Morgunblaðið - 24.11.1996, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Geir Magnússon
Skoðar
lagalega
hlið málsins
GEIR Magnússon, forstjóri Olíufé-
lagsins hf., segir að berist ósk um
það frá stjórn Þróunarsjóðs sjávar-
útvegsins að draga til baka kauptil-
boð hans í hlutabréf Meitilsins hf.
í Þorlákshöfn þá láti hann skoða
lagalega hlið málsins.
Geir og íjórir aðrir stjórnarmenn
í Meitlinum nýttu sér forkaupsrétt
að hlutabréfum Þróunarsjóðs í fyr-
irtækinu eftir að tilboð bárust í þau
frá ísfélaginu í Vestmannaeyjum.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér hefði borist ábyrgðar-
bréf frá stjórn Þróunarsjóðs þar sem
sér hafi verið boðinn kaupréttur að
bréfunum að undangenginni um-
sögn lögfræðings sjóðsins.
„Ef þeir biðja mig um að draga
þetta til baka þá hljóta þeir að gera
það skriflega og með rökstuðningi
af hveiju það er gert. Ég mun svo
láta skoða lagalega hlið málsins,"
sagði hann.
Geir sagði að þetta mál ætti sér
hliðstæða forsögu þar sem stjórn
Búlandstinds á Djúpavogi hefði ver-
ið boðinn forkaupsréttur að hluta-
bréfum Þróunarsjóðs í Búlandstindi
og þar hefðu tveir stjórnarmenn
nýtt sér forkaupsrétt. Málið hljóti
því að beinast að þeim einnig ef
forsendur sjóðsins nú séu einhvetjar
aðrar en þá.
Morgunblaðið/Ásdís
SARA, Sindri og Ólöf fengu kórónur í afmælisgjöf frá leikfélögunum á dagheimilinu Brekkuborg.
Alltaf að faðmast og kyssast
ÞRÍBURARNIR Sara, Sindri og
Ólöf Stefánsbörn áttu tveggja
ára afmæli á föstudag og þegar
ljósmyndara Morgunblaðsins bar
að garði sátu sy stkinin stillt og
prúð á heimili sínu í Grafarvogi
og léku sér að kubbunum sem
mamma og pabbi gáfu þeim í
afmælisgjöf.
Móðir þeirra, Inga Ingólfsdótt-
ir, segir það vera mikla en
skemmtilega vinnu að ala upp
þríbura. „Sem betur fer eru þau
yfirleitt róleg og góð en þau eru
afar samrýnd, alltaf að faðmast
og kyssast." Inga segir stelpurn-
ar, sem eru eineggja, vera mjög
líkar í háttum og dálitlar skvett-
ur. Sindri er hins vegar ólíkur
þeim í útliti og er alla jafna mun
alvörugefnari en þær.
Fyrir þremur árum var Þrí-
burafélagið stofnað og eru um
tuttugu þríburafjölskyldur í fé-
laginu. „Þessi félagsskapur hef-
ur komið okkur mjög vel, við
hittumst reglulega og berum
saman bækur okkar varðandi
uppeldi og fleira. Einnig höfum
við fengið heilu kassana fulla af
fatnaði sem við látum síðan
ganga til næstu þríbura þegar
börnin okkar eru vaxin upp úr
þeim en það er getur verið ansi
kostnaðarsamt að kaupa klæðn-
að á þijá í einu.“ Afmælisveislan
verður haldin í dag og segir Inga
að búast megi við heilmiklu fjöri
og hamagangi.
Morgunblaðið/Kristinn
Klæðning kerskála
gengur hratt
VINNA við að klæða nýjan ker-
skála við álverið í Straumsvík
er langt komin og er búist við
að henni Ijúki fyrir lok vikunn-
ar. Einar Guðmundsson hjá
ÍS AL segir þetta starf hafa
gengið vel og sé það innan
tímaáætlunar. Álklæðning er
sett á skálann. Jafnframt er
verið að stækka tengivirki fyr-
ir álverið, sem hýsa mun
spenna og fleiri mannvirki.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar hvetur
til aðhalds rísi álver á Grundartanga
Uppsveifla
veltur á álveri
LANDSFRAMLEIÐSLA gæti aukist
um 4,5% á næsta ári og þjóðarút-
gjöld um 7% verði nýtt álver Columb-
ia Ventures byggt á Grundartanga.
Jafnframt yrði viðskiptahallinn
20-25 milljarðar króna og verðbólga
ykist. Núgildandi þjóðhagsáætlun
gerir hins vegar ráð fyrir að lands-
framleiðsla aukist um 2,5% á næsta
ári, að þjóðarútgjöld aukist um 3,5%
og viðskiptahalli verði 15 milljarðar.
Grundartangi stærsta
óvissuatriðið
Þetta kom fram í erindi sem Þórð-
ur Friðjónsson, forstjóri Þjóðhag-
stofnunar flutti á ráðstefnu um fjár-
mál sveitarfélaga í vikunni. Þar seg-
ir Þórður að álverið á Grundartanga
sé stærsta óvissuatriðið í spám um
þróun efnahagsmála á næsta ári. Á
því velti hvort stefndi í meðalár eða
veltiár sem fæli í sér framhald upp-
sveiflunnar.
„Mönnum er því nokkur vandi á
höndum við áætlanagerð fyrir árið
1997, ekki síst þeim sem bera ábyrgð
á þvi að viðunandi jafnvægi ríki
áfram í þjóðarbúskapnum.
