Morgunblaðið - 24.11.1996, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýninga kvikmyndina Maximum Risk,
Hættuspil, með belgíska vöðvaQallinu Jean-Claude Van Damme í aðalhlutverki.
Tvíburar
úr tveimur
heimsálfum
ALAIN Moreau (Jean-
Claude Van Damme) á
að baki glæstan feril í
franska hernum. Alain hélt að
hann væri einbimi þar til hann
kom að tvíburabróður sínum,
Mikhail, látnum á götu. Til að
kanna eigin uppruna og til að
grafast fyrir um hvaða mann
bróðir hans hafi haft að geyma
verður Alain að þykjast vera
Mikhail og fara vestur um haf.
í Litlu Odessa í New York eru
höfuðstöðvar rússnesku maf-
íunnar en það var hún sem varð
Mikhaíl að aldurtila og nú blasir
við Alain að hljóta sömu orlög.
Honum gengur illa að rekja slóð-
ina eftir Mikhaíl og hann hefur
jafnvel ástæðu til að ætla að sú
manneskja sem þekkti Mikhaíl
best, kærasta hans Alex (Nat-
asha Henstridge), komi ekki til
dyranna eins og hún sé klædd.
„Fléttan sem Hættuspil byggir
á er sterk og sagan er full af
óvæntum atvikum," segir aðal-
leikarinn, Jean-Claude Van
Damme. „Myndin býður upp á
hasar, rómantík, ráðgátu, hættu
og hraða atburðarás en hún er
samt mjög trúverðug. Eg hef
leikið í mörgum hasarmyndum
en þetta er í fyrsta skipti sem
ég hef svona mikla trú á handrit-
inu og á persónusköpuninni
vegna þess að í þessari sögu er
veruleikinn endurspeglaður af
mikilli dýpt og mörgum víddum."
Meðal þess sem sagan snertir
á er sá ósýnilegi þráður sem teng-
ir saman tvíbura jafnvel þótt
þeir hafi ekki þekkst síðan í
móðurkviði. „Ég trúi því að sér-
hveijum manni finnist eitthvað
vanta í líf sitt,“ segir leikstjóri
myndarinnar, Ringo Lam. „Alain
leggur í ferðalag til þess að kom-
ast að því hvað það er sem hann
saknar úr sínu lífi. Því lengra sem
ferðin ber hann því betur kynnist
hann sjálfum sér og þá ekki síst
sínum dekkri hliðum. Hann tapar
áttum í stjómleysi og ofbeldis-
heimi stórborgarinnar, um-
kringdur fólki sem hann þekkir
ekki. Með því að ætla að setja
sig í spor bróður síns varpar Al-
ain frá sér öllu sem hann þekkir
og býður hættunni birginn."
Framleiðandi myndarinnar er
hinn ísraelski Moshe Diamant,
sem margsinnis hefur unnið með
Van Damme, þar á meðal í Hard
Target, Timecop, Double Impact,
Sudden Death og síðast í The
Quest, fyrstu myndinni sem
„beigíska buffið“ eins og Van
Damme er kallaður, leikstýrði
sjálfur. „Jean-Claude er frábær
hetja vegna þess að hann er
sterkur og klár en jafnframt að-
gengilegur og viðkvæmur,“ segir
Diamant. „Áhorfendur eiga kost
á að ferðast með honum í gegn-
um ævintýri en telja samt mögu-
legt að tengjast honum og líta á
hann sem vin eða setja sig í hans
spor.“
Þeir Van Damme og Diamant
hafa lengi verið hrifnir af spennu-
myndum frá Hong Kong og hafa
viljað kynna Hong Kong-hefðina
á Vesturlöndum. Þeir unnu með
meistara þessa stíls John Woo, í
Hard Target, fýrstu myndinni
sem Woo gerði í Hollywood og
enn sóttu þeir sér leikstjóra til
Hong Kong þegar Ringo Lam var
ráðinn til starfa. Þetta er fyrsta
Hollywood-myndin hans.
„Ringo er frábær í því að búa
til mikla spennu í hverjum ein-
asta ramma í spennumynd," seg-
ir Van Damme. „Myndavélin er
á stöðugri hreyfingu eins og bak-
grunnurinn svo að allt virðist
hlaðið og spennandi. Hann er líka
fyrsti leikstjórinn sem ég hef
unnið með sem kann að tala við
mig. Hann tók tíma og tjáði sig
ekki bara með orðum heldur aug-
unum, teikningum og hveiju sem
þurfti. Hann kenndi mér að
slappa af, leita inn á við og ná
dýpri tjáningu í hverri senu.
