Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR I. DESEMBER 1996 35
FRIÐRIKKA MILLÝ
MÚLLER
+ Friðrikka Millý
Miiller fæddist í
Skógarkoti í Þing-
vallasveit 8. nóvem-
ber 1907. Hún lést
á heimili sínu í
Reylqavík 13. des-
ember 1995 og fór
útför hennar fram
21. desember.
Þegar ég kom heim
eftir dvöl erlendis frétti
ég um andlát gamallar
vinkonu minnar, Millýj-
ar Miiller.
Það var árið 1954 þegar ég tók
við starfi sem umsjónarmaður
mjólkurbúða Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík, að ég kom meðal annars
í litla mjólkurbúð vestarlega á Vest-
urgötunni fyrsta daginn. Þar var
þá forstöðukona búðarinnar fullorð-
in kona, nokkuð orðin gráhærð,
kvik á fæti og glaðleg. Hún tók vel
á móti mér og félagi minn sem með
mér var kynnti okkur. Sagðist hún
heita Millý Muller. Þetta nafn hafði
ég aldrei heyrt áður. Þetta var upp-
haf að löngu og ánægjulegu sam-
starfi okkar, eða í 22 ár.
Eftir að búðin á Vesturgötunni
var lögð niður vann Millý í mjólkur-
búðinni á Hjarðarhaga 47, einnig
þar forstöðukona. Öll
þessi ár kom ég á hveij-
um degi í búðina til
hennar, meðal annars
vegna uppgjörs frá
deginum áður.
Millý var sérstök
kona. Hún hafði góða
skapgerð, var ætíð létt
og glaðleg og lipur af-
greiðslukona. Það var
alltaf heitt á könnunni
fyrir þá sem keyrðu til
hennar vörur daglega.
Enginn mátti fara án
þess að fá heitt í kaffi-
bollann, og það var
þegið með ánægju. Mjólkurbúðin
var alltaf í toppstandi hjá Millýju,
enda var hún mjög nákvæm og
snyrtileg með afbrigðum.
Millý var samviskusöm og hlið-
holl sínum húsbændum, heiðarleg í
fyllsta máta og útkoma búðarinnar
alla tíð með því besta sem þekktist.
Þar fór saman hugur og hönd.
Millý var árrisul kona, komin í
búðina venjulega klukkustund fyrir
opnun, búin að setja allt í stand,
mjólkurvörur fram í búðina úr kæl-
inum og aðrar vörur í hillur áður
en samstarfskonur hennar mættu í
búðina. Svo var náttúrlega kaffíilm-
urinn úr bakherberginu úr ijúkandi
kaffikönnunni.
GUÐRÚN
| KRISTINSDÓTTIR
+ Guðrún Krist-
insdóttir fædd-
ist á Patreksfirði
15. nóvember 1927.
Hún lést í Reykja-
vík 24. nóvember
siðastliðinn. For-
eldrar Guðrúnar
voru Jóhanna Lár-
usdóttir og Krist-
inn Jóhannesson.
Guðrún átti tvo
bræður sem báðir
eru látnir.
Útför Guðrúnar
fer fram frá Foss-
vogskirkju mánu-
daginn 2. desember og hefst
athöfnin klukkan 10.30.
Ekki átti ég von á því þegar ég
kvaddi Guðrúnu laugardaginn 23.
nóvember að það yrði í síðsta skipti
sem við kveddumst í lifanda lífí.
Sú var hinsvegar reyndin því að
morgni dagsins eftir yfirgaf hún
þetta jarðlíf. Við sem höfðum á
þessari síðustu samverustund okk-
ar lagt á ráðin um svo margt sem
við ætluðum að gera saman fyrir
jólin. Ótal minningar leita á hug-
ann þegar litið er yfír farinn veg.
Stundir okkar saman voru margar
og ánægjulegar enda var Guðrún
traustur vinur sem hægt var að
tala við um allt milli himins og
jarðar. Eg er þakklát fyrir að hafa
fengið tækifæri til að kynnast
Guðrúnu. Leiðir okkar lágu saman
veturinn 1988 og mér fannst frá
fyrstu stund eins og ég hefði þekkt
Guðrúnu allt mitt líf. Mér fannst
eins og strax mynduðust óijúfan-
leg tengsl milli okkar.