Ef af álversframkvæmdum verður
er ljóst að hið opinbera verður að
gera viðeigandi ráðstafanir til að
koma í veg fyrir þenslu. Í því skyni
er skynsamlegast að færa til opin-
berar framkvæmdir eftir því sem við
verður komið, þ.e.a.s. draga úr þeim
á árunum 1997 og 1998 og auka
þær í staðinn 1999 og 2000.
Slík endurröðun framkvæmda
getur ráðið úrslitum um hversu vel
tekst að nýta aukna atvinnuvegafj-
árfestingu til að efla hagkerfið og
treysta lífskjör til frambúðar,“ segir
Þórður.
Raftækjaverslun íslands hf. í samstarfi við stóra evrópska verslunarkeðju
Verðstríð á raftækja-
markaði í uppsig’lingii?
RAFTÆKJAVERSLUN íslands hf. hefur gert
samning við raftækjaverslunarkeðju í Evrópu
og býður nú til sölu raftæki frá helstu framleið-
endum á mun lægra verði en tækin hafa verið
fáanleg á hér á landi til þessa. Að sögn Þorkels
Stefánssonar, framkvæmdastjóra Raftækja-
verslunar íslands, telur hann að verðstríð sé í
uppsiglingu á raftækjamarkaðnum, en hann seg-
ir að seljendur þekktra raftækja hérlendis hafi
reynt að koma í veg fyrir sölu tækjanna hjá
fyrirtæki sínu.
Þorkell vildi í samtali við Morgunblaðið ekki
gefa upp hvaða verslunarkeðju Raftækjaverslun
Islands hefði gert samning við, en sagði fulltrúa
hennar væntanlega hingað til lands á næstunni
í tilefni af 67 ára afmæli raftækjaverslunarinnar
og þá kæmi í ljós hvaða verslunarkeðju væri um
að ræða. Hann sagði hana starfa í öllum löndum
Evrópu og þúsundir verslana væru innan vébanda
hennar og ástæðan fyrir hinu lága verði væru
magninnkaup frá framleiðendum raftækjanna.
Þorkell segir að umboðsmenn raftækja hér á
landi, að undanskildum Heimilistækjum hf., hafi
á sínum tíma neitað að selja honum raftæki til
endursölu í verslun sinni og þeir muni nú vafa-
laust reyna að koma í veg fyrir sölu Raftækja-
verslunar íslands á tækjunum.
„Kjarni málsins er hins vegar sá að við erum
núna að færast í það horf sem tíðkast viðast
hvar í heiminum, þ.e. að hægt er að fá öll vöru-
merki á einum stað á góðu verði. Fólk þarf því
ekki að fara á níu staði í borginni ef það þarf
á bakaraofni að halda,“ sagði hann.
að taka sig á
►Þeir sem umgangast unglinga
telja ekki að ofbeldisverkum hafi
fjölgað né að þau séu grófari, en
líklega hafi þau færst neðar í ald-
urshópa. /10
Upplausn í
landinu gleynmda
►í Hvíta-Rússlandi er að fmna tíu
milljóna manna blásnauða þjóð í
tilvistarkreppu. /12
Lesið í erfðaefnið
►Dr. Kári Stefánsson, er frum-
kvöðull og forstöðumaður nýrrar
umfangsmikillar rannsóknastofu
um íslenskar erfðagreiningar. /18
Draumur hvers manns
►í Viðskiptum/atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Jón Ólafsson
og Helgu Hilmarsdóttur, eigendur
Skífunnar. /24
B________________________
► 1-32
Ævintýraferð
um Afríku
►íslenska fjölskyldan sem er á
leiðinni frá syðsta odda Afríku,
Góðrarvonarhöfða, til Tröllaskaga,
fóru síðsumars um Uganda og
Zaire, og lentu í ýmsum ævintýrum
að vanda. /1-5
Aldrei aftur til Bosníu
►Músliminn Miralem Haseta kom
til íslands til að spila knattspyrnu
með íslensku liði og tveim dögum
síðar braust stríð út í Júgóslavíu
fyrrverandi. Þurfti hann að beita
klókindum til þess að ná serb-
neskri eiginkonu sinni og ársgöml-
um syni þeirra úr stríðshijáðu
landinu./11
Eðlilegt framhald
►Hljómsveitin Todmobile, ein
helsta öðlingssveit landsins í upp-
hafl þessa áratugar tók fyrir
skemmstu upp þráðinn, eftir
þriggja ára hlé./14
Taki ég eitthvað
að mér, vil ég
gera það vel
►indriði Pálsson, sem fyrir
skemmstu hreppti æðstu verðlaun
Norðurlanda fyrir frímerkjasafn
sitt, segir frá áhugamálinu og
sjálfum sér. /16
c
FERÐALOG
► 1-4
Japan
►Pílagrímsferð á topp Fuji fjalls.
/2
Mörgum spurningum
ósvarað
►Drukknun tveggja Þjóðverjar í
jarðvísindaleiðangri í Öskjuvatni
árið 1907 í nýrri bók um málið. /4
D BÍLAR
► 1-4
Galant með GDI vélinni
►Mesta hönnunar- ogtækninýj-
ungin í bifreiðaiðnaðinum að mati
Car. /2
Reynsluakstur
►Liðugur og röskur Almera hlað-
bakur. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari 28
Helgispjall 28
Reykjavíkurbréf 28
Skoðun 32
Minningar 36
Myndasögur 42
Bréf til blaðsins 42
ídag 44
Brids 44
Stjömuspá 44
Skák
Fólk í fréttum
Bíó/dans
Iþróttir
Utvarp/sjónvarp
Dagbók/veður
Gárur
Mannlífsstr.
Kvikmyndir
Dægurtónlist
44
46
48
52
5í
5£
8t
6t
lOt
12t
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6