Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
í**s(^K^S3(Sö4!íífit»^«f«5S^
Frábært
dagana
1.-3. def
Barnabox:
Hamborgari,
franskar,
Pepsiglas
og glaðningur
fyrir börnin.
«j5SS£»»
k«.
Hamborgarar kr. 150
Píta m/grænmeti kr. 200
Píta m/buffi kr. 250
Lítið Pepsiglas kr. 50
PÍTAN
Skipholti 50c, sími 568 8150
LISTIR
Lög Sigvalda Kaldalóns
TÓNLEIKAR með lög-
um Sigvalda Kaldalóns
verða „Við slaghörp-
una“ í Listasafni
Kópavogs mánudaginn
2. desember og þriðju-
daginn 3. desmber og
hefjast þeir bæði
kvöldin kl. 20.30.
Sigrún Hjálmtýs-
dóttir sópran og Óskar
Pétursson tenór flytja
fjölda sönglaga tón-
skáldsins og auk þeirra
koma fram Björgvin
Þórðarson tenór, Frið-
björn G. Jónsson tenór,
Eiríkur Hreinn Helga-
son baríton, Kristinn
Hallsson bassi og hópur söng-
manna er skipa kór sem ekki hefur
enn fengið nafn.
Við píanóið verður
Jónas Ingimundarson
sem hefur sett efnis-
skrána saman og ann-
ast_ undirbúning.
A þessu ári eru
fimmtíu ár liðin frá
andláti Sigvalda Stef-
ánssonar Kaldalóns
tónskálds. Hann fædd-
ist 1881 og lést 1946.
Jóhannes úr Kötlum
ritaði minningargrein
um Sigvalda og þar
segir meðal annars:
„Margt ár hefur
nafn hans verið tengt
dýrasta hljómi þess lífs
sem okkar litla þjóð
hefur verið að reyna að skapa í
umkomuleysi sínu. Hann kom inn
í hina nýju menningarbaráttu vora
eins og sá fugl sem íslensk barns-
hjörtu hafa jafnan þráð heitast um
aldir: hann kom eins og lóan eftir
langan og harðan vetur og allir
fundu að nú var komið vor.
Vart mun finnast sú sál á Is-
landi, að hún hafi ekki einhverju
sinni orðið snortin af söngvum
hans, vart sú rödd sem ekki hefur
reynt að taka undir þá. Eins og
mild kveðja vorboðans hafa þeir
borist efst upp í dali, yst út á nes,
bóndinn hefur raulað þá yfir fé,
sjómaðurinn á vaktinni, heimasæt-
an á meðan hún beið unnusta síns.
Þetta eru tónar alþýðunnar í upp-
hafi norræns blóma, yljaðir af
hjartaglóð snillingsins. Þetta eru
tónar, sem allir skilja og eiga og
þess vegna geta þeir ekki dáið.“
Verð aðgöngumiða er 1.000 kr.
og verða þeir seldir við innganginn.
Sigvaldi
Kaldalóns
Einar sýnir
pastelmyndir
ÞESSA dagana stendur yfir mynd-
listarsýning Einars Emilssonar í
Félagsmiðstöð BSRX, Grettisgötu
89 í Reykjavík. Myndirnar eru all-
ar pastelmyndir og er þetta fyrsta
einkasýning Einars.
Einar er fæddur á Seyðisfirði
1952 og bjó þar til ársins 1977
en þá flutti hann til Dalvíkur þar
sem hann býr nú. Einar er lærður
húsasmiður og vann við þá iðn í
nokkur ár, en er nú starfsmaður
íþróttamannvirkja Dalvíkurbæjar.
Einar sótti myndlistamámskeið
hjá Erni Inga, fjöllistamanni á
Akureyri veturinn 1994-1995 en
er að öðru leyti sjálfmenntaður í
myndlistinni. Auk þessarar fyrstu
einkasýningar tók Einar þátt í
samsýningu myndlistarmanna á
Vorkomu Lionsklúbbsins á Dalvík
í maí s.l.
Sýning Einars verður opin á
skrifstofutíma fram til 15. desem-
ber og er öllum opin.
Sýningin Tukt
framlengd
SÝNINGIN Tukt í fangelsinu Síðu-
múla 28 hefur verið framlengd til
8. desember. „Góð aðsókn hefur
verið að sýningunni, þar sem 16
listamenn sýna innsetningar í jafn-
mörgum klefum," segir í kynningu.
Sýningin er opin frá kl. 16-20
virka daga, en frá kl. 14-18 um
helgar. Aðgangseyrir er 200 kr.
fyrir 16 ára og eldri, þar af renna
50 krónur til Vemdar - fanga-
hjálpar.
Sýningu Ásdís-
ar og Ófeigs
að ljúka
SAMVINNA er heiti á sýningu
þeirra Ásdísar Birgisdóttur textíl-
hönnuðar og Ófeigs Bjömssonar
gullsmiðs í listhúsi Ófeigs, Skóla-
vörðustíg 5, en þar spinna þau
saman klæði úr íslenskri ull og
skartgripum.
Sýningin er opin frá kl. 10-18
virka daga og kl. 11-16 um helg-
ar. Sýningunni lýkur 4. desember.
#»
Jólin komin í
Glæsibæ!
í dag 1. desember eru allar verslanir í
Glæsibæ opnar til 17.00 og verslunin
10-11 opin til 23.00 eins og alla daga.
í tilefni fullveldisdagsins og fyrsta sunnudags í aðventu
verður ykkur boðið upp á skemmtun í Glæsibæ:
Blásarasveit úr skólahljómsveit Mosfellsbæjar kl. 14.30
Fílharmoníukór Grensáskirkju.............kl. 15.00
Fyrir yngstu kynslóðina:
Jólasveinar koma í heimsókn...............kl. 15.30
Litir og litabækur á kaffisvæðinu
Sjónvarpshorn
Uppákomur allar helgar í desember og eitthvað
sniðugt fyrir börnin!
ATOREIÐSLUTfMI í DESEMBER
taugardaginn ]4_ des
Sunnudaginn 15. des.
Midvikudaginn 18. des.
fimmtudaginn 19. des
Föstudaginn 20. des
taugardaginn 27, des
Sunnudaginn 22. des
borláks messu 23. des
^ófangadag 24. des.
kl. 17.00
kl. 20.00
kl. 17.00
kl. 20.00
k1.22.00
kl. 22.00
kl. 22.00
kl. 22.00
kl. 23.00
kl. 12.00
ÍJHÆSIBÆR
ÁLFHEIMUM 74
Nceg bílastæði vestan við húsið (móts við TBR húsið).