Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 56
Póstleggið jólabögglana tímanlega til fjarlœgra ; lanaa. póstur og sími MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SlMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆH 1 <e> AS/400 er... ...þar sem grafísk notendaskil eru í fyrirrúmi <n> NYHF.RJI SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Auknar vinsæld- ir vetrar- ferða ÁRAMÓTAFERÐIR hingað til lands njóta aukinna vinsælda og er að verða uppselt í ferðir Flugleiða frá Bandaríkjunum um komandi áramót. Undanfarnar tvær helgar hefur verið birt hálfsíðuauglýsing frá Flugleiðum í ferðablaði The New York Times, þar sem auglýstar eru femskonar vetrarferðir til íslands. Auglýsingin var birt í samvinnu við Liberty Travel, sem er stærsta ____ ferðaskrifstofukeðjan á austurströnd : Bandaríkjanna. Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður forstjóra Flugleiða, segir tilgang auglýsingarinnar þrí- þættan; að halda nafni Flugleiða á lofti, að markaðssetja vetrarferðir hingað til lands og að styrkja tengsl- in við ferðaskrifstofukeðjuna Liberty Travel. Góð svörun við auglýsingum Birting auglýsingarinnar kostaði um 35 þúsund dollara í hvort skipti eða alls rúmar 4,6 milljónir íslenskra — króna. „Við höfum nú þegar orðið varir við mjög góða svörun og það má heita uppselt í áramótaferðina. Það hefur líka verið heilmikið um hringingar og fyrirspumir vegna hinna ferðanna en við vitum ekki enn hvað það verður í bókunum talið,“ segir Einar. Meðal þess sem boðið er upp á í áramótaferðinni er hátíðarkvöldverð- ur á gamlárskvöld og akstur með ieiðsögn á milli brenna og flugelda- sýninga í borginni. Einar tekur fram að nú bjóði Flugleiðahótelin upp á fulla þjónustu um áramót, þannig að allir ættu að geta fengið að borða. Ferðaþjónustan að vakna Á Hótel Sögu hefur allt verið full- ' bókað síðastliðin fimm áramót, að sögn Friðriku Hjörleifsdóttur, mót- tökustjóra í gestamóttöku. Hún segir fyrirtæki í ferðaþjón- ustu hafa verið að vakna og að þjón- ustan yfir jól og áramót hafí batnað mikið að undanfömu. „Veitingastað- imir eru að átta sig á því að við erum með ferðamenn í landinu sem þurfa að borða - líka á hátíðum," segir Friðrika að lokum. Morgunblaðið/RAX KOBBI útselskópur virtist ánægður með lífið og tilveruna með Denna fóstra sínum í Vík í Mýrdal. Þar hefur hann dvalið frá því í Skeiðarárhlaupi. Kóp- Kobbi kópur í Vík urinn fékk að synda í læknum, en þoldi stutt við þar sem hann var enn þá í fæðingarhárunum. ■ Um kópinn Kobba/16-17B * I gæsluvarðhaldi vegna alvarlegs kynferðisbrots á Akureyri Misnotaði og tók myndir af þremur stúlkubörnum MAÐUR á sextugsaldri sem setið hefur í gæsluvarðhaldi á Akureyri síðustu daga hefur játað að hafa miðlað klámefni af börnum til ann- arra um alnetið. Við húsleit á heim- ili hans fannst myndband þar sem maðurinn hefur kynferðismök við stúlkubörn á Akureyri. Hann hefur játað að hafa gælt kynferðislega við þrjár ungar stúlkur á Akureyri. Maðurinn var handtekinn 19. nóv- ember síðastliðinn, grunaður um kynferðislega misnotkun á stúlku- börnum og tveimur dögum síðar var hann úrskurðaður í 10 daga gæslu- varðhald í héraðsdómi Norðurlands eystra. