Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 23
__________FRETTIR_________
Áskorun um að hætta við breytingar á
unglinga- og útideild Félagsmálastofnunar
Sérhæfíngin færð
yfír á hverfa-
skrifstofur
UM 200 manns hafa skrifað undir
áskorun til borgarstjóra, félagsmála-
ráðs og borgarstjórnar um að hætt
verði við fyrirhugaðar breytingar á
starfsemi unglingadeildar og úti-
deildar og að starfsemin verði efld
en ekki lögð niður.
I greinargerð félagsmálastjóra til
borgarstjóra, sem lögð hefur verið
fram í borgarráði segir að ekki sé
verið að leggja deildirnar niður eða
leggja af þá sérþekkingu sem þar
sé til staðar. Verið sé að færa sérhæf-
inguna út á hverfaskrifstofurnar og
samþætta það starf sem snýr að
barnafjölskyldum í vanda.
Bætt þjónusta
í erindi félagsmálastjóra kemur
meðal annars fram að endurskipu-
lagningin byggist á því meginmark-
miði að bæta þjónustuna við þá sem
leita til stofnunarinnar, einkum fjöl-
skyldur með börn og unglinga. Enn-
fremur að forvarnarstarfíð verði eflt
og gert markvissara en til þess að
markmiðið náist verði að endurskipu-
leggja allt starf fjölskyldudeildar
enda hafi menn til fjölda ára, bæði
kjörnir fulltrúar og starfsmenn verið
sammála um að mikil þörf væri á
endurskipulagningu. Bent er á að
nokkuð hafi skort á heildarsýn yfir
málefni þeirra sem leita tii fjölskyldu-
deildar og að fólk hafi stundum þurft
að leita til margra aðila á stofnun-
inni til þess að fá þjónustu. Stefnt
sé að því að hver fjölskylda eða ein-
staklingur hafi framvegis einn ráð-
gjafa sem tengilið og að hann verði
starfsmaður, sem næst vettvangi,
það er heimili viðkomandi, á einni
af þremur hverfaskrifstofum fjöl-
skyldudeildar. Því hafi verið ákveðið
að færa ýmis sérsvið og deildir út á
hverfaskrifstofurnar, til dæmis
áfengisráðgjöf, félagslega heima-
þjónustu, húsnæðismál og málefni
unglinga.
Félagsmálastjóri segir útideildina
hafa unnið mjög gott starf en svo
virtist, sem dregið hafi úr aðsókn
að þjónustu deildarinnar að undan-
förnu enda hafí ný úrræði bæst við
á undanfömum árum eins og starf-
semi Rauða kross hússins og fjöl-
breytt starf íþrótta- og tómstunda-
ráðs fyrir unglinga innan 16 ára og
Hitt húsið með sinni starfsemi. Því
sé talið tímabært að breyta starf-
sviði útideildar. Loks segir að þegar
verið sé að endurskipuleggja stofnan-
ir og forgangsraða verkefnum með
takmörkuðum fjármunum verði ekki
bæði haldið og sleppt. Með endur-
skipulagningu sé verið að leitast við
að nýta starfskrafta stofnunarinnar
betur og að þá verði að líta á fjöl-
skyldudeildina í heild og skyldur
stofnunarinnar samkvæmt lögum.
Þær ákvarðanir sem félagsmálaráð
samþykkti í júní s.l. hafi verið teknar
eftir viðamikinn undirbúning, um-
fangsmikla vinnu og að vel athuguðu
máli.
Fyrirvari um
endurskipulagningu
Fulltrúar Reykjavíkurlistans í fé-
lagsmálaráði ítrekuðu í bókun fyrri
afstöðu sína til skipulagstillögu Fé-
lagsmálastofnunar Reykjavíkur, sem
samþykkt var í félagsmálaráði í júní
sl. Þar segir að verið sé að vinna að
nánari tillögum og útfærslum á
skipulaginu, bæði unglingamálum og
annarri starfsemi sem verið væri að
endurskipuleggja, ekki hvað síst með
tilliti til samþættingar þjónustu með
heildarhagsmuni fjölskyldunnar að
leiðarljósi.
í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins er ítrekaður fyrirvari í fyrri bók-
un, við afgreiðslu tillögunnar í fé-
lagsmálaráði, um mikilvægi þess að
leysa upp unglingadeildina og flytja
starfsemi hennar út á hverfaskrif-
stofurnar að jafnmiklu leyti og tillag-
an gerði ráð fyrir. Hinar tæplega 200
athugasemdir og mótmæli fagfólks
um málefni unglinga taki undir það
sjónarmið.
Grenning án áreynslu,
vöðvabólgumeðferð,
meðferð gegn húðsliti o.fl
STRATA3»2»1 hefur um árabil
þróað kerfi sem er um margt
ólíkt hliðstæðum kerfum.
Árangurinn hefur ekki látið á sér
standa og er STRATA 3*2*1 kerfið
eitt það öflugasta og þægilegasta
sem völ er á.
Nýtt með STRATA 3*2*1:
Meðferðin tekur aðeins 20 mín.
Rafstraumurinn er ekki lengur
óþægilegur.
Árangurinn lætur ekki á sér standa
Pantaðu tíma og prófaðu!
(Sjáðu Séð og heyrt síðasta
tölublað!)
Heildsala og snyrtistofa
Síðumúla 34
Sími 568 8850
„íslendingar eru
hamingjusamasta
þjóð í heimi"
- hluti haminqjunnar fjel&t
náttúrlega í því að gera gcð kaup
Góð kaup þurfia ekki að þýða lœg&ta
verð. Gœðin ikipta líka máli.
Berðu alltah iaman verð og gœði.
íilerukur iðnaður á heimsmœlikvarða
SAMTÖK
IÐNAÐARINS