Morgunblaðið - 24.11.1996, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 41
HANNES
ÁGÚSTSSON
+ Hannes Ágústs-
son fæddist að
Gunnsteinsstöðum í
Langadal í Húna-
vatnssýslu 11. nóv-
ember árið 1912.
Foreldrar Hannes-
ar voru hjónin Ág-
úst Sigfússon og
Sigurlaug Björns-
dóttir og var Hann-
es næstyngstur 7
barna þeirra, en af
þeim eru enn á lifi
systurnar Guð-
munda og Sveinbjörg, en látin
eru Hólmfríður, Stefán, Ingvar
og Pétur. Hannes ólst upp hjá
frænda sínum, Þorgrími Stef-
ánssyni og Guðrúnu Björns-
dóttur konu hans í Syðra-
Tungukoti í Blöndudal, sem nú
heitir Brúarhlíð, ásamt 5 börn-
um þeirra og var þar kært á
milli. Heimdraganum hleypti
Hannes innan við tvítugt, hélt
þá suður til höfuðborgarinnar
og vann þar ýmis störf þar til
hann stofnaði eigið fyrirtæki
árið 1949, Fín-
pússningargerðina,
sem enn er í gangi
og í eigu sonar
hans.
Hannes kvæntist
1941 Sigurlaugu
Jónsdóttur frá
Bollakoti í Fljóts-
hlíð, og lifir hún
mann sinn. Þeim
varð tveggja barna
auðið og eru þau
Ásdís, fædd 1941,
sem gift er Gunnari
I. Waage, en þau eiga tvo syni,
Benedikt, f. 1972, og Davíð, f.
1975, og Baldur, fæddur 1946,
sem giftur var Sólrúnu Geirs-
dóttur og eiga þau þijú börn,
Hlyn, f. 1966, Lilju Björk, f.
1971, og Reyni, f. 1974. Þau
skildu og var sambýliskona
hans síðar Noodaeng Sawatdee
frá Thailandi. Langafabörnin
eru þijú.
Útför Hannesar fór fram 22.
nóvember í kyrrþey að ósk hins
látna.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig að minnast afa míns,
Hannesar Ágústssonar, sem lést
nú í síðustu viku. Þó svo að þú
hafir nú farið þá leið sem við öll
þurfum að fara þá er samt alltaf
sárt að sjá á bak ástvini og líklega
er maður aldrei tilbúinn því að
manns nánustu séu burtkallaðir.
En eins og þú sagðir stundum sjálf-
ur: „Dauðinn missir aldrei sína
fiska.“. Þetta fannst mér oft á tíð-
um vera frekar kaldranalegt við-
horf en núna vil ég skilja þessi orð
þín þannig að þú hafir ekki kviðið
endalokunum enda hafðir þú lengi
verið áhugasamur um hvað biði
þín fyrir handan. Vonandi muntu
fá svar við öllu því sem leitaði á
huga þinn nú þegar þú ert farinn.
Við hin sem eftir lifum syrgjum
góðan afa og vin en getum og
munum ylja okkur um ókomna tíð
við allar þær minningar sem við
eigum um þig. Aldrei mun ég
gleyma þeim fjölmörgu stundum
sem við áttum saman þegar ég kom
í heimsókn til þín og ömmu niður
á Laugarnesveginn. Alltaf höfðum
við eitthvað til að tala um og sner-
ust þær umræður oftar en ekki
um bækur og var ekki komið að
tómum kofanum hjá þér í þeim
efnum enda var safn þitt af bókum
að stækka allt til síðasta dags.
Eins held ég líka að þú hafir kunn-
að vísu sem átti við hvert mögu-
legt og ómögulegt tækifæri. Þó svo
að þú hafir sett saman ófáar vís-
urnar sjálfur varstu aldrei mikið
fyrir að hampa þeim, frekar en
sjálfum þér, og kallaðir þetta aldr-
ei meira en tilraunir til að yrkja.
í mínum eyrum voru þó vísurnar
þínar ekkert síðri en aðrar vísur
sem þú hafðir fyrir mér, en kannski
er þetta svona með okkur öll, okk-
ur vantar meiri trú á okkur sjálf.
