Morgunblaðið - 24.11.1996, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
og er áfram rekin í versluninni á
Laugavegi 96, einnig Megabúðin
sem Skífan keypti, en þar fást
tölvuleikir og skyld vara. Hljóð-
færahúsið hefur dafnað vel á
Grensásveginum, segir Jón. Þar
er Skífan með þekkt umboð á
borð við Fender og Yamaha og
segir Jón söluaukninguna hvergi
hafa verið örari í fyrirtækinu, allt
að 100% á milli ára.
Til þessa hefur Jón að mestu
haft orð fyrir þeim hjónum, en er
talið berst nánar að verslunar-
rekstrinum kemur í ljós hver
verkaskipting þeirra hjóna er inn-
an fyrirtækisins. Helga nefnilega
rekur verslanirnar. Er yfirverslun-
arstjóri.
„Eg er eiginlega einhvers konar
rekstrarstjóri. Búðirnar eru fjórar
talsins og hver þeirra hefur sinn
verslunarstjóra. Ég er eins og
regnhlíf yfir þeim. Mikið af minni
vinnu fer fram á skrifstofunni, en
ég þarf síðan að fara tíðar ferðir
í verslanirnar," segir Helga. En
hvernig hefur hún þróað verslun-
arhættina í gegn um tíðina?
„Fyrst og fremst með því að sjá
til þess að vöruúrval og viðmót sé
undir öllum kringumstæðum óað-
finnanlegt. Þá fylgist ég með öllum
hræringum sem í gangi eru og
heimfæri það upp á verslanirnar
eftir því sem við á.
Fyrir tveimur árum höfðum við
til dæmis haft verslanirnar á
Laugaveginum opnar til klukkan
tíu öll kvöld, alla daga vikunnar.
Þetta hefur mælst geysilega vel
fyrir og viðskiptavinir kunna vel
að meta nýbreytnina. Það er svolít-
ið annað að fara út að kaupa t.d.
buxur en velja sér geislaplötur.
Það vilja menn gera í rólegheitum
og það hentar vel á kvöldin er
umferð hefur minnkað. Við erum
iðulega að sjá sömu sölu á kvöldin
og á daginn og það segir alla sög-
una. Samhliða þessu höfum við
haft opið í Kringlunni til klukkan
níu á kvöldin og erum eina verslun-
in á staðnum utan Hagkaupsbúð-
anna þar sem opið er fram á kvöld-
in.“
Nú er komin ný verslun í Borg-
arkringlunni, hvernig ætlið þið að
mæta aukinni samkeppni?
„Við lítum svo á að nýja verslun-
in bæti heldur við markaðinn frek-
ar en að taka af þeim sem fyrir
eru. Að öðru leyti erum við hrifin
af góðri samkeppni. Við gerum
engar sérstakar ráðstafanir vegna
þessa, höldum fremur okkar striki.
Við höfum alltaf verið með tilboð
á plötum og breytum því ekki.
Lengra nær það ekki því enginn
getur lifað af lægri álagningu
heldur en þeirri sem fyrir er.
Hörkusamkeppni...
Á meðan samkeppni er um-
ræðuefnið er upplagt að minna á
upplagskönnun sem Hagvangur
gerði á hlutdeild hljómplötufram-
leiðenda á þremur fyrstu ársfjórð-
ungum þessa árs. Þar kemur fram
að Skífan er þar hæst með 45,5%
og ber hæst umboð fyrir Polygr-
am, EMI-Virgin, auk eigin fram-
leiðslu og BMG. Næst kom Spor,
Steinars Berg, með 34,2% hlut-
deild og þar ber hæst Sony Music,
eigin framleiðsla og Warner Music.
Japis rekur lestina með tæp 20%.
Fyrir fáum árum stóðu Steinar
mjög illa og þá varð fjárfesting
manns að nafni Jón Ólafsson til
þess að fyrirtækið rétti úr kútnum
og stendur nú vel. Það heitir nú
Spor. Því spyijum við Jón hvort
ekki megi segja að hann ráði lög-
um og lofum á markaðnum með
um 80% hlutdeild?
„Það er rétt að það komi fram,“
svarar Jón, „að það er ekki Skífan
sem keypti hlut í Spori. Það var
fyrirtæki í mínu eigin nafni, en
ekki Skífan sem fjárfesti í Spori.
Þótt ég sé fjárfestir í Spori, kem
ég ekkert að rekstri þess. Á milli
fyrirtækjanna er meiri samkeppni
en samstarf, raunar er samkeppn-
in mjög afgerandi og góð staða
Spors er alfarið Steinari Berg að
þakka.
Hlutdeild Skífunnar, rúm 45%,
ÚR versluninni í Kringlunni.
Morgunblaðið/Kristinn
DRAUMUR
HVERSMANNS
Eftir Guðmund Guðjónsson
JÓN ER fæddur og upp alinn
í Keflavík og fór ungur að
snúast í hugðarefnum sín-
um, m.a. útgáfu á hljóm-
plötum. Helga er aftur Hafnfirð-
ingur í húð og hár, ólst þar upp,
en sótti síðan Kvennaskólann og
Verslunarskóla íslands þar sem
hún útskrifaðist 1975. Hún var
viðloðandi rekstur Skífunnar
fyrstu árin, en vann þó með sem
flugfreyja í allnokkur ár. Fyrir
áratug, er Skífan keypti verslunar-
húsnæði í Kringlunni, kom hún
þó inn í stjórnun fyrirtækisins með
bónda sínum af fullum þunga.
