Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
i DAG
MORGUNBLAÐIÐ
SLIM -LINE
buxur frá gardeur
QhmtVeuf. sSk
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680 Lau kl. 10 .
Styrkir úr Málræktarsjóði
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Málræktarsjóði.
Sjóðurinn var stofnaður árið 1991.
Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur hans:
a) að styrkja fjárhagslega nýyrða- og íðorðastarf í landinu,
b) að styrkja fjárhagslega starf orðanefnda sem vinna að
þýðingum á tæknimáli eða sérhæfðu máli,
c) að styrkja fjárhagslega útgáfu handbóka og leiðbeininga
um málnotkun,
d) að styrkja fjárhagslega útgáfu kennsluefnis í íslenskú,
e) að styrkja fjárhagslega útgáfu orðabóka,
f) að veita einstaklingum, samtökum og stofnunum
viðurkenningu fyrir málvöndun og málrækt,
g) að styrkja með fjárframlögum hvers konar framtak sem
verða má til þess að markmiðum Málræktarsjóðs verði náð.
Umsóknareyðublöð fást í Islenskri málstöð, Aragötu 9,
101 Reykjavík (sími 552 8530), og skal umsóknum skilað
þangað fyrir 1. febrúar 1997.
d
MÁLRÆ.KTARSJÓÐVR
Kvenkuldaskór
Verð 5.900 til 7.900
fyrir
steinsteypu.
Léttir
meöfærilegir
viðhaidslitlir.
Ávallt fyrirliggjandl.
Góö varahlutaþjónusta.
Þ. ÞORGRÍMSSQN &C0
Armúla 29, sími 38640
FYRIRLIS6JANDI: GÖLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - D/ELUR
STEYPUSAGIR - HRJERIVÉLAR - SAGARBLÖB - VönduO framleiðsla.
skák
Umsjðn Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur
STAÐAN kom upp í Evr-
ópukeppni taflfélaga sem
fram fór í Búdapest um
síðustu helgi. Ungi ung-
verski stórmeistarinn
Zoltan Almasi (2.655)
Honved Búdapest, hafði
hvítt og átti leik, en gamla
kempan Viktor Kortsnoj
(2.635), sem tefldi fyrir
Beer—Sheva frá ísrael, var
með svart.
23. Rh6+! - gxh6 24.
Dxh6 — Bg6 25. Bxg6 —
Ha7 (25. - hxg6 26. He6!
var vonlaust) 26. Bd3 —
Hg7 27. f5 (Hvítur hefur
unnið manninn til baka og
á gjörunnið tafl) 27. —
Rd7 28. De6+ - Hf7 29.
Bh6 - Hc8 30. f6 - Rf8
31. Dg4+ - Kh8 32. He7
— Hc7 33. Dg7+! og nú
loks gafst Kortsnoj upp því
mátið er óumflýjanlegt.
Sveit frá Kazan í Rúss-
landi sigraði. Hún var
skipuð stórmeisturunum
Drejev, Dautov, Kharlov,
Bologan, Ibragimov og
Tseshkovsky. Kazan sigr-
aði Vukovar frá Króatíu í
úrslitum 3 V2—2 '/2. Sveit
Novosíbirsk frá Rússlandi
varð í þriðja sæti.
Það hjálpaði sigur-
vegurunum að í fjórðungs-
úrslitunum mættu and-
stæðingar þeirra frá ísrael
ekki til leiks. Ástæðan var
sú að ísraelsmennirnir
neituðu að tefla á Sabbat-
inum, helgidegi gyðinga
og mótshaldararnir voru
ófáanlegir til að færa dag-
skrána til um nokkra
klukkutíma.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Notið
pappírshníf
KONA hringdi til Velvak-
anda og sagði að sér blöskr-
aði að sjá hvemig sjón-
varpsfólk opnar umslög.
Það kemur fyrir, þegar ver-
ið er að draga úr getraun-
um eða öðru þvílíku, að
umsjónarmenn rífa umslög-
in opin með fíngrunum.
Þetta er ótækt, flnnst
henni, og segir að nota eigi
pappírshníf til verksins.
Svar til Gyðu
JÓNAS Þór kjötverkandi
hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja um athuga-
semdir Gyðu Jóhannsdótt-
ur í Velvakanda um flokk-
un á nautakjöti:
„Það sem Gyða segir
um flokkun á nautakjöti
er að hluta til rétt. Menn
eru að sjálfsögðu misvand-
ir í að halda kjötinu að-
skildu og merkja á réttan
máta. Þar er þó ekki við
framleiðendur að sakast,
því það er til nokkuð sem
heitir opinbert mat og
kjötið er metið samkvæmt
því. Það er því smásalinn
sjálfur sem er sökudólgur
í þessu máli.
Það sem mig langar að
hnykkja á er, að auðvitað
eiga þeir sem selja þessa
vöru að vanda sig betur.
Það er ekki bara flokkunin
sem skiptir máli, heldur
er þetta líka spurning um
verð, og skiptir það
kannski mestu máli.
Ég vil hins vegar segja
við frú Gyðu Jóhannsdótt-
ur, að hafi hún keypt
nautakjöt hjá mér sem hún
hefur ekki verið ánægð
með, þá þykir mér það leitt
og bið ég hana að hafa
samband og gefa mér
tækifæri á að leiðrétta
mistökin.
Það er bara þannig að
þó að menn vilji standa sig
í vöruvöndun, þá getur
fólki alltaf orðið á mistök.