Eitt af því sem þú innprentaðir
mér og ég vona að mér auðnist
að tileinka mér, var virðing þín
Í
<
I
<
<
I
<
<
I
I
I
I
(
<
{
I
<
HARALDUR
MAGNÚSSON
-4- Haraldur Magn-
■ ússon verka-
maður fæddist í
Reykjavík 20. sept-
ember 1900. Hann
lést á Dvalarheimil-
inu Lundi á Hellu
17. nóvember síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Magnús
Geir Guðnason, f. á
Bakkavelli í Hvol-
hreppi í Rangár-
vallasýslu 25.10.
1862, d. í Reykjavík
9. ágúst 1961, og
kona hans Guðrún
Þorvarðardóttir, f. í Reykjavík
13.5. 1859, d. í Reykjavík 17.1.
1912. Aibræður Haralds voru
Þorvarður Stefán, f. 12.8. 1889,
d. 9.1. 1890; Erlendur Þor-
steinn, múrarameistari á Akra-
nesi, f. 28.9. 1890, d. 12.6.1994,
og Geir, steinsmiður í Reykja-
vík, f. 21.7. 1894, d. 9.2. 1979.
Magnús Geir og Guðrún skildu.
Haraldur Magnússon er látinn
96 ára að aldri.
Halli Magg, eins og allir kölluðu
hann, var góður vinur fjölskyldu
okkar frá því fyrst við systurnar
munum eftir okkur.
Hann dvaldi oft á heimili foreldra
okkar, Tótu og Guðna á Hellu, um
lengri eða skemmri tíma. Heim-
sóknir hans voru ætíð kærkomnar
enda litið á hann eins og einn úr
fjölskyldunni. Allar minningar okk-
ar um Halla eru ljúfar og góðar.
Honum þótti gamán að taka í spil,
vist, hornafjarðarmanni, marías,
allt eftir því hve margir voru til í
slaginn. Tímunum saman gat hann
dundað við að leggja kapal ef eng-
inn var spilafélaginn. Aðdáun okkar
varð takmarkalaus þegar hann
fékkst til að spila á munnhörpuna.
Mamma hafði sagt okkur að í gamla
daga hefði hann spilað fyrir dansi
þar til blæddi úr munnvikum hans.
Okkur fannst Halli aldrei gam-
all. Mamma kynnti hann líka oft
sem elsta son sinn, fæddan aðeins
fyrir tímann, enda var hann rúm-
lega 30 árum eldri en hún. Hann
fékk vinnu í Þorlákshöfn og var þar
til heimilis hjá sómahjónum, Rögnu
°g Björgvin, sem honum þótti mjög
Magnús Geir og
önnur kona hans,
Eggertína Guð-
mundsdóttir, f.
19.4. 1872, d. 17.11.
1918, frá Kvíarholti
í Holtahreppi í
Rangárvallasýslu,
tóku kjörson, Ársæl
Magnússon, sem
var steinsmiður í
Reykjavík, f. 1.1.
1907, d. 26.1. 1969.
Með þriðju eigin-
konu sinni, Stein-
unni Olafsdóttur, f.
6.9. 1893, d. 9.7.
1989, eignaðist Magnús Geir
tvo syni, Kristin, f. 12.9. 1922,
d. 26.11. 1937, og Knút Reyni,
steinsmið, nú dagskrárgerðar-
mann við RÚV, f. 11.4. 1928,
og kjördótturina Svövu, f. 11.6.
1921, húsmóður í Reykjavík.
Útíför Haralds fór fram frá
Oddakirkju á Rangárvöllum 23.
nóvember.
vænt um en kom þó alltaf til okkar
í sumarleyfum sínum og á stórhá-
tíðum. Jólin voru ekki fullkomin
fyrr en Halli birtist.
Árin liðu og við systurnar eignuð-
umst okkar eigin ijölskyldur, Halli
var þeim eins hlýr og góður og
okkur.
Síðustu árin átti hann heima á
dvalarheimilinu Lundi þar sem vel
fór um hann. Halli Magg var ærleg-
ur og góður maður sem gott er að
hafa kynnst.
Við þökkum honum samfylgdina.
Blessuð sé minning þessa sóma-
manns.
Hrafnhildur, Hjördís,
Bára og fjölskyldur.
Sé ég veg og vörður
vísa upp á móti.
Styrk þarf til að standa
stikla á eggjagijóti.
Upp í bláu bergi
blikar óskalindin.
Blessun bíður þeirra
sem bijótast upp á tindinn.
(Davíð Stef.)