Verslunarreksturinn byijaði í
Hafnarfirði árið 1975, búðin var
í Strandgötunni og þau Jón og
Helga fóru strax að flytja inn og
selja hljómplötur. Á þessum árum
var Jón auk þess á kafi í hljóm-
plötuútgáfu, rak Hljómplötuútgáf-
una hf. sem gaf m.a. út plötur
með rokksveitinni Júdas, Björgvin
Halldórssyni, Halla og Ladda og
Vilhjálmi Vilhjálmssyni o.fl. Akur-
inn var fijór á þessum árum, mik-
il gróska i tónlistarlífinu og auk
Jóns voru Steinar Berg, Svavar
Gests, Fálkinn, auk hljómsveit-
anna sjálfra að gefa út plötur.
Hvað skyldi hafa einkennt rekstur-
inn á þessum fyrstu árum. Jón
segir:
„Þetta var fyrst og fremst mik-
ii vinna, pligtin var staðin myrkr-
anna á milli og þegar litið er um
öxl er varla það handtak til innan
fyrirtækisins sem við Helga höfum
ekki sjálf innt af hendi í eina tíð
eða aðra. Það sem kannski ein-
kenndi reksturinn á þessum tíma
var harkið og óvissan. Þannig var
að við vissum ekki fyrr en á Þor-
láksmessu hvort við fengjum ein-
hver laun fyrir árið eða ekki. Allt
annað gekk fyrir, skuldir, laun
starfsmanna. Við Helga komum
síðust og það stóð og féll með jóla-
sölunni hvort við bárum eitthvað
úr býtum eða ekki.
þar sem við vorum með 150 fer-
metra skrifstofuhúsnæði og jafn
stórt lagersvæði. Eftir það sem á
undan var gengið þóttu þetta mikl-
ar víðáttur og ekki laust við að
okkur þætti vel til fundið að fara
um á hjólaskautum!
Þarna gekk mikið á og við vor-
um að framleiða allt að fimm titla
á viku. Þetta breytti ansi miklu
fyrir okkur og það hjálpaði að
árið 1981, er niðursveifla var í
efnahagslífinu, höfðum við selt
verslunina í Hafnarfirði til að
grynnka á skuldum. í ljós kom að
þar var tímasetningin einnig góð
og því sigldum við vel í gegn um
erfiða tíma.“
Keypt í Kringlunni
Árið 1986 var Kringlan í deigl-
unni og kaupmenn gerðu upp við
sig hvort þeir ættu að fjárfesta
þar. Sýndist sitt hvetjum. „Það var
stór ákvörðun að fara í Kringluna.
Miðað við veltutölur þá kostaði
þetta ofboðslega mikið. Við Helga
höfðum hins vegar ferðast víða
og séð að svona virkaði annars
staðar og því þá ekki alveg eins
á íslandi?
Við vorum með þeim fyrstu sem
tókum af skarþð og keyptum pláss
í Kringlunni. Útkoman var sú að
veltan í versluninni í Kringlunni
varð fimmföld á við verslunina á
Laugaveginum. Laugavegurinn
dalaði nokkuð í heild í kjölfarið
en við héldum okkar hlut nokkurn
veginn og síðustu fimm árin hefur
hann styrkst aftur verulega án
þess þó að það hafi komið niður
á Kringlunni. Markaðurinn virðist
því vera að stækka og dafna,“
segir Jón og bætir við að það séu
einmitt um fimm ár síðan fyrir-
tækið flutti sig um set, færði sig
á Laugaveg 26 og opnaði þar 460
fermetra hljómplötuverslun. Þá
eru nokkur ár síðan að fyrirtækið
keypti Hljóðfærahúsið á Lauga-
vegi 96. Þar var breytt til, hljóð-
færadeildin var flutt að Grensás-
vegi 8, en hljómplötuverslun var
► Skífan varð tvítug fyrir nokkru. Það er langur vegur
sem fyrirtækið hefur troðið á tveimur áratugum, frá því
að vera plötuverslun í Hafnarfirði til þess að vera leiðandi
fyrirtæki í útgáfu, innflutningi og sölu á geisladiskum,
tölvuleikjum o.fl., útgáfu og dreifingu myndbanda, auk
dreifingar á kvikmynda- og sjónvarpsefni. Nýjar skipulags-
breytingar búa í haginn fyrir eigendur Skífunnar, hjónin
Helgu Hilmarsdóttur og Jón Olafsson, og boða breytta tíma.
Þetta fannst mér eðlilegt, partur
af uppeldi því sem ég fékk, að
bera_ ábyrgð á því sem ég stofnaði
til. Á þessum tíma var ein meiri-
háttar breyting hjá okkur öðrum
merkilegri, er við tókum á leigu
tvær hæðir á Laugavegi 33 af
Eiríki Ketilssyni heildsala. Þetta
var fyrstu helgina í nóvember og
húsnæðið var það fyrsta sem við
notuðum sem gat talist rúmt.“
En hvenær fór að sjást fram úr
harkinu?
„Það urðu alger vatnaskil árið
1984. Þá voru neysluvenjur að
breytast mjög hér á landi og segja
má að myndbandabyltingin hafi
verið að fara í gang fyrir alvöru.
Við gerðum samning við Columbia
Pictures um útgáfu á öllum mynd-
böndum þeirra hér á landi og það
sýndi sig að tímasetningin gat
ekki verið betri. Eftirspurnin var
gífurleg og starfsemin hjá okkur
fór á flug. Til marks um það
sprengdum við utan af okkur hús-
næðið á Laugaveginum og bættum
við okkur húsnæði í Borgartúninu
\
)
I
;
í:
I
I
1
I
1
I
í
[
í.
I'
I