Morgunblaðið - 24.11.1996, Page 20
20 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Lesið í
erfða-
efnið
þjáningar og fyrirbyggja sjúkdóma.
Við þessa stofnun, sem við höfum
hér nú, er búið að ráða 40 manns
í vinnu,“ heldur Kári áfram. „Lang-
stærsti hlutinn er ungir íslendingar,
sem hafa átt erfitt með að fá vinnu
á sínu sviði hér á íslandi. Einn þeirra
er t.d. með meistaragráðu í lífefna-
fræði og hefur unnið við hellulagnir
í mörg ár, en er nú kominn hingað
í vinnu. Þetta er sem sagt nýr vinnu-
staður með nýja möguleika fyrir
stóran hóp ungra íslendinga, sem
gerir þeim kleift að vinna við rann-
sóknir innan erfðafræði, sem er
samkeppnihæf við það sem best
gerist í heiminum. Fýrir utan það
að við erum að leggja af mörkum
vinnu til að skapa nýja þekkingu til
þess að undirbúa möguleika á því
að meðhöndla og fyrirbyggja slæma
sjúkdóma, þá fær samfélagið það
út úr þessu að við erum líka að
skapa vinnu.“
Sem við göngum um stórar rann-
sóknastofurnar segir Kári að sér
finnist lúxus og mikil forréttindi að
vera í aðstöðu til þess að geta boð-
ið vinnu hópi af ungu fólki, sem
hefur góða menntun og er vel þjálf-
að, þannig að það geti ekki bara
unnið fyrir salti í grautinn heldur á
sama tíma aukið við þekkingu sína,
búið til nýja þekkingu og tekið þátt
í rannsóknum af kraftmestu og
bestu gerð. Og hann bætir við:
„Fólki í þessu samfélagi, sem af
einhverjum undarlegum ástæðum
vili alltaf búa á íslandi þar sem það
á rætur.“
Fjármögnun
kemur að utan
„Þetta er alit gert fyrir fé, sem
flyst inn í landið, þetta eru ekki
rannsóknir sem eru framkvæmdar
fyrir skattpeningana hennar Guð-
rúnar uppi í Breiðholti. Og engin
áhætta tekin hér,“ segir Kári þegar
við víkjum talinu að þessum dýru
rannsóknum og fjármögnun þeirra.
Og spyijum hvort hér sé tjaldað til
tveggja ára. Því svarar hann neit-
andi.
„Hugmyndin er að þetta verði
varanlegt. Það sem þú hefur í huga
er að við öfluðum 12 milljón dollara-
(tæpar 800 milljónir ísl. kr.), sem
átti að nægja til að reka þetta fyrir-
tæki í tvö ár, en við reiknum nú
með að dugi í 3 ár. Það er bara
upphafsfjármagn. Við erum nú þeg-
ar komnir vel á veg með að afla
miklu meiri peninga til viðbótar. Ef
ekki gengur iila þá kemur þessi
starfsemi til með að verða hér um
aldur og ævi, fastur hluti af þessu
samfélagi."
1
STARFSFÓLK á morgnnfundi með verkstjóra á rannsóknastofu,
dr.Jeffrey Gulcher lækni.
ekki. Hinar persónutengdu upplýs-
ingar fáum við aldrei. Viljum ekki
fá þær upplýsingar, vegna þess að
þær eru einkamál fóiks, sem við
viljum ekkert af vita. Við getum
semsagt séð þetta, en ekki fyrr en
búið er að rjúfa tengslin við nöfnin.
Það er mjög mikilvægt, vegna þess
að ættleiðingar og glasafijóvganir
eru einkamál fólks og ekki okkar
undir neinum kringumstæðum. Þvi
er gífurlega mikilvægl í svona rann-
sóknum að tengslin milli nafna og
niðurstaðna séu rofin. Við förum
meira að segja að því af slíkri var-
kárni að þeir sem vinna inni á rann-
sóknastofunni eru aldrei sama fólkið
og þeir er færa inn upplýsingamar
og aftur ekki sama fólkið sem safn-
ar sýnum. Nei, hér getur ekkert
frést, því enginn einstaklingur fylg-
ir upplýsingunum frá því þær koma
inn á stofnunina og þangað til búið
er að búa til niðurstöður. Þannig
að það er ekki nokkur möguleiki
fyrir einstakling eða fyrir mig að
komast í þær upplýsingar. Við höf-
um eytt mörgum deginum við að
reyta hár okkar og skegg í leit að
aðferðum til að koma í veg fyrir að
slíkar upplýsingar verði til. Við vilj-
um þær ekki. Það er ekki okkar
hlutverk," segir Kári með áherslu.