Góður vinur okkar Haraldur
Magnússon er látinn 96 ára að aldri.
Hann var Reykvíkingur. Ungur
hleypti hann heimdraganum og leið
hans lá um sveitir Rangárvalla-
sýslu, þar sem hann vann við sveita-
störf. Snyrtimennska og samvisku-
semi voru dyggðir sem honum voru
í bióð bornar og komu fram í öllu
sem hann gerði. Hann var vinsæll
og ljúfur gleðimaður og naut þess
að vera með ungu fólki á gleði-
stundum.
Mesta lán sitt í lífinu taldi hann
vera það að komast ungur að árum
í vinnu að Odda á Rangárvöllum
til þeirra heiðurshjóna séra Erlends
Þórðarsonar og Onnu Bjarnadótt-
ur. Hann virtist og dáði frú Önnu
fyrir gæði hennar og umhyggju við
sig ungan förusvein. Hann ræddi
oft um veru sína í Odda og taldi
sig hafa búið að góðvild þeirra
hjóna og dætra þeirra í gegnum
lífið og í Oddakirkjugarði vildi
hann hvíla.
Hann Halli Magg, en það var
hann gjarnan nefndur í hópi vina
og kunningja, var góðvinur okkar
hjóna frá fyrstu kynnum eða um
áratuga skeið. Hann réðst til okkar
í vinnu sem vetrarmaður að Duf-
þaksholti í Hvolhreppi og var hjá
okkur í margar vertíðir. Á sumrin
vann hann svo í vegavinnu.
Árið 1959 lá leið okkar og hans
til Þorlákshafnar. Hann fór að vinna
hjá útgerðarfé'iaginu Meitlinum hf.
Þar ávann hann sér vináttu allra
sem kynntust prúðmennsku hans
og samviskusemi í lífi og starfí.
Halli vann hjá því fyrirtæki allt
fram til starfsloka að hann aldurs
vegna dró sig í hlé.
Þá komu til hjálpar góðvinir til
fjölda ára, Guðni Jónsson og kona
hans Þórunn Jónasdóttur og
greiddu götu hans. Þau fengu hon-
um samastað á Dvalarheimilinu
Lundi á Hellu þar sem honum leið
vel og naut frábærrar umönnunar
starfsfólks jafnframt vináttu sinna
góðu vina á Hellu.
Lækkar lífdaga sól
löng er orðin raín ferð.
Fauk í faranda slq'ól
feginn hvfldinni verð.
Guð minn, gefðu þeim frið
gleddu og blessaðu þá.
Sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Ólína Andrésdóttir)
Við þökkum vini okkar samfylgd-
ina og biðjum Guð að blessa minn-
ingu hans.
Ragnheiður Ólafsdóttir,
Björgvin Guðjónsson.
fyrir öllu lífi og er mér minnis-
stætt í því sambandi hversu mjög
þú naust þess að vera innan um
hin ýmsu dýr og voru ferðir þínar
inn í Laugardal, þar sem þú gast
setið góða stund innan um dýrin
og alltaf notið þess jafn mikið að
sjá þau vaxa og dafna, gott merki
um það. Af sama meiði var eflaust
sprottin ást þín á börnum og gaf
það þér ævinlega mikið þegar þér
auðnaðist að gleðja þau og það
gerðirðu ósjaldan. Alltaf var það
visst ævintýri að fá að gista hjá
afa og ömmu og grunar mig að
þú hafir haft síst minna gaman
af þeim heimsóknum en við. Er
sárt til þess að hugsa að þér auðn-
aðist aldrei að sjá yngsta langafa-
barnið sem fæddist aðeins tveimur
dögum áður en þú lést.
En nú ertu farinn og ég mun
aldrei framar geta heimsótt þig á
Laugarnesveginn. Öllum þeim
stundum sem við áttum saman
mun ég aldrei gleyma og víst er
að þú munt lifa meðal okkar um
ókomna tíð.
Blessuð sé minning þín.
Benedikt.
„Ein guter Mensch, in seinem
dunklen Drange/Ist sich des recht-
en Weges bewu6t.“
Þessi tilvitnun úr formála stór-
virkis Goethes, „Faust“, kemur
mér í hug, þegar ég minnist móður-
bróður míns, Hannesar Ágústsson-
ar. Er ekki líf okkar stöðug og oft
fálmkennd leit, sem jafnframt er
drifkraftur nýrra hugmynda um
betra og hamingjuríkara líf?
