Morgunblaðið - 24.11.1996, Side 50
50 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRUMSÝNING: HÆTTUSPIL
Hörkutólið Van Damme (Hard Target", Timecop") og glæsipían Natasha Henstridge
(Species") sameinast í baráttunni gegn rússnesku mafíunni. Rússneska mafían mun aldrei ná
sér aftur eftir þessi hörkuátök. Hér er á ferðinni trylltur hasar með hreint ógleymanlegum
og ogsafengnum áhættuatriðum.
Sýnd í A-sai kl. 5, 9 og 11. Sýnd í B-sal kl. 3 og 7. B.i. 16 ára.
BALTASAR KORMAKUR • GISLI HALLDORSSON • SIGURVEIG JONSDOTTIR
★★★ M.R. Dagsljós
★★★★ A.E. HP
★ ★★ U.M. Dagur-Tíminn
★ ★★1/2S.V.Mbl
★ ★★1/2 H.K. DV
★ ★★ Ó.H.T. Rás 2
Vinsælustu sögur
síðani tíma á íslandi birtast í nýrri
stórmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson
Far- eða Gullkortshafar VISA c
bonka (á 25% AFÍ
\TT. Giliíír fynr tvo.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Sýnd í A-sal kl. 3 og 7.
Á báðum áttum
TÓNLIST
Gcisladiskur
ALLAR ÁTTIR
Allar áttir, geisladiskur Bubba
Morthens. Öll lög og textar á diskn-
um eftir Bubba Morthens. Á disknum
koma fram, Bubbi, Eyþór Gunnars-
son, Guðmundur Pétursson, Eðvarð
Lárusson, Samuli Kosminen, Celio
de Carvalho, Ólafur Hólm, Birgir
Baldursson, Þórður Högnason,
Þórir Baldursson, Veigar Margeirs-
son, Einar Jónsson, Ellen Kristjáns-
dóttir, Berglind Björk Jónasdóttir
og Einar Valur Scheving. Spor gefur
út og dreifir. Lengd. 47,36 mín.
Verð 1.999 kr.
ÞAÐ ER erfitt að hugsa til þess
að ekki hafí alltaf verið til Bubbi.
Sextán ára unglingar muna varla
jól án nýrrar plötu frá Bubba
Morthens og undrar það varla
nokkum að hann skuli senda plötu
frá sér fyrir þessi jól. Bubbi hefur
fiktað við flestar gerðir dægurtón-
iistar, allt frá pönki niður í djass
og þessi víðförli í tónlist einkennir
mjög plötuna Allar áttir eins og
nafnið ber kannski með sér, hún
inniheldur tíu lög og fæst þeirra
í sama stílnum, hún hefst á hryn-
rokki um bókelsku og endar á
charleston. Hún er að mörgu leyti
lík fyrstu plötu hans ísbjarnarblús
því hún var einnig mjög fjölbreytt
og samanburðurinn endar ekki þar
því söngstíllinn á plötunni minnir
um margt á fyrstu plötur Bubba
og jafnvel lagasmíðarnar, t.d.
hefði lagið Hveijum geturðu treyst
vel getað verið á plötunni Das
Capital fyrir tólf árum. Einnig
kemur Bubbi við nær í fortíðinni
í lögunum Þú ert ekki lengur og
Hann elskar mig ekki, en fyrra
lagið er litlaust og hefði mátt
missa sín á plötunni. En þar með
er ekki sagt að Bubbi hafi ekkert
nýtt fram að færa, greinileg þróun
er í lagasmíðum hans, hann hefur
auðvitað elst og þroskast, lögin
sjálf eru heilsteyptari og þéttari
en síðustu ár.
Það merkilega við Allar áttir
er að sá kraftur sem einkenndi
Bubba í upphafi og vakti athygli
á honum hefur fengið endurnýjun
lífdaga. Að mati undirritaðs hefur
ríkt lognmolla yfir tónlist Bubba
undanfarin ár, jafnvel metnaðar-
leysi. Lögin Hvetjum geturðu
treyst og Hvað er töff við það í
snöru að hanga? eru fersk og
kraftmikil, sérstaklega það seinna
þar sem ber við nýjan tón, einnig
ber að nefna Jarðarför Bjössa og
Sá sem gaf þér ljósið, besta lag
plötunnar og besta reggaelag sem
hljóðritað hefur verið hér á landi
að mati undirritaðs, einvalalið
hljóðfæraleikara gerir og plötuna
mun áheyrilegri, sérstaklega
trommuleikur Samuli Kosminen og
bassaleikur Jakobs Magnússonar.
Bubbi Morthens hefur alltaf
verið stórorður og sennilega er það
stærsti gallinn við hann sem tón-
listarmann, það hlýtur að borga
sig að vera hæfilega hógvær og
alhæfa ekki eða taka of djúpt í
árinni, það er og fráleitt að fyrsta
lag plötunnar heiti Ég elska bæk-
ur, það getur varla talist góð ís-
lenska að tala um að elska dauða
hluti, textar Bubba eru misjafnir,
flestir ágætir og einn mjög góður,
Jarðarför Bjössa, þá er einnig
skemmtileg tilvísun í sögu um
Sæmund fróða í laginu Röng borg.
Umslag Allra átta er illa hann-
að, myndirnar eru ágætar en það
er afleitt að textarnir, sem Bubbi
leggur áherslu á séu án allra grein-
armerkja og með mismunandi let-
urgerð, það slítur textana úr sam-
hengi og gerir leiðinlega lesningu.
Flest lögin á Öllum áttum
standa fyrir sínu hvert fyrir sig,
en það er erfitt að hlusta á plöt-
una sem heild. Lögin eru mörg
mjög ólík hvert öðru og platan því
fremur ósamstæð og hlustandinn
fær það á tilfinninguna að Bubbi
standi á krossgötum og viti ekki
hvert hann eigi að fara. Bubbi
sýnir að hann er ekki á þeim bux-
unum að gefast upp og er fjöl-
breyttari en flestir, en hann getur
ekki, og veit það vonandi sjálfur,
farið í allar áttir.
Gísli Árnason
tilboð kr. 400
Á4MBÍO
|THE
|THE
|THE
|THE
SNORRABRAUT 37, SIMI 552 5211 OG 551 1384
NETFANG: http://www.islandia. is/sambioin
AÐDAANDINN
Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony Scott (Crimson Tide,
True Romance, Top Gun). Róbert DeNiro fer hreinlega á kostum í
magnaðri túlkun sinni á geðveikum aðdáanda sem tekur ástfóstri
við skaerustu stjörnuna í boltanum. Spennan er nánast óbærileg
og hárin rísa á áhorfendum á þessari sannkölluðu þrumu!!!
Aðalhlutverk: Róbert DeNiro, Wesley Snipes, Ellen Barkin, Benecio
Del Toro og John Leguizamo.
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.20 í THX digital B.i. 12 ára.
★ ★ Taka 2
★ ★ Taka 2
f r
Sýnd kl. 1 og 2.45. ÍSLTAL
Sýnd kl. 5,7,9og 11.05. B.i. 16
Sýnd
og
Sýnd kl. 9 og 11. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 1 og 3.
- kjarni málsins!