Morgunblaðið - 24.11.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 43
O, Guð vors lands
PÓLÝFÓNKÓRINN syngur fyrir páfa í Páfagarði árið 1985,
undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar.
~Frá Fríðrik Eiríkssyni:
NÚ liggur fyrir frumvarp til laga
á Alþingi um að skipta um þjóð-
söng okkar íslendinga eða jafnvel
að fá „aðstoðar" eða yvara“ þjóð-
söng í staðinn fyrir Ö, Guð vors
lands, ó, lands vors Guð, eftir þá
Matthías Jochumsón og Svein-
björn Sveinbjörnsson. Er því hald-
ið fram að þjóðsöngurinn sé erfið-
ur til söngs, sem kannski má til
sanns vegar færa, en er hann þá
ekki þeim mun fegurri? Eg held
að það sé hæpið að láta hann víkja
á þessum forsenduin.
Þjóðsöngurinn okkar hefur svo
óendanlega mikla fegurð að flytja
að þar getur ekkert betra komið
í staðinn. Hið hrífandi samspil
ljóðs og tóna hefur snert hjörtu
okkar Islendinga frá upphafi okk-
ar unga lýðveldis og yrði það að
teljast óhappaverk ef þar yrði
breytt um.
Eg minnist þess þegar Pólýfón-
kórinn fór í söngferðalag til Italíu
árið 1985 og flutti þjóðsönginn
fyrir Jóhannes Pál II páfa í Páfa-
garði. Með okkur í förinni var
þýskur einsöngvari, Peter Christ-
oph Runge bassi, og söng^með
okkur bæði hér á landi og á Ítalíu
þar sem tónleikar voru haldnir.
Eftir að hafa sungið fyrir páfann
urðum við Rungs samferða niður
stigann framhjá svissnesku varð-
mönnunum úr lífvarðasveit hans
heilagleika. Þá segir Runge eitt-
hvað á þá leið að við íslendingar
séum ríkir að eiga slíkan þjóð-
söng. Hann hafí lengi vitað að
hann væri fagur, en slík dýrð og
lotning væri einsdæmi. Að ég vitni
í orð þessa fágaða þýska lista-
manns er að hugsanlega hefur
honum fundist nóg um hermanna-
marsa sem finnast sums staðar
sem þjóðsöngvar víða um heim.
Er það nú von mín og ósk að
ekki verði hróflað við þjóðsöng
okkar unga lýðveldis. Með þökk
fyrir birtinguna.
FRIÐRIK EIRÍKSSON,
fv. formaður Pólýfónkórsins,
Blikanesi 6, Garðabæ.
Vatn sem eldsneyti
Frá Sigfúsi B. Sigurðssyni:
ÉG rak upp stór augu þegar ég
opnaði Moggann á sunnudaginn
var er ég rakst á pistil með fyrir-
sögninni ;,aktu bílnum með vatni
aðeins“. Eg las þennan pistil með
athygli en ég hnaut um eitt mikil-
vægt atriði sem fyllti mig efa-
semdum. Ég vil því leggja hér
fram eina forvitnisspurningu: Er
hægt að nota litla orku t.d. eitt
KW til þess að framleiða meiri
orku svo sem 10, 50 eða 100 KW?
Rafalar í bílum (nú kallaðir altern-
atorar) framleiða í mesta lagi eitt
KW og þurfa til þess um 10%
meiri orku eða um það bil 1.1 KW.
Mér virðist sem með þessu sé að
skjóta upp kollinum gömlu hug-
æyndinni um eilífðarvélina, það
er að segja vél sem gengi fyrir
afli sem hún framleiði sjálf eftir
hendinni. Þetta minnir mig einnig
á um 60 ára gamalt atvik. Kunn-
ingi minn kom þá til mín og bað
niig að hjálpa sér við að koma í
framkvæmd mjög snjallri hug-
mynd. Hann hafði með sér 12
volta dýnamó og 6 volta startara
sem honum áskotnaðist úr gömlu
dóti. Hugmyndin var að láta start-
arann snúa dýnamónum eftir að
búið væri að koma þessu í gang
með rafgeymi. Eftir nánari athug-
un var hætt við þetta því það kom
• ljós að dæmið gat ekki gengið
upp.
Mér virðist þessi hugmynd um
vatnsbrennsluna vera af sama
toga, því að með því að notast við
eimsvala ætti að vera hægt að
nota sama vatnið endalaust.
Það væri nú fróðlegt ef einhver
gæti skilgreint það á þessum
sama vettvangi, hve mikla raf-
orku þarf til þess að kljúfa vatn
sem nægir til þess að fá nægilegt
vetni til að skila einni kílówatt-
stund, með brennslu í venjulegum
bílmótor.
Það má nefna það í þessu sam-
bandi að í hveiju kílói af bensíni
eru um það bil 150 grömm af
vetni, en það verður vitanlega að
vatni við brunann alveg á sama
hátt og þegar brennt er hreinu
vetni, en magnið er vitaskuld
minna.
E.Þ. varar við ryði og tæringa-
skemmdum sem hætt er við þegar
vetni er notað sem eldsneyti, en
það sama er uppi á teningnum
þegar bensíni eða olíum er brennt.