Guðrún þurfti á síð-
asta hluta ævi sinnar
að glíma við mikil
veikindi. Ekki var fyrir
að fara kvörtunum hjá
henni, jafnvel þó aug-
ljóst væri að líðanin
væri ekki góð. Guðrún
tók veikindum sínum
með þeim verkjum og
vanlíðan sem þeim
fylgdu með jafnaðar-
geði.
Fyrir mér varð Guð-
rún strax eins og ein
úr ijölskyldunni. Dótt-
ir mín á ætíð eftir að sakna Guð-
rúnar „ömmu“ eins og hún kallaði
hana. Guðrún var henni einstak-
lega góð. Af mörgum samveru-
stundum með Guðrúnu er það
kannski eftirminnilegst er hún fyr-
ir 3 árum lagði land undir fót og
heimsótti mig og fjölskyldu mína
til Belgíu þar sem við vorum bú-
sett. Til Brussel skyldi hún komast
í jólafrí hvað sem tautaði og raul-
aði þrátt fyrir öll sín veikindi, til
að dveljast hjá okkur ásamt for-
eldrum mínum um rúmlega mán-
aðartíma. Þetta gerði Guðrún og
naut sín vel enda hafði hún mikla
ánægju af því að ferðast.
Guðrún var félagslynd og glað-
lynd manneskja, einlæg og hrein
og bein í samskiptum sínum við
fólk. Ég mun í hjarta mínu ætíð
geyma ljúfar minningar um Guð-
rúnu Kristinsdóttur. Þær minning-
ar munu verða mér sem gull sem
aldrei fellur á.
Snædís Anna Hafsteinsdóttir.
MISMNINGAR
Samstarf okkar Millýjar var með
ágætum og féll þar aldrei skuggi
á. Ég kallaði hana oft mömmu og
ekki að tilefnislausu, slík var fram-
koma hennar við mig sem þessar
línur skrifa og er hún með bestu
persónum sem ég hefí kynnst.
Eftir að mjólkurbúðir MS voru
lagðar niður vann Millý nokkur ár í
Hagabúðinni við Hjarðarhaga og sá
þar um mjólkurvörumar í búðinni,
og þar var sama umhyggjan fyrir
því að allt færi vel fram. Það var
óhætt að trúa henni fyrir hlutunum.
Síðustu árin átti Millý heima að
Austurbrún 6 í Rvík, og þar heim-
sótti ég hana nokkmm sinnum og
hlaut þar góðar móttökur og veit-
ingar. Kökurnar hennar voru af-
bragð.
Millý var mjög hjálpsöm og marg-
ir voru þeir sem hún rétti hönd við
ýmis tækifæri.
Eitt lítið atvik vil ég geta um sem
sýndi áhuga hennar á starfinu. Það
var að sumarlagi að kvöldi dags kl.
9, þá hringdi síminn heima hjá mér
og í símanum var Millý. Hún spyr
mig hvort sé kvöld eða morgunn og
hlær mikið í símanum. Ég sagði
henni að það væri kvöld. Þá hlær
hún enn meir, svo ég spyr hvað sé
að. Þá segir hún mér frá að þegar
hún hafi komið heimi til sín úr vinn-
unni kl. 7 hafi hún lagt sig og sofn-
að, vaknað svo kl. hálfníu og beðið
guð að hjálpa sér því nú væri hún
orðin of sein í vinnuna, og strax af
stað út í búðina, opnað hana uppá
gátt sett vörumar fram í búðina og
allt tilbúið til afgreiðslu. Svo segist
hún ekkert skilja í því að það kemur
enginn inn til að versla og engir á
ferð á götunni, farið svo að hugleiða
hvort það skyldi nú ekki vera bara
kvöld en ekki morgunn, og þess
vegna hringt til að fá þetta staðfest.
Ekki taldi hún það eftir að hafa
hlaupið út í búðina, heldur var hin
ánægðasta og hló mikið að þessu
bæði þá og síðar.
