Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
t
3
!
■
I
I
i
!
3
I
4
4
i
Í
4
i
i
i
i
i
<
i
i
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 31
MAGNÚS Leópoldsson og fjölskylda eftir að hann hlaut frelsi. Eft-
ir sex vikna gæsluvarðhaldsvist vissi Magnús að rannsóknaraðilum
var Uóst sakleysi hans. Þegar hann spurði Örn Höskuldsson rann-
sóknardómara hvers vegna honum væri ekki sleppt svaraði hann:
„Ja, hvað á ég að segja mínum yfirmönnum?"
MAGNÚS sat á fjórða mánuð í klefa sem rúmar eitt rúm og lítið
borð og hefur ekki fulla lofthæð. Höfundur bókarinnar Saklaus
í klóm réttvísinnar, Jónas Jónasson, og Magnús heimsóttu einangr-
unarklefann í Síðumúlafangelsi sumarið 1996 þegar bókin var á
lokastigi.
Líf manns sem settur er
I gæsluvaröhald tekur
algjörum umskiptum. Honum
er kippt út úr samfélaginu.
ef ég yrði samvinnuþýður og bætti
við að það þýddi ekkert fýrir mig
að fara í hungurverkfall, hann hefði
frétt að ég borðaði ekkert eða lítið.
Ég sagðist einfaldlega ekki hafa
mikla matarlyst.
Það var auðfundið að hann var
að reyna að komast í þægilegt sam-
band við mig....
Þrátt fýrir þægilega framkomu
mannsins, sem kominn var gestur
inn í klefann til mín, fann ég fljótt
að hann var gagntekinn af þeirri
vissu að ég væri sekur maður. Samt
sem áður fannst mér gott að geta
talað við hann. Ég hafði ekki verið
hér nema einn dag og var þegar
farinn að finna fýrir þögninni. Og
ég talaði tæpitungulaust við hann.
Ég spurði hvers konar djöfuls fram-
koma þetta væri við saklaust fólk
en hann svaraði hæglátlega að
þetta væru eðlileg viðbrögð, svona
fýrst! Hann sagði að það væri mik-
il reynsla fýrir því að það borgaði
sig fyrir glæpamenn að játa strax,
þá gengi þetta hraðar fyrir sig. Það
væri betra fyrir þá og betra fyrir
fjölskylduna að fá bara skellinn
strax. Ég fengi betri meðferð og
kannski mildari dóm ef ég væri
samvinnuþýður og segði hveijir
hefðu verið með mér í þessu.“
Hafður í haldi þar
til hann játaði
„Maðurinn í svörtu fötunum með
gylltu hnappana talaði föðurlega til
mín, rétt eins og ég hefði verið stað-
inn að því að kasta gijóti í ljósa-
staur. En tíminn leið hraðar og ég
fór að vona að manninum leiddist
í vinnunni og hefði þess vegna gam-
an af því að sitja að rabbi. Svo
fann ég að honum þótti ég frekar
erfiður glæpamaður úr því ég vildi
ekki játa. Hann laumaði því út úr
sér að ég væri ekki hér af ein-
hverri tilviljun, handtaka mín hefði
verið undirbúin af hinum færustu
mönnum. Ég spurði hvort hann
væri líka rannsóknaraðili því þótt
ég væri fákunnandi um svona mál
þá fannst mér að fangaverðir ættu
ekki að tala svona. Hann svaraði
að þetta samtal færi fram af góð-
vild til mín.
Mér fannst hann skelfílega vit-
laus og gegnsýrður af þessu rugli
sem einkenndi þá sem höfðu orðið
í fangelsinu. En ég hafði líka samúð
með honum og reyndi að leiðbeina
honum á braut sannleikanns, en
hann vildi heldur ganga utan vegar.
Niðurstaðan af þessu samtali var
sú að það yrði ekkert gert fyrir
mig fyrr en ég væri búinn að játa.
Þangað til yrði ég látinn dúsa þama
áfram.