Framtíðarfyrirtæki
En hvað um hann sjálfan. Verður
hann hér áfram?
„Eg er í ársleyfi frá Harvard og
bý hér með minni fjölskyldu. Reikna
fastlega með að ég komi til með að
vinna hér áfram og hætta í Harvard
með vorinu. Það er að segja að það
markast svolítið af því hvað stjórn
þessa fyrirtækis vill gera. Ég hefi
aldrei rekið svona fyrirtæki áður.
Það má vera að í ljós komi að ég
hafi ekki það sem til þarf,“ bætir
Kári við.
Hann upplýsir að fyrirtækinu
stýri 7 manna stjórn, sem saman-
standi af þremur fulltrúum fjár-
festa, sem settu peninga í þetta, og
ijórum fulltrúum frumkvöðlanna,
sem komu því af stað. Auk hans
sjálfs eru það Ernir Snorrason geð-
læknir, Kristleifur Kristjánsson
barnalæknir, Guðmundur Ingi
Sverrisson heimilislæknir, Hálmar
Kjartansson í fjármálastjórn fyrir-
tækisins og Bandaríkjamaðurinn
Jeffrey Gulcher læknir, sem er verk-
stjóri á rannsóknastofu.
„Til að byija með var þetta spurn-
ing um hvort okkur tækist að koma
þessu á skrið,“ segir Kári. „Það
hefur gengið alveg gífurlega vel.
Mér finnst einhvern veginn eins og
þetta ætli allt saman að ganga. Ef
það gengur hins vegar ekki, verðum
við að leita ráða til að bæta ástand-
ið. Og algengasta ráðið er að leita
að nýrri forystu. En ég reikna með
að þetta komi til að ganga vel og
ég verði hér á komandi árum.“
Kona Kára er íslensk, Valgerður
Olafsdóttir félagssálfræðingur,
Engar persónutengdar
upplýsingar
Nú eru að koma í vaxandi mæli
inn í íslenskt samfélag börn sem
ekki eiga kynforeldra. Þá er einkum
átt við glasabörn úr sæði sem t.d.
er keypt frá Danmörku. Hvernig
kemur það við svona rannsóknir sem
byggjast á mannerfðafræði?
„Það gerir að verkum að svona
rannsóknir, eins og við erum að
fást við núna, verða mun erfiðari í
framtíðinni, en þó ekki ómögulegar.
Þær rannsóknir sem við gerum segja
okkur strax að þó einhver einstakl-
ingur sem við erum að vinna með
sé skráður afkomandi vissra for-
eldra þá sé hann það ekki. Það má
ráða af erfðaefninu. Kjarni málsins
er hinsvegar sá að það sjáum við
aldrei fyrr en eftir að búið er að
ijúfa tengslin milli nafnsins og ein-
staklingsins, þannig að við komumst
aldrei að raun um það hvort hann
Siggi sé sonur hennar Gunnu og
hans Péturs. Við erum bara með
númer, sem segir okkur að númer
2 eða 3 sé sonur númer 5 eða 6 eða
Mercedes-Benz vélbúnaður.
Kröfur okkar tU jeppa eru miklar
Þess vegna
voldum við
• Vélbúnaður MUSSO er frá Mercedes-Benz, 3,2 lítra 220 hestafla bensín-
vél eða fimm strokka 2,9 lítra dísilvél, fáanleg í tveimur útfærslum;
100 og 132 hestöfl • Gírbúnaður MUSSO er beinskipting frá Borg-Warner
(Bandaríkjunum) eða Mercedes-Benz sjálfskipting. Millikassi er frá
Borg-Warner • Drifbúnaður MUSSO er frá bandaríska framleiðandanum
Dana/Spicer, peim stærsta í heimi • Við framleiðslu MUSSO er viðhöfð
kóresk vandvirkni og nákvæmni