Þetta atvik lýsir Millý vel, áhug-
inn á vinnunni, samviskusemin og
heiðarleikinn voru eiginleikar þess-
arar góðu konu.
Millý var 86 ára er hún lést á
heimili sínu í Rvík. Ég þakka henni
langt og ánægjulegt samstarf og
ég geymi góðar minningar frá liðn-
um áratugum og bið sál hennar
guðsblessunar.
Góð kona hefur kvatt.
Gestur Guðmundsson.
Lágmarks hrta- og viðhaldskostnaður • FuUkomin hljóðeirtangrun • Val á gólfefnum og innréttingum
Stórar svalir eða einkagarður • Sér inngangur í hverja íbúð • íbúðir afhentar fullbúnar
Þvottahús í íbúð <■ Skólar, leikskólar, félagsmiðstöðvar og verslanir í næsta nágrenni
Verðdæmi
Kaupverð 6.590.000
Húsbréf 70°/o 4.613.000,
Lán seljanda til 25 ára 1.477.000
Gr. við undirr. kaups. 500.000
Gr. byrði á mánuði 38.834
* Veitt gegn traustu fasteignaveði
Athugið! Húsbréfaafföll
lenda á seljanda en ekki þér
Sölumenn verða í Berjarima 36
í dag milli kl 13 og 15
5is
Ármannsfell hf.
Leggur grunn að góðri framtfð
Funahöfða 19 • Sími 577 3700
Ármannsfell kynnir nýjan byggingar-
stað í Tröllaborg 15-17, þar sem þegar
hefur verið hafist handa. Á þessum
frábæra útsýnisstað verða reist stærri
hús með 3ja - 4ra herbergja rúmgóðum
íbúðum með stórum barnaherbergjum
og sérlega stórum svölum. Húsin eru
með innbyggðum bílskýlum sem
íbúðakaupendur geta keypt með og
auðveldlega breytt í bílskúra.
Kynnið ykkur næsta áfanga Ármanns-
fells og skoðið teikningar á skrifstofu
félagsins að Funahöfða 19.
JdíaMod&mð SHdia fflamen d SkóJtafatd
JÓLAHLAÐBORÐ SKÚLA HANSEN, MATREIÐSLU- RIFJASTEIK, SÍLDARRÉTTI, LAX, NAUTATUNGU, REYKTAN ÁL, HANGIKET, OSTA " V|Ð SJÁUM
MCICTADÍ Á í V Al ARDM CD I Am/TII nonin nc ÍDnCTlcncTT, Allvcinirt, iiriTn. nn viinni wnín, H U M K J OT I Ð
fyjikmiijaitf
KJÖTHNNSU
JOLAHLAÐBORÐ SKULA HANSEN, MATREIÐSLU-
MEISTARA Á SKÓLABRÚ, ER LÖNGU ORÐIÐ
LANDSÞEKKT FYRIR GÆÐI OG GLÆSILEIKA, EN
HANN ER EINN AF FRUMKVÖÐLUM ÞEIRRA HÉR
Á LANDI. Á MEÐAL RÉTTA Á JÓLAHLAÐBORÐI
SKÚLA MÁ TELJA KALKÚN, SÆNSKA JÓLASKINKU,
RIFJASTEIK, SILDARRETTI, LAX, NAUTATUNGU, REYKTAN AL, HANGIKET, OSTA
OG ÁBÆTISRÉTTI, AUK FJÖLDA ANNARRA HEITRA OG KALDRA KRÁSA.
SKÚLI HANSEN OG STARFSLIÐ HANS BJÓÐA YKKUR VELKOMIN Á SKÓLABRÚ
Á AÐVENTUNNI. ÞAÐ FER VEL UM EINSTAKLINGA OG HÓPA í ÞESSU
GAMLA, GLÆSILEGA HUSI
í HJARTA BORGARINNAR.
Skólobrú
Vc’id:
3 húdegitiu k%. 1.950
á huiitdin &%. 2.850
BORÐAPANTANIR í SÍMA 5624455