Þau ber að leiðrétta og það
gerir Jónas Þór.“
Leitað að konu
HERBORG biður konuna
sem keyrði hana frá Bón-
usversluninni í Skeifunni
niður í Skipholt fimmtu-
daginn 28. nóvember að
gera svo vel að hafa sam-
band í síma 551-8614.
Með morgunkaffinu
m
HVORT enginn hefur lit-
ið mig hýru auga? Spyrðu
manninn þinn.
Ljósmyndarinn Lára Long
BRÚÐKAUP. Gefln voru
saman 27. júlí í Þingvalla-
kirkju af sr. Hönnu Maríu
Pétursdóttur Þórunn Mar-
grét Gunnarsdóttir og
Olafur Órn Ólafsson. Þau
eru búsett í Bolder, Colorado.
Víkveiji skrifar...
AÐVENTAN (jólafastan) hefst
í dag, 1. desember, fjórða
sunnudag fyrir jóladag. Hún
spannar fjórar síðustu vikurnar
fyrir jólin.
Fyrsti dagur hins tólfta mánað-
ar er jafnframt fullveldisdagur ís-
lenzku þjóðarinnar, hvorki meira
né minna. Þann dag árið 1918 var
ísland viðurkennt frjálst og full-
valda ríki.
Með þessum degi hefst og nýtt
kirkjuár, nýtt starfsár kirkjunnar.
Dagurinn rís því á ýmsan hátt upp
úr öðrum dögum ársins.
Flest heimili hafa þegar hafið
undirbúning jóianna. Að ekki sé
nú talað um kaupahéðna og sölu-
fólk hvers konar. Framundan er
sjálft ,jólaatið“. Okkur hættir
stundum til að býsnast yfir amstri
þess og fyrirferð. Þar höfum við
við okkur sjálf að sakast. Hver og
einn hannar sinn eigin jólaundir-
búning - sitt eigið jólahald. Veld-
ur hver á heidur.
Það er af hinu góða að gefa
jólagjafir, gleðja sína nánustu, en
hóf skal ráða ferð. Gjöfin eina -
tilefni jólanna - var gefin fyrir
bráðum tvö þúsund árum. Kjarni
málsins er að meðtaka hana í hug
og hjarta á hveijum jólum - sem
og endranær.
XXX
A
ISLENDINGAR og Japanir státa
af iengri meðalævi en aðrar
þjóðir. í hittiðfyrra töldust íslend-
ingar, 67 ára og eldri, rúmlega
26 þúsund. Hlutfall fullorðins fólks
í íbúatölunni fer og ört vaxandi.
Víkveiji hefur orðið var við vax-
andi umræðu í hópi þess um mögu-
leika á þverpólitísku framboði til
löggjafarsamkomunnar. Tíma-
bært sé að snúast til varnar gegn
spjótalögum hins opinbera. Síðan
er ýjað að tvísköttun iífeyris (sem
til skamms tíma var nánast eina
peningalega sparnaðarformið í
samfélaginu), tekjutengingu ýmiss
konar bóta og skert aðgengi að
ýmsum þáttum almannatrygginga
og heilbrigðisþjónustu.
Viðbrögð þingheims eru for-
vitnileg. Ekki alis fyrir löngu bar
Svavar Gestsson alþingismaður
fram fyrirspurn tit heilbrigðisráð-
herra um skerðingu bóta almanna-
trygginga. Ásta R. Jóhannesdóttir
alþingismaður bar fram fyrirspum
til sama ráðherra um skerðingu
uppbótar vegna umönnunar- og
lyíjakostnaðar til lífeyrisþega.
Guðmundur Hallvarðsson alþing-
ismaður flutti tillögu til þingsá-
lyktunar um umboðsmann aldr-
aðra, sem gæta á hagsmuna og
réttinda fullorðins fólks.
Bragð er að þá börnin fínna,
segir gamalt máltæki.
XXX
VÍKVERJI hefur fyrir satt að
erlendar lánastofnanir
byggi útlán sín nær eingöngu á
faglegu mati á greiðslugetu lán-
þega. Hérlendis krefjast lána-
stofnanir á hinn bóginn í ríkari
mæli ábyrgðarmanna, að sögn,
sem oft eru vandamenn lánþega.
Þetta hefur því miður leitt til þess
að fjölmargt eldra fólk, sem léð
hefur nöfn sín í þessum tilgangi,
hefur misst íbúðir sínar og annan
sparnað til efri ára.
Fyrir stuttu bar Ingibjörg Sig-
mundsdóttir fram á Alþingi fyrir-
spurnir til ráðherra bankamála,
efnislega eitthvað á þessa leið:
1) Hvað eiga ríkisbankarnir
margar íbúðir, sem þeir hafa leyst
til sín vegna gjaldþrota viðskipta-
manna sinna? 2) Hvað hafa þeir
leyst til sín margar íbúðir á ári
hveiju síðan 1991? 3) Hvað teija
forráðamenn ríkisbanka líklegt
að margar íbúðir iendi á nauðung-
aruppboði vegna viðkvæmrar
fjárhagsstöðu viðskiptamanna?
Þessar spurningar skarast trú-
lega við framansagt. Fróðlegt
væri að fá að vita - og máski er
það kjörið ritgerðarefni fyrir há-
skólanema í félags- eða viðskipta-
fræðum - hvað margir aldraðir
hafi leitað til félagsmálastofnana
á Stór-Reykjavíkursvæðinu eftir
að hafa misst eigið húsnæði vegna
ábyrgða af þessu tagi. Er ekki
nauðsynlegt að iánakerfið, eða
löggjafinn, setji faglegri og
manneskjulegri reglur að þessu
leyti?