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var framlengdur um 45 daga eða til 13. janúar nú á föstudag. Klám á alnetinu Ábendingar um athæfi mannsins höfðu borist til lögreglu á Akureyri en ungt par í bænum sem hafði haft samskipti við hann í gegnum spjallrás á alnetinu tók eftir að hann var alloft inni á rás þar sem hægt er að nálgast barnaklám. Þau færðu þetta í tal við kunningjakonu sína sem kannaðist við manninn og vissi af því að hann hafði á stundum gætt barna fyrir fólk í nágrenninu. Lögreglu var gert aðvart og maður- inn í kjölfarið færður til yfirheyrslu. í framhaldi af handtöku var gerð húsrannsókn á heimili hins grunaða þar sem fannst mikið magn af mynd- bandsspólum með klámefni svo og tölvudisklingar með klámmyndum, þar á meðal barnaklámi. Kynferðismök á myndband Samkvæmt upplýsingum rann- sóknardeildar lögreglunnar á Akur- eyri hefur maðurinn við yfirheyrslur játað að hafa miðlað klámefni af börnum til annarra á alnetinu og er sá framburður hans studdur fram- burði vitna í málinu. í þeim gögnum sem lögregla lagði hald á við rann- sókn málsins fannst myndband þar sem maðurinn hefur kynferðismök við stúlkubörn. Hann hefur við yfir- heyrslur játað að hafa „gælt“ kyn- ferðislega við þijár stúlkur sem eru á aldrinum 7, 8 og 9 ára. Það efni sem lögregla lagði hald á í íbúð mannsins er mjög mikið og tímafrekt að fara yfir það, en rann- sókn þessa máls stendur enn yfir. Járnblendifélagið Stjórn- arfundi frestað STJÓRNARFUNDI í íslenska járn- blendifélaginu hf. um hugsanlega stækkun verksmiðjunnar, sem boð- aður hafði verið 5. desember nk., hefur verið frestað um nokkrar vik- ur. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði að ástæðan væri sú að eigendur fyrirtækisins þyrftu lengri tíma til að ræða saman. Ekki hefði þótt rétt að halda fund fyrr en allir þættir málsins lægju fyrir. Finnur sagði að þessi frestun hefði engin áhrif á efnislega niður- stöðu málsins. Unnið hefði verið mjög vel af hálfu stjórnar og fram- kvæmdastjóra að því að undirbúa hugsanlega stækkun verksmiðjunn- ar og sú vinna væri að komast á lokastig. Endanleg ákvörðun um stækkun verksmiðjunnar hefði hins vegar ekki verið tekin. „Afstaða íslenskra stjórnvalda er alveg skýr. Við leggjum höfuð- áherslu á að það verði tekin ákvörð- un um stækkun verksmiðjunnar. Ástæðan er sú að hagkvæmni fyrir- tækisins eykst mjög mikið við stækkun. Það verður miklu sam- keppnishæfara eftir slíka breytingu en fyrir hana. Að auki þýðir stækk- unin að við erum að auka hér út- flutningsverðmæti,“ sagði Finnur. Finnur sagðist ekki geta svarað því hvenær ákvörðun yrði tekin. --------♦ ♦ ♦--- Milljónatjón í eldsvoða á Akranesi ELDUR kom upp við gamla kæli- geymslu HB á Akranesi í gærmorg- un. Að sögn Haraldar Sturlaugsson- ar framkvæmdastjóra er tjónið talið nema nokkrum milljónum króna. Vindátt var hagstæð þannig að eld- urinn náði ekki í nýtt frystihús sem þar stendur nærri. Kæligeymslan sem brann var áður í eigu Krossvíkur en það fyrirtæki sameinaðist Haraldi Böðvarssyni hf. fyrr á árinu. Við hlið geymslunnar var bifreiðaverkstæði sem einnig brann en mestur varð eldurinn í á þriðja þúsund fiskikörum sem stóðu utan við húsið. Var þar mikið bál þegar komið var að kl. 6 í gærmorg- un. í kæligeymslunni var saltfisk- marningur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.