Stundum er sagt: leitið og þér
munuð finna. Hinn leitandi hugur
Hannesar Ágústssonar fann samt
ekki öll svörin við þeim spurning-
um sem hann bar fram. Hannes
gerði sér ljósar takmarkanir skyn-
heims okkar og þekkingar. Efa-
hyggja var gildur þáttur í lífi hans.
Honum fannst hann vera á réttri
leið, meðan hann gat aukið við
þekkingu sína og spurt nýrra
spuminga um margslunginn til-
gang tilverunnar. Þessi heimspeki-
legi inngangur minn hefur ekki
síst að geyma þakklæti mitt til
míns góða frænda fyrir margar
ánægjulegar og krefjandi samræð-
ur.
Eins og flest systkina hans naut
Hannes ekki uppeldis foreldra
sinna sakir fátæktar þeirra. Hon-
um var komið nýfæddum í fóstur
til móðurbróður síns, Þorgríms
Stefánssonar, og konu hans, Guð-
rúnar Björnsdóttur, en þau bjuggu
að Syðra-Tungukoti (sem nú heitir
Brúarhlíð) í Blöndudal í Austur-
Húnavatnssýslu. Þar ólst Hannes
mmmmrnmm
1
«■>
#
ö
I
o
ita
..ekfc Bara BíómaBúd,
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tœkijæn
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafem 11, sími 568 9120
6
i
I
o
I
i
1
s
upp fram yfir fermingaraldur. Þar
sem aðstæður leyfðu aðeins tak-
markaða skólagöngu, tóku við
mörg ár brauðstrits við ýmiss kon-
ar störf, meðai annars starfaði
Hannes í eitt ár við svínarækt á
dönskum búgarði.
Árið 1949 stofnaði Hannes
fyrirtæki, sem hlaut nafnið Fín-
pússningargerðin. Þrátt fyrir ýmsa
tæknilega erfiðleika í byijun varð
þetta örlagaspor upphaf að marg-
víslegri tilrauna- og þróunarstarf-
semi, sem varð að birtingarformi
samspils hugar og handar. Hannes
hannaði til dæmis fyrsta búnað
hérlendis til að blása sandi upp á
hæðir á byggingarstað og gerði
síðar tilraunir með framleiðslu á
tilbúnum múrblöndum fyrir múr-
viðgerðir og múrverk. Enn fremur
skal getið einkaleyfis, sem Hannes
fékk fyrir vélar til spyrðubanda-
framleiðslu í fiskiðnaði, en þær eru
enn notaðar í Noregi.
Þrátt fyrir einlægan áhuga á
tæknilegum nýjungum vanrækti
Hannes aldrei hina andlegu spekt.
Heimspekilegar rökræður um upp-
haf og endi alls sem er og ást
hans á ljóðlist voru ávallt í fyrir-
rúmi þegar mig bar að garði. Hag-
mæltur var hann vel, eins og hann
átti kyn til. í vísum hans er góðlát-
leg stríðni aldrei langt undan, enda
naut hann mikillar hylli á samkom-
um og ferðalögum Húnvetningafé-
lagsins í Reykjavík, þegar skáldf-
áknum var hleypt.
Fróðleiksfús sem hann var hafði
hann mikið yndi af ferðalögum,
þó að takmörkuð tungumálakunn-
átta kæmi oftlega í veg fyrir nán-
ari kynni við innfædda. Norður-
landamálin' voru honum að vísu
engin hindrun, en róðurinn reynd-
ist þyngri, þegar kom að ensku
og þýsku. Hann sagði mér oft, hve
erfitt honum þætti að þurfa að
sætta sig við þetta hlutskipti.
Sigurlaug og hann fóru víða, m.a.
til ísraels og Grikklands, vöggu
vestrænnar heimspeki.
Ég vil þakka frænda mínum
gjöfular samverustundir og
skemmtileg kynni allt frá því að
ég var ungur drengur og naut
hvatningar hans. Eitt er og víst,
að móðir mín saknar sárlega kærs
bróður og vinar enda voru þau
afar samrýnd.
Að lokum flyt ég fjölskyldu
Hannesar einlægar samúðarkveðj-
ur.
Ásmundur Guðmundsson.
Skipholti 50 b - Sími 561 0771