningarstarfsemi. Þorsteinn M. Jonsson, framkvæmdastjóri Vífilfells ehf. • Framtíd í fortíÖ. Víkingahátídin í Hafnarfirdi. Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Víkingahátíðar. • Listasumar á Akureyri. Ragnheiður Ólafsdóttir, ritari Gilfélagsins. • Frá núlli upp í fjórar milljónir gesta á fimm árum: Saga Stockholm Water Festival. Eva Whitmore, dagskrárstjóri Stockholm Water Festival og stjórnarformaður IFEAE. • Fyrirspurnir og umræöur. • Móttaka í boði borgarstjóra. Fundarstjóri: Sigrún Valbergsdóttir |Námstefnugjald: Skráning: Ráðstefnuskrifstofa fslands, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík. Sími: 5626070. Fax: 5626073. 3.500 kr 4.000 kr. ef greitt er eftir 2.12.96 ip-Lantisín Reykjavík: Austurstrœti 12 • S. 5691010 • Slmbréí 552 7796 og 5691095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 5691070 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Simbréf 562 2460 Hafnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 • Símbréf 565 5355 Keflavík: Hafnargðtu 35 • S. 421 3400 • Simbróf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Slmbréf 4311195 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Sfmbréf 461 1035 Vestmannaeyjan Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Sfmbréf 481 2792 ísafjörður: Hafnarstræti 7 • S.456 5390 Einnig umboðsmenn um land allt Gríptu gæsina meða í Dublin bíður þín jólastemning. örfa s 12.06 laus
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.