Á móti hveiju kg af bensíni sem
er brennt verða til 1,3 lítrar af
vatni. Við bestu skilyrði fer þetta
vatn beina leið út í andrúmsloftið
og veldur engum skaða, en ef
vélin fær ekki að hitna eðlilega
fellur vatnið út bæði inni í vél-
inni og í pústkerfinu, veldur
ótímabæru sliti á vélinni og tærir
upp pústkerfið á skömmum tíma.
Af þessu tilefni finnst mér því
rétt að benda bíleigendum á (hvort
sem þeir brenna bensíni eða vatni)
að það er óráðlegt að drepa á bíl-
vél nema að hún hafi áður fengið
að hitna upp í eðlilegan vinnuhita
en hann er venjulega talinn eiga
að vera 80-90°C. Þetta er sérlega
mikilvægt þegar bíl er lagt til
geymslu í lengri tíma.
SIGFÚS B. SIGURÐSSON,
Goðalandi 6, Reykjavík.
HAGSTOFA ÍSLANDS - ÞJÓÐSKRÁ
Er lögheimili yðar rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember.
Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum frá 1. janúar 1991 er lög-
heimili sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð
sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur
heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að
lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á
hverjum tíma.
Hvað er ekki föst búseta?
Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnu-
ferða og veikinda er ekki breyting á fastri búsetu og þar af
leiðandi ekki breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um dvöl
í gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistarskólum og fangelsum
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá
flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til.
Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu íslands -
Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykjavík. Tilkynningar
skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðum.
Hagstofa íslands - Þjóðskrá.
Skuggasundi 3,
150 Reykjavík,
sími. 560 9800, bréfsími. 562 3312.
Opið bréf
til allra barna og ungmenna
yngri en 18 ára
Frá Þórhildi Líndal:
ÉG HEITI Þórhildur Líndal og hef verið umboðsmaður barna
frá 1. janúar 1995. Hlutverk mitt er að gæta hagsmuna, þarfa
og réttinda ykkar á öllum sviðum samfélagsins. Mér ber að
stuðla að því að það, sem ykkur er fyrir bestu, sé ætíð haft
að leiðarljósi þegar verið er að taka ákvarðanir sem snerta
börn og ungmenni.
Sem umboðsmaður ykkar legg ég meðal annars áherslu á:
- að þið fáið vitneskju um réttindi og skyldur sem þig eigið
lögum samkvæmt
- að ykkur gefist kostur á að taka þátt í ákvörðunum er varða
málefni ykkar í samfélaginu almennt
- að þið séuð vernduð gegn hvers kyns ofbeldi, svo sem einelti-
og misþyrmingum.
Mér er ekki ætlað að leysa úr málum einstakra barna en
ég leiðbeini öllum þeim sem hafa samband um hvert unnt er
að leita til að fá úrlausn sinna mála.
Mikilvægur þáttur í starfi mínu, sem umboðsmaður ykkar,
er að koma á framfæri skoðunum ykkar og hugmyndum um
lífið og tilveruna. Ég hef því mikinn áhuga á að vita hvað
ykkur finnst um þjóðfélagið okkar, hvað þið eruð að hugsa
o g hveiju þið viljið breyta og bæta. Þess vegna langar mig til
að fá bréf frá ykkur þar sem þið segið mér hvað ykkur finnst
mikilvægt í lífinu. Skrifstofan mín er að Hverfisgötu 6, 5. hæð
í Reykjavík. Þið getið líka hringt, síminn er 552-8999 eða
800-5999.
>lóga.stöðiii Heimsljós býöur upp á opna tíma
i jóga og umbreytingardansi sem hér segir:
Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau.
06.55-07.55 Jón Ágúst Jón Ágúst Jón Ágúst
07.30-08.30 Áslaug Áslaug
10.3ail.45 Hulda Hulda Ymsir
12.15-13.15 Anna Guðfinna Jón Ágúst Guðfinna Ingibjörg Ýmsir
16.30-17.45 Guðfinna Jenný Nanna/dans Jenný
18.00-19.30 Ingibjörg Jón Ágúsl ingibjörg Jón Ágúst Guðfinna
20.00-22.00 Námskeið Námskeið Námskeið Námskeið Dans/ýmsir
Jógastödin Heimsljós . i
Ármúla 15,sími 588 4200 heimsljSs
Sértilboö til
London
28. nóvember kr. 29.270
Flug og hótel
Helga>ferS'
oieins lvinmMz
Tryggðu þer nu siðustu sætin
til London á lága verðinu í vetur, þessarar mestu heimsborgar
Evrópu. Viðbótargisting á Butlins hótelinu, sem hefur notið
mikilla vinsælda hjá farþegum okkar, enda skammt frá Oxford-
stræti. Öll herbergi eru með sjónvarpi, síma og baðherbergi.
Og að auki getur þú valið um fjölda annarra hótelvalkosta í
hjarta London.
Síðasta ferðin tilLondon í vetur
Verö kr. 17.570
Flugsæti. Verð með flugvallarsköttum,
mánudagur til fimmtudags í nóvember.
Verð kr. 29.270
M.v 2 í herbergi, Budins Hotel með
morgunverði, 28. nóvember, 3 nætur.
Skattar innifaldir.
Hvenær er laust?
25. nóv. - 11 sæti
28. nóv. - 9 sæti
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600