Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 4
I 4 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 Vikan 24/11 -30/11 Sjávarútvegsrisi ► ÍSLAND gæti orðið við- Vestfj Ör ðltm? komustaður fíkniefnasmygl- ara á leið frá Bandaríkjun- um til meginlands Evrópu, að sögn lögregluforingja hjá alþjóðalögreglunni Interpol. Hann segir reynsluna sýna að alltaf verði hluti fikniefna eftir í viðkomulöndum smyglara og því gæti heróín náð fótfestu og framboð kókaíns aukist. ► ÍSLENSKA landsliðið i handknattleik sigraði Dani sl. miðvikudag með 27 mörkum gegn 21 í fyrri leik iiðanna í undankeppni Heimsmeistaramótsins. Síðari leikurinn er í dag. VEGASAMBANDI var komið á um Skeiðarársand á miðvikudag. Við það tækifæri þakkaði sam- gönguráðherra vegagerð- armönnum góð störf við að bjarga mannvirkjum og við að koma vegasambandi á til bráðabirgða. ► Á VEGUM ríkisstjórn- arinnar er verið að meta til hvaða aðgerða gæti þurft að grípa til að draga úr þensluáhrifum sem framkvæmdir við nýtt ál- ver Columbia Ventures á Grundartanga gætu valdið á næstu misserum. !► FÉLAGSFUNDUR Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna samþykkti nær einróma í fyrradag að breyta félaginu í hluta- félag frá og með næstu áramótum. ► ELDINGAVARI við spennistöð á Geithálsi rauf straum frá henni á þríðju- dag og varð rafmagnslaust i nær allri Reykjavík, Kópa- vogi og Garðabæ í 15-20 mínútur og sumsstaðar i allt að klukkustund. SEX sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörð- um hafa að undanfömu átt í óformleg- um viðræðum um möguleika á sam- starfí eða sameiningu. Fyrirtækin eru Frosti hf. i Súðavík, Hraðfrystihúsið hf. og útgerðarfélagið Miðfell hf. í Hnífsdal, Bakki hf. í Hnífsdal og Bakki Bolungarvík hf., Kambur hf. á Flateyri og loðnuverksmiðjan Gná hf. í Bolung- arvík. Sameinað yrði félagið í hópi allra stærstu sjávarútvegsfyrirtækja lands- ins, með 15 til 16 þúsund þorskígildis- tonn í aflaheimildum. íslendingnr út í geim ÁKVEÐIÐ hefur verið að Bjami Tryggvason geimfari taki þátt í leið- angri bandarisku geimfeijunnar Discovery sem skotið verður á loft 17. júlí á næsta ári. Verður það fyrsta ferð Bjama út í geiminn. Hann fæddist í Reykjavík 1945 en fluttist sjö ára gam- all með foreldrum sfnum til Kanada. Ekki forkaupsréttur STJÓRNARMENN í fyrirtækjum sem Þróunarsjóður sjávarútvegsins á eign- arhlut í teljast ekki til starfsmanna fyrirtækjanna og eiga þar af leiðandi ekki forkaupsrétt að eignarhlutum í félögunum. Þetta er álit lögfræðings sem sjóðurinn óskaði eftir en stjómar- mönnum í Búlandstindi hf. á Djúpavogi og Meitlinum hf. í Þorlákshöfn var boðinn forkaupsréttur við sölu eignar- hluta Þróunarsjóðs í þessum félögum. Tilskipun ekki í gildi VINNUTÍMATILSKIPUN Evrópusam- bandsins tekur ekki gildi hér á landi 1. desember eins og ætlast hefur verið til. Aðilar vinnumarkaðarins hafa ekki náð saman um málið en félagsmálaráð- herra vill láta reyna á samninga svo ekki þurfi að innleiða tilskipun ESB með lagasetningu. Ófær flugvöllur FLUGRÁÐ telur að ástand Reykjavík- urflugvallar sé svo alvarlegt við ákveðnar aðstæður að takmarka þyrfti umferð um flugvöllinn. Bréf þessa efn- ■is hefur verið sent samgönguráðherra. Nýtt þing stofnað í Hvíta-Rússlandi ÞINGMENN hollir Alexander Lúkas- henko, forseta Hvíta-Rússlands, komu á fót nýju þingi á þriðjudag og lýstu allir yfir stuðningi við forsetann eftir að tillögur hans um breytingar á lög- gj afarsamkundunni vora samþykktar í þjóðaratkvæða- greiðslu á sunnudag. Andstæðingar forset- ans á gamla þinginu, sem era mun færri en fulltrúamir á nýja þinginu, sögðu at- kvæðagreiðsluna