Með það sneri hann sér að dyrun-
um og hringdi bjöllunni. Þegar
dymar opnuðust fór hann út án
þess að líta til baka. Hurðin skall
aftur og slagbrandarnir vöktu skelf-
ingu mína á ný. Ég sat eftir hreyf-
ingarlaus, eins og fígúra úr kross-
viði.“
Þannig hófst 105 daga einangr-
unarvist Magnúsar Leópoldssonar í
Síðumúiafangelsi í janúar árið
1976. Hann gekk út úr fangelsinu
tæpum fjórum mánuðum síðar, að
kvöldi 9. maí, reynslunni ríkari. Frá
henni segir í bókinni en dagamir í
klefanum þrönga hafa fylgt Magn-
úsi æ síðan. Hann hefur borið lík-
amlegan skaða af vistinni. Hann
léttist vemlega, var aðeins 63 kíló
þegar hann kom úr fangelsinu auk
þess sem ónæmiskerfíð bilaði. Þá
em sálrænar afleiðingar vistarinnar
ótaldar. Þótt hann hafi losnað úr
haldi og verið saklaus af morðinu,
sem yfirvöld töldu að hann hefði
framið,. hefur honum reynst erfitt
að vinna gegn fordómum fólks sem
stimplaði hann morðingja. Sú byrði
hefur kannski vegið þyngst í þá tvo
áratugi sem liðnir em frá því að
hann var í 105 daga saklaus í klóm
réttvísinnar í Síðumúlafangelsi.
0Bókarheiti: Saklaus íklóm
réttvisinnar — Magnús
Leópoldsson rýfur þögnina um
105 daga gæsluvarðhaldsvist, 208
hls. Höfundur erJónas Jónasson.
Útgefandi Vaka HelgafeH.
Leiðbeinandi verð...
Þannig skiptir þú pokatoppum fyrir jólatónlist eða peninga
Ef þú vilt fá Merrild jólatónlist eða reiðufé þarftu að fylla út þennan miða og setja
hann í umslag ásamt pokatoppunum.
Þegar þú hefur safnað pokatoppum fyrir jólageisladiski eða snældu getur
þú annaðhvort sent ávísun með eða greitt Qárhæðina inn á gíróreikning Merrild.
Póstgíróreikningurinn er 56 86 86 og senda þarf frumrit kvittunar ásamt útfylltum
miðanum og pokatoppunum í umslagi til:
Merrild Kaffi
Pósthólf 4132
124 Reykjavík
Tilgreina þarf sendanda á bréfið og frímerkja rétt. Lokafrestur til að senda inn
pöntun með þessum hætti er til 9. desember 1996. Eigi síðar en 2 vikum eftir að
okkur hafa borist toppamir sendum við þér svar.
Vinsamlegast ritaðu greinilega
Nafn_______________________________________________________________________
Heimilisfang_______________________________________________________________
Póstnr._______Póststöð_______________—-------------------------------------
Sími_______________________________________________________________________
| | Merrild jólalög:
Ég óska eftir að fá send Merrild jólalög á Q geisladiski Q snældu og ég sendi
með 10 toppa ásamt ávísun að fjárhæð 300 kr. eða gírókvittun.
Greiðsla með Q ávísun Q gíró
Ég óska eftir að fá reiðufé og sendi_toppa en verðgildi hvers þeirra er 20 kr. Óskir þú eftir
að fá reiðufé í skiptum fyrir toppa getur þú skipt minnst 5 og mest 10 toppum en verðgildi hvers er
20 kr. Fjárhæðin verður lögð inn á bankareikning þinn. Mundu því að gefa upp bankanúmer, reiknings-
númer (og kennitölu).
Bankanr.
Rcikn.nr. Kt. -
Athugaðu vinsamlegast að ekki er hægt að senda fleiri en 10 toppa hvort sem
keyptur er geisladiskur eða snælda eða skipt fyrir reiðufé. Því fæst ekkert fyrir
toppa sem eru umfram 10 og við endursendum þá ekki. Aðeins er gert ráð fyrir
að hvert heimili kaupi einn geisladisk eða eina snældu. í boði meðan birgðir
endast.
Mmiát
Tilboðin gilílii aðeins um toppa af Rauðum Merrild 500 g (brennsluafbrigðin 103, 104, 304) og Merrild Light 500 g.
Ibppuriim af
og lagið á
Klipptu toppa til þess að vinna disk
Merrild setur brag á sérhvern dag