Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 39
DAGBOK FRA ÞORSHOFN
Misjafnlega málglaðir útlendingar
LÍFIÐ á Þórshöfn er að vísu
aðallega fiskur en þó er nú
fleira hér, svo fremi menn séu
ekki á endalausum vöktum eða
rétt að fá sér blund til að jafna
sig eftir vinnu. Nýlega hvatti
leikfélagið menn til dáða því hér
er venjulega fært upp a.m.k. ein
leiksýning á ári. Lionsklúbbur-
inn starfar náttúrlega af krafti,
hér er lítið ITC-félag sem stend-
ur til að efla með meiri kynn-
ingu. Að ekki sé nú talað um
björgunarsveit og kannski eitt-
hvað fleira sem ég veit ekki um
enn.
Og þó hér séu innan við 400
íbúar er sitthvað fleira: Hafnar-
barinn er vinsæll samkomustað-
ur um helgar og stundum eru
þar uppákomur, tónlist og fleira
með pitsunni og bjórnum. Hár-
greiðslukonur gera sér tíðförult
hingað og klippa, lita og blása
hár þorpsbúa, karlakórar komu
tvo laugardaga í röð og þangað
streymdu allir sem vettlingi
gátu valdið eða réttara sagt
þeir sem voru ekki að vinna eða
hvíla sig. Svo er hér sundlaug,
lítið hótel og meira að segja
nýbúið að setja á laggirnar
heilsuræktarstöð með tækjum
og sauna og öðru góðmeti. Svo
það er sem sagt ekki bara fiskur
þótt hann sé vitanlega megin-
málið.
Eins og ég minntist á eru æði
margir útlendingar hér og sumir
hafa lagað sig að siðum og hátt-
um með undraskjótum hætti.
Aðrir halda sig út af fyrir sig
og hafa ekki nokkurn áhuga á
að setja sig inn í tungumálið
hvað þá blanda geði við heima-
menn. Þeir vilja þiggja vinnuna
en þar með búið.
Um daginn þegar við vorum
fimm kerlur og alltaf þær sömu
á vaktinni næturnar út vakti
athygli mína í pásunum að ein
daman sem mun vera frá Úkra-
ínu og hefur ekki verið hér lengi,
sat alltaf á öðrum stað en við
hinar. Hún talar ekki annað
tungumál en sitt eigið en samt
fannst okkur nú kannski
skemmtilegra að hún fengi sér
sæti hjá okkur og sæti ekki ein
Lífið snýst æði mikið
um fisk, skrifar Jó-
hanna Kristjónsdótt-
ir, stundum gefst þó
tóm til að huga að leik-
list, sundi og barnum.
úti í horni. En hún afþakkaði.
Brosti fjarrænt, sagði ekki orð
og veifaði boði okkar á bug.
Settist út í sitt horn og varð
ekki þaðan þokað.
Ég spurðist fyrir hjá heima-
mönnum um samskipti útlend-
inganna og þá kom einmitt þetta
upp úr dúrnum að sumir virðast
ekki kæra sig um annað en fá
að vinna baki brotnu og vera
svo bara í friði í sínu skoti. Aft-
ur á móti hjala útlendingarnir
sín á milli þegar fleiri eru saman
svo þeir eru sem betur fer ekki
mállausir þannig. Þetta á eink-
um við þá sem eru frá Austur-
Evrópulöndum, Færeyingarnir
eru til dæmis ljónhressir og einn
Serbi sem hefur verið hér um
hríð virðist falla prýðilega inn í
mannlífið á staðnum.
Auðvitað á þetta ekki við um
alla og ýmsir leggja sig í fram-
króka við að skilja og tala. Einn
Rússinn sem hefur verið hér æði
lengi hefur tileinkað sér mjög
sannfærandi framburð á orðun-
um „ég skil“ og notar þau óspart
og hlaut fyrir aðdáun og margir
undruðust hversu snöggur hann
væri að ná tökum á málinu.
En svo rann upp fyrir ýmsum
sem voru að segja honum til í
verkum að skilningurinn náði
eiginlega bara til þessara orða
og birtist ekki í framkvæmdum.
En hann heldur áfram að brosa
og gefa yfirlýsingar um að hann
skilji þetta allt út í hörgul.
Hér eru líka bandarískir menn
og kanadískir sem eru að stússa
við að stilla tæki og taka sýni
og fleira í kúfiskvinnslunni nýju.
Og öðru hveiju koma hingað
rússnesk skip til að taka síld og
bíða kannski nokkra daga með-
an verið er að hamast við að
fylla þau.