Hann sagði: Ef þú fínnur fyrir
einhveiju og dregur þá tilfinn-
ingu fram í augun á þér, skynjar
myndavélin tilfinninguna, jafnvel
þótt ekki sé sagt eitt einasta orð.
Áhorfendur skynja einlægni og
Ringo hjálpaði mér við það að'
skræla utan af mér eitt lag af
hömlum og ryðja burt hindrun
milli áhorfenda og persónunnar
á tjaldinu."
Leikstjórinn endurgeldur
stjömunni lofíð. „Okkur Jean-
Claude féll vel hvor við annan og
við unnum vel saman,“ segir Lam.
„Auðvitað er Jean-Claude góður
bardagamaður en hann er ein-
JEAN-Claude Van Damme í hlutverki Alain Moreau.
Vöðvaflall o g
ballettdansari
JEAN-CLAUDE Van
Damme er 35 ára gamall
Belgi, fæddur í Brussel.
Að frátaldri skáldsagnapersón-
unni Hercule Poirot er ótrúlegt
að nokkur annar Belgi hafi náð
því að verða jafnnafntogaður á
alþjóðavettvangi.
Jean-Claude Van Varenberg,
tók sér eftirnafn læriföður síns
þegar hann ákvað að gerast
kvikmyndastjarna og gefa feril
sem ballettdansari og karate-
kappi upp á bátinn en áður en
hann fór vestur um haf hafði
hann m.a. orðið þjóðþekktur í
heimlandinu fyrir árangur í
vaxtarrækt, karate, og ballett,
auk þess að stunda nám í leik-
list. Honum stóð til boða að
gerast atvinnumaður I ballett
en ákvað að fara heldur til
Hollywood og freista gæfunnar.
Leiðin á tindinn var ótrúlega
greið fyrir þennan u.þ.b. 170 sm
háa Belga sem talar ensku með
þungum hreim. Eftir að hafa
unnið um hríð sem þjónn og
útkastari í Los Angeles lágu
saman leiðir hans og kvik-
myndaframleiðandans Menach-
im Golan, sem sá hæfileikana
geisla af Van Damme og útveg-
aði honum hlutverk. Síðan hef-
ur kappinn leikið í yfir 20 kvik-
myndum, auk þess að leikstýra
myndinni The Quest sem var
sýnd hér á landi nýlega.
Fyrsta myndin sem Van
Damme lék í var Monaco For-
ever, 1984, en hann sló hins veg-
ar í gegn 1987 með Bloodsport.
Auk þess að leika i 20 mynd-
um og leikstýra einni hefur
Jean-CIaude Van Damme feng-
ist við skriftir og á heiðurinn
að sögunum sem myndir hans,
The Quest, Kickboxer (1989),
Lionheart (1990) og Double
Impact (1991) voru byggðar á.
A næsta ári verður nýjasta
mynd hans, Abominable, frum-
sýnd en miðað við nafnið kæmi
ekki á óvart að þar ætli belgíska
buffið eins og hann er kallaður
vestanhafs (The Muscles from
Brussels), sér að takast á við
snjómanninn ógurlega.
Van Darame er nýskilinn eftir
stormasamt hjónaband við
fjórðu eiginkonu sína, fyrirsæt-
una Darcy LaPier. Hann á tals-
vert af börnum, þar á meðal árs
gamlan son með Darcy.
ÞAÐ HITNAR í kolunum þegar Alain Moreau (Jean-Claude Van Damme)
fer í gufubað með rússnesku mafíunni.
ALAIN (Jean-CIaude Van Damme) og Alex Minetti (Natasha
Henstridgew) tengjast sterkum böndum við það að reyna að
komast til botns í því hvað olli dauða tviburabróður Alains.
stæður á öðrum sviðum og ólíkur
öðrum hasarhetjum í Ameríku.
Hann býr yfir tilfinningalegri dýpt
sem veitir möguleika á dramatísk-
um tilþrifum. Til að búa til drama
verður þú að hafa lifandi karakt-
era. Fólk er það sem mér finnst
athyglisverðast í sköpuninni, það
er mótsagnakennt og þekkir jafn-
vel ekki sjálft sig.“
Auk Van Damme er Natasha
Henstridge í stærsta hlutverki
myndarinnar en hún leikur unn-
ustuna Alex. Natasha vakti
nokkra athygli í frumraun sinni
á hvíta tjaldinu, myndinni Speci-
es, og mest varð umstangið þeg-
ar þessi kanadíska ofurfyrirsæta
kom til Cannes að kynna mynd-
ina á kvikmyndahátíðinni þar.
Loks er að geta franska stór-
leikarans Jean-Hugues Anglade
sem leikur stórt hlutverk í mynd-
inni Hættuspil.