ólögmæta og höfnuðu nýja þinginu. Tvö þing störfuðu því í landinu þar til lög- reglan lét til skarar skríða á fimmtudag og kom í veg fyrir að fulltrúamir á gamla þinginu kæmust inn í fundarsal- inn í Minsk sem þeir hugðust nota. Rússar gáfu í skyn að þeir teldu þjóð- aratkvaaðagreiðsluna lögmæta en Ör- yggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÓSE, hafði áður lýst hana ógilda vegna misnotkunar forsetands á völdum sínum í aðdraganda hennar. Afsagnar Milosevic krafist í Belgrad TUGIR þúsunda manna hafa komið saman á aðaltorginu í Belgrad í Serbíu síðustu daga til að mótmæla einræði sósíalista og Slobodans Milosevic for- seta. Mótmælin hófust þegar Milosevic lét ógilda borgar- og bæjarstjómakosn- ingar þar sem andstæðingar forsetans höfðu borið sigur úr býtum. Mótmæl- endumir kröfðust þess í fyrstu að úrslit kosninganna yrðu viðurkennd en síðar lögðu þeir áherslu á þá kröfu að Milosevic færi frá. Leiðtogar kosninga- bandalags stjómarandstöðuflokkanna og verkalýðsfélög sögðust vera að und- irbúa verkföll og aðrar aðgerðir til að leggja áherslu á kröfur sínar. ► VERKFALLSAÐGERÐ- UM franskra vörubílsljóra lauk að mestu á föstudag eftir að þeir undirrituðu samkomulag við atvinnu- rekendur um Iækkun eftir- launaaldurs og aukagreiðsl- ur. Aðgerðimar höfðu þá staðið T tólf daga og vom farnar að lama atvinnulifið. Alain Juppé forsætisráð- herra fagnaði lokum verk- fallsins og sagði að náðst hefði viðunandi niðurstaða. ► DANSKIR flutningabíl- stjórar samþykktu á fimmtudag málamiðlunar- tillögu sem stjórnin lagði fram til að binda enda á verkfall þeirra sem hófst á mánudag. Komið var til móts við þá kröfu bílstjór- anna að skattafrádráttur þeirra yrði hækkaður. Út- flyljendur urðu fyrir skaða vegna verkfallsins og farið var að bera á vöraskorti í dönskum verslunum. ► ÁSAKANIR um skattsvik og skjalafals knúðu Terje Rad-Larsen, skipulagsmála- ráðherra Noregs, til að segja af sér á miðvikudag. Afsögnin var mikið áfall fyrir stjóm Thorbjerns Jag- lands forsætisráðherra. ► KENNETH Clarke, fjár- málaráðherra Bretlands, lagði fram nýtt fjárlaga- framvarp á þriðjudag og þar er gert ráð fyrir að grunnþrep tekjuskatts verði lækkað úr 24% í 23% og að framlög til skóla, sjúkra- húsa og lögreglu yrði hækk- uð. Fréttaskýrendur sögðu frumvarpið bæri því vitni að kosningar yrðu í maí. ________________________MORGUNBiAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg JARÐGÖNGIN eru orðin samtals um 1.850 metra löng, en samtals veröa þau 5.700 metrar. Mjög lítill leki er í Hvalfjarðargöngum Lengjast um meira en 100 metra á viku Langsnið eftir Hvalfjarðargöngum (horft inn fjörðinn) Norðan fjarðar við Hólabrú/ Sunnan fjarðar við Saurbae að sprengja liðlega 900 m að norðanverðu og liðlega 900 metra að sunnanverðu I--150 012345 6km JARÐGÖNGIN verða tæplega 5,8 km löng og liggja dýpst 165 m undir yfirborði sjávar. Þrjár akreinar verða á veginum í göngunum að norðanverðu, en tvær að sunnanverðu. HERMANN Sigurðsson er stöðvarsljóri Fossvirkis við Hvalfjarðargöng. FRAMKVÆMDIR við Hvalfjarðar- göng hafa gengið mjög vel síðustu þijár vikur. Göngin hafa lengst um meira en 100 metra á viku. Hermann Sigurðsson, stöðvarstjóri Fossvirkis við Hvalfjarðargöng, segir að ef verk- ið gangi áfram eins vel sé raunhæft að gera ráð fyrir að gangagerðinni verði lokið fyrir áramót 1998, en í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að göngin yrðu opnuð 1. mars 1999. Nú eru starfsmenn Fossvirkis bún- ir að bora um 30% af göngunum. Lokið er við að bora liðlega 900 metra hvora megin eða samtals um 1.850 metra. Sunnanmegin era bor- menn komnir um 