í frystihúsinu er reykherberg-
ið aðalsamkomustaðurinn og
þar er oft þröng á þingi í pásun-
um. Fyrirmæli frá „skúrkinum“
- sem er eldhússtýran - eru
límd á hurðina þar sem menn
eru hvattir til að ganga almenni-
lega um „ella hafið þið verra
af“. Ég hef ekki orðið vör við
að orð skúrksins væru tekin
nógu alvarlega en ég hef heldur
ekki orðið vör við aðgerðirnar
sem hótað er.
híÉnIamar
BÆJARHRAUNI 22. HAFNARFIRÐI,
SllVII 565 4511 FAX 565 3270. OPIÐ KL. 9 - 18.
Stórglæsileg sérhæð
Glæsil. 6-7 herb. 142 fm efri sérhæð m. ca 30 fm bílsk. miðsvæðis í Rvík.
Staðsett v. lokaða götu í ról. umhverfi. Mjög vel skipul. íb., björt og í topp-
standi. Eign fyrir vandláta. 45711.
Langamýri — Gbæ — 3ja herb.
Nýkomin í einkasölu sérl. vönduð ca 90 fm 3ja herb. endaíb. I nýl. litlu
fjölb. Sersmíðaðar innr. Parket. Stór suðurverönd. Sérgarður. Sérinngangur.
Ról. staðsetn. innst í botnlanga. Stutt í skóla. Áhv. ca 4,5 millj. Verð 9,2 millj.
46571.
Langamýri — Gbæ — 2ja herb.
Nýkomin í einkasölu glæsil. 2ja herb. íb. á þessum vinsæla stað. Góðar innr.
Parket. Eign í sérflokki. Áhv. 5,0 millj. Byggsj. rík. til 40 ára. Verð 7,4 millj.
46561.
Gullsmári — Kóp. — 3ja herb.
60 ára og eldri — frábært útsýni
Höfum fengið í einkasölu glæsil. íb. á 13. hæð í nýju glæsil. lyftuhúsi. Allur
frág. til fyrirmyndar. Innangengt í þjónustumiðstöð. Ib. er til afh. strax
fullb. án gólfefna. Fallegar innr. 2 rúmg. svefnherb. Mögul. á bílsk. Hagst.
verð 8,0 millj. 45837.
WICANDERS
GUMMIKORK
í metravís
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
í rúllum - þykktir 2.00 og 3.2 mm.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIK0RK róar gólfin niður!
PP
&co
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ARMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SIMI 553 8640 568 6100
BÚSETI
FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR TIL
ÚTHLUTUNAR í DESEMBER 1996
Aðeins félagsmenn innan eigna- og tekjumarka
geta sótt um þessar íbúðir:
Staður: Nr.íb. Herb.fj.: Nettó fm: Búseturéttur: Búsetugj.: Til afhend.:
Berjarimi 3,112 Reykjavík 101 2 66,1 1.116.118 kr. 33.047kr. Strax
Berjarimi 5,112 Reykjavík 102 2 64,8 1.095.750 kr. 32.431 kr. Samkomul.
Berjarimi 7,112 Reykjavík 101 2 64,8 1.094.956 kr. 32.431 kr. Jan. 97
Berjarimi 7,112 Reykjavík 201 2 67,47 1.138.537 kr. 33.703 kr. Fljótl.
Dvergholt 3, 220 Hafnarfirði 101 2 74,3 840.108 kr. 29.904 kr. Miðjan apríl 97
Garðhús 8,112 Reykjavík 302 3 79,7 1.454.300 kr. 30.347 kr.
Trönuhjalli 17, 200 Kópavogi 101 3 85,2 1.411.068 kr. 36.581 kr. Jan/feb. 97
Berjarimi 3,112 Reykjavík 302 3 78,27 1.315.265 kr. 38.845 kr. Fljótl.
Berjarimi 5, 112 Reykjavík 302 3 71,8 1.209.391 kr. 35.768 kr. Samkomul.
Frostafold 20,112 Reykjavík 406 4 88,1 1.053.523 kr. 41.453 kr. Samkomulag
Frostafold 20, 112 Reykjavík 406 4 88,1 1.053.523 kr. 41.453 kr Samkomulag
Miðholt 5, 220 Hafnarfirði 302 4 102,3 1.017.869 kr. 40.904 kr. Strax
Umsóknarfrestur er til 9. desember kl. 15.00. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu Búseta hsf., ásamt teikningum af íbúðunum.
Skila þarf inn með umsókn staðfestum skattframtölum s.l. þriggja ára,
ásamt fjölskylduvottorði.
íbúðirnar eru til sýnis á umsóknartímanum.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 11. desember kl. 10.00 í
fundarsal Hamragarða, Hávallagötu 24,101 Reykjavík.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síðan úr gildi.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Búseta, http://WWW.centrum.is./~buseti/
búseti
HamragorOum. Hávallagotu 24. 101 Reykjavík, sími S52 5788.
eru i...
símaskránni