300 metra frá fjöruborði. Þeir sem bora að norðan- verðu eru enn ekki famir að vinna undir sjó, en það gerist fljótlega eft- ir áramót. Núna fer vinnan fram um 70 metrum undir sjávarmáli, en lægsti punktur í göngunum er 175 metra undir sjávarmáli. Tilbúin eftir tvö ár Hermann sagði að framkvæmdir hefðu gengið mjög vel síðustu þijár vikumar. Að jafnaði hefði verið sprengt 10-13 sinnum á viku beggja vegna. í hverri sprengingu eru 5 metrar sprengdir í einu. Hann sagði að rannsóknir sem gerðar voru áður en framkvæmdir hófust hefðu gefið til kynna að búast mætti við leka í berginu á kafla við flöraborðið sunn- an megin. Það hefði komið á daginn, en þó hefði lekinn alls ekki verið meiri en búist var við. Á þessum kafla hefði þurft að bora holur til að styrkja bergið áður en sprengt var, en það tefði vinnuna. Að undan- förnu hefði enginn leki verið í berg- inu og verkið gengi því mjög vel. Almennt mætti segja að leki í göngunum væri minni en búist var við. Hermann sagðist ekki gera ráð fyrir að sami hraði yrði á verkinu allan tímann eins og verið hefði síð- ustu vikumar. Vinna við jarðganga- gerð væri háð mörgum óvissuþátt- um, sem hver um sig gæti tafið vinn- una. Hann sagðist þó telja raunhæft að gera ráð fyrir að göngin yrðu til- búin til notkunar fyrir árslok 1998 eða eftir tvö ár. Væntanlega yrði boran lokið á næsta vetri. Vegtenging hafin 75 menn vinna við gerð jarðgang- anna í vetur. Unnið er 20 klukkutíma á sólarhring sjö daga vikunnar. Starfsmönnum fjölgar í sumar þegar bygging vegskála hefst. Vinna við tengingu ganganna við vegakerfið er hafin að norðanverðu og hefst f sumar sunnan við Hvalfjörð. Gijót úr göngunum verður notað í vega- gerðina, en samtals verður u.þ.b. 600.000 rúmmetram af grjóti mokað úr göngunum. Talsvert hefur verið rætt um ör- yggismál í jarðgöngum og hættu af eldsvoðum m.a. vegna óhapps sem varð í Ermarsundsgöngunum fyrir nokkrum vikum. Hermann sagði að eldvarnir í jarðgöngunum yrðu eftir norskum stöðlum, en þeir era meðal þeirra ströngustu í heimi. Hann sagði að Norðmenn hefðu mikla reynslu í jarðgangagerð og líklega væru hvergi í heiminum eins mörg jarð- göng og þar. Hann sagði að enginn eldsmatur væri í jarðgöngunum og því engin hætta á að eldur breiddist út. Eina hættan væri að eldur kæmi upp í farartækjum niðri í göngunum og til að bregðast við því yrðu slökkvitæki í göngunum. Ekki væri áformað að setja upp slökkvistöð við göngin. 500 kíló af sprengiefni Þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins skoðuðu jarðgöngin að sunnanverðu á föstudag var verið að ljúka við borun á næsta fímm metra kafla. Borvélinni má líkja við kolkrabba. Hún borar þijár holur í einu með þremur örmum og fjórði armurinn er með körfu á endanum sem sprengimaðurinn notar til að troða sprengiefni í holurnar. Boraðar era tæplega 100 holur í bergið og troðið í þær 500-600 kílóum af sprengiefni. Það eru því mörg tonn af sprengiefni sem notuð eru við gerð ganganna. Áður en sprengt er fara allir starfsmenn út úr göngunum. Það er gert í öryggisskyni, en einnig vegna þess að mikill þrýstingur kemur frá sprengingunni sem getur farið illa með hljóðhimnur í fólki. Það kom blaðamanni á óvart að heyra að kveikt er á sprengiþræðinum með eldi en ekki rafmagni. „Það er ein- faldlega kveikt á sprengiþræðinum og svo er hlaupið,“ sagði Hermann. Hann bætti við að viðkomandi starfs- maður hefði reyndar bíl til taks til að forða sér í. Þegar einn bormanna kveikti sér í vindli með bros á vör taldi blaða- maður tíma kominn til að forða sér. i i I i l i i i I I I I Í I I 4-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.